Þjóðviljinn - 13.12.1962, Page 4
ÞJÓÐVILJINN
4 SÍÐA
ÁRMANN vann
sundknattleiksm.
Eins og frá hefur verið skýrt, hefur Haust-
mót sundknattleiksmanna staðið yfir undanfar-
ið. Á mánudagskvöld fóru fram úrslitaleikir um
efstu og neðstu sætin.
í úrslitaleiknum um sigurinn
i mótinu léku KR og Ármann,
en Ármann hefur um 18 ára
skeið unnið öll þau mót sem
liðið hefur tekið þátt í. Segja
má að Ármenningar hafi verið
of einvaldir í íþróttinni, þar
sem enginn hefur getað hróflað
við liðinu hingað til. Nú virðist
vera vöknuð áhugaalda fyrir
sundknattleik, og er gott tii
þess að vita. KR tefldi fram
ungum mönnum, sem æft hafa
vel undanfarið.
Þetta er þeirra fyrsta „ver-
tíð“ eins og komizt var að
orði í „Höllinni“ á miðviku-
dagskvöld, og því ekki von til
að þeir gætu ógnað þessum
þrautreyndu Ármenningum,
sem haldið hafa hópinn í mörg
ár, flestir hverjir, og sumir yf-
ir 20 ár eins og Sigurjón Guð-
jónsson.
Yfirburðir Ármanns
Það kom líka í ljós að Ár-
mannsliðið hafði reynsluna og
yfirburðaknattmeðferð og
næmara auga fyrir samleik.
Hinsvegar höfðu KR-piltamir
úthald og gáfu aldrei eftir.
Haldi þessir ungu menn sam-
an er ekki að efa að þeir geta
ógnað Ármanni áður en mörg
ár líða, en sundkattleikur
krefst margra ára þjálfúnár
áður en fullkomið vald næst
á honum. Margir KR-piltamir
lofa góðu, og t.d. markmáður
þeirra, Gísli Blöndal er mjög
gott efni, og vann sér það til
ágætis m.a. að verja hörku
vítakast!
Verður gaman að fylgjast
með liði þessu, og sýnt er að
það færi verkefni á komandi
mánuðum eins og sundknatt-
leiksmenn yfirleitt.
Ármenningar byrjuðu á því
að skora 4 mörk í fyrsta fjórð-
ung leiksins. Á þeim næsta
skoruðu þeir aðeins eitt, enda
voru þeir þá einum færri um
skeið. f þriðja fjórðungnum
skoruðu þeir 2 og í þeim sið-
asta fjögur mörk.
Þeir sem skoruðu fyrir Ár-
mann voru Ólafur Guðmunds-
son 5, Pétur Kristjánsson 3,
Einar Hjartarson 2 og Ragnar
Vignir 1.
Ármannsliðið er jafnt, þó
sýndi Pétur Kristjánsson oft
mjög skemmtilegan leik og
hafði bezt auga fyrir samleikn-
um.
Dómari var Atli Steinarsson.
Sigurvegarar Ármanns voru:
Sigurjón Guðjónsson fyrirliði,
Einar Hjartarson, Ragnar Vign-
ir, Ólafur Guðmundsson, Daði
Ólafsson, Stefán Jóhannsson og
Pétur Kristjánsson.
Þess má geta að þeir skiptu
um mann í leiknum.
ÍR vann b-lið Ármanns
Baráttan um þriðja og fjórða
sætið milli IR og B-liðs Ár-
manns, var á köflum skemmti-
leg, og ekki eins harkaleg og í
úrslitaleiiknum.
Ármann byrjaði með því að
skora, en þá tóku ÍR-ingarnir
við eða réttara sagt öm Ing-
ólfsson sem skoraði í tveim
fyrri fjórðungum leiksins fimm
mörk í röð. Fékk öm að leika
lausum hala og gera sem hon-
um sýndist, og var það mikill
misgáningur hjá Ármanni að
gæta ekki að sér fyrr. Eftir að
Ármenningar tóku eftir þessu
var leikurinn jafn að mörkum,
því í síðari leikfjórðungunum
skoruðu þeir tvö mörk hvor, en
leikurinn endaði 7:3.
Með nokkurri æfingu ætti
ÍR-liðið að geta náð langtum
lengra í sundknattleik með svo
sundfæra menn eins og Guð-
mund Gíslason, Hörð Finnsson
og Þorstein Ingólfssón. en þeir
hafa greinilega ekki komizt upp
á lag með að nota sér sund-
hæfni sína ennþá. Haldi þeir
vel saman er ekki gott að segja
hver þeirra KR og ÍR verði
til þess að stöðva sigurgöngu
Ármanns.
Þeir sem skoruðu í þessum
leik voru:
Fyrir IR: öm Ingólfsson 5,
Atli Steinarsson 1 og Ólafur
Guðmundsson 1. Fyrir Ármann
skoruðu Siggeir Sigurðsson,
Þorgeir Ólafsson og Ómar
Franklin eitt hver.
Dómari var Magnús Thor-
valdsson.
