Þjóðviljinn - 01.11.1962, Síða 4
4 SÍÐA
b ifíSmnnr. tttvtm
Fiimmtudagur 1. nóvember 1962
★ Á móti í Tasjkent í Sov-
étríkjunum náðist góður á-
rangrur um helgina. Þrí-
stökk: 1) Kreer 16,34 m,
2) Michailov 16,23, 3) Alja-
bjev 16,21, 4) Kravstjenko
16,17, 5) Zolotarjev 16,16,
6) Ziotov 16,12.
Á sama móti stökk Bol-
chof 2,13 m. í hástökki.
Anisimov hljóp 200 m.
grindahlaup á 23,0 sek.
Lothar Milde frá Aust-
ur-Þýzkalandi hefur stöð-
ugt verið að bæta þýzka
metið í kringlukasti þetta
árið. Á sunnudaginn bætti
hann metið enn í keppni í
Leipzig. Hann kastaði 58,32
metra.
Kanada virðist hafa eign-
azt góðan stangarstökkvara.
Stemberg, sem stundar nám
í USA, stökk 4,78 m í Van-
couver.
Þá stökk Peter Kaufner,
Austur-Þýzkalandi, 4,67 í
stangarstökki á móti í
Leipzig um síðustu helgi.
Pólar Cup
ámorgun
Ekkert varð úr landsleik ís-
lendinga og Skota í körfuknatt-
leik, sem fara átti fram sl.
mánudag. Flugvélinni frá Rvík
seinkaði, og íslenzku keppend-
umir komust ckki til Glasgow
fyrr en alllöngu eftir að leikur-
Inn átti að hefjast. Eftir frétt-
um að dæmá virðist þessum
Iandsleik hafa verið frestað til
9. nóv., en þá verður íslenzka
landsliðið á heimleið frá
Stokkhólmi.
Annað kvöld hefst Polar-
Cup-keppnin í Stokkhólmi, og
leika íslendingar þá við Svía. í
liði Svíþjóðar eru þessir leik-
menn: K. Rannelid, P. Stjem-
berg, A. Tömblom, B. Widén,
L. Dallöf, T. Langemar, ö.
Svidén, M. Jumala, H. Alberts-
son, L. Andersson, og fyrirlið-
inn J. Reneslacis.
„Vandræðabarnið“
Einn helzti kappinn í liði
Svía er H. Albertsáon. Hann
hefur verið við nám í Banda-
ríkjunum í allmörg ár og kom-
izt í hóp frémstu leikmanna. en :
hann þykir leika mjög harka-
lega. M.a. hafa Bandaríkja-
menn útnefnt hann í landslið
sitt gegn liði Sovétríkjanna'
Albertsison er yfir 2 metra á
hæð. Hann er einnig kunnur
hástökkvari. cg hefur stokkið
2.10 m. Undanfarið hefuf hanr
ekki getað keppt vegnr
meiðsla, en talið er þó líkief'* 1
að hann leiki annað kvöld.
Frægðarljómi
Real Madrid
er að dofna
Það er farið að halla undan fæti fyrir Real
Madrid, sem flestir hafa verið sammála um að
kalla „bezta knattspyrnulið heims“ undanfarin
ár. Keppnisferill liðsins í sumar sýnir að hetj-
urnar eru orðnar þreyttar. Þeir töpuðu fyrir
Benfica, Lissabon, og þar með Evrópu-bikarn-
um, sem þeir hafa unnið fimm sinnum í röð.
Um síðustu helgi töpuðu þeir enn leik og þá
í spænsku deildakeppninni.
Það er engin furða þótt
Real Madrid hafi verið sig-
ursælt undanfarin ár og meiri
glæsibragur og frægðarljómi
yfir liðinu en nokkurt annað
félag getur státað af. Þama
hafa verið saman í orustu-
sveit margir af snjöllustu
stríðsmönnum knattspymunn-
ar, svo sem Di Stefano, Pusk-
as hinn ungverski og Santa-
maria. Þetta eru dýrt keypt-
ir menn og dýrt seldir. Þeir
verða að gangast undir
stranga þjálfun og harðan
aga atvinnumennskunnar, —
en þeir hafa líka hlotið ríku-
leg laun í fjármunum, auk
frægðar og sigurgleði sem
verður víst ekki metin til
fjár.
Niður af tindinum
Hvað veldur því að kapp-
arnir láta nú í minni pokann?
