Þjóðviljinn - 13.12.1962, Qupperneq 2
2 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 13 desember 1962
Þœttir úr
Húnaþingi
Komið er út fimmta og síðasta
bindi ritsafnsins „Svipir og
sagnir" sem .geymir þætti úr
Húnavatnsþingi. Nefnist það For-
tíð og fyrirburðir.
Þrír menn, þeir Bjami Jóns-
son £ Blöndalshólum, séra Gunn-
ar Árnason og Magnús Bjömsson
á Syðra-Hóli, hafa aðallega tek-
ið saman safn þetta. 1 nýja bind-
inu á Magnús fjóra þætti, Kamm-
erráð á Ytri-Ey, Mannskaði,
Sagnir Jónasar og Sviplegt slys.
Bjami skrifar um Jón í Sól-
heimum og séra Gunnar Brot úr
sögu Auðkúlu og Dulsagnir og
fyrirburði. Auk þeirra skrifa
Bjöm H. Jónsson um Bjarna á
Bjargi, Rósberg G. Snædal um
Forspá og fyrirboða og Jónas
B. Bjamason á þáttinn Kveðið
um Vatnsdal.
Auk þessa efnis eru i þessu
síðasta bindi safnsins leiðrétting-
ar við fyrri bindi og nafnaskrá
fyrir þau öll. Bókin er 282 blað-
síður.
VORT MUN ÞURFA
PAPEYJARBUXUR?
Fyrr á tímum þótti mikill
fengur á Austf jörðum að eign-
ast Papeyjarbuxur og voru
þær kenndar við Mensalder
hinn auðga í Papey, sem þótti
öðrum fremur auðsæll á Aust-
urlandi.
Mikil firn voru í kringum
tilbúning þessa klæðis og
koma þar við sögu kirkju-
garðar að næturþeli, þjófnað-
ur milli pistils og guðspjalls,
gullpeningur í pungi og felli-
byljír í lokin.
Ekki mælum við með slík-
um gjömingum, en vildum
mega minna á, hversu mikið
liggur við með sölu á happ-
drættismiðum þessa dagana.
Þau gleðitíðindi hafa borizt
frá Neskaupstað, að þeir muni
gera full skil fyrir lokadag.
Eigi mun þurfa Papeyjar-
buxur, þó að mikið liggi við.
Umboðsmenn happdrættisins
á Austurlandi:
Bakkafjörður: Hilmar Einars-
son
Vopnafjörður: Davíð Vigfús-
son
Borgarfjörður, eystri: Gunn-
þór Eiríksson
Egilsstaðir: Sigurður Gunn-
arsson
Hallormsstaður: Sigucður
Blöndal
Seyðisfjörður: Gísli Sigurðs-
son
Eskifjörður: Jóhann Klausen
Neskaupstaður: Sigfinnur
Karlsson
Reyðarfjörður: Helgi Seljan
Fáskrúðsfjörður: Garðar Krist-
jánsson
Breiðdalsvík: Sigurður Magn-
ússon
Höfn í Homafirði:
Borgarhafnarhreppur: Torfi
Steinþórsson
Mýrarhreppur: Sigurjón Ein-
arsson.
Teikning frá Höfn í Homafirðti.
Hlíffordæmir skoðanakágun
bæjarstfómarmeiríhlutans
Ólga meðo/ framsóknarmann a I HafnarfirÓi
vegna undirgefni forustunnar vi5 ihaldiS
Félagsfundur í Verkamannafélaginu Hlíf í Hafn-
arfirði hefur gert svohljóðandi ályktun með öllum
atkvæðum gegn einu:
„Eitt af aðalsmerkjum lýðræðisþjóðfélags er
skoðanafrelsi þegnanna.
Þess vegna hlýtur hver sannur lýðræðissinni að
fordæma allar aðgerðir er miða að því að hefta
skoðanafrelsi, eins og t.d. með því að svipta menn
atvinnu vegna stjórnmálaskoðana.
Fundurinn þakkar þeim verkamönnum Bæjar-
útgerðar Hafnarfjarðar sem mótmælt hafa upp-
sögn verkstjóra síns, með því að segja sjálfir upp
vinnu.
Fundurinn skorar á hina nýju ráðamenn
Hafnarfjarðarbæjar, að virða skoðanafrelsi manna,
og láta engan gjalda s-tjórnmálaskoðana sinna“.
