Þjóðviljinn - 01.11.1962, Síða 5
ÞJÓÐVILJINN
SÍÐA 5
Fimmtudagur 1. nóvember 1962
Starfsskilyrði lækna aðal-
atriði—ekki lagaflækjur
Áður en fundur hófst í sameinuðu þingi í
gær kvaddi Lúðvík Jósefsson sér hljóðs utan dag-
skrár og bar fram fyrirspurn til heilbrigðismála-
ráðherra vegna hins alvarlega ástands, sem skap-
azt kynni á Landsspítalanum og stofnunum hans,
ef stór hluti af starfandi læknum hættir þar störf-
um nú um mánaðamótin.
ÞINCSIA ÞIÓÐVILJANS
Taldi Lúðvík að hér væri j
mikið óefni komið, ef fast-
ráðnir læknar í þjónustu rík-
isins gengju frá störfum vegna
þess að þeir gætu ekki sætt
sig við þau kjör. sem þeim
væri boðið upp á. Héldi deil-
an áfram vofir að sjálfsögðu
sama hætta yfir öðrum sjúkra-
húsum í Reykjavík og víðar á
landinu. Vildi hann því beina
þeirri fyrirspurn til heilbrigð-
ismálaráðherra. hvað ríkis-
stjómin hyggðist gera, og hvort
hún hefði ekki athugað mögu-
leika a hugsanlegu samkomu-
lagi, þó ekki væri nema til
bráðabirgða? Þetta mál væri
svo alvarlegt, að ríkisstjórnin
gæti ekki vikið sér undan því
á sama hátt og ýmsum öðrum
málum
Bjarni Benediktsson, dóms-
málaráðherra (íhald) tók fram,
að sér hefði ekki verið kunn-
ugt um, að þessi fyrirspum
yrði lögð fram og væri hann
því nokkuð varbúinn að svara
henni. Heilbrigðisstjórnin hefði
hugleitt þetta mál, og enn
væri engin örugg vissa fengin
fyrir pví að iæknarnir myndu
hverfa frá störfum. Hefði þess
verið farið á leit við læknana
að þeir störfuðu áfram. með-
an beðið væri eftir úrskurði
Félagsdóms. Málinu væri
þannig háttað. að fyrst yrði
að fást skorið úr um réttar-
stöðu deiluaðila. áður en því
.yrð: ráðið til lykta.
Lúðvík Jósepsson kvað ljóst
vera af ummælum ráðherra. að
alger óvissa rikti i þessu máli.
Ríkisstjórnin vissi ekki, hvort
læknarnir gegndu störfum á-
fram, þótt þetta væri síðasti
starfsdagur þeirra samkvæmt
uppsögn þeirra. Slíkt væru með
öllu fráleit vinnubrögð. — Fyr-
ir lægi að læknar hefðu sagt
upp með lögboðnum 3ja mán-
aða fyrirvara en síðan hefði
þeim verið gert að starfa á-
fram samkvæmt sérstöku iaga-
ákvæði. Og enn vissi ríkis-
stjómin einungis að hún vildi
knýja fram dóm og jafnvel
málsókn i þessari deiiu, Slík-
ar aðfarir eru fráleitar.
Þetta mál ér að vísu aðeíns
einn angi á kaupgjaldsmálun-
Ný þingmál
Enn um vegagerð á
Vestfjörðum
Sigurður Bjamason flytur á-
samt öðrum bingmönnum
stjómarflokkanna í Vestur-
landskjördæmi tillögu til
þingsályktunar um vegabætur.
Tillagan gerir ráð fyrir að fela
vegamálastjóra að gera áætlun
Þingfundir
í qœr
Fundur var í gær j samein-
uðu þingi Áður en gengið var
til dagskrár kvaddi Lúðvik Jós-
efsson sér hljóðs og beindi fyr-
irspurn til heilbrigðismálaráð-
herra vegna læknamálsins
Urðu nokkrar umræður um það
mál Þá voru teknar fyrir fyr-
irspurnir: 1. Um neyzlu deyfi-
lyfja frá Benedikt Gröndal og
2. Um afurðalán til bænda frá
Ásgeiri Bjamasyni.
