Þjóðviljinn - 06.01.1963, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 06.01.1963, Blaðsíða 5
Sunnudagur 6. janúar 1963 ÞJOÐVILJINN SÍÐA § Á það að taka 40 ár a fullgera Strákaveginn? Það er annað að tala fagur- lega á framboðsfundum um nauðsyn öruggrar samgöngu- leiðar milli Siglufjarðar og Skagafjarðar og hafa mann- dóm í sér til að standa með málinu þar sem úrslit þess eru ráðin á Alþingi. I fjárlagaumræðunum benti Gunnar Jóhannsson á þennan tvískinnung í þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu- flokksins, og sýndi fram á, að með því framlagi sem nú er ætlað til Strákavegarins. muni táka 40 ár að fullgera veginn! Gunnar Jóhannson flutti við 2. umræðu fjárlaga tillögu um heimild til 15 millj. kr. lán- töku vegna þessa vegar. í um- ræðunum sagði Gunnar m. a. þetta um málið: „Vegasambandið við Siglu- fjörð eins og það er nú. er al- gjörlega óviðunandi. Vegurinn liggur um Hraunadal og yfir Siglufjarðarskarð, mjög hátt. Þama uppi í háfjöllum er allra veðra von á öllum mánuðum ársins og getur vegurinn lok- ázt á hvaða tíma sem er. Sein- ast í sumar lokaðist hann bæði í júlí og ágúst, þótt stutt væri. Því hefur verið að því unnið undanfarið ár, að nýr vegur yrði lagður út með Hvanneyrar- hlíð að vestan, með jarðgöng- um í gegnum fjailið Stráka. Þaðan er svo meiningin að vegurinn liggi inn með dala- landinu að austan og á núver- andi Siglufjarðarveg við svo- kallaða Heljartröð. Á allri þessari leið er frekar snjólétt og mundi því hinn nýi vegur verða opinn mikinn hluta árs- ins. Að sjálfsögðu kostar slíkur vegur mikið fé. Mitt álit er og margra annarra að eina ráðið til þess að fá þennan nýja veg Frá Siglufirði: A myndinnii sést nýi vegurinn upp i Siglufjarðarskál í snarbrattri fjallshlíðinni lagðan á ekki alltof löngum tíma sé lántaka til vegarins og þeirri lántöku yrði auðvitað varið til að byggja veginn upp. Þessi vegur^ kostar 20 millj. kr„ sem mun. ekki fjarri lagi að álykta. Mundi með núverandi framlagi til vegarins sam kvæmt tillögu fjárveitinga- nefndar taka yfir 40 ár að leggja þennan veg, 40 ár. Auk þess mundi svo vegurinn verða mun dýrari með þvi að vinna við hann í smááföngum eins og nú er gert. Fyrir því tel ég hina mestu nauðsyn til þess. að ríkisstjórnin fái heimild frá Alþingi til lántöku til vegarins svo að hægt verði á næstu tveimur árum að ljúka við lagningu hans og koma með þvi móti einum mesta athafna- bæ landsins í öruggt samband við vegakerfi landsins. Stjörnarflo nauosyniaman armr gegn uðurlands Við 2. umræðu fjárlaga flutti Karl Guðjónsson ásamt Ágúst Þórvaldssyni og Bimi Fr. Björnssyni þá breytingatillögu að nýr liður kæmi á 22. gr. fjárlaga: Að heimila ríkis- stjórninni að taka allt að 25 milljón króna Ián til að ljúka undirbúningi og hefja brúar- gerð yfir Ölfusá hjá Óseyrar- nesi. Stjórnarflokkarnir, Sjálfstæð- isflokkurinn og Alþýðuflokkur- inn, lögðust gegn þessu nauð- synjamáli Sunnlendinga og greiddu allir viðstaddir þing- menn þeirra atkvæði gegn því að þessi heimild vrði skráð á fjárlög ársins 1963. Þingmenn Framsóknar voru með tillög- unni. Við umræðuna rökstuddi Karl tillöguna á þessa leið: „Þeir sem til þekkja, vita það, að þorpin þrjú á strönd Ámessýslu. Stokkseyri og Eyr- arbakki annars vegar og svo Þorlákshöfn hins vegar eru slitin í sundur af Ölfusá, og er ekki hægt að komast á milli Þorlákshafnar og hinna tveggja þorpanna nema því aðeins að fara mjög langan veg um Se’- foss. Þetta er mjög bagalegt, vegna þess að mörg undanfarn ár hefur þróun gengið til þeirr- ar áttar, að það er hætt að vinna að hafnargerð á Stokks- eyri