Leyniplögg lesin
Á fjölmennum fundi í Hlíf sl.
mánudag komu mjög til umræðu
hinar fáheyrðu pólitísku atvinnu-
ofsóknir, sem nýi bæjarstjómar-
meirihlutinn, íhaldsmenn og
framsóknarmenn hefur tekið upp
gagnvart starfsmönnum bæjar-
fxis.
Þrír framsóknarmenn, sem
þátt tóku í umræðunum, gáfu
með ræðum sínum mjög glöggar
upplýsingar um það ástand, sem
nú ríkir innan Framsóknarfélags
Hafnarfjarðar vegna samstarfs-
ins við íhaldið og er auðvelt að
gera sér í hugarlund hver áhrif
það samstarf hefur haft á hina
almennu kjósendur vinstri sinn-
aða sem kusu Framsókn í sum-
ar, þegar svo mikillar óánægju
Ný bók eftir Ármann Kr. og
Öddu-bók í annarri útgófu
Ný barnabók eftir Armann
Kr. Einarsson er komin út og
hei.tir Öli og Maggi. Aðalpers-
óna er sú sama og í bók Ár-
manns frá í fyrra, „Óskasteinn-
inn hans Óla”, en nú er hann
orðinn sendisveinn og eignast
nýjan félaga, Magga hugvits-
mann, sem finnur upp margt
skemmtilegt og nytsamt, meðal
annars segl á reiðhjólin þeirra.
Svo fara þeir siglandi á hjól-
unum austur fyrir Fjall og lenda
þar í ýmsum ævintýrum. Bókin
er 118 blaðsíður með myndum
eftir Halldór Pétursson.
Bókaforlag Odds Bjömssonar
hefur einnig gefið út aðra bama-
bók eftir Jennu og Heiðar Stef-
ánsson, sem nefnist Adda og
litli bróðir, í annarri útgáfu. i
Hafa öddu-bækumar lengi verið
Ármann Kr. Einarsson
uppseldar. Þessi er 87 blaðsíður
og í henni teikningar eftir Hall-
dór.
og upplausnar gætir meðal
flokksbundinna manna.
Samþykkt
fulltrúaráðs
Allmiklar umræður urðu um
tillögu félagsstjórnarinnar sem
áður er tilfærð, og tóku átta
fundarmenn til máls þ.á.m. þrír
framsóknarmenn, sem skemmtu
fundarmönnum mjög m.a. með
því að lesa upp leyniplögg og
— samþykktir af fundinum í
Framsóknarfélagi Hafnarfjarðar
og fulltrúaráði.
Fyrstur tók til máls framsókn-
armaður nr. 1 og réðist hann
harkalega á þá flokksfélaga sína,
sem beita sér fyrir pólitískum
atvinnuofsóknum með íhaldinu.
Las hann m.a. upp ályktun þá
sem Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja hefur gert varðandi
uppsögn Geirs Gunnarssonar al-
þingismanns úr starfi, en í þeirri
ályktun er uppsögnin talin ólög-
leg og mun bandalagið hefja
mál á hendur bænum, ef upp-
sögnin kemur til framkvæmda.
Framsóknarmaður nr. 2 taldi
ekki sannað að hér væri um
pólitískar atvinnuofsóknir að
ræða og ætti Hlíf ekki að vera
að blanda sér í mál, sem henni
kæmi ekki við.
Framsóknarmaður nr. 1 vildi
ekki sætta sig við þessi rök og
kvaðst neyddur til þess að sanna
það með orðum bæjarfulltrúa
Framsóknarflokksins, Jóns Pálma
sonar, er hann hafði látið falla
á fundi í Framsóknarfélaginu, að
hér væri eingöngu um hrein-
ræktaðar pólitískar atvinnuof-
sóknir að ræða. Las hann síðar
upp úr minnisbók sinni, sem
hann kvaðst hafa skrifað í á um-
ræddum fundi, þau ummæli Jóns
Pálmasonar að bæjarstjóri hefði
tjáð honum að hann treysti sér
ekki til að starfa með Geir
Gunnarssyni sem sér næsta
manni vegna þess að hann væri
pólitískur andstæðingur. Þetta
kvaðst Framsóknarmaður nr. 1
vera reiðubúinn að sverja fyrir
rétti.
