Þjóðviljinn - 28.03.1963, Síða 3
Fimmtudagur 28. marz 1963
ÞTðÐVILJINN
SfÐA 3
Sovétstjórnin í harðorðri orðsendingu:
Bandaríkin bera ábyrgð á
,s jóránum" útlaga í rá Kúbu
MOSKVU og WASHINGTON 27/3 — Sovétstjórnin sendi
í dag Bandaríkjastjóm horðorð mótmæli vegna árásar
sem útlagar frá Kúbu, nú búsettir í Bandaríkjunum, gerðu
á sovézkt kaupfar í hafnarbænum Isabello-la-Sagua á
Kúbu 17. marz sl.
1 orðsendingunni segir jð
Bandaríkjastjóm loki augunum
fyrir þeirri staðreynd að atburð-
ir sem þessi spilli ástandinu í al-
þjóðamálum og þó einkum á
Karíbahafi og lýsir fullri ábyrgð
á hendur henni á slíku fram-
ferði sem líkt er við sjórán >g
sagt að brjóti í bága við sam-
komulagíð sem ríkin gerðu með
sér um lausn Kúbudeilunnar.
Enn ein árás
Aðeins fáeinum klukkustund-
um eftir að orðsending sovét-
stjórnarinnar hafði verið birt var
frá því skýrt í Miami á Flórida
að landflótta gagnbyitingarmenn
frá Kúbu hefðu aftiir ráðizt á
sovézkt kaupfar f þessum sama
hafnarbæ. Sú árás var að sögn
blaðsins Miam'i Herald gerð á
þriðjudagskvöld og stóð fyrír
henni flokkur útlaga sem kall-
ar sig „Commando 1“.
Annar flokkur
Talsmaður flokksins sagði að
árásarsveitin hefði komizt heilu
og höldnu til bækistöðvar sinn-
ar einhvers staðar við Kariba-
haf. Það var annar flokkur land-
flótta Kúbumanna, Alpha 66, sem
gerði árásina á kaupskipið 17.
Sovétstjómin segir að þessir
svikarar við málstað sinnar eigin
þjóðar myndu ekki geta stundað
óhæfuverk sín ef þeir fengju ekki
vopn og aðra aðstoð frá Banda-
ríkjunum og gætu leitað þar hæl-
is að þeim unnum.
Talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins vísaði í dag á
marz, sem mótmælt er í sovézku j bug hinum sovézku mótmælum,
orðsendingunni. Skotið var mörg-
um skotum að því úr hlaupvíð-
um vélbyssum, en ekki er getið
um að manntjón hafi orðið.
sagði að Bandaríkjastjóm reyndi
allt sem i hennar valdi stæðl til
að koma í veg fyrir slíka á-
rekstra.
Ekkert lát á verkföllum í Frakklandi
Járnbrautarsamgöngur enn
í gær í algeru öngþveiti
PARÍS 27/3 — Algerður glundroði var í öllu járnbraut-
arkerfi Frakklands í dag og var það í fjórða sinn á mán-
uði sem jámbrautarsamgöngur um landið lamast vegna
verkfalla. Langferðalestir voru 4—5 stundir eftir áætl-
un og lestarferðir í París og nágrenni og öðrum stórborg-
um lögðust alveg niður á mesta umferðartímanum.
Verkfalli prentara í New York lokið
Blöðin koma aftur
út eftir 110 daga
Re''nt 38 neyða
ver! fallsmenn að
upp vinnu
»
HBLSINKI 27/3 — Finnska
stjórnin skipaði í dag opinber-
um starfsmönnum. m.a. póst-
mönnum, tollurum og starfs-
mönnum járnbrauta að tilkynna
persónulega. í síðasta lagi á
laugardag. hvort beir ætluðu að
taka upp vinnu. Er gefið í skyn
að þeir sem ekki hverfi aftur ti'
vinnu geti átt á hættu að verða
sagt upp og stjórnin vonast
greinilega til þess að hluti
starfsmanna hennar a-m.k. muni
beygja sig fyrir þeirri hótun.
NEW YORK 27/3 — Hinu lang-
vinna verkfalli við dagblöðin í
New York, sem stóð í 110 daga,
er lokið og munu biöðin nú
koma út aftur. En þau verða
dýrari en áður: Times og Her-
ald Tribune tilkynntu í dag að
Iausasöluverð þeirra myndi
hækka úr fimm sentum í tíu
sent á virkum dögum til að vega
upp á móti auknum útgáfukostn-
aði.
Prentarar samþykktu á sunnu-
dag máiamiðlunarlausn Wagners
borgarstjóra og aðfaranótt mið-
vikudagsins féllust prentmynda-
smiðir einnig á hana og hafði
þá náðst samkomulag við alla
iiðpa vérkfallsmanna. W
Tvö önnur dagblöð borgarinn-
ar kostuðu áður tíu sent, en hin
fjögur blöðin hafa ákveðið að
hækka ekki lausasölu-verðið.
síðan hefur stórborgin verið
dagblaðalaus, nema New York
Post sem samdi sérstaklega við
verkfaUsmtenn hóf útgáfu 4. marz.
