Þjóðviljinn - 30.03.1963, Síða 1
Afleiðingar iarðskjálftans fyrir NorSurlqndi:
Hefur hafsbotninn lyftst?
Siglfirzkur skipstjóri telur sig verða varan við mikla röskurr á hafsbotni norður af Sauðanesi
SIGLUFIRÐI í gærkvöld. — Skipstjórinn á Særúnu, SI 50, Númi Jóhanns-
son, telur sig hafa orðið varan við mikið rask á hafsbotni norðaustur af
Sauðanesi og er þetta sett í samband við nýafstaðnar jarðhræringar.
Nánari niálavextir eru þeir,
að er Særún var að koma úr
róðri síðdegis í dag urðu skip-
ver,jar varir við Það, að þeir
höfðu siglt yfir allmiklar grynn-
ingar þar sem kortum sam-
kvæmt átti að vera um 110 til
120 faðma dýpi. Svæði þetta er
6% — 7 mílur í stefnu austur að
norðri frá Sauðanesi. Minnsta
dýpi á þessu svæði var nú allt
upp í fimm faðma. Samkvæmt
maa'ingu dýptarmælis virtist
snarbrattur bakki að austan-
verðu en dró úr hallanum smám
saman vestureftir. Tveggja-
þriggja mínútna sigling var yfir
hæsta hluta þessa svæðis áður
en aftur fór að dýpka vesturúr,
og kom þá niður á eðlilegt dýpi
á nýjan lejk eða um 110 faðma.
Skipstjórinn gaf sér ekki tíma
tii að athuga þetta nánar á inn-
leiðinni. Hafði hann samband
vSð Þórarin Dúason hafnarvörð
strax og hann kom f land, 'og
kom þeim saman um að hann
myndi freista þess að athuga
þetta fyrirbæri nánar er hajm
færi út aftur í kvöld. Fór bát-
urinn í róður um áttáleytið.
Skipstjórinn. Númi Jóhanns-
Framhald á 3. siðu.
Björn Jónsson
Tollabyrðarnar léttast
ekki á helztu neyzlu-
vörum og byggingarefni
Lögregla
gegn
verka-
möanum
Þúsundir verkamanna
söfnuðust saman í Lond-
on á þriðjudaginn var.
Þeir héldu til þinghúss-
Lns til að vekja atihygli
þingmanna sinna á at-
vinnuleysinu sem nú hrjá-'
Breytingarnar engar þar sem mesf var þörfin
Umræðum um tollskrárfrumvarpið var haldið áfram í efri deild í gær
og tÖluðu þá fulltrúar stjórnarandstöðunnar. Björn Jónsson minnti með-
al annars á það í ræðu sinni
að frá því 1959 hafa tollar og skattar HÆKKAÐ um 850 milljónir króna
að HÆKKUNIN nemur um 1400 milljónum frá árinu 1958
að lækkunin nú nemur aðeins 97 milljónum af fyrrgreindum upphæðum
að tollabreytingarnar fela ekki í sér niðurfellingu heldur SAMEININGU
eldri tolla, þar á meðal 8% viðbótarsöluskattsins, sem ríkisstjómin hef-
ur margsinnis lofað að fella niður
að lækkanirnar eru mestar á lúxusvörum en hinsvegar hækka ýmsar al-
mennar neyzluvörur
að fjölmargar vörur til bygginga hækka
að núverandi fjármálastefna hlýtur að leiða af sér hundruð milljóna auk-
in útgjöld ríkissjóðs.
að tollabreytingarnar hafa því lítil sem engin áhrif til bóta á lífskjör al-
mennings.
