Þjóðviljinn - 01.11.1962, Síða 10
10 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 1. nóvember 1&62
Barizt til
þrautar
Skáldsaga eftir RICHARD CONDON
ttr eiga, vseri Dos de Mayo eft-
ir Goya.
Augustin Termio lokaði vasa-
bókinni og setti sig í viðeigandi
stellingar. Enginn tók eftir hon-
um. Ráðherrann vildi nú fá að
heyra skýrsluna um yfirheyrslu
húsvarðarins í húsinu sem Mun-
oz leigði í. Emilio de los Claros
las hana upp. Hann hafði verið
í enn fínni félagsskap en þetta
og var ekki vitund banginn.
„Jú, jú, þennan náunga þekki
ég“, sagði varðstjórinn þegar
honum var sýnd mynd af fang-
anum James Boume. ,,Ég var
logandi hræddur við hann. Hann
kom fimm eða sex sinnum á dag,
oft á næturna líka. Hann barði
á dymar hjá markgreifanum,
svo að undir tók í öllu húsinu.
Og svo bölvaði hann ög ragn-
aði á erlendu máli og sparkaði
í hurðina eins og vitlaus mað-
ur. Ég hef aldrei séð eins ó-
hugnanlegan mann og hugsaði
með mér, að það væri svei mér
gott að markgreifinn væri á
ferðalagi".
Ráðherrann upplýsti að dr.
Munoz hefði verið í Santiago de
Compostela. þar sem hann hefði
legið á bæn og skriftað í næstum
fjóra sólarhringa Hann skýrði
frá því að lögreglan þyrfti að
finna aftur Goyamyndina og
hver eða hverjir hefðu myrt
markgreifann af Villalba. En
mikilvægast af öllu væri þó að
finna aftur Goyamyndina og
gréinilegt samband væri milli
þessara tveggja mála. Hann vildi
ekki skipta sér af vinnuaðferðum
lögreglunnar, en ýmislegt benti
til þess að fanginn Jean Marie
Galbert væri viðkvæmari,
vegna hæpinnar aðstöðu eigin-
konu hans. Þess vegna þætti
honum vænt um ef þeir vildu
yfirheyra hann. strax og hann
væri raknaður úr rotinu. Hann
sagði að þeir hefðu líka sakir
á hendur eiginkonu Boumes. en
hún gæti ef til vill komið þeim
á slóð Goya-málverksins. ef hún
gengi laus.
Ráðherrann hafði orðið fölari
meðan hann talaði. Augu á-
heyrenda höfðu stækkað og
dökknað. Allir gerðu sér ljósa
möguleikana. Sá sem fyndi Goya
myndi hoppa yfir fjögur þrep í
metorðastiganum. Hann dytti
vissulega ? lukkupottinn.
Galvan kapteinn bar upp
spumingu á vegum lögreglunn-
ar:
„Það er hægt að yfirheyra
fanga á marga vegu, yðar tign“.
sagði hann hreinskilnislega.
„Deyið mér að fullvissa yður um
það fyrir hönd sj'álfs mín og
manna minna, að með hjálp
þeirra upplýsinga sem þér haf-
ið verið svo vinsamlegur að láta
okkur í té. er enginn efi á því
að annarhvor fanganna — eða
báðir — munu láfa uppskátt
hvar Goyamálverkið er niður-
kornið".
„En það er tvennt sem þér
þurfið að muna, lögregluforingi“,
sagði ráðherrann. „í fyrsta lagi
verða fangamir að vera þannig
á sig komnir eftir yfirheyrsluna,
að þeir geti þolað tveggja vikna
réttarhöld ef hægt er að koma
því við. f öðru lagi er þama
um að ræða erlenda ríkisborg-
ara. og erlendir fréttaritarar
munu fylgjast vel með málinu“.
„Já. yðar tign“
„Fleiri spurningar?‘‘
„Nei, yðar tign“.
„Jæja, þá var það ekki ann-
að“, sagði ráðherrann og stikaði
út með alla halarófuna á eftir
sér. að undanteknum Galvan
lögregluforingja og mönnum
hans
Klukkan þrjú var tilkynnt að
fangarnir væru komnir til með-
vitundar. og Galvan og fjórir
af ungum og áköfum starfs-
mönnum hans, ákváðu gð h_efj-
ast handa við Jean Marie í her-
bergj með gluggum hátt á veggj-
um. Þeir sátu umhverfis hann
í hálfhring og bak við hann var
hraðritari.
