Þjóðviljinn - 01.11.1962, Qupperneq 3
Flmmtudagur 1. nóvember 1952
ÞJÖÐVILJINN
SÉÐA 3
Viðrœður Ö Þants og Casfrc
Samkomulag um að SÞvinniað
framkvæmd á lausn deilunnar
HAVANA og NEW YORK 31/10 — Þeir Ú Þant,
framkvæmdastjóri SÞ, og Fidel Castro, forsætis-
ráðherra Kúbu, héldu í dag áfram viðræðum sín-
um um lausn Kúbudeilunnar og hvern hlut SÞ
skuli eiga að henni. í aðalstöðvum SÞ í New York
er sagt að mjög vel hafi farið á með þeim Castro
og Þant og hafi orðið almennt samkomulag um
að SÞ beri að vinna að framkvæmd á lausn deil-
unnar.
Einkennisklæddir lögreglumenn í skrifstofum Spiegels í Hamborg.
Spiegel - málið
Dómsmálaráiherra
Adenauers fer frá
BONN 31/10 — Dómsmálaráð-
herra Vestur-Þýzkalands, dr.
Wolfgang Stammberger, hefur
sagt af sér embætti og enda þótt
ekkert hafi verið tilkynnt um
tilcfni þess er talið víst að af-
si gn hans standi í sambandi við
handtöku ritstjóra og útgefanda
vikublaðsins Der Spicgel á laug-
ardaginn var.
Stammberger dómsmálaráðherra
niun hafa sagt af sér embætti
sökum þess að hann var ekkert
látinn vita um handtökur rit-
stjóranna fyrr en að þeim lokn-
um.
Deildarstjóri sá í dómsmála-
ráðuneytinu sem fékk boð um að
har.dtakan stæði fyrir dyrum er
úr flokki Adenauers, Kristilega
demókrataflokknum, og taldi ekki
ástæðu til að láta þau ganga til
yfirboðara síns, en Stammberger
er úr Frjálsa demókrataflokkn-
um.
Fellur Bonnstjórnin?
Haldi Stammberger fast við af-
scign sína, kann svo að fara að
har.dtaka þeirra Spiegel-manna
verði Bonnstjóminni nokkuð dýr,
þvi að vel má vera að hún verði
sá dropi sem fyllir mælinn í
hinni erfiðu sambúð stjómar-
flokkanna sem oft hefur legið
við að slitnaði upp úr. Án sam-
starfs við Frjálsa demókrata hef-
ur Adenauer ekki meirihluta á
þingi.
Laganefnd vesturþýzka þings-
Greinsrgerð L.R.
Framhald af 2. síðu
Að sjálfsögðu getur Lækna-
félag Reykjavíkur ekki tekið
ábyrgð á því að unnt verði að
fá aftur hæfa lækna til allra
þeirra starfa. er unnin hafa
verið af þeim læknum er nú
hafa sagt upp, ef þeir hverfa
frá störfum sínum. Getur slíkt
að sjálfsögðu valdið nokkrum
erfiðleikum, því mjög oft er
um kerfisbundið samstarf
lækna að ræða, sem ekki kem-
ur að íullum notum, ef einn
eða fleiri hlekki vantar í þá
keðju. Er þetta einkum þýðing-
armikið. þegar leysa skal hin
vandasömustu verkefni í grein-
ingu sjúkdóma og meðferð
þeirra.
Stjórn L.R.
ins mun koma saman til að fjalla
um handtökurnar, Það voru full-
trúar stjórnarandstöðunnar í
nefndinni sem kröfðust þess að
hjin ræddi málið, en handtök-
umar hafa verið kærðar fyrir
stjórnlagadómstólnum í Karls-
ruhe sem brot á ákvæðum stjóm-
arskrárinnar um prentfrelsi.