Margir meiðast í
óeirðum í Ankara
ANKARA 27/3 — Enn í dag,
fimmta daginn í röð, urðu ó-
spektir í borgum Tyrklands
vegna mótmælafunda stúdenta
út af því að Bayar, fyrrverandi
forseti, hefur verið látinn laus.
f höfuðborginni Ankara meidd-
usí’ sextán menn. sumir hættu-
lega, þegar stúdentar gerðu að-
súg að aðalstöðvum flokks
fyrrverandi fylgismanna þeirra
Bayars og Menderes, Réttar-
Verkfailið hófst 8. desember og flokknum.
Ekki bætti það úr skák að
starfsmenn strætisvagna höfuð-
borgarinnar lögðu skyndilega
niður vinnu og áttu margir erfitt
með að komast til vinnu sinnar
og heim aftur.
Jafnframt því sem jámbrautar-
menn ýttu með verkfalli á eftir
kröfum sínum um kjíirabætur,
boðuðu starfsmenn gas- og raf-
stöðva verkföH næstu daga og
munu þau hefjast á morgun. Ekki
var látið uppi hvemig vinnu-
stöðvununum myndi háttað, en
vitað að þær mundu verða gerð-
ar við og við alla næstu viku.
Það var boðað að verkföllunum
myndi verða hagað með þeim
hætti að þau kæmu sér sem verst
fyrir ríkisstjómina, en almenn-
ingur yrði fyrir sem minnstum
óþægindum.
Ríkisstjómin sat á fundi í dag
til að ræða ástandið á vinnu-
markaðnum og var de Gaulle í
forsæti. Rikisstjómin hefur enn
ekki fengizt til að gera kola-
námumönnum sem verið hafa í
verkfalli í fjórar vikur neitt nýtt
kauptilboð, en á morgun munu
aftur hefjast viðræður við leið-
toga þeirra og búizt er við að
einnig verði rætt við leiðtoga
starfsmanna gas- og rafstöðva.
Eina vinnudeilan sem lausn
hefur fundizt á er deila verka-
manna við jarðgasnámumar I
Lacq í Suðyestur-Frakklandi, en
þeir hófu aftur í dag vmnu eftir
þriggja vifcna verkíall.
Á morgun gera blaðamenn ub
an Parísar sólarhrings verkfaH
til að fylgja eftir kröfum sínum
um 20 prósent kauphækkun, 5
vikna orlof, 5 daga vinnuviku og
lækkun lífeyrisaldurs um 5 ár.
Blaðamenn í höfuðborginni og
starfsmenn sjónvarps og útvarps
hafa verið hvattir til að stöðva
vinnu í einn klukkutíma í sam-
úðarskyni.
Mótmæli atvinnuleysingja
aftur
við þinghús Breta
LONDON 27/3 — Aftur í dag
söfnuðust þúsundir atvinnuleys-
ingja fyrir framan þinghúsið f
London til að láta í Ijós óánægju
sína með aðgerðarleysi rikis-
Japanar bjóða góð viðskiptakjör
tíl Sovétríkjanna
RÚMAR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
KYNNIÐ YÐUR
MODEL 196° ____
Sími 24204
Svtinn^, B3ÖR NSSON 4 CO. p.o. BOX 1JM - REYKlAVlK
Eldhúskollar
kr: 150,—
EídhúsborZ
kr: 990,—
StrauborS
kr: 298,—
Miklatorgi
Fundur í sovézka rithöfundafélaginu
Evtúsénkó og önnur
fTOKlÖ 27/3 — Japanskar skipa-
smíðastöðvar hafa í hyggju að
leggja að sovézkum stjórnar-
völdum að svara nú sem fyrst
tilboði1 því sem þær hafa gert
þeim um mjög hagstæða greiðslu-
skilmála vegna smíði á mörgum
sovczkum fiskiskipum í Japan.
Hér er um að ræða mjög
arnkil viðskipti, því að verðmæti
þeirra fiskiskipa sem Sovétríkin
hafa farið fram á að fá smíðuð
i Japan nemur samtals 135 millj-
ónum dollara eða tæplega sex
milljörðum íslenzkra króna. Jap-
anskar skipasmíðastöðvar hafa
með samþykki japönsku ríkis-
stjómarinnar boðið Sovétríkjun-
um 5% árs greiðslufrest á 70
prósent af verði skipanna.