og Eyrarbakka að mestu leyti, en Þorlákshöfn er hins vegar rísandi hafnarbær, sem þarf margra hluta með, ekki sizt vinnuafls, en þar eru hins vegar litil húsakynni, alltof lít- il til þess að hýsa allt það fólk, sem við þann útveg þarf að vinna, sem þar er þegar myndaður og á vafalaust eftir að vaxa í hlutfalli við væntan- lega stækkun hafnarinnar þar. Það væri vísastur vegur til þess að bæta afkomu fólksins í þeim þorpum, þar sem hafn- arskilyrðin fara þverrandi og minna er sinnt um útgerð, eft- ir að höfn á nálægum slóðum opnast betri og stærri heldur en þessi tvö þorp, Stokkseyri og Eyrarbakki hafa haft, ef það gæti átt greiðan gagn yfir til Þorlákshafnar, til þess að stunda þar vinnu sína. þá mundi þeim nýtast af íbúðar- húsum sínum og einnig mundi þá nýtast af þeim framleiðslu- tækjum, sem í landi eru, eins og t.d. fr>rstihúsum og annarri fiskverkunaraðstöðu, sem ekki er sýnilegt annað en verði lítils virði, ef ekki kemst beinna og greiðara samband milli þessara staða heldur en nú er. Auk þess er það ýmislegt i samgöngukerfi Suðurlands. sem krefst þess, að Ólfusá verði brúuð fram við Ósinn og flestir munu sammála um að það væri hin mesta samböngu- bót ef svo yrði gert. Fullnað- arrannsóknir á kostnaði við þessa brú í Óseyrarnesi, eru nú að vísu ekki fyrir hendi, en það er margra manna grunur, að þarna sé hægt að byggja brú miklu ódýrri en menn gerðu sér hugmyndir um í upphafi og miðað við nytsemi hennar, bæði hvað snertir að tengja Stokkseyri og Eyrarbakka við Þorlákshöfn og einnig til al- mennra samgangna um neðan- vert Suðurlandsundirlendið, þá er það ekki áhorfsmál, að þarna á að koma brú og hlýtur að koma brú. Nú má e. t. v. segja, að ekki sé eins brýn þörf og áður að leggja tíl í fjárlögum, að rík- isstjórnin fái lántökuheimild til þess arna. því að e. t. v. gæti hugsazt, að eitthvað af því fé, sem ríkisstjórnin hefur þegar tekið að láni, 240 millj., gæti til þessa runnið. En ef svo er ekki, að þetta fi-amlag rúmist innan þess ramma. þá er vert að samþykkja nýja lánsheimild í þessu skyni og það höfum við flutningsmenn þessarar tillögu lagt til, og að lokið verði und- irbúningi og framkvæmdir hafnar við þessa brúargerð." Um leið og slikur vegur mundi verða hin mesta lyfti- stöng fyrjr Siglufjörð og íbúa hans, yrði hann jafnframt til stórhágsbóta fyrir útsveití'r Skagafjarðar og jafnvel fyrir alla Skagafjarðarsýslu. Eins Qg nú horfir, er yfirvofandi hætta á, að Fljótin, sem er yzta byggð Skagafjarðar, leggist í auðn. Á hverju ári flytja það- an fleiri fjölskyldur til ann- arra staða, en með komu hins nýja vegar mundi þetta giör- breytast. í Fljótum eru hin beztu lönd til ræktunar og til- valið að koma þar á fót mikilli mjólkurframleiðslu, en afsetn- ingsmöguleikar verið mjög tak- markaðir og erfiðir. Ef aftur á móti væri komið á öruggt vegasamband við Siglufjörð, væri hægt að senda mjólkina þangað daglega, og þar unnið og hreinsað úr henni, annað hvort í mjólkurstöð á Siglu- firði eða Haganesvík. Annars er það mála sannast, að öll úthéruð Skagafjarðar mundu hafa stórkostlegt gagn af öruggu vegasambandi við Siglufjörð. Um það þarf ekki að deila. Þessa staðreynd gera íbúar þessara héraða sér fylli- lega ljósa og ég fullyrði, að kjósendur í Skagafirði og aðr- ir íbúar þar ætlast beinlínis til þess af þingmönnum sínum, að þeir vinni að lausn þessa stórmáls með festu og dugnaði. Snemma á þessu þingi flutti Skúli Guðmundsson ásamt mér og Birni Pálssyni frumvarp til laga um lántöku vegna Siglu- fjarðarvegar ytri að upphæð 15 millj. kr. Frumvarpið var tek- ið fyrir til 