Þjóðviljinn - 01.11.1962, Blaðsíða 7
Fimmtudag'ur 1. nóvember 1962
ÞJÓÐVILJINN
SÍÐA
NORDAHL
GRIEG
1902
Æskuverk
Nordahl
sextugur
fæddur 1.
Nordahl
Grieg hefði orðið
í dag. Hann var
nóvember 1902.
Grieg var athafna-
maður í þess orð beztu merk-
ingu. Hann sat ekki á einum
stað og beið þess að veröldin
kæmi í heimsókn til hans.
Nám heima og í Oxford, sigl-
ingar um veraldarhöf, vegagerð
í óbyggðum, stórkostleg ferða-
lög — þetta eru hans unglings-
ár. Hann var alltaf þar stadd-
ur sem mikil örlög voru ráðin
— í borgarastyrjöldinni í Kína,
á umbrotaárunum í Sovétríkj-
unum, í frelsisstríði Spánar.
Og þessi mikla forvitni Nor-
dahls Griegs var kannski ekki
sprottin af óvenjulegum lífs-
þorsta fyrst og fremst — hún
átti einnig rætur að rekja til
þeirrar miklu ábyrgðar sem
Nordahl Grieg fann lagða á
herðar sínar — ábyrgðarinnar
að vera maður.
Tvítugur gaf hann út ljóða-
bók sem geymdi minningar úr
sjóferðum, tveim árum síðar
kom út skáldsaga hans um
sjómannalíf: það þótti raun-
sæ bók og merkileg • en aðrir
nefndu hana níð um norska
sjómenn. Hliðstæð ummæli fá
margar þær bækur sem nokk-
urs eru verðar. Og fleiri bækur
bættust við: reisubókin „Dag-
ar í Kína“, ljóðakver; eitt
þeirra hét „Noregur í hjörtum
okkar“, nafnið gefur góða hug-
mjmd um anda ljóðanna. Og
hann skrifaði bók um ensk
ljóðskáld sem höfðu fallið fyrir
aldur fram: líf þessara manna
var eldur sem logaði glatt og
hratt og lýsti öðrum þegar
myrkur grúfði yfir eða þoka.
Þessi bók hét „Þeir dóu ungir“
og var ekki einungis um Byr-
on og Shelley heldur og um
ungversk, rússnesk, pólsk
skáld — og um Nordahl Grieg
sjálfan.
Stjórnmál
Þetta þróttmikla skáld sjó-
manna og vegagerðarmanna
hlaut að forvitnast um það sem
var að gerast í Sovétríkjunum.
Hann fór til Moskvu og var
þar í tvö ár. Hann varð mjög
hrifinn af því sem þar hafði
verið gert, af því mikla starfi
sem unnið hafði verið til að
menningin cg fólkið gætu
mætzt. Þessa reynslu sína túlk-
aði hann í skáldsögunni „Ung
má verden ennu være“, en sú
bók var í ísienzkri þýðingu
kölluð „Svo ungt er lífið enn“.
Þar finnum við kapp og áhuga
uppbyggingarkynslóðar í sósíal-
istísku landi — ofsalegan,
bamalegan og aðdáunarverðan
áhuga. I þessari bók finnum
við líka athyglisverða tilraun
til að skilja rök réttarhaldanna
1937, tilraun sem hlaut að svo
komnu máli að misheppnast.
Nordahl Grieg sneri heim og
var nú kallaður versti rússa-
dindill og byltingarseggur
Fyrsta verkið sem hann
skrifar eftir heimkomuna
var leikritið „Heiður vor og
æra“. Það lýsir svívirðilegri
verzlun með mannslíf: í heims-
styrjöldinni fyrri selja norskir
auðmenn Þjóðverjum málm í
þau vopn sem þeir myrða með
norska sjómenn sem sigla til
Englands með vistir. Þetta var
biturt leikrit, enda gekk erfið-
lega að fá það sýnt. Það var
skrifað til að sýna ábyrgð
mannanna gagnvart meðbræðr-
um sínum, sagði skáldið.
