Þjóðviljinn - 30.03.1963, Page 1

Þjóðviljinn - 30.03.1963, Page 1
Afleiðingar iarðskjálftans fyrir NorSurlqndi: Hefur hafsbotninn lyftst? Siglfirzkur skipstjóri telur sig verða varan við mikla röskurr á hafsbotni norður af Sauðanesi SIGLUFIRÐI í gærkvöld. — Skipstjórinn á Særúnu, SI 50, Númi Jóhanns- son, telur sig hafa orðið varan við mikið rask á hafsbotni norðaustur af Sauðanesi og er þetta sett í samband við nýafstaðnar jarðhræringar. Nánari niálavextir eru þeir, að er Særún var að koma úr róðri síðdegis í dag urðu skip- ver,jar varir við Það, að þeir höfðu siglt yfir allmiklar grynn- ingar þar sem kortum sam- kvæmt átti að vera um 110 til 120 faðma dýpi. Svæði þetta er 6% — 7 mílur í stefnu austur að norðri frá Sauðanesi. Minnsta dýpi á þessu svæði var nú allt upp í fimm faðma. Samkvæmt maa'ingu dýptarmælis virtist snarbrattur bakki að austan- verðu en dró úr hallanum smám saman vestureftir. Tveggja- þriggja mínútna sigling var yfir hæsta hluta þessa svæðis áður en aftur fór að dýpka vesturúr, og kom þá niður á eðlilegt dýpi á nýjan lejk eða um 110 faðma. Skipstjórinn gaf sér ekki tíma tii að athuga þetta nánar á inn- leiðinni. Hafði hann samband vSð Þórarin Dúason hafnarvörð strax og hann kom f land, 'og kom þeim saman um að hann myndi freista þess að athuga þetta fyrirbæri nánar er hajm færi út aftur í kvöld. Fór bát- urinn í róður um áttáleytið. Skipstjórinn. Númi Jóhanns- Framhald á 3. siðu. Björn Jónsson Tollabyrðarnar léttast ekki á helztu neyzlu- vörum og byggingarefni Lögregla gegn verka- möanum Þúsundir verkamanna söfnuðust saman í Lond- on á þriðjudaginn var. Þeir héldu til þinghúss- Lns til að vekja atihygli þingmanna sinna á at- vinnuleysinu sem nú hrjá-' Breytingarnar engar þar sem mesf var þörfin Umræðum um tollskrárfrumvarpið var haldið áfram í efri deild í gær og tÖluðu þá fulltrúar stjórnarandstöðunnar. Björn Jónsson minnti með- al annars á það í ræðu sinni að frá því 1959 hafa tollar og skattar HÆKKAÐ um 850 milljónir króna að HÆKKUNIN nemur um 1400 milljónum frá árinu 1958 að lækkunin nú nemur aðeins 97 milljónum af fyrrgreindum upphæðum að tollabreytingarnar fela ekki í sér niðurfellingu heldur SAMEININGU eldri tolla, þar á meðal 8% viðbótarsöluskattsins, sem ríkisstjómin hef- ur margsinnis lofað að fella niður að lækkanirnar eru mestar á lúxusvörum en hinsvegar hækka ýmsar al- mennar neyzluvörur að fjölmargar vörur til bygginga hækka að núverandi fjármálastefna hlýtur að leiða af sér hundruð milljóna auk- in útgjöld ríkissjóðs. að tollabreytingarnar hafa því lítil sem engin áhrif til bóta á lífskjör al- mennings. í upphafi ræðu sinnar minnti Bjöm á það. að endurskoðun tolla- og skattamála er meðal stærstu mála sem löggjafinn fær til meðferðar. þar sem þau á- kveða að verulegu leyti skipt- ingu þjóðarteknanna og þar með lífskjör fólks í landinu. Við end- urskoðun slíkra lagabálka bæri því að hafa fullt samráð við þá flokka alla. sem sæti eiga á A1.