Þjóðviljinn - 06.03.1962, Blaðsíða 5
Strauss sakaður um
BERLÍN — í vesturþýzkum blöðum koma nú fram stöð-
ugt 'háværari kröfur um, að sambandsþingið í Bonn skipi
nefnd til að rannsaka þær þungu ásakanir, sem settar
eru fram gegn Franz-Josef Strauss, hermálaráðherra
Vestur-Þýzkalands. Önnur þingnefnd er önnum kafin í
Ðusseldorf við að afhjúpa hneykslismál Kilbs, fyrrver-
andi einkaritara Adenauers, sem þáði stórfelldar mútur
af þýzkum auðfyrirtækjum.
Það er fyrst og fremst hið víð-
kunna tímarit „Der Spiegel“ í
Hamborg, sem hefur birt fjölda
af skjölum, sem styðja ákærurn-
ar gegn Strauss, en mörg fleiri
blöð taka málið upp. Sósíal-
demókratablaðið Frankfurter
Rundschau skrifar um málið:
— „Der Spiegel hefur ekki
haldið því fram, að Strauss hafi
viljað auðgast með því að nota
sér embættisaðstöðu eða van-
virða ráðherraeið sinn(. en tíma-
ritið hefur birt, skjöl, sem sanna,
að flokksfélagar Strauss tala um
að hann hafi gert það. Sérhver
maður hefur tækifæri til að
hr.einsa sig af röngum ákærum
með aðstoð dómstóla. Ráðherra
ber skylda til að gera það“.
Síðan leggur blaðið til að þing-
ið skipi rannsóknarnefnd, og bæt-
ír við: „Ennþá er þetta ekki
orðið stórhneyksli fyrir Strauss,
en það verður það áreiðanlega,
ef ekkert gerist“.
Hlutabréf handa Strauss
Einn höfuðaðilinn, sem flæktur
ér í hneykslismálið með Strauss
er maður að nafni Johann Evan-
gelist Kapfinger, þúbróðir her-
málaráðherrans og ávarpaður af
honum með orðunum „Kæri
Hans“. Kapfinger stofnaði hluta-
félagið „Fibag“ ásamt tveim öðr-
um mönnum, Lothar Schloss og
Karl Willy Braun. Sá fyrri kall-
áði sig arkitekt, en sá síðari
byggingarverkfræðing. Hvorugur
hafði slík réttindi,. Þetta fyrir-
tæki hefur það að markmiði að
byggja íbúðir fyrir hernámslið
Bandaríkjamanna í Vestur-
Þýzkalandi. Var um að ræða
smiði íbúða fyrir 300 milljónir
marka. Hreinn ágóði af verkinu
er áætlaður 90 milljónir marka á
fíu árum.
í yfirlýsingum, sem þeir
Schloss og Braun hafa gefið und-
ir eið segja þeir, að Kapfinger
hafi sagt að þetta væri öruggi
gróðafyrirtæki, án nokkurrar á-
hættu. Kapfinger hefði annars
kvartað yfir því að hann yrði að
láta Strauss hermálaráðherra fá
helminginn af þeim 25% hluta-
bréfum sem hann átti, þar sem
óhugsandi væri að fá verkið án
hans hjálpar. Áður hafði Braun
skýrt frá því, að Kapfinger hefði
krafizt 40% hlutabréfanna fyrir
sig og Strausíj en síðar hefði
hann látið sér nægja 25%.
Það sem Kapfinger átti við
með því að segia að ekki yæri
hægt að fá verkið í hendur án
hjálpar Strauss, skýrist með
su.mum þeim skjölum sem Spieg-
el birti-r. Eitt af þessvjm skjölum
er bréf frá Strauss til Mr. Gates,
hermálaráðherra Bandarikjanna.
í bréfinu. mælir Strauss með arki-
tektúrfyrirtæki Schloss til að
annast teikingar á öllum íbúðun-
um. í bréfi frá Strauss til vinar
síns Kapfingers, sem sent var
ásamt afriti af bréfinu til Gates,
gefur hermálaráðherrann eftirfar-
andi ráð:
— Ég held að við ættum ekki
að þrýsta of mikið á hjá Ame-
ríkönu.nu.m, vegna þess að sam-
kvæmt reynslunni gæti. það ieitt
til rangrar niðurstöðu og nei-
kvæðra viðbragða.