Knattspyrnusérfræðíngar eru
sammála um að þeir hafi engu
glatað af kunnáttu sinni og
leikni, þeim hafi hvcrki förl-
azt líkamlegt né andlegt
jafnvægi, stöðuskyn þeirra sé
óbrenglað. En — það er ald-
urinn sem er farinn að taka
tollinn sinn.
Þeir eru nefnilega búnir að
vera nokkuð lengi í eldinum,
garpamir í Real Madrid, og
því komnir af allra léttasta
skeiðinu. Margra ára misk-
unnarlaus barátta ásamt þrot-
lausri þjálfun reynir á þol-
rifin. Menn sjá núna að þetta
eru þrautreyndar vélar at-
vinnumennskunnar, sem eru
orðnar lúnar vegna þess að
eldsneytið var peningar.
Margir knattspymumann-
anna vilja líka gjaman hætta,
t.d. Puskas sem hefur ákveð-
ið að snúa aftur heirn til
Ungverjalands.
Mennirnir frá
því í gær
öllum ber saman um að
. piltarnir í Benefica hafa stað-
ið sig með prýði, enda hefðu
þeir tæplegu sigrað ella. En
i Hetjumar þreyttu —
Æ— Nokkrir af helztu
/ 1 köppum Real Madrid:
/ | Puskas, Felo. Del Sol,
\ I Di Stefano, Pachin, i
\ Tejada og Miera. Þeir
Ta hafa keppt árum sam-
an fyrir félagið og
fært því margan stóran sigur, J
m.a. Evrópubikarinn 5 sinnum
í röð. Nú munu þeir víkja fyr-1
<r yngri mönnum.
★ ★ ★
menn eru líka sammála um
að leikmenn Real Madrid hafi
staðið þeim feti framar í
tækni og kunnáttu. Það sem
réði úrslitum var það, að
meðalaldur Portúgalanna var
miklu lægri. Þeir héldu til
jafns við Evrópu-bikarhafana
fyrri hluta leiksins. 1 seinni
hálfleik gerðu þeir svo leift-
urárás á meistarana með
slíkum sóknarþunga og hraða
að „gömlu mennimir“ stóðust
þeim ekki snúning.
Stjömuleit
Forstjórar Real Madrid
meta að vísu mikið afrek
þessara knattspymusnillinga,
sem svo lengi hafa verið í
þjónustu þeirra. En þeim er
nú Ijóst orðið, að þeir geta
þv£ aðeins viðhaldið áhuga
almennings fyrir nafni félags-
ins að þeir afli sér nýrra
leikmanna — og það þegar
í stað.
Þeir eru byrjaðir að leita
að nýjum stjömum til að
halda nafni Real Madrid á
lofti. Þeir fara í grózkumesta
afréttinn að leita sér sauða
— til S.-Ameríku. Skömmu
eftir heimsmeistarakeppnina í
Chiíe kom hópur knattspymu-
kappa, dökkur yfirlitum, til
Madrid. Það var árangurinn
af smöluninni — safnið úr
fyrstu leit.
Nýjung á Seyðisfirði
Smdlaug gerð
ai íþróttahúsi
SEYÐISFIREE 29/10. — Fyrir tilstuðlan Þorsteins Einarssonar
íþróttafulltrúa ríkisins hefur verið keypt hingað laust gólf yfir
laug sundhallarinnar, svo að hægt verður að nota húsið bæði
sem leikfimi- og íþróttahús yfir vetrarmánuðina. Gólf þetta er
trégólf á jámbitum, 18x14 m, en laugin sjálf er 12.5x10 m.
Gólf þetta er smíðað og fullgert hjá F. Morthon Springfloor,
London, og er þetta fyrsta gólf sinnar tegundar, scm sett verð-
ur upp hér á landi. Fyrirtæki þetta hefur smíðað sams konar
gólf fyrir ýmsa staði úti í heimi og vitað er að þau hafa
reynzt mjög vel. Víða hér á Iandi ríkir mikill áhugi fyrir þess-
ari tilraun, því með þessu sparast mikill byggingarkostnaður,
þar sem komið er undir sama þak bæði sundlaug og íþróttahús
Gólfið er komið hingað og sérfræðingur frá enska fyrirtækinu
mr. Goldvin, er einnig kominn til að aðstoða við uppsetningu.
Getur sundhöllín orðið hið ákjósanlegasta íþróttahús því þannig
hagar til, að auk salarins er ágætt áhorfendasvæði fyrir um 70
manns.
