Þjóðviljinn - 27.01.1963, Síða 10
J0 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagur 27, janúar 1963
Hún var að velta fyrjr sér,
hvers vegna vísundarnir þyrftu
endilega alltaf að velta sér á
sama staðnum. Þejr voru heimsk-
ustu skepnur í heimi. Hún hafði
séð þá eins og svarta rák við
sjóndeildarhringinn þegar þeir
þrömmuðu yfir auðnima að vatns-
bóli. í>eir röltu áfram hinir ró-
legustu, þar til einn — gamall
gaur í fararbroddi — tók upp
á því að velta sér um hrygg til
að klóra sér á bakinu Hann
reis á fætur og rölti áfram. En
rétt eins og eftir skipun veltu
allir hinir vísundarnir sér á
sama staðnum. Þegar þúsundasti
vísundurinn var búinn að velta
sér var komin stærðar dæld.
Oliver reyndi að forðast þessar
dældir, en það var hægara sagt
en gert. Þegar hann kom auga
á þær. var yfirleitt um seinan
að beygja
Ennið á Olþver var brúnt af
ryki. Hann hafði ekki rakað sig
síðan þau hófu ferðina, og nú
var hann býsna skeggjaður. Ryk-
ið settist í skeggið. svo að það
var eins og þakið köngulóarvef.
Á höfðinu var hann með gamlan
hatt tii hlífðar fyrir sólinni og
hatturinn var Hka þakinn ryki.
Hann var í köfióttri skyrtu, en
hún var löngu orðin uppiituð,
svo að ekki var lengur hægt að
greina litinn og þykku vaðmáls-
buxurnar voru næstum iitlaus-
ar. Ermarnar voru uppbrettar
og handleggirnir á honum voru
svo brúnaðir af sóiinni að ljós-
brún líkhárin sýndust næstum
hvít. Vöðvar hans voru eins og
kaðlar undir hörundinu. Karl-
mennirnir í lestinni unnu mikla
erfiðisvinnu Það var því ekki
að undra. þótt hún tækj eftir
sterklegum grófgerðum höndum
Olivers í New York.
Gamet horfði á saumsprettu
í kjólerminni sinni. Fötin höfðu
verið hennj mátuleg í New York,
en í þessarj ferð þurfti hún líka
að vinna Vöðvarnir urðu stælt-
ari og ekki sériega kvenlegir.
Hún þreifaði á stinnum upp-
handleggsvöðvunum. — Þegar
við komum tii Californíu, sagði
Gamet, — vona ég að bróðir
þinn. verði ekki vonsvikinn yfir
því að ég skuli ekki líta út eins
og postulínsbrúða. Ég er orðin
svo sterk og úfitekin.
Oiiver skotraði augunum til
hennar. — Charles býst ekki við
neinu. Hann veit ekki neitt um
þig.
— Nei, auðvitað ekki. Ég
gleymi því alltaf. Heldurðu, að
honum muni geðjast að mér?
— Vertu ekki að brjóta hei!-
ann um Charles. — Oliver var
svo stuttur í spuna, að hún varð
undrandi.
Garnet sneri sér til í sætfnu.
— Hvað áttu við? Kvíðirðu fyrir
að hitta hann?
— Það getur verið að hann
— verði dálítið erfiður viður-
eignar í fyrstu, sagði Oliver.
— En því þá það?
— Hann verður sjálfsagt undr-
andi á því að ég skuli hafa gift
mig. Drottinn minn, Garnet,
það eru fjórir eða fimm mánuð-
ir þangað til við komum til
Californíu, svo að það er ástæðu-
laust að hafa áhyggjur útaf
Charles.
Garnet hrukkaði ennið Qg
hugsaði. Oliver horfði beint
fram fyrir sig meðan bann
stýrði múldýrunum yfir hnúsk-
ótta sléttuna. Rykský þyrlað-
ist framaní bana. Hún hóstaði
og Oliver sagði brosandi:
— Reyndu að hósta ekki. Þú
verður aum í hálsinum af því.