Talsmaður skipasmíðastöðvar-
innar sagði i dag að ef Sovét-
ríkin væru ekki ánægð með þetta
boð mætti taka upp viðræður
við japönsku stjórnina um enn
betri skilmála.
lan
mmna
DJAKARTA 27/3 — Indónes-
íska fréttastofan Antara bar í
dag til baka þá frétt sem bún
birtj í gær, að 11-000 manns
hefðu farizt í eldsvoðunum á
Balí að undanförnu. Þessi tala
hefði stafað af misskilningi og
einu núlli verið ofaukið. Talan
hefði átt að vera 1.100, en síð-
an væri komið á daginn að 1.478
hefðu látið lífið.
MOSKVU 27/3 — Ljóðskáldið
Évgéní Evtúsénkó fékk í gær á
fundi í sovézka rithöfundafélag-
inu þungar ákúrur fyrir að hafa
gefið mönnum á vesturlöndum
rangar hugmyndir um sovézkar
bókmenntir í viðtölum sem
hann átti nýlega á ferðalagi sínu
um Vestur-Evrópu.
Margir félagsmenn tóku til
máls á fundinum og sögðu m.a.
að staðhæfingar Évtúsénkós í
þessum viðtölum stönguðust hver
á við aðra, segir Tass-fréttastof-
an.
Aðrir ungir rithöfundar, eins
og t.d. Andrei Vosnesénskí og
ívan Dratsj voru gagnrýndir
fyrir a ðhafa glatað öllum tengsl-
um við raunveruleikann vegna
tilrauna til að blekkja lesendur
sína með „formalistískum“ list-
brögðum. Helzti talsmaður
kommúnistaflokksins í menning-
armálum, Leoníd Ilitsjoff, var á
fundinum, en fundarstjóri var
formaður rithöfundafélagsins,
Konstantín Fedin.
Sú fullyrðing sem oft heyrist
á vesturlöndum að listamaðurinu
sé óháður sqmfélaginu er blekk-
ing, sagði Fedín. Sá sem hefur
hana að leiðarsljósi nær ekki
neinum árangri. hún leiðir að-
eins til loddaraskapar og til-
gangslausra formbragða. Sovézk-
ur rithöfundur verður fyrst og
fremst að vera sjónarvottur síns
eigin tfma. Hann verður að gera
sér liósa þá ábyrgð gagnvart
samtíð og framtfð sem á herðar
hans er lögð.
Pravda birti í dag ræðu eftir
hið roskna ljóðskáld Nikolaj
Tíkhonoff. I henni áfellist hann
brezka leikskáldið J.B. Friestlev
fyrir skrif hans eftir ferð um
Sovétríkin nýlega, en Priestley
hafði m.a. sagt að Sovétríkin
hefðu tekið miklum breytingum
síðan hann var ’par síðast á ferð
skömmu eftir stríðið og væri ekki
lengur hægt að kalla bau lög-
reglúríki. Þetta bykir Tíkhonoff
ómakleg ummæli og segir að
begar Priestley hafi heimsótt
Savétríkin í fyrra skiptið hafi
hann látið í ljós aRt annað álit
á þeim en hann geri í skrifum
sínúm nú.
Tíkhonoff tekur einnig franska
heimspekinginn og skáldið Jean-
Paul Sartre til bæna fyrir þá til-
lögu hans að koniið verði upp
ópólitískum heimssamtökum
mennta- og listamanna og segir
að tillagan sé fáránleg og gefur
í skyn að .hún sé runnin undan
rifjum'heimsvaldasinna sém vilji
á þann hátt fá aðstöðu til „íde-
ólógísks" undirróðurs.
stjórnarinnar I málum þelrra, tm
í dag fór allt skikkanlega fram
og urðu engir árekstrar við Iög-
regluna eins og í " gær, þegar
fjöldi manna slasaðist svo að
flytja varð þá í sjúkrarhús.
Iæiðtogar atvinnuleysingja
höfðu góða stjóm á fundarmönn-
um svo að ekki kastaðist í kekki
við lögregluna, en hún lét sér
nægja að halda opnum hinum
miklu umferðargötum sem liggja
fram hjá þinghúsiriu.
Launakröfur kennara
Útlit er nú fyrir að kennarar
við bama- og unglingaskóla í
England og Wales muni leggja
niður vinnu áður en langt líður.
Samtök þeirra, sem í eru um
270.000 kennarar, hafa nú í heilt
ár reynt að fá ríkisstjómina til
að veita þeim kauphækkun.
Boyle menntamálaráðherra hefur
aðeins viljað fallast á að hækka
laun þeirra kennara sem hafa
lengstan starfsaldur að baki, «n
kennarasambandið leggur höfuð-
áherzlu á að fá hækkuð lág-‘
markslaunin, sem nú erú 60®
sterlingspund' á ári (72.000 krón-
ur). *.
SPÖRTU
fermingarfötin
t miklu
úrvali
hjá
HERRABÚÐINNr
Austurstræti 22
og Vesturveri.
DANIEL
Laugavegi.
L. H. MULLER
Og
Herraföt h.f.
Hafnarstræti.
Verksmiðjan S P A R T A
Borgartúni 25. Sími 16554 — 20087.
J