Enn elnn handtekinn
Enn einn blaðamaður Der
Spiegel var handtekinn í kvöld,
Hans Schmelz. Hann gaf sig fram
við lögregluna í Bad Godesberg,
eítir að hafa snúið heim frá
Austurríki, þar sem hann hefur
dvalizt. Hinir þrír sem sátu fyrir
í fangelsi eru ritstjóramir Claus
Jacobi og Conrad Ahlers og út-
gefandinn Rudolf Augstein.
Schmelz hefur unnið á Bonn-
skrifstofu blaðsins. .
öll þau atriði sem Ú Þant
minntist á í bréfi sínu til Castros
voru rædd á fundi þeirra í dag.
Búizt er við að Ú Þant muni
halda aftur til New York á morg-
un, en a. m. k. tíu af þeim átján
ráðunautum sem með honum
voru verða eftir í Havana og
munu þeir halda áfram viðræð-
um um einstök atriði við full-
trúa Kúbustjórnar.
BRUSSEL 31/10 — Vaxandi lík-
ur eru taldar fyrir því, að end-
ar nái saman í samningaviðræð-
um Breta við fulltrúa Efnahags-
bandalagsins um stefnuna í land-
búnaðarmálum.
Mikojan til Havana
Anastas Mikojan, áðstoðarfor-
sætisráðhema Sovétríkjanna, flýg-
ur til Havana í fyrramáHð og er
væntanlegur til New York, þar
sem hann mun staldra við, á
fimmtudagskvöldið. Hann heldur
aftur af stað á föstudag. Búizt
er við að hann muni ræða við
Kúsnetsoff, aðstoðarutanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, sem kom-
inn er til New York að ræða þar
um lausn Kúbudeilunnar við full-
trúa Bandaríkjanna, Kúbu og
SÞ.
Mikojan heimsótti Kúbu fyrst-
ur sovézkra ráðamanna og kom talsins.
þá við á Islandi. Hann mun
flytja Castro boðskap frá sovét-
stjórninni.
hjákvæmileg væru til að tryggja
öryggi Kúbu.
Einn af fréttaskýrendum blaðs-
Þingkosningar
ins, N. Poljanoff, sagði í grein
í blaðinu að Sovétríkin styddu
yfirlýsingu Fidels Castro á sunnu-
daginn, þar sem hann taldi upp
þau skilyrði sem fullnægja yrði,
ef Kúbumenn ættu að geta verið
óhultir fyrir árás, en eitt þéirra
og það mikilvægasta var að
Bandaríkjamenn færu frá Guant-
anamo.
Hafnbannið aftur sett á?
Enn er ekki vitað hvort Banda-
ríkjastjóm mun aftur setja á
hafnbann sitt á Kúbu, þegar við-
ræðum Ú Þants og Castro er
lokið, en það er þó talið ólík-
legt. Hins vegar er sennilegt að
Eandaríkjamenn hefji aftur
njósnaflug sitt yfir Kúbu ein-
hvem næstu daga.
LÚSAKA, N-Ródesíu 31/10 —
Búið er að telja atkvæði í rúm-
lega helming kjördæma í þing-
kosningunum í Norður-Ródesíu.
Flokkur Sir Roy Welensky hefur
sigrað í öllum kjördæmunum
tólf, þar sem Evrópumenn em í
meirihluta, og flokkur Kenneth
Kaúnda hefur fengið níu þing-
menn kjöma á svæðum, þar sem
Afríkumenn eru í meirihluta.
Kosningamar munu segja til
um, hvem íhlutunarrétt hinir
hörundsdökku íbúar fá í stjórn
landsins, en þeir telja tvær og
hálfa milljón, en íbúar af evr-
ópsku kyni eru aðeins 75:800
Nýtt bandarískt gervitungl
Anna auðveldar
gerð réttra korta
NEWYORK 31/10— Nýju gervi-
tungli var skotið á loft frá
Bandaríkjunum í morgun og ber
það heitið Anna. Þessu nýja
tungli er ætlað að auðvelda
landmælingar og gerð nákvæm-
ari landakorta en hingað tií hafa
verið til.