Þá stóð upp Framsóknarmaður
nr. 3. Var honum mikið niðri
fyrir og mátti lengi ekki skilja,
hvaða afstöðu hann hefði til
málsins. Hann hrópaði þó yfir
salinn að ekki væri nema von
að ýmislegt væri öðruvísi en það
ætti að vera, þar sem kratar og
kommar hefðu tapað 32 millj.
króna í Bæjarútgerðinni. Einn
fundarmaður benti þá á að blað
íhaldsins hefði talað um 50—55
milljónir króna. Við þetta kom
fát á ræðumann og þreif hann
nú upp úr vasa sínum leyni-
samþykkt, sem gerð hafði verið
í fulltrúaráði Framsóknarmanna
varðandi uppsögn Markúsar
Jónssonar verkstjóra hjá Bæjar-
útgerðinni. Kvaðst hann setja sig
í mikla hættu og gæti átt von á
brottvikningu úr flokknum við
að leyfa Hlífarfélögum að heyra
þessa ályktun en kvaðst reiðu-
búinn að taka á móti hverju
sem að höndum bæri. 1 ályktun-
inni telja þeir Framsóknarmenn,
sem eiga sjálfir formann út-
gerðarráðs, að uppsögnin sé ólög-
leg og fela fulltrúa sínum í út-
gerðarráði að kippa þessu í lag.
Þessi sami Framsóknarmaður
varð frægur fyrir það fyrir kosn-
ingar að lýsa því yfir að það
þyrfti að draga vígtennurnar úr
íhaldinu. Var ekki laust við að
meinlegt glott væri á fundar-
mönnum meðan þessi tanntöku-
meistari hélt ræðu sína eftir að
vera búinn að fá íhaldinu öll
völd í Hafnarfirði.
Sýna stéttarþroska
Þá stóð upp í snatri framsókn-
armaður nr. 1 og kvaðst vilja
benda flokksfélaga sínum á það,
að það væri fyrst og fremst
fyrir gengislækkanir ríkisstjórn-
arinnar sem tap hefði orðið á
Bæjarútgerðinni, t.d. hefði hinn
nýi togari Maí hækkað um 20
millj. króna við þessar aðgerð-
ir og þetta ætti hver framsókn-
armaður að vita.
Fimm Hlífarfélagar aðrir en
framsóknarmennimir réðust all
harkalega á þær pólitísku at-
vinnuofsóknir, sem nú væru
hafnar í bænum. Mæltu allir
ræðumenn nema framsóknarmað-
ur nr. 2 með tillögu stjórnar
Hlífar og lýstu yfir samstöðu
sinni með hinum 14 verkamönn-
um hjá Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar sem sagt hafa upp störf-
um hjá fyrirtækinu í samúðar-
skyni við verkstjóra sinn Mark-
ús Jónsson. Töldu ræðumenn að
þessir verkamenn ættu heiður
skilið fyrir þann bróðurhug og
stéttarþroska, sem þeir hafa sýnt
með ákvörðun sinni. Er mönnum
það fullljóst • að þessir menn
segja ekki upp störfum að
gamni sínu, eftir að hafa unnið
á sama vinnustað í allt að 20
ár sumir hverjir og hafa átt
sinn stóra þátt í því aö byggja
upp Bæjarútgerð Hafnarfjarðar í
það sem hún er í dag.
Gegn spillingu
og kúgun
Þessir menn skilja fyrr en
skellur í tönnum. Þeir geta ekki
sætt sig við að það fyrirtæki
sem þeir hafa byggt upp með
vinnu sinni sé notað af íhaldi
og Framsókn til skoðanakúgunar.
Þess vegna eiga þeir vísan stuðn-
ing allra heiðarlegra Hafnfirð-
inga, allra þeirra, sem vilja
standa gegn spillingu og kúgun.
Þess vegna munu Hafnfirðingar
í öllum stéttum slá skjaldborg
um málstað þeirra og tryggja
það að hann sigri. Einn þáttur-
inn í þeirri baráttu £r samþykkt
Hlífarmanna á tillögu stjómar
sinnar þar sem mótmælt er þeim
atvinnuofsóknum og skoðana-
kúgun sem íhaldið og framsókn
hafa nú tekið upp í Hafnarfirði
og stuðningi lýst við verka-
mennina hjá Bæjarútgerðina sem
mótmælt hafa ofbeldisaðgerðum
með uppsögn.