Um hugrekki
Nokkru síðar skrifar Nor-
dahl Grieg leikritið „Ósigur-
inn“, sögulegt leikrit um ósig-
ur Parísarkommúnunar 1871.
Þetta verk er rökræða bylting-
armanns um aðferð og nauðsyn
byltingarinnar. En það var
skrifað í skugga vofeiflegra tíð-
inda: fasisminn hafði sigrað í
mörgum löndum Evrópu,
Franco hafði sagt spönsku lýð-
ræði stríð á hendur. Einmitt
þessi tíðindi tóku hug Nor-
dahls Griegs allan um þessar
mundir.
Skáldsagan „Ung má verden
ennu være“ er fyrst og fremst
skilgreining á andlegu lífi allr-
ar álfunnar — allt frá Moskvu
til Madrid, skilgreining á and-
legu lífi andspænis fasisma og
styrjöld. Og þetta var ekki eina
framlag Griegs. Á árunum 1936
og 1937 gaf hann út tímaritið
Veien Frem, þar glímdi hann
af mikilli bardagagleði við
fasismann og sendisveina hans
í Noregi. Og hann fór sjálfur
til Spánar þegar borgarastyrj-
öldin brauzt út.
Hann fór ekki af æfintýraþrá
eða hégómagirnd heldur af því
að „hann leitaði alltaf réttlæt-
is og sannleika". Þetta eru orð
konu hans Gerd. Hún spurði
hann einhverju sinni: „Hvaó
finnst þér mest um vert?“ Hann
svaraði: „Hugrekki. Hið borg-
aralega hugrekki.Hún spurði:
„Menn tala um persónulegt
hugrekki, — er það eitt og hið
sama?“ „Nei, sagði hann. Borg-
aralegt hugrekki — Það er að
hafa hugrekki til þess að vera
maður sjálfur —■ afdráttarlaust.
Það er mikils virði. Persónu-
legt hugrekki — það er dirfska
i ákveðnum kringumstæðum.
athöfnum. Það er líka gott. En
bað er samt smærra . . “
Öskrifuð saga
Gerd. Á þessum árum myrk-
urs og vona hafði Nordahl
Grieg kynnzt Gerd Egede-Niss-
en, mikilhæfri leikkonu. Ást
þeirra var „gjöf — á hverjum
degi óverðskulduð, óskiljanleg,^
ný“, skrifar hann í bréfi til
hennar. Þau tíðindi gerðust að
þau fóru saman norður á
Finnmörk en þaðan var Gerd
ættuð. Þétta voru góðir dagar.
Nordahl orti hrifinn um Norð-
urland og Norðiendinga, um
mikilleik manneskjunnar sem
rís upp gegn örlögum sínum.
Og hann hlaut að fá mætur á
ætt ástkonu sinnar: einn for-
feðra hennar var Hans Egede,
postuli Grænlands, afi hennar
barðist með Garibaldi fyrir
frelsun Italiu, afabróðir henn-
ar barðist gegn Prússum við
Dybböl og með kommúnörðum
í Paris. Faðir hennar var ung-
ur mikil hjálparhella landflótta
rússneskra byltingarmanna og
síðar alþýðuforingi og þingmað-
ur kommúnista. Um þetta fólk
ætlaði Nordahl Grieg að skrifa
skáldsögu. En sú saga var aldr-
ei skrifuð: heimsstyrjöldin sið-
ari skall á.
Styrjöld
Nordahl Grieg haföi barizt
gegn Hitler og Kvisling löngu
áður en styrjöldin hófst, og
hann var að sjálfsögðu i
fremstu viglínu frá fyrsta degi
innrásarinnar í Noreg. Hann
barðist í Noregi, í Englandi,
Kanada, á Islandi. Barðist með
vopn í hendi eða penna. Hann
kom fram í útvarpi til Noregs,
las upp fyrir landa sína, út-
læga sjómenn og hermenn.