Á eftir keppninni afhenti
formaður Sundsambandsins,
Erlingur Pálsson, bikar þann
sem Sundráðið hafði gefið til
keppninnar. Sagði Erlingur að
mót þetta gæfi vonír úm það
að nú væri sundknattleikurinn
að ryðja sér til rúms. Lýsti
hann því að þetta væri
skemmtilegur flokkaleikur, sem
ætti að geta keppt við hina
ýmsu aðra góðu flokkaleiki sem
mi'kill áhugi væri fyrir.
Framhald á 8. síðu.
Bótagreiðslur
almannatrygginga i Reykjavík
Auk venjulegs útborgunartíma verða bætur
aimannatrygginga í Reykjavík greiddar fyr-
ir jólin sem hér segir:
Fimmtudaginn 13. des. hefjast greiðslur fjöl-
skyldubóta fyrir 3 böm eða fleiri, en greiðsl-
ur tll eins og tveggja barna hefjast þriðju-
daginn 18, þ. m.
Laugardaginn 15. des. verða allar bætur
aðrar en fjölskyldubætur fyrir eltt og tvð
börn greiddar óslitið frá 9.30 f. h. — 3 e. h.
Þriðjudaginn 18. des. verða allar bætur
greiddar óslitið frá ki. 9.30 f. h. — 6 e. h.
Bótagreiðslum lýkur á þessu ári kl. 12 á
hádegi mánudaginn 24. þ. m. (aðfangadag)
og hefjast ekki aftur fyrr en á venjulegum
greiðslutíma í janúar.
Ársgreiðslur bóta éru sem hér segir:
Elli- og örorkulifeyrir einstaklinga ........................ kr. 17.465,00
Elli- og örorkulífeyrir hjóna ................................. — 31.438,00
Bamalífeyrir ................................................... — 8.385,00 fyrir hvert bam
Fjölskyldubætur ................................................ — 3.028,00 fyrir hvert barn
1 *»* *«e ® f« r* ? * t;
TRYGGINGASTOFNUN RfKISINS.
fslendingar
PASSÍ USÁLM AR
Hallgríms Péturssonar
Viðhafnarútgráfa í stóru broti, skreytt 50 heilsíðumyndum
eftir Barböru Árnason.
Formála ritar Sigurbjörn Einarsson, biskup.
— Varanleg eign. — Vegleg jólagjöf.
Verð: í gráu strigabandi kr. 320,00. í svörtu og hvítu skinnlíki á
forláta pappír kr. 500,00.
BÖKAOTGÁFA MENNINGARSJÖÐS
í Norður-
landalið?
Danska knattspymusamband
ið (DBU) verður 75 ára 1964.
f tilefni af afmælinu hefur
DBU fengið leyfi Knattspymu-
sambands Evrópu til þess að
láta fara fram kappleik á milli
úrvalsliðs Norðurlandanna, ann-
arsvegar, og úrvals úr hinum
Evrópulöndunum, hins vegar.
Mun kappleikur þessi fara fram
1 Kaupmannahöfn 20. maí 1964.
Danska knattspyrnusamband-
ið hefur farið þess á leit við
Knattspymusamband íslands
(KSf), að það benti á væntan-
lega íslenzka „kandidata" 1
Norðurlandaliðið í síðasta lagi
fyrir 1. október 1963.
Að vísu er keppnisdagurinn,
20. maí, ekki sem heppilegast-
ur fyrir íslenzka knattspymu-
menn, þar sem þeir eru tæp-
lega komnir í æfingu svo
snemma vors, en K.S.Í. mun
engu síður hafa vakandi auga
fyrir þeim möguleika að koma
íslenzkum knattspymumanni í
úrvalslið Norðurlandanna, þeg-
ar þar að kemur. Er þess áð
vænta, að ísl, knattspymumenn
hafi þennan möguleika í huga,
er þeir skipuleggja æfingar
sínár á næsta ári.
Þess skal getið, að ákveðið
hefur verið að leita ekki til at-
vinnuknattspymumanna Norð-
urlandanna, sem leika með lið-
um utan heimalandanna.
(Frétt frá KSl).
Fimmtudagur 13. desember 1962
BÓKAFORLAGSBÆKUR
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR
Fortíð og
fvrirburðir
MAGNEA FRÁ KLEIFUM:
JCarlsen
stýrimaður
Islenzk skáldsaga
Kr. 95,00
SAGNAÞÆTTIR ÚR
HÚNAÞINGI
eftir Magnús Björnsson á Syðra-
Hóli, sr# Gunnar Árnason, Bjarna
Jónasson í Blöndudalshólum o.fl.
Þetta er 5. og siðasta bindið i
sagnaflokkinum „Svipir og sagn-
ir“ og fylgir nákvæmt registur
yfir öll 5 bindin. — Kr. 230,00
JÓNAS JÓNSSON
frá Hriflu
Aldamótamenn
III
15 aevisöguþættir og nafna-
skrá yfír 3 bindi.
Kr. 170,00
SR. STANLEY MELAX:
Gunnar helmineur
Snilldar vel skrifuð skáld.
saga, sem gerist i sjávarþorpi á
’°stfjörðum. — Kr. 160,00.
SVERRE D. HUSEBY:
kappinn
Saga um drengi og íþrðttir.
Jónsson námsstjóri
þýddl bókina.
Kr. 77,60
Bókaforlagsbækur
Bókaforlag Odds Bjömssonar