Jean Marie hafði fengið gljá-
slitinn skinnstól að sitja í, en
benzedrínið sem hann hafði
fengið í kaffinu, gerði það að
verkum að hann gat ekki setið
kyrr, heldur bað leyfis að mega
ganga fram og aftur með
Galvan lögregluforingja — rétt
eins og kaupsýslumenn gera oft
viðskipti upp á milljónir meðan
þeir rölta fimmtán eða tuttugu
kílómetra leið umhverfis golf-
völl.
I Hann þrammaði fram og til
baka eins og hershöfðingi sem
les fyrir dagskipun, og byTjaði
að tala. Hann notaði oft orðin
„herrar mínir“. Hann var býsna
franskur.
„Við skulum gera okkur eitt
ljóst, herrar mínir“, sagði hann.
,.Ég er reiðubúinn til að játa
það sem þið teljið að við höf-
um aðhafzt i trássi við lögin.
Ykkur finnst þetta sjálfsagt gott
boð. herrar minir, en ég get
svarað þvi til að ég ber mikla
virðingu fyrir samtökum ykkar
og hef ekki f hyggju að leyna
neinu til þess að komast hjá sem
mestum óþægindum".
Jean Marie hafði ekki hug-
mynd um að hann var tekinn
fastur fyrir morð. Hann setti
sjálfan sig ekki í neitt samband
við dauða dr. Munoz. Einhvers
staðar í ringluðum kolli hans
sveimaði trúin á það. að hann
hefði verið handtekinn vegna
þess að hann hafði sleppt tak-
inu á Goya-myndinni í FTado og
hafði flúið — sem var listræn
óhæfa
„Þegar búið er að vélrita
játninguna ætla ég að lesa hana
yfir og undirrita hana“, hélt
hann áfram eftir nýja hringferð
með lögregluforingjanum. En
eitt verðið þið að gera ykkur
Ijóst þegar i upphafi. herrar
mínir: Ég kom ekki nálægt
morðunum á Cayetano Jiminez
eða vesalings brjálaða kvikind-
inu honum Munoz eða hótelfor-
stjóranum Elek“.
„Það er alveg ljóst“, sagði
Galvan lögregluforingi með stök-
ustu ró. ..Gerið svo vel að halda
áfram Segið okkur allt um þess-
ar meistaralegu stælingar á
meistaraverkum — frá upphafi
til enda“.
„Aha 1— þér hafið þá séð stæl-
ingamar?“
„Þær eru frábærar“.
„Þér eruð miö? vinsamleg-
ur“.
„Segið okkur þá allt um þær“.
Jean Marie settist á stólinn
og greip um ennið til að hugsa
skýrar. „Því er þannig farið,
herrar mínir“. sagði hann. „Fyr-
ir þremur árum kom starfsbróð-
ir minn og félagi, senor Boume,
að máli við mig í París og fór
að ræða um ýmsar aðferðir til
að skipta á stórum frummyndum
og stælingum". Hann sneri sér
að hraðritaranum. „Tala ég of
hratt fyrir yður?“ spurði hann.
„Síður en svo“, svaraði hrað-
ritarinn. „Haldið bara áfram eins
og yður er eðlilegast“.
Hann skýrði nákvæmlega frá
öllu sem hann vissi. en hann
varð hissa þegar þeir gengu
nánar á hann með Goya-mál-
verkið. Goya var í Prado.
Heyrðu þeir ekki að hann hafði
sagzt hafa séð fólk sem starði
á hann og hann hefði sleppt tak-
inu á málverkinu og flúið? Þeir
héldu þó ekki að hann hefði
hlaupið burt með Goya-myndina
þeirra? Hann var feginn þegar
hann sá að honum hafði loks
tekizt að sannfæra þá því að
hann var alveg viss um að mis-
tökin í Prado væri eina ástæðan
til þess að hann sat í fangelsi.
Svo sem fjórum klukkutímum
seinna kom Galvan lögreglu-
foringi til fundar við afleysinga-
vaktina sem hafði Boume til
meðferðar. Hann kinkaði kolli
kurteislega þegar hann kom
inn, en Bourne starði bara sljó-
lega á hann á móti. Hann sýndist
þreyttur og tekinn í andliti.
Hann var líka sár og bólginn
eftir kylfuhöggin, sýndist 6-
snyrtilegur með langa skegg-
brodda, dauflegt augnaráð og ó-
hreinar hendur. Það var ekki
mikið eftir af glæsileika hinna
klæðskerasaumuðu fata. Klukk-
an sem hann sat á, sýndi að hún
var sex — hann vissi ekki hvort
það var morgunn eða kvöld.