Þetta nýja gervitungl Banda-
ríkjamanna er 160 kí!ó og braut
þess mun iiggja allt upp í 1200
km. frá jörðu Umferðartíminn
er 108 mínútur.
í gervitunglinu er mikill og
flókinn útbúnaður, allskonar
mæli. og senditæki. en einnig
mun það með vissum millibilum
gefa frá sér Ijósmerki sem ljós-
1 í a1
íiori
um á jörðu niori og þessi ljós-
merki munu auðvelda vísinda-
mönnum útreikninga á vega-
lengdum og lögun jarðar með
nákvæmni, sem áður hefur ekki
þekkzt. Vísindamönnum í mörg-
um löndum hefur verið boðið að
taka þátt í samstarfi um þessar
mælingar og sovézkir visinda-
menn munu einnig fá slíkt boð.
Ljósmerkin frá „Önnu“ ættu
að sjást i sjónauka frá jörð-
inni. en ekki verður byrjað að
senda þau fyrr en eftir þrjá
daga. Ljósmagnið er nálægt 10
milljón kertum eða svipað og
sterkur geisli frá vita.
Landamæradeila Kína og Indlands
Bandaríkjamcnn fari frá Kúbu
Málgagn sovétstjómarinnar Is-
vestía sagði í dag að brottför
Bandaríkjamanna frá flotastöð
þeirra í Guantanamo á Kúbu
væri eitt þeirra skilyrða sem ó-
Grikkir formiega
teknir í E6E
BRUSSEL 31/10 — Fyrsti samn-
ingurinn sem Efnahagsbandalag
Evrópu hefur gert við nokkurt
ríki um aukaaðild að bandalag-
inu tók gildi í dag, og er Grikk-
land nú orðið aðili að því.
í samningnum við Grikkland
er gert ráð fyrir því að Grikk-
land fái fulla aðild að banda-
laginu- þegax fram í sækir.
Menon vikið frá,Nehru
siálfur Iandvarnaráðherra
NÝJU DELHI 31/10 — Nehru, forsætisráöherra Ind-
lands, hefur vikið Krishna Menon úr embætti landvarna-
ráöherra og tekiö sjálfur viö því. Nehru verður utan-
ríkisráðherra eftir sem áöur, en Menon hefur nú verið
skipaöur ráöherra fyrir hergagnaframleiösluna.
Ihaldsblöð £ Indlandi og hægri-
flokkarnir hafa lengi haft illan
bifur á Menon, sem talinn héfur
verið vera of langt til vinstri
SAS og PAN AM vilja hafa
sömu fargjöld og Loftleiðir
OSLÓ 31/10 — Svo viröist sem íslenzka flugfélagið Loft- i ráða, því að hætt er við, að far-
leiöir sé í þann veginn aö kollvarpa verölagsgrundvelli I .Vlð s1oru.,1am.er'
. ... , tT .. ' ... ... . „.cl'sku flugfelogin yrðu felaginu
fargjalda hja hinum storu flugfelogum uti í heimi. SAS háifu erfiðari en samkeppnin við
hefur fengið 45 daga umhugsunarfrest. Ef skandínav-' Loftieiðir
iska flugfélagið heldur fast við þá kröfu sína að lækka
fargjöld yfir Atlanzhaf til jafns við Loftleiöir, mun öllum
flugfélögum heimilt að ákveða ný fargjöld.
Á þingi Alþjóðasambands flug-
félaga, IATA, urðu miklar um-
ræður um fargjöld á leiðinni yf-
ir Atlanzhaf og hið lága verð
Loftleiða. sem ekki er meðlim-
ur í sambandinu. SAS, skandín-
avíska flugfél.samsteypan og
bandaríska flugfélagið Pan
Ameriean sette fram þá kröfu,
að þeim yrði leyft að lækka far-
gjöld á leiðinni jafns vi<5
Loftleiðir. þegar notaðar væru
skrúfuvélar.
