Þjóðviljinn - 06.01.1963, Page 4
4 SfBA ---------------
Sovésk knattspyrna
þjóðviljinn
Sunnudagur 6. Janúar 1963
• •
Einleikararnir
Eftir knattspyrnufrömuð>
inn Alexander Vit
Lokasprettur sovézku deildakeppninnar í knatt-
spymu var svo spennandi og úrsT *41n svo tvísýn
fram á síðustu stundu, að margir læknar ráðlögðu
heilsutæpum skjolstæðingum sinum að vera ekki
viðstaddir síðustu leikina.
Þetta var söguleg keppni. I
fyrsta sinn um árabil var nú
slakaö á gamalli höfuðreglu í
sovézkri knattspyrnu — þeirri,
að hver einstakur leikmaður
skuli beita hæfileikum sínum
algjörlega miðað við liðið i
heild, hemja þá ef þarfir heild-
arinnar krefjast þess.
Það skal tekið fram, að eng-
irm hefur nokkru sinni dregið
í efa mikilvægi hins snjalla
leikmanns, en meginskoðunin
hefur verið sú, að hæfni hans
og snilli skyldi gerð að óað-
skiljanlegum hluta liðsins í
heild. Hæfileikar leikmannsins
máttu ekki fara úr jafnvægi
við hæfni liðsins. Við vorum
þeirrar skoðunar — og erum
enn — að dýrkun einstakra
„stjama” í knattspymu erlend-
is sé skaðleg, ósanngjöm og
jafnvel auðmýkjandi fyrir aðra
leikmenn. Það má segja að
þetta sé merki um andúð,
byggðri á lýðræðislegum regl-
um, gegn persónudýrkun á
knattspymuvellinum.
„Einleikarinn“
Nútíma knattspyma leggur
mikla áherzlu á vamarstöðuna
og kappkostar að auka stöðugt
vöm í leik. Þetta hefur hvatt
okkur til að endurskoða afstöðu
okkar til „stjamanna”, og m.
a. til samleiksins. sem var
löngum meginatriði sovézkrar
knattspymu. Núna er lögð vax-
andi áherzla á hlutverk „ein-
leikarans” — leikmannsins sein
getur tekið á sig ábyrgð á rétt-
um tíma, gripið tækifæri sem
gefst og brotizt í gegnum vörn
andstæðinganna af eigin ramm-
Ieik.
Þetta þýðir ekki að við vilj-
um skipta leikmönnum í „ein-
leikara” og „kór”. eða að við
viljum setja á svið sýningu á
einstaka snillingum. Við erum
að færa sovézka knattspyrnu í
nútímahorf. án þess að falia
fyrir „stjömu”-dýrkuninni.
„Spartak“ sigraði
Nýafstaðin deildakeppni Sov-
étrikjanna var ágætt dæmi um
þessa stefnu. Hinn frábæri og
óvænti árangur nýju Sovét-
meistaranna. Spartak frá
Moskvu, er að þakka geysilegu
þolgæði og baráttuþreki í sein-
ustu leikjunum, og einnig þ'n'
að Spartak lét hæfileika leik-
manna sinna njóta sín til fulln-
ustu. Spartak fékk öll stigin
nema 2 í seinustu 12 leikjum
sínum.
Spartak varð fyrst allra sov-
ézkra liða til að nota til hins
ítrasta fjögurra bakvarða-kerí-
ið. Mörg sovézk lið hafa fyrir
löngu tekið upp brasilíönsku
aðferðina og sagt skilið við W-
kérfið en flest hafa hagnýtt
hana aðeins í vöminni. Árang-
urinn hefur orðið sá að færri
mörk voru skoruð í ár en í
fyrra, þ. e, 2,5 mörk að meðai-
tali í leik í á.r en þrjú í fyrra.
Ný knattspyrna
Vamarstefnunnar í knatt-
spymu, sem ruddi sér til rúms
um allan heim, varð einnigvart
í Sovétríkjunum. En sem betur
fer er nú ný knattspymustefna
að koma til sögunnar hjá okk-
ur. Þessi nýja stefna er byggð
á því að samræma trausta vörn
og skæð áhlaup og kemur hún
skýrast fram hjá liðunum frá
Kiev, Tiblisi, Taskent, Donetsk
og hjá Dynamo Moskvu. Þessi
nýja aðferð er miklu marg-
breytilegri, skemmtilegri, meira
aðlaðandi og í samræmi við
kröfur tímans en gamla aðferð-
in, sem leggur alla áherzlu á
vamarleikinn. Þessi nýja knatt-
spyma glæðir einnig mjög á-
hugann hjá ungum mönnum og
hvetur þá til dáða. Við meg-
um búast við að í krafti henn-
ar skjóti upp mörgum snilling-
um í knattspymu á næstu ár-
um.