í upphafi ræðu sinnar minnti
Bjöm á það. að endurskoðun
tolla- og skattamála er meðal
stærstu mála sem löggjafinn fær
til meðferðar. þar sem þau á-
kveða að verulegu leyti skipt-
ingu þjóðarteknanna og þar með
lífskjör fólks í landinu. Við end-
urskoðun slíkra lagabálka bæri
því að hafa fullt samráð við þá
flokka alla. sem sæti eiga á A1.-
bingi. svo að unnt sé að kanna
til hlýtar öll sjónarmið. sem
fyrir hendi eru. En núverandi
rikirstjórn hefur haft bann hátt
á í hverju stórmálinu eftir ann-
að. að einungis fulltrúar stjórn-
arflokkanna eru látnir annast
þessa endurskoðun. Þannig hef-
ur verið unnið að endurskoðun
tollskrárinnar í full 3 ár án þess
að fulltrúar stjómarandstöðunn-
ar hefðu tækifæri til þess að
fylgjast með því starfi eða koma
skoðunum sínum á framfæri. —
Síðan sagði Björn orðrétt:
Þvílík vinnubrögð eru því mið-
ur ekkert einsdæmi hjá núver-
andi ríkisstjóm heldur svo til al-
gild regla. Þar sem megininntak
ið er að troða á rétti andstæð-
inganna með ólýðræðislegum og
óþingræðislegum vinnubrögðum
og um léið að reyna að sanna
það sem oftast og sem áþreifan-
legast að sjálft stjómarliðið
sé aðeins auðsveipt verkfæri sem
hlýði fyrirskipunum eins og
þrýst sé á hnapp, en Alþingi
sé ekki samkoma sem telji sér
skylt að kanna hvert mál t.'.l
hlýtar og taka síðan afstöðu eft-
ir málefnum og sannfæringu.
I tíð núverandi ríkisstjómar hef-
ur það lagt niður svo að segja
með öllu að milliþinganefndir
skipaðar úr röðum þingflokkanna
ynnu að endurskoðun meirihátt-
ar lagabálka. Engir nema þing-
menn stjómarflokkanna eða
starfsmenn þeirra mega þar
koma nærri. Ekki er þetta þó
gert í spamaðarskyni því aldrei
hefur svo gífurlegum upphæðum
verið varið til nefndarstarfa viö
endurskoðun laga og samningu
frumvarpa sem nú. Tilgangurinn
getur því aðeins verið einn og
sá einn að útiloka stjórnarand-
stæðlnga frá þátttöku í löggjaf-
arstarfinu á jafnræðisgrundvelli
við stjórnarflokkana — útiloka
að sjónarmið þeirra og skoðan-
ir komist að við undirbúning
stórmála og raunar þeirra smærri
einnig, þetta kalla ég að vega að
þingræðinu og troða á lýðræð-
islegum vinnubrögðum.
★
En það er ekki aðeins með
þessum hætti sem öfugt og illa
er að hlutunum staðið. Ofan á
annað er æ ofan í æ leitað fær-
is til þess að haga svo vinnu-
brögðum, að Alþingi sé sem
mest óvirðing gerð. Það liggur
nú fyrir að aðilar utan Alþing-
FJkk skkiinnií eigin blaði
• Sá óvenjulegi atburður gerðist í gær að Þjóð-
viljanum barst beiðni frá Hersteini Pálssyni. rit-
stjóra Vísis, um birtingu á grein sem hann kemur
ekki inn í sitt eigið blað. Er Þjóðviljanum að sjálf-
sögðu ljúft að birta grein Hersteins; hún er á
á 2. síðu.
is þ.á.m. kaupmannasamtök og
iðnrekenda hafa f jallað um þetta
tollskrárfrumvarp ekki dögum
saman, — ekki vikum saman,
heldur mörgum mánuðum samau
áður en þingmönnum er sýndur
sá trúnaður að fá að sjá frumv.
eða uppkast að því.
Og tímaritinu Frjáls verzl. sem
út kom um sl. áramót, þ.e.a.s.
fyrir ársfjórðungi segir þannig
frá því að kaupmannasamtökin
hafi tollskrárfrumvarpið til at-
hugunar og fleiri aðilar sem sér-
stakra hagsmuna hafa að gæta í
sambaridi við tollamálin. A sama
tíma og allt þangað til í gær eða
fyrradag var þingmönnum þing-
flokka stjómarandstöðunnar
synjað um að fá að sjá frv. sem
trúnaðarmál. Allir skyldu fyrr fá
vitneskju um málið heldur en
kjömir fulltrúar þjóðarinnar.
Þannig heldur hv. stjóm uppi
virðingu Alþingis og sýnir um
leið þingræðisást sína.
Og svo er þetta hneyksli kór-
ónað með því að sjálfur fjár-
málaráðherra hleypur með toll-
Framhald á 2. síðu.
ir verkalýð Bretlands. Til
nokburra átaka kom milli
atvinmileysmgjanna og
lögreglu. Myndin s'ýnir'
hvar verkamennimir hafa
þeytt hjálminum af verði
laga og réttar en lög-
reglumanninum hefur
heppnast að grípa hann
með fætinum rétt eins og
hér væri knattspymu-
keppni á ferð.