Þjóðviljinn - 21.12.1962, Page 3
Föstudagur 21. desember 1962
ÞJOÐYILJINN
SÍÐA 3
Fiskimenn krefjast meiri ríkisstyrks
Fiskveiðar Norðmanna
stöðvast um áramótin
OSLÓ 20/12 — Fiskimannafélag Noregs (Norges Fiskarlag)
hefur lýst yfir veiðibanni frá áramótum og tilkynnt rík-
isstjórninni að það telji að samningaviðræður um aukna
aðstoð ríkisins við sjávarútveginn á næsta ári séu strand-
aðar. Ríkisstjórnin ræddi þetta mál á fundi í dag og búizt
er við að einhvern næstu daga muni hún tilkynna síld-
ar- og fisksölusamlögum að þau geti á næsta ári reiknað
með svipuðum styrk úr ríkissjóði og á síðasta ári, eða
nálægt 100 milljónum norskra króna.
Ræða Krústjoffs
suglýst í bíaði
LONDON 20/12 — Bæði í dag og
í gær birti blað Beaverbrooks,
Daily Express, eitt útbreiddasta
blað Bretlands, tveggja síðna
auglýsingu frá sovétstjóminni,
þar sem birt var í heild ræða
Krústjoffs forsætisráðherra á
fundi Æðstaráðsins nýlega. Ekki
er vitað hvað þessar auglýsingar
hafa kostað, en til samanburðar
má nefna, að fyrr á árinu birti
sovétstjómin svipaða auglýsingu
í Guardian. Var hún tvær síður
og fjórðungssíða og kostaði sem
næst 220.000 krónum.
Tító og frú fóru
heimieiðis í gær
Samninganefnd Fiskimannafé-
lagsins hafði upphaflega krafizt
þess að þessi styrkur yrði hækk-
aður upp í 245 milljónir norskra
króna, en í samningaviðræðunum
við ríkisstjómina var þessi krafa
lækkuð niður í 190 milljónir, en
þó aðeins með því skilyrði að
félagið hefði rétt til að gera við-
bótarkröfur, þegar lokið hefði
verið samningum í verðlags- og
kaupgjaldsmálum annarra stétta.
Stjórnin bað um frest
Karl Trasti, kaupgjalds- og
verðlagsmálaráðherra, hafði far-
ið þess á leit við Fiskimannafé-
lagið að það frestaði samninga-
viðræðunum og var því þá heit-
ið, að samkomulag sem síðar
kynni að nást myndi látið verka
aftur fyrir sig frá áramótum.
Fiskimannafélagið vildi ekki
ganga að þessu nema ríkisstjóm-
in féllist strax á kröfuna um
190 milljón króna ríkisstyrk sem
kæmi til framkvæmda þegar 1.
janúar n.k.
Fiskimenn bera minna
úr býtum
Fiskimannafélagið byggir kröfu
sína um aukna rí'kisaðstoð á þvi
að norskir fiskimenn beri minna
úr býtum en aðrar vinnustéttir
og telur óhjákvæmilegt að tekj-
ur þeirra verði hækkaðar um a.
m.k. tíu prósent, en það myndi
leiða af sér hækkun ríkisstyrks-
ins um nálega helming, eða upp
í 190 milljónir króna. Þetta hljóti
þó aðeins að vera fyrsta skrefið
í átt til launajafnréttis fýrir
fiskimenn og rnrrni baráttunni
haldið áfram þar til því marki
verði náð.
Viscount-flugvél
fórst við Varsjá
VARSJÁ 20/12 — Viscount-flug-
vél í eigu pólska flugfélagsins
hrapaði til jarðar skammt utan
við Varsjá í gærkvöld og fórust
allir sem með henni voru, 33 að
tölu. Flugvélin var að koma frá
Brussel og flutti 28 farþega, og
voru flestir pólskir. Flugvélin
var 'úveg að því komin að lenda,
en begar hún var í um 110
metra hæð stakkst hún til jarð-
ar.
KIEFF 20/12 — Tító Júgóslavíu-
forseti og kona hans héldu í dag
ásamt fylgdarliði sínu heimleið-
is frá Sovétríkjunum, en þar
hafa þau dvalizt undanfarnar
tæpar þrjár vikur. Þeir Krúst-
joff forsætisráðherra og Tító
ræddust við í dag í Kíeff, en
þangað fóru þeir saman með
járnbrautarlest fyrir tveim-þrem-
ur dögum.
Að loknum fundi þeirra í dag
var gefin út tilkynning þar sem
sagt var að þeir hefðu rætt í ein-
lægni og bróðemi um frekari
ráðstafanir til að bæta sambúð
Sovétríkjanna og Júgóslavíu.
SKÓVAL
AUSTURSTRÆTI 18
Eymundssonarkiallara
Kennedy lét undan Macmillan
Bretar fá Polarisflug-
skeyti fyrir Skyboit
NASSAU, Bahamaeyjum 20/12 — Fullyrt er að Kennedy
Bandaríkjaforseti hafi orðið við þeirri kröfu Macmillans,
forsætisráðherra Bretlands, að Bandaríkjastjórn láti Bret-
um í té Polarisflugskeyti í stað Skyboltskeytanna sem hún
ætlar að hætta við smíði á.