Síðustu þrjú árin hafa verið
ár rannsókna og tilrauna, ekki
aðeins varðandi leikaðferð,
kunnáttu og uppbyggingu lík-
amlegra hæfileika leikmanna,
heldur einnig varðandi endur-
mat á skipulagningu knatt-
spymunnar.
Deildakeppnin
Fyrsta atriðið var skipulagn-
ing deildakeppninnar. I þrjú
ár voru 22 lið í I. deild og var
þeim skipt niður í tvo riðla.
Efstu liðin í hvorum riðli
kepptu síðan til úrslita um
meistaratignina. Því miður er
ekki unnt að hafa tvöfalda um-
ferð vegna hins skamma keppn-
istíma — 7—7j/2 mán.
Knattspyrnusamband Sovét-
ríkjanna hefur nú hleypt af
stokkunum tillögu um nýskip-
an deildakeppninnar. Er til-
lagan rædd um öll Sovétríkin
og hefur hlotið góðar undir-
tektir.
Samkvæmt tillögunni verða
framvegis 34 lið í I. deild. Verð-
ur þeim skipt í tvo riðla og
leiknar tvær umferðir, heima
og heiman. Fimm efstu liðin i
II. deild munu í lok hvers
knattspymutímabils taka sess '
I. deild, og neðstu 5 liðin í 1.
deild fara niður í II. deild.
Þessi mikla hreyfing mil.H
deildanna er líkleg til að auka
áhugann, þar sem II. deildar
liðin fá aukin tækifæri til að
„vinna sig upp” og hættan á
að „detta niður” úr I. deild
vex tiltölulega. Líklegt er talið
að nýskipan þessi komist á
þegar á næsta knattspyrnu-
tímabili. sem hefst í vor.
kórinn
• • \
Islandsmótið í handknattleik
Fram og FH keppa
nkJöstudagskvöld
Verið er að endurnýja sovézku knattspyrnuna á margan hátt.
Einstakir :cikmenn munu koma meir í sviðsljósið framvegis.
Japanska ncfndin sem skipu-
leggur framkvæmd olympíu-
leikanna 1964 hcfur ákveðið að
láta gera tilraun með að flýtja
olympíueldinn flugleiðis frá
Grikklandi til Japans.
Tilraunin er þó háð því að
flugumferðaryfirvöld veiti leyíi
til svo sérstæðs flutnings, þvi
það mun fátítt vera að flytja
eld flugleiðis.
Talsmaður nefndarinnar
Lokastzða sov-
ézku I. deilda'
keppninnar
greinir frá því, að hún hafi á-
kveðið að verja 28 milljónum
yena (um 2,5 milljónir króna)
til að kosta tilraunina.
Ef úr þessu verður, mun ol-
ympíueldurinn verða fluttur 1
ágústmánuði 1964. Mun flugvél-
in koma við í 22 þorgum í 19
löndum áður en hún kemur í
lokaáfanga — Okinawa hinn
9. september. Þaðan er ætlunin
að hlaupa með eldinn að fom-
um sið.
íslandsmótið í handknatt-
leik heldur áfram n.k. föstu-
dag. Verður þá háður sá
leikur sem beðið er eftir
með mestri eftirvæntingu,
þ.e. Fram—FH.
Eins og skýrt hefur verið írá
verður sú nýbreytni tekin upp
með Islandsmótinu 1963 að
leiknar verða tvær umfefðir í
I. deild karla. Mótið hófst í
desembermánuði sl. og fóru þá
fram 5 leikir. Islandsmeistar-
amir 1962, Fram, léku aðeins
einn leik fyrir jól — gegn Vík-
ingi — og töpuðu honum.
Það fer ekki á milli mála að
Hafnfirðingamir eru í mjög
góðri æfingu og þeir hafa áreið-
anlega fullan hug á að ná aft-
ur meistaratitlinum. Ekki er aö
efa að Framarar munu Veita
þeim harða keppni, þótt ekki
sé líklegt að sagan frá því í
fyrra endurtaki sig.