Knattspymufélugið
Kári, 40 ára
Elzta íþróttafélagið á Akranesi, Knattspymu-
félagið KÁRI, á 40 ára afmæli á þessu ári. Fé-
lagið er stofnað 26. maí 1922 og voru stofnendur
10 drengir á aldrinum 10—14 ára.
Fyrsti formaður Kára var
Gústaf Ásbjörnsson, en hann
var elztur stofnendanna, að-
eins 14 ára. Eins og nafn fé-
lagsins bendir til, var og er
megináherzlan lögð á iðkun
knattspyrnu og hefur félagið
á undanförnum árum átt marga
góða knattspyrnumenn, sem m.
a. hafa leikið 1 landsliðinu.
Þá hefur félagið lagt stund
á handknattleik, karla og
kvenna. Á fyrstu árunum starf-
aði Kári af miklum krafti,
enda mikill rígur og togstreita
milli knattspyrnufélaganna.
Með stofnun íþróttabandalags
Akraness árið 1946 breyttist
starfssvið félagsins mikið því
íþróttabandalagið varð æðsti
aðili íþróttamála og öll lið ffá
\kranesi mættu til keppni út
i við í nafni þess. Það eru þv-
'iltölulega fáir utan Akraness
=em vita nokkur deili á knatt-
oyrnufélögunum 1 bænum. þar
þau mæta alltaf. og.haf?
'itaf gert, sameinuð til leiks
KÁRA-félagar minnast 40
'a afmælisins með hófi í
'ótel Akraness. n.k. laugardae
’ nóv og verða þar fjöibreytt
kemmtiatriði og að lokum
dans.
Stjórn Kára skipa nú þessir
menn: Formaður Helgi Daní-
elsson. varaformaður Hallgrím-
Jón Júlíusson, KR.
Fimleik-
ar í KR
Fimleikadeild K.R. hefur
fyrir nokkru hafið starfsemi
sína. Fimleikatímar deildar-
innar standa opnir fyrir alla
sem áhuga hafa óg getú til
að stunda æfingar. Tímar
hinna ýmsu flokka eru:
1. Karlaflokkur. Þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 9.15 í í-
þróttahúsi Hagaskólans.
2. Drengjaflokkur. Þriðju-
daga og föstudaga kl. 8.45 í
Bamaskóla Miðbæjar.
3. Öldungaflokkur. Mánu-
daga og miðvikudaga kl. 7.00
í Bamaskóla Austurbæjar.
4. Húsmæðrafl. Mánudaga
og miðvikudaga kl. 8.00 í
Bamaskóla Austurbæjar.
5. Húðmæðrafl. Mánudaga
og fimmtudaga kl. 9.30 í
Bamaskóla Miðbæjar.
Kennarar hinna ýmsu flokka
eru: Jónas Jónsson fyrir
karlaflokkinn. Bjömþór Öl-
afsson fyrir öldunga- og
drengjaflokkana. Frú Dóra
Emils fyrir húsmæðraflokk-.
inn i Austurbæjarskólanum
og Gunnvör Bjömsdóttir fyrir
húsmæðraflokkinn í Miðbæj-
arskólanum.
AUt eru þetta reyndir og
duglegir kennarar. '
Deildin væntir þess að bæj-
arbúar noti þá aðstöðu sem
hún býður þeim með þvi að
sækja æfingar vel og reglu-
bundið í hinum ýmsu flokk-
um hennar.
Fimleikar eru ekki aðeins
'ioll, heldur fögur og göfgandi
'"brótt.
Félagar eldri og yngri, tak-
ið vini yðar og kunningja
með og kynnið hina fögru í-
brótt, fimleikana.
Helgi Daníelsson.
ii Árnason, ritari Kjartan Tr
Sigurðsson, gjaldkeri Eiríkur
É>orvaldsson og meðstjórnaandi
Guðmundur Sveinbjörnsson, en
hann var einn af stofnendum
félagsins. I
Ben. Waage
i Mexíkó
iþróttasíðan hefur fregnað
íð Benedikt G. Waage, heið-
rrsforseti l.S.Í. hafi undan-
’arnar vikur dvalizt í Mexíkó.
?að er olympíuntefnd Méxíkó
em hefur sýnt Henedikt þann
mikla heiður að bjóða hon-
um að vera viðstaddan heims-
meistarakeppnina í nútíma
fimmtarþraut, sem tglin er
mikill íþróttaviðburður. —
Keppnin fer fram í Mexíkó
City.