1. um. og að henni lokinni vísað tl 2. umr. og fjárhagsnefndar. Siðan hefur ekkert heyrzt um þetta mál og litlar líkur eru til þess, að það fái viðhlítandi afgreiðslu. ef miðað er við réynslu undan- genginna ára. Síðan hefur ekk- ert heyrzt um þetta mál ann- að en það, að tveir af þing- mönnum kjördæmisins hafa skrifað um málið og talið hina mestu nauðsyn þess að leysa vegamál Siglfirðinga á sem fljótastan og beztan hátt. Ekki skal ég draga það í vafa, að þessir ágætu þingmenn séu all- ir af vilja gerðir til þess að leysa vegamál Siglfirðinga og Skagfirðinga, þótt þeir séu Framhald á 3. síðu. Útgefandi: Sósíalistaflokk- Sameiningarflokkur aiþýðu urinn. — Ritstjórar: ívar H. Jónsson, Magnús Kjartansson, Sigurð- ur Guðmundsson (áb) Fréttaritstjórar: Jón Bjarnason. Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjórn, afgreiðsla. auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 65 á mánuði. VOLTA- KROSSINN Jslendingar sem lesa blöð frá nítjándu öld og fyrstu áratugum tuttugustu aldar hafa mikla skemmtan af auglýsingum um undralyf, sem sögð voru bæta flest mannamein, að minnsta kosti alla sjúkdóma sem menn þekktu af lækn- ingabók Jónassens og eigin reynd. Mest bar á tvennum slíkum meðölum til kraftaverkalækn- inga, Voltakrossi og Bramalífselixír. islenzk blöð birtu ekki einungis skrumauglýsingar frá mönn- um sem höfðu hugkvæmni til að auðga sig á fáfræði fólks á þennan hátt, heldur líka vottorð, hundruðum saman, um undraverðar og dásam- legar lækningar. j^nn virðist allstór hópur íslendinga á nákvæm- lega sama stigi gagnvart hindurvitnum og auðgunarbrellum óprúttinna manna, sem not- færa sér fáfræði fólks og trúgirni. Þegar auglýs- ingabrella kemur fram, virðist nóg af fólki sem hefur sams konar afstöðu til „segulmagnaðra armbanda frá Japan“ sem lækna flesta kvilla ef hlutaðeigendur snúa til norðurs og suðurs á nóttunni, og menn höfðu til Voltakrossins og Bramalífselixírs áður fyrr. Það er að vísu búið að lögtaka á íslandi að ekki megi auglýsa svindlið „frá Japan“ eða annað slíkt, eins og gert var með Voltakross eða Bramann. En í þess stað er hlutaðeigendum veitt ókeypis auglýsing í fréttahungruðum blöðum og sú auglýsing jafn- vel flennt yfir forsíður sem um heimsfrétt eða gagnmerkan innlendan atburð væri að ræða. Fréttin um málaferlin í Danmörku gegn þessu lækningasvindli sem Þjóðviljinn birti í fyrra- dag sýnir hve gífurleg álagning er á gripum þessum. Enda er það meginatriði málsins: Hvað sem líður bata trúgjarnra manna sem láta glepj- ast af svindlinu, er einn bati vís: Batinn í efna- hag þeirra sem raka saman gróða á fáfræði og trúgirni fólks. 0*. þetta er ekki einstakt fyrirbæri. Hvers konar hjátrú og hindurvitni virðist lifa góðu lífi á íslandi, enda boðuð andatrú og draugatrú með þvílíku offorsi, að verið er að gera þjóðina að viðundri, draugalækninga leitað við sauðfjár- sjúkdómum, verklegar framkvæmdir stöðvaðar nokkrar vikur meðan draugar flytja búferlum, rithöfundar og útgefendur keppast um að græða hálfa eða heila milljón á útgáfu nýrrar, enn meira krassandi draugabókar en þeirrar sem kom út í fyrra. Til er hópur manna sem heldur að þetta draugafargan og pýramídaspádómar og stjörnuspár sé eiginlega allt fullgild náttúru- vísindi! Og varla er við öðru að búast meðan út eru gefnar tíu hindurvitnabækur fyrir hverja eina um raunvísindi, meðan skrifuð er saman bók um hvern einasta „miðil“ en engin um brautryðjendur íslenzkra náttúrufræða Hér þarf breyting á að verða, vilji Íslendingar teljast menningarþjóð. — s.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.