Teki.n var ákvörðun um fyr-
irkomulag umræðu á nokkrum
þingsályktunartillögum. Fyrri
hluti umræðu um þingsályktun-
artillögu um raforkumál fór
einnig fram og f’.utti Skúli Guð
mundsson. fyrsti flutningsmað-
ur tillögunnar, framsöguræðu
sína
Öðrum málum var frestað
um ljúka á sem styztum
tima aðalvegum milli byggðar-
laga á Vestfjörðum.
Framlag til Bænda-
hallarinnar
Landbúnaðámefnd neðri
deildar hefur lagt fram frum-
varp til laga um framlengingu
%% viðbótargjalds af söluvör-
um landbúnaðarins til að
standa straum af kostnaði við
Búnaðarbygginguna. Frumvarp-
1 er flutt að ósk Búnaðarfé-
lags Islands.
Platlögin lögð fram
Ríkisstjórnin hefur lagt fyrir
Alþingi til staðfestingar bráða-
,-irgðalög sín um hámarks-
bóknun fyrir verkfræðistörf, en
hau voru út gefin 2. maí s.l.
Samkvæmt þeim er lögfest
gjaldskrá Verkfræðingafélags
tslands frá 19. apríl 1955, að
viðbættum lögleyfðum uppbót-
um.
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að lög þessi hafa ekki
neitt raunhæft gildi. Mun tæp-
ast finnast sá verkkaupandi.
sem lætur sér til hugar koma
að unnt sé að fá verkfræðing
til starfa samkvæmt fyrr-
nefndri gjaldskrá. — En ac
sjálfsögðu verður að leggja lög
bessi fyrir Alþingi engu að
síður, þótt þau séu bara plat..
um í heild, sagði Lúðvik, en
það er viðkvæmara vegna eðl-
islægra orsaka. Ríkisstjórninni
ber að leggja alla áherzlu á
að leysa það tafarlaust með
samningum.
Alfreð Gíslason (Alþbandal.)
kvaðst hafa orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum með svar ráð-
herrans. Hann hefði sagt. að
ekki væri örugg vissa fyrir
því hvort læknar hvrfu frá
störfum. en trúlega hefði verið
réttara að segja. að hann hefði
ekki örugga vissu fyrir öðru
en að þeir hyrfu frá störfum
Væri það vitavert af ríkis-
stjórninni að hafa látið drag-
ast að leita eftir lausn á þessu
máli, unz komið væri \ algert
óefni. Hér væri um að ræða
lækna á mikilvægasta spítala
landsins. bæði varðandi aðgerð-
ir og rannsóknir. Læknar hefðu
verið þvingaðir til að starfa 3
mánuði umfram iöglegan upp-
sagnarfrest án þess að gerðar
hefðu verið ráðstafanir á
nokkru sviði til þess að ráða
fram úr þessum vanda.
Alfreð taldi. að ríkisstjórn-
inni hefði borið skylda til þess
að leysa læknana frá störfum
og auglýsa stöður þeirra FUll-
yrða mætti. að unrit væri að fá
menn til starfa samkvæmt sild-
andi samningum lækna oe
sjúkrasamlaga og töxtum
læknafélagsins. Deilan stæði
ekki svo mjög um fastakaupið
heldur um laun fyrir auka-
vinnu. Vfirstjórn heilbrigðis-
mála virtist ganga erfiðlega að
skilja. að það vrði að launa
menn fyrir þau störf. Hér
byrfti ekki að skapast neyðar-
ástand. ef tekið væri á mál-
inu af fullum skilningi og vildi
TVárin vænta þess.' að ríkis-
stjórnin tæki málið þegar til
athugunar.
Bjarni Benediktsson kvaðst
ekki telja heppilegt að hefja
harðar deilur um málið á þess-
um vettvangi, enda hefði hann
ekki undir höndum gögn i mál-
inu. Meginvandinn væri sá. að
ríkisstjórnin liti svo á, að upp-
sagnir læknanna væru ólögleg-
ar og hnigju að því ýmis lög.
Verkföll opinberra starfsmanna
væru bönnuð lögum áamkvæmt.
Þá bentu og allar líkur til
þess að uppsögn læknanna
væri ólögleg samkvæmt lögum
þeim. sem síðasta Alþingi hefði
samþykkt um launakjör opin-
berra starfsmanna og teldi hann
persónulega að svo væri —
Eins og málið horfði nú ’ við
væri nauðsynlegt að fá úr
þessu skorið. Gæti hann ekki
fallizt á, að hér væri um neina
kúgunarráðstöfun gegn læknum
að ræða.