Kúgunaraðgerðir hins nýja
bæjarstjórnarmeirihluta í Hafn-
arfirði hafa hlotið almenna for-
dæmingu í bænum, og tillaga
Hlífar sem gengur í þá sömu átt
var samþykkt af öllum viðstödd-
um Hlífarmönnum nema einum.
lýkur v!5 áfdamótamenn
09 boðar Samtíðarmenn
Jónas Jónsson hefur sent frá
sér þriðja og síðasta bindi ævi-
söguþátta þeirra sem hann nefn-
ir Aldamótamenn en Bókafor-
lag Odds Björnssonar gefur út.
1 þessu bindi eru þættir um
skáldin Þorgils gjallanda, Guð-
mund Guðmundsson, Valdimar
Briem, Stephan G., Guðmund
Friðjónsson, Jón Trausta, Ein-
ar Benediktsson. og Einar H.
Kvaran. Einnig segir þar frá
séra Þórami Böðvarssyni í
Görðum, Haraldi Níelssyni próf-
essor, séra Jóni Bjarnasyni, fjall-
að er um vísindamanninn Þor-
vald Thorcddsen og Bjarna Sæ-
j mundsson, Markús Bjarnason
stofnanda Stýrimannaskólans og
Stefaníu Guðmundsdóttur leik-
konu. Mynd fylgir hverjum þætti.
í formála segir höfundur:
„Bók mín um Aldamótamenn er
miðuð við það, að námfúst og
afhugult fólk í landinu noti tóm-
stundir sínar til að lesa nýjar
hetjusögur ..... Von mín er að
hinn sögulegi áhugi söguþreyttra
manna vakni.....“
1 eftirmála skýrir Jónas frá
því að hann hyggi á útgáfu nýs
rits sem yrði kallað Samtíðar-
menn. Þar muná hann lýsa
mönnum og atburðum sem hann
sjálfur hefur kynnzt og segja frá
ýmsum ferðalögum sínum utan
lands og innan.
Þriðja bindi „Aldamótamanna"
er 195 lesmálssíður og fylgir því
nafnaskrá fyrir öll bindin.
VerklýðsféK. Norðfírðlnga
minnfst 40 ára afmælis
Ncskaupstað 10/12. — Verka-
lýðsfélag Norðfirðinga minntist
þess með samkomu siðastliðið
laugardagskvöld, að fyrr á þessu
ári voru 40 ár liðin frá stofn-
un félagsins. Það var stofnað
10. júní 1922 og hét þá Verka-
lýðsfélag Norðfjarðar. Stofnend-
ur voru 60 og eru 34 þeirra enn
á lífi.
Afmælishátíðin var haldin í
félagsheimilinu Egilsbúð og hófst
með kaffidrykkju.
Formaður félagsins, Jóhann
K. Sigurðsson setti samkomuna
og bauð gesti velkomna. Flutt
var samfelld dagskrá, sem nefnd
var Fyrstu sporin, tekin saman
af Bjama Þórðarsyni. Var þar
gerð grein fyrir fyrstu viðfangs-
efnum félagsins. Flytjendur voru
Guðmundur Sigurjónsson, Öskar
Bjömsson og Þórður Þórðarson.
Þá las Stefán Þorleifsson upp
og frú Rigmor Hanson, sem nú
heldur dansnámskeið hér á
Neskaupstað, sýndi dans með
nemendum sínurrv Lúðrsveit
Neskaupstaðar lék milli atriða.
Að lokum var stiginn dans fram
eftir nóttu. Afmælissamkoman
var fjölmenn og fór hið bezta
fram.
Verkalýðsfélag Norðfirðinga
er sem fyrr segir stofnað 1922.
Aðalforgöngumaður um stofnun
þess var Ólafur Friðriksson og
með honum þeir Guðjón Sím-
onarson og Vigfús Sigurðsson.
Fyrstu stjórn félagsins skipuðu:
Jón Rafnsson, form., Ingimann
Ólafsson, varaform., Steinn Jóns-
son, ritari, Vigfús Sigurðsson,
gjaldkeri, og Guðjón Símonarson,
fjármálaritari. Núverandi stjóm
skipa: Jóhann K. Sigurðsson,
form., Kristján Jónsson, vara-
form., Sigfinnur Karlsson, gjald-
keri, Jóhann Jónsson, ritari, og
meðstjórnendur Hilmar Bjöms-
son, Guðmundur Sigurjónsson
og Karl Jörgensson.
Lengst hafa verið formenn
félagsins þeir Jónas Guðmunds-
son og Jóhannes Stefánsson.
R. S.