Hann reyndi mikið til að fá
kvikmynd gerða í Bandaríkj-
unum til varnar málstað Nor-
egs. Hann orti um Noreg í
hjörtum okkar, um dáðir
norskra frelsisvina, um fánann
á Eiðsvelli, um böm í loft-
varnarbyrgjum Dundúna. um
friðinn að styrjöld lokinni.
Hann vissi að sá friður
myndi líka kosta baráttu, bað
mennina að þreytast ekki og
vera á verði svo að sá sem við
drápum risi ekki upp aftur.
Hann gerði sér ekki tálvonir
um að sjálfur friðurinn myndi
leysa allan vanda. I einu
kvæða hans segir á þessa leið:
Hinir dauðu verða fjarlægðir
af jörðinni svo hún megi aft-
ur ganga kaupum og sölum
(Sljó hugsun getur myrt engu
síður en byssuhlaup). Allt sem
er auðvirðilegt verður nefnt:
mannlegt eðli (Gleymdar eru
krossiausar grafir, blóðvotur
múrveggur svikinn).
En slíkar hugsanir drógu
hvergi úr baráttuvilja hans.
Og honum fannst alltaf að
framlag hans til sigursins yfir
villimennskunni væri ekki
nógu stórt. Innrásin í Vestur-
Evrópu dróst á langinn — þá
vildi hann ganga í lið með
Rauða hemum. Eftir harða
sókn var honum leyft að fljúga
yfir Berlín 2. desember 1943.
Hann kom ekki aftur úr þeirri
ferð. Hann hafði goldið þá
skuld að vera Norðmaður þeg-
ar land hans var í ánauð.
Við og hann
íslendingar þekktu Nordahl
Grieg betur en flest skáld önn-
lír. Hann og kona hans Gerd
dvöldu hér alllengi á stríðsár-
unum og líklega hefur engum
gestum verið fagnað betur en
þeim. Honum var boðið að búa
á Þingvöllum. Hann orti kvæði
til íslands. Magnús Ásgeirsson
býddi ljóð hans ágætlega. Nor-
dahl komst einhvemtíma svo
að orði: ef stríðið tekur engan
enda þá gerist ég íslenzkur
ríkisborgari.
Við lifum á undarlegum tím-
um. þegar enginn dirflst
að segja orð eins og sann-
leikur og réttlæti vegna þess
að glæpur gullsins stýrir Vest-
urlöndum og Stalín hafði fram-
ið illvirki. Á tímum þegar
bækur virðást ekki til annars
skrifaðar en að staðfesta und-
arlegar staðreyndir um flókið
sálarlíf mannanna — og allt-
af þarf stærri skammta af yf-
irþyrmandi staðreyndum til að
vekja athygli.
Á slíkum tímum er gott að
minnast manns eins og Nor-
dahls Griegs. Það er mikil
heiðríkja og reisn yfir verkum
hans. Hann réðst að staðreynd-
um heimsins með hugrekki og
þrótti, lét þær ekki yfirbuga
sig, heldur staðfesti í verld
vald sitt yfir þeim, þekkingu
sína á tengslum þeirra og rás.
Allt þetta gaf honum rétt til
að nefna og staðfesta háleitustu
orð — svik við listina og líf
okkar gátum við ekki fundið í
hans máli. — Árni Bergmann.
Björgvin, fæðingarbær Nordahls Grieg.
Tímarít Nordahh Gríegs
, Veien Frem' endurvakið
S.l. vor réðust nokkrir
vinstri sinnaðir menntamenn
og rithöfundar í Noregi í að
endurvekja tímaritið Veien
Frem, sem Nordahl Grieg hóf
að gefa út árið 1936. Var það
eitt af andsvörum hans við
uppgangi fasisma og aftur-
halds í Evrópu þeirra tíma
Þó að ritinu entist skammur
aldur sakir fjárskorts, og ein-
ungis átta tölublöð birtust
þar til það lognaðist út af
í árslok 1937, loðir við það
minningin um hina skelfilegu
baráttu Griegs gegn stríðs-
undirbúningi og menningar-
fiandskap afturhaldsins. Nú
sem þessi sömu afturhaldsöf!