Alfreð Gíslason benti á. að
ríkisstjórnin hefði beitt laga-
ákvæði til þess að skylda lækn-
ana til þess ’ að starfa áfram.
en í lögunum væri heimilað
að beita því þegar svo marg-
ir starfsmenn segðu upp að til
auðnar horfði Með því að
beita þessu ákvæði hefði rík-
isstjórnin í raun og veru við-
urkennt lögmæti uppsagnanna.
Þórarinn Þórarinsson (Fram-
sók-n) kvaðst telja, að rikis-
stjórnin hefði tekið á þessu
máli með stirfni og þrjózku.
en í svona tilfellum væri hin
mesta þörf að líta á málin af
sveigjanleika og sanngirni. —
Mál þetta hefði einnig alvar-
legri hliðar sem sé þær, að
svo virtist sem læknar væru
óðum að hverfa af landi brott
vegna slæmra k.iara Nauðsyn-
legt væri að líta á má’in einn-
ig frá bvi sjónarmiði
Bjarni Benediktsson ítrekaði
enn að hann teldi uppsagnir
læknanna ólög’egar samkvæmt
lögunum frá þvi j vor Um
kröfur læknanna kvaðst hann
ekki ræða af ásettu ráði en
ekki hefði tekizt að finna sam-
komu1agsgrundvöll þrátt fyrir
mi’.ligöngu landlæknis i mál-
inu.
Fleiri tóku ekki til máls. en
Ijóst var af umræðunum. að
dómsmá'la-áðherra lagði höfuð-
áherzlu á lagaflækiur um það
hvort uppsagnir læknanna væru
löglegar og að unnt myndi
reynast á þeim grundvelli að
hvinga há áfram til starfa. —
En ekkert kom fram í svörum
hans sem benti til þess, hvað
rikisstjórnin hefði hugsað sér
að gera ef það ástand skap-
ast. að læknarnir hætti störí-
um. En vitanlega skiptir það
atriði böfuðmáli og var efn-
islega innihald þeirrar fyrir-
spurnar sem lögð var fyrir
ráðherrann.
Neyzla deyfilyf ja
hefur færzt á vöxt
Happdrætti Þjóðviljans
kilcdagur
o morgun
I gær var rædd á Alþingi
fýrirspurn Benedikts Gröndal
um neyziu deyfilyfja og nauð-
syn strangari ákvæða í lyfsölu-
löggjöfinni þar að lútandi.
Fyrirspyrjandi, Benedikt
Gröndal, (Alþfl.) minnti á blaða-
skrif um þessi mál og taldi
ljóst af þeim, að þetta mikla
vandamál hefði nú borizt hing-
að til lands. Reynsla annarra
þjóða sýndi. að ofnotkun slíkra
ljHja væri oft undanfari glæpa
og væri það aðvörun til ís-
lendinga um að taka þessi mál
föstum tökum. Væri því e. t. v
nauðsynlegt að endurskoða
lagafyrirmæli um þessi efni.
Bjarni Bcnediktsson, dóms-
málaráðherra, kvaðst hafa afl-
að sér upplýsinga um þetta má)
frá nokkrum aðilum og teldi
hann réttast að láta Alþingi
heyra það sem mestu máli skipti
i þeim skýrslum.
Las ráðherra síðan skýrslur
frá landlækni, lögreglustjóra.
sakadómara og saksóknara um
mál af þessu tagi, sem embætti
þeirra hefðu fengið til meðferð-
ar. Kom fram 1 þeim skýrslum,
að ekki virðist um neyzlu hinna
sterkari deyfilyfja að ræða hér
á landi — svo vitað sé — en
hér er einkum um að ræða ým-
is veikari lyf, ýmist örvandi,
róandi eða svæfandi. Virðist
notkun þeirra hafa aukizt all-
mikið undanfarið og þarf lög-
reglan alloft að hafa afskipti
af fólki, sem neytt hefur slíkra
lyfja. — Svo virtist sem megn-
ið af lyfjum þessum hefði ver-
ið selt hér í lyfsölubúðum og
ekki væri útilokað að læknar
væru o.f óvarkárir við útgáfu
lyfseðla út á slík lyf.