[ Kyngdu
Gernet kyngdi. — Ég veit það.
Ég sk-al reyna að muna það.
Rykið hafði gert múldýrin óró.
Oliver átfi fuljt í fangj með að
| stjórna þeim. Hann gat ekki lit-
i ið á hana, en hann talaði við
| hana i uppörfandi róm.
i — Ferðalagið er býsna erfitt,
i finnst þér ekki? Tíu þúsund
hluti þarf maður að muna og
á morgun þarf maður að muna
það allt saman upp á nýtf.
Gamet hélf sér fastri í sæt-
ið. Hún dáðist að lagni hans við
að stjórna dýrunum. En hún
velti fyrir sér hvers vegna hann
hefði sagt að hún skyldi ekki
hafa áhyggjur af Charles. Það ]
var eins og hann vildi ekkert um i
hann tala. Jæja, hún gæti spurt i
hánn seinna. Ef hún þyrfti að í
vita eitthvað um Charles áður |
en hún hitti hann, þá myndi OK- j
ver áreiðanlega segja henni það. j
Hún hlustaði á skröltið í ]
vagnalestinni. Það marraði í j
hjólunum þegar þau snerust.
Uxarnir bölvuðu ökumönnunum
sem neyddu þá til að þræla
svona í rykinu og hitanum.
Uxakúskarnir gengu með ækinu
og hrópuðu og bölvuðu og létu
smella í svipunum. Gamet hlust-
aði og þótt hún væri svo þreytt
að hana verkjaði í limina, brosti
hún hreykin. Hvað sem öðru leið,
þá var eitthvað sérstakt við
Santa Fe-lestina, sem bauð byrg-
inn auðninni miklu með dirfsku
og svita.
Vagnalestin var hálfur annar j
kilómetri á lengd. Hún fór 25
kílómetra á dag. Þar vom hundr-
að vöruvagnar. auk farangurs-
vagna og íveruvagna. Vagnamir
óku fjórir í röð. svo að hver
kaupmaður gæti fylgzt með
mönnum sínum. Á undan riðu
útkíksmennirnir og á eftir röltu
aukamúldýrin og uxamir. Þegar
þau' lögðu af stað frá Counvil
Grove höfðu aðeins verið fjöru-
tíu vagnar í lest. En nú höfðu
flestir kaupmennirnir slegizt í
hópinn, á stöku stað meðfram
hjólförunum sáust merki eftir
bál, sem gáfu til kynna að
framundan væru fleiri vagn-
ar.
Þau voru komin þúsund kíló-
metra frá Independence og áttu \
þrjú hundruð kílómetra eftir til j
Santa Fe. Alla þessa leið höfðu [
þau ekki séð neina mannabú-j
staði. En þvert yfir þessa auðn ]
fluttiu kaupmennirnir vörur sem
voru milljón dollara virði. Vör- ,
unum hafði verið svo vel pakk-
að, að í Santa Fe yrði varla
hrukku að sjá á klæðaströngun-
um og ekki dæld í potti eða
katli, Þetta var mikið vanda- j
verk. Garnet var hreykin af,
því að eiga hlutdeild að því.
Hún fann hvemig svitinn lak
l niður á milli herðablaðanna.
— Oliver, hvað kemur á eft-
ir Kanínulæknum? spurði hún.
— Heiðin.
— Og þar næst?
— Ásarnir. Og siðan fjöllin.
Gamet leit til bak,a á rykið
sem hékk í loftinu eins og
þrumuský. Himinninn sjálfur
var dimmblár og fáeinar léttar
skýjatásur. Þannig hafði hann
verið dögum saman og hitinn var
miskunarlaus. Landið var skræl-
þurrt, Hér vex ekki annað en
vísundapuntur, grófir, harðir
hnúskar. sem jafnvel nautin
fúlsuðu við sem fóðri.