magnast óðum f V-Þýzka-
'andi og víðar um Evrópu.
btti fyrrnefndum mennta-
nönnum hlýða að hefja
erki Nordahls Griegs aftur
loft. Fyrsta tölublaðið er
elgað minningu frelsishetj-
nnar, sem heföi orðið sex-
tugur á þessu ári, ef honum
hefði auðnazt líf. Þar eiga
m.a. greinar Gerd Grieg,
ekkja hans, Georg Johannes-
sen skáld og Johan Borgen
rithöfundur. Annað tölublað
er nýkomið út og fjallar um
þau efni, sem ritinu er fram-
vegis ætlað að flytja: stjórn-
mál, þjóðfélagsmál og bók-
menntir. Mun það koma út
sex sinnum á ári og árgang-
urinn kosta 18 norskar krón-
ur. Ætla má, að einhverja
hér á landi fýsi að gerast á-
skrifendur að því, ekki sfzt
þar sem nafn Nordahls Griegs
er nátengt íslandi.
28 Þjóðverjar ákærðir fyr-
ir morð á 2,5 millj. manna
Ákæruskjölin í málinu „réttvísin gegn morð-
ingjunum frá Auschwitz“ verða sennilega tilbú-
in fyrir jól. Tuttugu og átta menn verða ákærð-
ir fyrir að hafa tekið af lífi tvær og hálfa millj-
ón manna. Þetta eru mestu réttarhöld yfir stríðs-
glæpamönnum, sem efnt hefur verið til í Þýzka-
landi Adenauers.
Jósef Mengele. Vestur-þýzka
stjórnin hefur heitið 30.000
mörkum hverjum þeim. sem
veitt getur upplýsingar, er leitt
gætu til að hann næðist. Sak-
sóknarinn kveðst munu taka
frá fyrir hann sæti á bekk
hinna ákærðu.
I fangabúðum nazista í Aus-
schwitz sunnarlega í Póllandi
létu milljónir manna lífið.
Þessi hryllilega útrýmingar-
stöð var einkum ætluð Gyðing-
um, og óvíða mun grimmd naz-
ista hafa náð slíku hámarki.
Þegar hafa 48 þeirra, sem á-
byrgð báru á fjöldamorðunum
í Auschwitz, verði dæmdir til
dauða af rússneskum, banda-
rískum. brezkum, frönskum og
pólskum dómstólum, en lengi
var vitað. að mikill fjöldi þess-
ara böðla dvaldist óáreittur i
Vestur-Þýzkalandi.
Loks í fyrra var hafizt hand?
* - '*•* ~ un^irViú*'
Hitlers. Var ákveðið að ein-
skorða réttarhöldin við Ausch-
witzfangabúðirnar. Siðasti
yfirmaður búðanna, Richard
Baer, var þá nýlega kominn í
leitirnar og hafði dulizt sem
skógarhöggsmaður undir nafn-
mu Karl Neumann.
Málskjölin eru í 75 bindum,
samtals 16.500 síður, en auk
þess eru heimildargögn svo
skipta þúsundum. Um 1300
manns hafa verið í yfirheyrsl-
um, og rannsóknin hefur
spannað yfir alla Evrópu.
Ekki nærri allir böðlarnir
hafa fundizt enn, því að sum-
- knmizt undan á flótta.
^eirra er læknirinn
Andstaða Norð-
manna gegn
iBi sívaxandi
Andstaða Norðmanna gegn
aðild landsins að Efnahags-
bandalaginu fer ört vaxandi.
Boðað hefur verið til landsráð-
stefnu allra andstæðinga
bandalagsins í janúar næsta ár
og hafa hvers konar félaga-
samtök rétt til að senda full-
trúa. Aðalframsögumaður á
þinginu verður Gunnar Böe,
fyrrum verðlagsmálaráðherra í
norsku sósíaldemókratastjóm-
inni, en hann sagði af sér fyr-
ir rúmum mánuði í mótmæla-
skyni við stefnu stjómarinnar
í þessu máli.
t