Ráðherra kvað mál þetta enn
1 rannsókn, og hefði landlæknir
m. a. fengið í hendur skrá yf-
ir nokkra lækna, sem talið væri
að hefðu gefið út allmikið af
lyfseðlum á lyf þau, sem hér
um ræðir.
Ben. Gröndal þakkaði ráð-
herra upplýsingar hans og
kvaðst vona, að haldið yrði á-
fram rannsókn þessa máis.
Ctgefandi:
Ritstjórar:
Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíailstafiokk”
urinn. —
Magnús Kjartansson, Magnús Torfi Ölaisson,
Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjórar: tvar H. Jónsson. Jón Bjamason.
Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sfmi 17-500 (5 linur). Áskriftarverð kr. 65.00 á mánuði.
Metiö
^lþýðubla^ið hefur nokkrum sinnum spurf að
því hvort íslenzkir sósíalistar mundu „reka
samskonar utanríkispólitík og Castro“ ef þeir
kæmust til valda og „snúa öllum viðskiptum til
Rússa“. Allar hafa spurningar blaðsins borið
vott um makalausa fáfræði um sögu Kúbu og
mismuninn á aðstöðu íslands og Kúbu, auk þess
sem vitað er að Alþýðublaðið spyr ekki spurn-
inganna til að uppræta vanþekkingu sína.
JJtanríkisstefna íslenzkra sósíalista er ljós. Þeir
vilja að ísland sé hlutlaust og vopnlaust
ríki og hér fái engar aðrar þjóðir herbækistöðv-
ar eða önnur yfirráð. Sósíalistar vilja að Island
hafi viðskiptasambönd við sem flestar þjóðir
og velji sér markaði samkvæmt hagsmunum sín-
um en forðist að gefa erlendum aðilum áhrifa-
vald með einhliða viðskiptasamböndum. Þetta
er einnig stefna stjórnarvaldanna á Kúbu. Þótt
Alþýðublaðið viti það ekki er Kúba hlutlaust
ríki og hefur tekið virkan þátt í samvinnu hlut-
lausra ríkja á alþjóðavettvangi. Þótt Alþýðu-
blaðið viti það ekki er aðeins ein erlend herstöð
á Kúbu, bandarísk, og henni er haldið þar með
ofbeldi í óþökk þjóðarinnar allrar. Þótt Alþýðu-
blaðið viti það ekki voru það Bandaríkin sem
slitu öllum viðskiptum við Kúbu, reyndu að
lama efnahagskerfið með því að hætta fyrir-
varalaust sölu á olíu og kaupum á sykri, reyndu
að svelta þjóðina með því hæ'tta að selja henni
lífsnauðsynjar. Þeir menn sem áfellast Kúbu-
stjóm fyrir að hafa i staðinn trvsgt sér við-
skiptasambönd við sósíalistísku ríkin eru að
harma það eitt að Bandaríkjunum skyldi ekki
takast að buga Kúbumenn með viðskiptastríði
sínu. Og það situr sízt á íslendingum að taka
undir þvílíka kveinstafi. Árið 1952 gerðu Brefar
hliðstæða tilraun til að svelta íslendinga með
því að hætta fyrirvaralaust að kaupa fiskafurð-
ir okkar, en langsamlega mesti fiskmarkaður
okkar hafði þá verið í Bretlandi um langt skeið.
Islendingum var þá bjargað með því að gerður
var viðskiptasamningur við Sovétríkin. og þau
tóku að sér að kaupa allan þann fisk sem Bret-
ar neituðu að taka á móti. Þá mátti víða í er-
lendum blöðum lesa átakanlegar lýsingar á því
hvernig íslendingar væru að „snúa öllum við-
skiptum til Rússa“ En þessir samningar voru
hvorki gerðir af Fidel Castro né íslenzkum
sósíalistum. heldur af ráðamönnum borgara-
flokkanna á íslandi.
^uðvitað hrín það ekki á Alþýðublaðinu þótt
því sé bent á þessar staðrevndir og aðrar hlið-
stæðar. Það blað er ekki gefið út til að koma
á framfæri þekkingu eða skynsamlegu mati,
heldur til að auka yfirráðasvæði fáfræði og
ofstækis. Hefur það komið einkar srreinilega í
ljós síðustu dagana að Alþýðubir> Ái A o-r bjálfa-
legasta blað á fslandi. og þá þarf pHrj að spyr^-
um heimsmetið. — iil
4