Eftir tvo daga kæmu þau í
meira hálendi. En hér voru ekki
einu sinni steinar, hér var ekki
neitt. Ekkert! nema ryk og slétta.
Henni fannst landið samt ekki
! flatt. Alls staðar voru ójöfnur,
hæðir og dældir. En það virtist
flatt, rennislétt eins og pappírs-
örk. Langt, langt framundan gat'
Garnet greinf fjöllin, Úr þessari
1 fjarlægð sýndust þau eins og
gráar silkiræmur sem teygðu sig
í átt til himins
Landið var hljóðlaust, autt, ó-
heryfanlegt. Jafnvel við sjón-
deildarhring sá Garnet enga
hreyfingu, ekki svo mikið sem
vísund, ekki díl sem gæti verið
tré. Hún sá ekki annað en ið-
andi birtuna, vísundapuntinn og
hvít og skinin vísundabein og
fjarlægðirnar. Vagnalestin var
hálfur annar kilómetri á lengd en
hér virtist hún eins og örlítill
maðkur í auðninni miklu.
Þegar horft var út í tómið, '<
gleymdist marrið og brakið og j
hrópin umhverfis Það var eins'
og allt væri óendanleg kyrrð.
Kyrrðin magnaðist. hún varð
stórkostleg og ógnandþ Manni
datt í hug að ferðin var þrett-
án hundruð endalausir kílómetr-
ar. Það var ekki hægt að snúa
við. Ferðinni yrði að halda á-
fram hvað sem fyrir kæmi. Ef
einhver yrði veikur, dauðveik-
ur. væri ekki hægt að stöðva
vagnana til að leyfa honum að
deyja í friði. Þeir vrðu að halda
áfram. Jafnvel þótt maður dæi.
vrði aðejns dokað við fáeinar
mínútur til að grafa hann, og
síðan yrði haldið áfram. Þeir
vrðu að komast til Santa Fe.
— Garnet. sagði Oliver allt í
einu.
Hún tók viðbragð og leit við.
— Já, hvað? Viltu meira vatn?
— Nei, ég á dálítið eftir. En
Garnet. þú átt ekki að horfa
svona mikið útí bláinn.
— Af hverju ekki? spurði hún
undrandi. — Á hvað á ég þá að
horfa?
— Á ekki neitt. Það er það
sem ég á við, sagði Oliver.
— Þetta heltekur þig.
— Ég skil þig ekki.
— Kyrrðin, sagði Oliver. Ein-
roanaleikinn. Ég get ekki út-
skýrt hvað gerist í huga manns.
Fn þú tókst eftir hvað þér brá
við. þegar ég talaði til þín.
Hún kinkaði kolli. — Já, það
satt. Év var ekki að hugsa
um þig, Ég var að hugsa um
^ögnina.
— Já, en það skaltu ekki
gera. Hugsaðu um Santa Fe. Það
verður mjög skemmtilegt þegar
þangað kemur. Oliver þurfti að
sinna múldýrunum um stund, en
svo hélt hann áfram: — Þegar
við komum upp i ásana,' sagði
nann. — þá sendum við útkíks-
menn á undan til Sanfa Fe, til
að koma'st að því hvaða brell-
um Armijo hafi nú fundið uppá,
svo að við getum fundið ein-
hver ráð til að sniðganga þær.
Og það er skemmtilegt í Santa
Fe. Á þessum tíma árs er öðru
hverju húsi breytt í krá eða
spilavíti-
— Ætlarðu að fara með mig
á slíka staði?
— Auðvitað skal ég sýn,a þér
allt. Við eigum að búa hjá fjöl-
skyldu sem heitir Silva. Það er
gott fólk. Ég hef búið þar í
hvert sinn sem ég hef komið tii
Santa Fe.
Vegurinn var nú orðinn sæmi-
legur og múldýrin róleg. Garnet
leit af víðáttunni framundan.