Upp komast svik
Það leið ekki á löngu, 'þar til
uppvíst varð um þessi bréfaskipti.
Sósíaldemókratar lögðu skriflegar
spurningar fyrir Strauss í þing-
inu s.l. sumar. Strauss gaf skrif-
legt svar. Um það skrifar
Spiegel:
Ó Hið virðulega kjörna þing
þjóðarinnar varð að draga eftir-
Franz-Josef Strauss
farandi ályktun af þessum spum-
ingum og svörum: Varnarmála-
ráðherra landsins leggur ein-
dregið fil við starfsbróður sinn
í Bandaríkjunum að gera samn-
ing um 300 milljón marka bygg-
ingarframkvæmdir við arkitekt-
úrstúdent, sem ekkert hafði á bak
við sig nema skrifborðsstólinn,
— sem hann hefur nú ekki leng-
ur. í bréfi ráðherrans segir að
ráðuneytið hafi „kannað tilboð
arkitektúrfyrirtækisins Lothar
Framhald á 10. síðr
Indversklr kommúnisfar
sipryeprar í Kerala
Kommúnistar og aðrir stjórn-
arandstöðuflokkar í indlandi hafa
unnið talsvort á og í sumum
héruðum hefur Þjóðþingsflokkur
Nehrús forsætisráðherra misst
völdin.
Kommúnistar yerða að öllum
líkindum stærsti stjórnarand-
stöðufilokkurinn. Þeir hafa nú
hlotið 15 þingsæti.
I kosningunum til fylkisþing-
anna hefur Þjóðþingsflokkurinn
hingað til hlotið meirihluta í 3
af 13 fylkjum.
1 suður-indverska fylkinu Ker-
ala hafa kommúnistar og stuðn-
ingsflokkar þeirra aukið at-
kvæðafjölda sinn upp í 54,4%
en við síðustu kosningar fengu
þeir 43,3%. Aftur á móti hefur
atkvæðafjöldi Þjóðþingsflokksins
og bandamanna hans rýrnað úr
48,8% í 44,4%.
í Madra-s, Punjab, Bombay,
Guyerat hefur Þjóðþingsflokkur-
inn þegar tryggt sér völd.
I öðrum héruðum hefur hann
. látið nokkuð undan síga fyrir
j öðrum flokkum, m.a. kommún-
I istum sem hlotið hafa .80 þing-
sæti.
i var til
sex m
Maður nokkur í Englandi tók
upp rangt nafn, klæddi sig tor-
kennilega, breytti rithönd sinni
og fékk sér síðan vinnu við
Barkers Stare í Kensiington. Eitt
sinn er hann var að vinnu sinni
sem aðstoðargjaldkeri fór hann
inn í peningaskáp og stal 26.000
enskum pundum. Maður þessi
hefur nú verið dæmdur í sex ára
fangelsi.
Eftir stuldinn flúði hann og
tók aftur upp fyrra nafn og út-
lit. Hann neitaði að hafa nokk-
urn tíma unnið við fyrirtækið.
Þegar dómarinn kvað upp dóm-
inn sagði hann: Þjófnaður þessi
krafðist skilnings á mannlegu
eðli, hugkvæmni, framsýni og
hugarstyrks. Það er sorglegt að
maður gæddur þessum hæfileik-
um skuli ekki hafa notað þá til
annars betra. Það má vera að
þetta sé samkvæmt því þjóðfé-
lagi sem við búum við.
— Ég tek til greina hve fín-
,lega þér framkvæmduð þennan
sérstæða ,glæp og ég reikna yður
það til málsbóta. Þér sældust
eftir miklu og þér hafið vandlega
metið og vegjð áhættuna.
Polycslcr
EFNI SEM HÆGT ER
AÐ TREYSTA.
VERÐ Á BUXUM:
Karlmannaföt
3 NÝ SNIB
MÍLANÓ og NAP0LI
fyrirliggjandi.
RÓ.MA, nýjasta línan í karl-
mannafatnaði
kemur bráðléga.
Kr. 723.00
— 857.00
— 985.00
MARGIR LITIR.
NÝJUSTU SNIÐ.
Þriðjudagur '6. marz 1962 — Þ>JÖÐVILJINN — (^