„Nokkuð nýtt?“ spurði Galvan
lögregluforingi menn sína.
„Ekki neitt. Hann segist ætla
að tala. þegar hann er búinn að
ráðfæra sig við lögfræðing
sinn“.
„Þessir amerísku bófar hafa
heilar lögfræðiskrifstofur á bak-
við sig. Það kemur af kvik-
myndunum"
„Já. ]ögregluforingi“.
„Hver er lögfræðingur hans?“
„Hann vill fá að tala við her-
togafrúna af Dos Cortes. Hann
segir að hún muni útvega hon-
um lögfræðing“.
„Hann fær bólstraðan k]efa
ef hann heldur því til streitu".
„Já. lögregluforingi".
„Hann er slituppgefinn núna
veslingurinn — er ekki svo?“
„Jú. lögregluforingi“.
„Ágætt. Lesið þetta fyrir
hann“. Hann rétti fram vélritað
eintak af játningu Jeans Marie.
„Þetta vekur hann“. Ungi lög-
regluþjónninn þakkaði fyrir og
fór að lesa upphátt með radd-
styrk sem jaðraði við öskur.
Lögregluforinginn kveikti sér 1
vindli og settist upp við vegg-
inn. „Ekki alveg svona hátt“,
sagði hann eftir dálitla stund.
„Nei lögregluforingi".
Bourne virtist hlusta á með
athygli.
„Viljið þér ekki gera svo vel
að undirskrifa þetta?“ spurði
Galvan síðan.
„Nei. Ég á við — ég get það
ekki fyrr en ég er búinn að ráð-
færa mig við lögfræðing“.
„Hvar er Goya?“
„Spyrjið mig seinna“
„Hvenær?“
„Þegar þér eruð tilbúinn að
gera kaup við mig“.
„Engin hrossakaup"
„Enginn Goya“.
Galvan lögregluforingi benti
lögregluþjónunum tveimur að
fara út. „Þetta verður að ráðast.
Þessi náungi er svefns þurfi“.
UNGLINGA
vantar til blaðburðar í eftirtalin hverfi=
Langholt Kleppsveg
Meðalholt Teigar
Hringbraut. Kársnes I og II
Bústaðahverfi Framnesvegur
Vesturgata
Talið strax við afgrreiðsluna — sími 17500.
Eftir langa ug eruoa gongu náði Þórður unun Kvöle
niður að ströndinni þar sem Brunfisch lá. Félagar hans
fögnuðu honum vel enda voru þeir orðnir áhyggjufullir
út af fjarveru hans. Þeir höfðu líka orðið varir við
að eitthvað mikið gekk á um borð í Fidelitas. Þórður
sagði þeim í stuttu máli hvað fyrir þá Ross hafði
borið. Bara að Ross og stúlkurnar væru komnar á
öruggan stað, andvarpaði hann. Ef þau lenda í hönd-
um þessara manna, er aldrei að vita, hvað fyrir getur
komið. 1 sama bili birtist Bank skipstjóri á land-
göngubrúnni.
Kópavogur - Vinna
Nokkrar súlkur óskast í vinnu strax.
Niðursuðuverksmiðjan 0 R A
Símar: 17996 og 22633.
Frá Gagnfrœðaskólanum
í Kópavogi
Nemendur 1. bekkjar mæti til viðtals í skólanum föstu-
daginn 2. nóvember kl. 9 árdegis. Námsbækur verða
afhentar.
SKÖLASTJ6RI.
Rýmingarsala — Rýmingarsala
Seljum næstu daga mjög ódýrt:
Barnakjóla. Verð frá kr. 98.00.
Barnablússur. Verð frá kr. 50.00
Bamapils. kr. 98.00.
Bamapeysur og margt fleira.
Verzlunin A S A
Skólavörðustíg 17. — Sími 15188.
Tilkynning varðandi
Slysavarðstofu Reykjavíkur
Vegna læknaskorts verður óhjákvæmilegt að takmarka
um sinn starfsemi slysavarðstofunnar frá því sem verið
hefur.
Tekið verður eingöngu á móti sjúklingum, sem þarfn-
ast tafarlausrar aðgerðar vegna slysa.
Með aðra læknisþjónustu þer borgarbúum að snúa sér
til starfandi lækna í bænum.
Reykjavík, 31. okt. 1962.
SJGKRAHGSNEFND REYKJAVÍKUR.
Nýtt! Nýtt!
Glæsileg sending af enskum og hollenzkum
kápum tekin upp í dag.
BERNHARD LAXDAL
Kjörgarði.