- bingi. svo að unnt sé að kanna til hlýtar öll sjónarmið. sem fyrir hendi eru. En núverandi rikirstjórn hefur haft bann hátt á í hverju stórmálinu eftir ann- að. að einungis fulltrúar stjórn- arflokkanna eru látnir annast þessa endurskoðun. Þannig hef- ur verið unnið að endurskoðun tollskrárinnar í full 3 ár án þess að fulltrúar stjómarandstöðunn- ar hefðu tækifæri til þess að fylgjast með því starfi eða koma skoðunum sínum á framfæri. — Síðan sagði Björn orðrétt: Þvílík vinnubrögð eru því mið- ur ekkert einsdæmi hjá núver- andi ríkisstjóm heldur svo til al- gild regla. Þar sem megininntak ið er að troða á rétti andstæð- inganna með ólýðræðislegum og óþingræðislegum vinnubrögðum og um léið að reyna að sanna það sem oftast og sem áþreifan- legast að sjálft stjómarliðið sé aðeins auðsveipt verkfæri sem hlýði fyrirskipunum eins og þrýst sé á hnapp, en Alþingi sé ekki samkoma sem telji sér skylt að kanna hvert mál t.'.l hlýtar og taka síðan afstöðu eft- ir málefnum og sannfæringu. I tíð núverandi ríkisstjómar hef- ur það lagt niður svo að segja með öllu að milliþinganefndir skipaðar úr röðum þingflokkanna ynnu að endurskoðun meirihátt- ar lagabálka. Engir nema þing- menn stjómarflokkanna eða starfsmenn þeirra mega þar koma nærri. Ekki er þetta þó gert í spamaðarskyni því aldrei hefur svo gífurlegum upphæðum verið varið til nefndarstarfa viö endurskoðun laga og samningu frumvarpa sem nú. Tilgangurinn getur því aðeins verið einn og sá einn að útiloka stjórnarand- stæðlnga frá þátttöku í löggjaf- arstarfinu á jafnræðisgrundvelli við stjórnarflokkana — útiloka að sjónarmið þeirra og skoðan- ir komist að við undirbúning stórmála og raunar þeirra smærri einnig, þetta kalla ég að vega að þingræðinu og troða á lýðræð- islegum vinnubrögðum. ★ En það er ekki aðeins með þessum hætti sem öfugt og illa er að hlutunum staðið. Ofan á annað er æ ofan í æ leitað fær- is til þess að haga svo vinnu- brögðum, að Alþingi sé sem mest óvirðing gerð. Það liggur nú fyrir að aðilar utan Alþing- FJkk skkiinnií eigin blaði • Sá óvenjulegi atburður gerðist í gær að Þjóð- viljanum barst beiðni frá Hersteini Pálssyni. rit- stjóra Vísis, um birtingu á grein sem hann kemur ekki inn í sitt eigið blað. Er Þjóðviljanum að sjálf- sögðu ljúft að birta grein Hersteins; hún er á á 2. síðu. is þ.á.m. kaupmannasamtök og iðnrekenda hafa f jallað um þetta tollskrárfrumvarp ekki dögum saman, — ekki vikum saman, heldur mörgum mánuðum samau áður en þingmönnum er sýndur sá trúnaður að fá að sjá frumv. eða uppkast að því. Og tímaritinu Frjáls verzl. sem út kom um sl. áramót, þ.e.a.s. fyrir ársfjórðungi segir þannig frá því að kaupmannasamtökin hafi tollskrárfrumvarpið til at- hugunar og fleiri aðilar sem sér- stakra hagsmuna hafa að gæta í sambaridi við tollamálin. A sama tíma og allt þangað til í gær eða fyrradag var þingmönnum þing- flokka stjómarandstöðunnar synjað um að fá að sjá frv. sem trúnaðarmál. Allir skyldu fyrr fá vitneskju um málið heldur en kjömir fulltrúar þjóðarinnar. Þannig heldur hv. stjóm uppi virðingu Alþingis og sýnir um leið þingræðisást sína. Og svo er þetta hneyksli kór- ónað með því að sjálfur fjár- málaráðherra hleypur með toll- Framhald á 2. síðu. ir verkalýð Bretlands. Til nokburra átaka kom milli atvinmileysmgjanna og lögreglu. Myndin s'ýnir' hvar verkamennimir hafa þeytt hjálminum af verði laga og réttar en lög- reglumanninum hefur heppnast að grípa hann með fætinum rétt eins og hér væri knattspymu- keppni á ferð.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.