Polaris-flugskeytin, sem knú-
in eru föstu eldsneyti, eru eink-
um ætluð til notkunar í kafbát-
um og má skjóta þeim með
kjamahleðslu neðan úr djúpum
hafsins.
Framlenging um einn dag
Það er tekið fram að enn hafi
ekkert formlegt samkomulag
verið gert um þetta og eftir sé
að ganga frá ýmsum atriðum, en
búast megi við að það verði gert
á fundinum á föstudag. Viðræð-
ur þeirra stjómarleiðtoganna
áttu annars aðeins að standa i
tvo daga en þær voru fram-
lengdar um einn dag, vegna þess
hve Skybolt-málið rejmdist örð-
ugt viðfangs og tímafrekt.
Ósammála um Skybolt
Sagt er að Macmillan hafi ekki
viljað fallast á þá skoðun
Kennedys að vesturveldunum
væri fyrir beztu að hætta við
smíði Skybolt-skeytisins, þar
sem það myndi reynast of dýrt
og reynslan sem þegar hefði
fengizt af því þágborin. Macmill-,
an mun hinsvegar hafa sýnt for-
setanum fram á hvílíkum álits-
hnekki hann og flokkur hans
myndi verða fyrir i Bretlandi,
ef hætt yrði við smíði Skybolt-
skeytanna, en Bretar fengju
ekkert annað sambærilegt flug-
skeyti í staðinn.
Þegar þeir höfðu rætt þetta
mál lengi urðu þeir ásáttir um
að biðja landvarnaráðherra sína,
Thomeycroft og McNamara, að
athuga möguleika á því að
Bretar fengju Polarisskeyti frá
Bandaríkjunum og lögðu þeir á-
listgerð um það mál fyrir ráð-
herrana á síðdegisfundi þeirra
í dag.
!
Atvinnuleysið íBretiandi
hefur tvöfaldazt á árinu
LONDON 20/12. — Atvinnuleysið í Bretlandi hefur tvö-
faldazt síðan um jólaleytið í fyrra og eru nú 2,5 af
hundraði vinnufærra og vinnufúsra atvinnulausir. At-
vinnuleysingjum hefur fjölgað ört síðustu vikurnar, en
þeir töldust 10. desember sl. 566.200. Óttazt er að atrvinnu-
Ieysið muni enn aukast eftir hátíðarnar.bæði í janúar og
febrúar. Iðnaðarframleiðslan í Bretlandi í október sl. var
minni en í nokkrum öðrum mánuði síðustu fimm árin.
Brezku verkalýðssamtökin telja þessa þróun mjög fskyggi-
lega og hafa farið fram á viðræður við Maudling fjár-
málaráðherra um hvað gera skuli.
SkófafnaSur er nytsöm,
og kœrkomin iólagjöf!
Spiegel-mönnoH
KARLSRUH5 20/12 — Ríkissak-
sóknari Vestur-Þýzkalands til-
kynnti i dag að höfðað myndi
mál gegn Rudolf Augstein, út-
gefanda vikublaðsins Der Spiegel,
Conrad Ahlers, hermálafrétta-
ritara þess, og Alfred Martin,
ofursta í vesturþýzka hernum,
og eru þeir allir sakaðir um
landráð. Þeim Spiegel-mönnum
hefur nú verið sleppt úr fang-
elsi en þeir hafa verið í varð-
haldi í tæpa tvo mánuði. Enn
situr þó einn af ritstjórum blaðs-
ins í fangelsi og ennfremur of-
ursti úr vesturþýzku leyniþjón-
ustunni. sem handtekinn var í
sambandi við Spiegel-málið.
SigEingaskrif-
stofu Tékka í
Sjanghaj lokað
• Enskir og hollenzkir KVENSKÖR
• Þýzkir og hoilenzkir KARLMANNASK ÖR
— Mjög fallegt úrval —
• Þýzkir og Kollenzkir INNISKÖR
— Fyrir kvenfólk, karlmenn, unglinga og börn
— Stórglæsilegt úrval —
• Enskir og ítalskir KULDASKÖR
— fyrir kvenfólk
• ítalskir og tékkneskir KULDASKÖR
— fyrir karlmenn, unglinga og börn
• Franskir DRENGJASKÖR
— stærðir 24 — 39
• ítalskir TELPN ASKÖR
— Mjög fallegir — Stærðir 22 — 35
• Kanadískar KVENBOMSUR
— úr nælon — Fjórar gerðir________________
PEKING 20/12 — Orðrómur
sem hefur gengið um að lokað
hafi verið siglinga- og verzlun-
arskrifstofu Tékkóslóvakíu í
mestu hafnarborg Kína. Sjang-
haj. hefur verið staðfestur. Eng-
in skýring er gefin á lokuninni,
en grunur leikur á að hann
stafi af ósættinni milli
kommúnistaflokkanna í Kína og
í Austur-Evrópu. Svo virðist sem
einnig sé ætlunin að loka skrif-
stofu tékkneska aðalræðismanns-
ins í Sjanghaj.
SKÖFATNAÐUR
ER NYTSÖM OG
KÆRKOMIN
JÖLAGJÖF!
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
LAUGAYEGI 100