Oliver hélt áfram: — Og áður
en langt um líður hitltirðu Cali-
forníu-náungana. Það er mislit-
ur hópur, en ég býst við að þú
hafir gaman af að kynnast þeim.
John Ives til dæmis — það
er félagi minn — hann væri
hagvanur í stofunni hennar
mömmu þinnar. En sumir eru
frumbyggjar, sem halda að New
York sé staður þar sem jarð-
arber og kampavín séu til há-
degisverðar og allar konur gangi
til fara eins og Florinda.
Andrés er starfsmaður bæj-
arins og sér um fiutning á
umferðarmerkjum. Á einu
götuhorninu lendir annað aft-
urhjólið á fiutningabílnum á
grjóthnullingi með þeim af-
leiðingum, að umferðarmerkín
á bílpallinum kastast til og
eitt þeirra deítur í götuna.
Andrés verður þessa þegar
var og hleypur til, en þá hef-
ur hópur manna safnazt sam-
an við merkjð og bíða allir
eftir næsta strætisvagni, því
að á merkisspjaldinu stendur
..Strætisvagnabiðstöð“J
SKOTTA
Það er verið að flytja sjónvarpsviðtækið úr einbýliishúsinu við
Strákasund á viðgerðarstofu, þegar Skotta á leið um götuna
ásamt vinkonu sinn:i. Skotta segir: „Ó-ó. Þarna passsa ég
ég ekki börnin næstu dagana!“
Sá kann nú lagid á því
Framhald af 7. síðu.
ar 180 þúsund sálir er byggja
Island — og sýnir okkur fram
á, að allt er þetta í rauninni
sama kompaníið. Hann sér það
manna bezt að þau öfl sem
neita að virða rétt hins nakta
afríkunegra eru jafnvís til að
sitja yfir hlut hins særokna ís-
lenzka fiskimanns og sólbitna
bónda, — að örlög íslands
hljóta að ráðast af því hvemig
skipast um málstað lítilmagn-
ans í heiminum öllum.
„En ef á annan veg fcr um^
viðskipti ríkja og þjóða eft-
ir styrjöldina", segir Sverrir
í beinu framhaldi þeirrar í-
vitunar í ræðu hans frá 18.
júní 1944 sem ég tilgreindi í
upphafi, „ef þessi ægiþungi
ófriður fær komiið vitinu
fyrir mennina. ef striðsböl-
inu verður aflétt og menn-
imir mynda sér ný form
fyrir attþjóðlegri samvinmi á
þessum hnetti, þá verður
fullveldi íslands meira en
orðahjóm og glamur. Þá
mun ísiland geta leikið sitt
ljúfa litla lag i hljómsveit
þjóðanna.“
Og það verður ekki hvað
sízt mönnum eins og Sverrá!
Kristj ánssyni að þak'ka,
Hafnarfirði, 14. janúar 1963.
Jónas Ámasoiu
TRULOFUNAR
HRINGIR
AMTMANNSSTIG 2
Halldór Kristinsson
Gullsmiður •— Siml 16979.
Rithöfundafélag fslands
efnir til upplestrarfundar í Glaumbæ kl 3 í dag
Eftirtaldir höfundar lesa upp úr verkum sínum:
ARI JÓSEFSSON
BALDUR ÓSKARSSON
GEIR KRISTJANSSON
JÓN tJR VÖR
RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR
SIGRlÐUR EINARS frá Munaðarnesi
SIGURÐUR A. MAGNÚSSON
SVEINBJÖRN BEINTEINSSON
ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON.
Öllum er heimill aðgangur. Aðgangseyrir kr. 20.
Unglingur óskasf
Vilium ráða ungling strax 15—17 ára.
Þar* að haía „sksllinöðru” til umráða.
Þióðviljinn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför sonar okkar
GUÐJÓNS FRIÐGEIRSSONAR
•WV
Ólöf Sigurbjömsdóttir, Friðgeir Guðjónsson.