Þingið féllst ekki á þessa
kröfu, og neitaði þá SAS að und-
irrita fargjaldasamninginn nema
með fyrirvara. Ef SAS fellur
ekki frá þessum fyrirvara innan
45 daga, gilda ekki lengur nein-
ir samningar um fargjöld á flug-
leiðinni milli Evrópu og Arner-
iku. SAS á því úr vöndu að
! Talsmaður SAS lét að því
Hggja í gær, að Loftleiðir hefðu
stóraukið starfsemi sína sein-
ustu árin á kostnað SAS, þar
sem íslenzka félagið flytti nær
eingöngu farþega til og frá Norð-
urlöndum. Lagði hann sérstaka
áherzlu á, að einmitt þetta Atl-
anzhafsflug væri hin fjárhags-
legi burðarás í starfsemi félags-
ins.
f fyrr.adag hófust viðræður
milli fulltrúa íslenzku og banda-
rísku ríkisstjórnarina trm endux-
nýjun á loftferðasamningi milli
ríkjamflE,
og of fús til samninga við Kín-
verja. Hann hefur sætt mjög
harðri gagnrýni af hálfu þessara
aðila að undanfömu og honum
hefúr verið kennt um hversu
illa indversku hersveitunum hef-
ur gengið í bardögunum við Kín-
verja á landamærunum síðustu
vikur.
Þessi gagnrýni hefur einnig
komið upp í flokki þeirra Nehms
og Menons, Kongressflokknum,
og segir blaðið Hindustan Times
að flestir þingmenn flokksins hafi
skorað á Nehru að víkja Menon
úr embætti landvamaráðherra.
Nehm hefur jafnan haldið vernd-
arhendi yfir Menon og hann hef-
ur af mörgum verið talinn arf-
taki Nehms.
Indverjar gera árás
Indverska landvamaráðuneyt-
ið tilkynnti í dag að indverskar
bersveitir hefðu í gær ráðizt á
stöðvar Kínverja við Jang £ Nefa-
héraði. Þetta er á austurvígstöðv-
unum. Á vesturvígstöðvunum, í
Ladakhéraði, er sagt að engin
breyting hafi orðið á vígstöð-
urni.
Nkrumah varar við vopna-
fiutningum
1 Accra, höfuðborg Ghana, hef-
ur verið skýrt frá því að
Nkrumah, forseti landsins hafi
sent Macmillan, forsætisráðherra
Breta, orðsendingu og í henni
varað brezku stjómina við
vopnasendingum til Indlands.
Hann segist vera mjög áhyggju-
fullur út af þeirri yfii-lýsingu
brezku stjórnarinnar að hún sé
fús til að veita Indverjum allan
hugsanlegan stuðning í viðuredgn
þeirra við Kinverja.
Nkmmah er sagður hafa látið
þé skoðun í Ijós í boðskapnum
til Macmillans að friðnum væri
bezt borgið með því að allir forð-
uðust að gera nokkuð það sem
gæti aukið ó viðsjómar. Nkrum-
ah segist sjálfur hafa sett sig í
samband bæði við Sjú Enlæ, for-
sætisráðherra Kína, og Nehm í
því skyni að reyna að finna
grundvöll að samningum um frið-
samlega lausn deilunnar, sem
báðir aðilar gætu við unað.
Krústjoff
býður
mólamiðlun
NÝJU DELHI 31/10 — Haft
er eftir góðum lieimildum
í höfuðborg Indlands að
Krústjoff, forsætisráðherra
Sovétrikjanna, hafi scnt
Nehru bréf þar sem hann
lofar að beita öllum áhrif-
um sínum til að fá enda
bundinn á landamæradeilu
Indverja og Kínverja. Bréf-
ið er svar við orðsendingu
frá Nehru.
\.
i