Á föstudagskvöldið fer fyrst
fram leikur milli KR og Vík-
ings og hefst hann kl. 8.15.
Á laugardagskvöldið kl. 8.15
hefjast svo leikir í yngri flokk-
um og II. deild. Það eru ÍBK
(Keflavík) og ÍA (Akranes) sem
leiða saman hesta sína bæði í
II. deild og í 3. flokki karla A.
1 II. deild leika einnig Valur
og Breiðablik (Kópavogi).
Sunnudaginn 13. janúar verða
svo þessir tveir leikir í I. deild:
Þróttur — Fram
IR — FH.
Stærsia mótið
Islandsmótið í ár er stærsta
og umfangsmesta mót sem
haldið hefur verið hér. Niður-
röðun leikja er að miklu leyti
lokið, en það er óhemjumikið
verk. A-liðin sem þátt taka í
mótinu eru hvorki meira né
minna en 58 að tölu, en þar
að auki eru B-lið í mörgum
flokkum. Engin íþrótt á sér
eins marga iðkendur á íslandi
og handknattleikur, og er stærð
mótinu eru hvorki meira né
Undarlegt er hinsvegar að jaín
vinsæl fjöldaíþrótt skuli ekki
geta fengið betri aðstæður til
æfinga og keppni og fyrir a-
horfendur en raun er á hér
hjá okkur. Vonandi rætist úr
því bráðlega með tilkomu nýrr-
ar fþróttahallar og má þá bú-
ast við enn meiri grósku í í-
þróttinni.
LIÐ U J T Stig Mörk
1. (3) Spartak Moskvu 14 4 4 32 37:18
2. (11) Dynamo Moskvu 10 9 3 29 28:14
3. (7) Dyiiamo Tiblisi 10 8 4 28 29:20
4. (4) Rauði herinn 9 8 5 26 24:18
5. (1) Dynamo Kiev 8 9 5 25 36:23
6. (10) Tashkent Pakhtakor 9 5 8 23 24:33
7. (2) Torpedo Moskvu 7 8 7 22 35:30
8. (12) Donetsk Shakhtyor 8 6 7 22 25:25
9. (9) Rostov Army 4 9 9 17 25:37
10. (18) Neftyanik Bakú 2 11 9 15 19:39
11. (13) Zenit Leningrad 4 6 12 14 29:31
12. (16) Kishinev Moldova 3 5 14 11 20:33
i
(Tölurnar í svigum sýna stöðu Iiðanna síðasta keppnistímabil.)
*
Gnlsjin
-jc Jevgeni Grisjin, sovézki
skautahlauparinn frægi, er
Iíklcgur til að láta mjög til
sín taka í vetur. Á móti í
Irkutsk nýlega náði hann 41,4
sek. á 500 m. I 3000 m skauta-
hlaupi sigraöi nýr skauta-
kappi, V. Ostasjov frá Ark-
angelsk.
★ Knattspyrnuáhugi mun
stöðugt aukast á Bretlandi. t
yfirlitsskýrslu um aðsókn að
knattspyrnuleikjum í fjórum
deildum sést að 15800 manns
hafa sótt hvern leik að meðal-
tali, en 15013 í fyrra. Heildar-
tala áhorfenda á knattspyrnu-
tímabilinu er 14.157.120 en
var 13,37 milljónir í fyrra.
★ Sænski knattspyrnumað-
urinn Lennart Skoglund (3;
ára) hvarf um jólin og hefu
ekkert til hans spurzt síðan
Hann hefur undanfarið leikii
með ítalska liðinu FC Pal
ermo sem er á botninum í i
deild á ítalíu. Sikileyjarbúa
hafa orðið fyrir miklum von
brigðum með Skoglund síð
asta keppnistímabil, og cri
þeir sagðir hafa miklu meit
áhuga á að rifta samningnun
við Svíann hcldur en að finm
hann.
★ Sænska unglingalandslið
ið i handknattleik vam
danska unglingalandsliðið s
miðvikudag í Kalmar. Crslif
in voru 20:19 en í hléi stóð
leikar 10:10.
Tii allra verka ó sjó og landi
Rauðir — Brúnir
Svartir
MAXSi