Þjóðviljinn - 20.04.1963, Side 6
T
1
0 SÍÐA
ÞlðDVIUINN
Laugardagur 20. aPríl 1963
Njósnarar friðarins hafa sýnt
fram á fánýti aimannavarna
„Staðreyndunum er haldið leyndum fyrir þér,
vegna þess að þú gætir verið njósnari. Ekki njósn-
ari í þágu Rússlands, heldur allra manna — alls
staðar. Vegna þess að verið getur að þú haldir
að þú hafir rétt til að vita hvaða ráðstafanir eru
gerðar varðandi framtíð þína, í þínu nafni, fyr-
ir þitt fé, en án samþykkis þíns.
Við erum njósnarar friðarins. Við höfum á-
kveðið að opinbera ríkisleyndarmál. Allt sem við
höfum yfir að ráða er rödd. Við höfum gert það
sem við getum...“
Ljóstrað hefur verið upp um leyndarmál.
Lestu það! Ræddu það! Komdu því áleiðis End-
urprentaðu það!
Enn eru þúsundir leyndarmála til staðar. Þetta
verður ekki það eina sem við afhjúpum.
Veizt þú sjálfur um eitthvert ríkisleyndar-
mál?“
Á þessutn orðum hefst bækl-
ingur sá er „Njósnarar friðar-
ins“ í Bretlandi gáfu út um
páskana. I bækiingnum er
skýrt frá því hvernig brezk yf-
irvöld hyggjast brcgðast við ef
til kjarnastríðs kcmur. Bækl-
ingurinn sjáifur kom cins og
sprcngja úr hciðskíru lofti.
Brezkir ráðamcnn standa uppi
berskjaldaðir. Njósnarar friðar-
ins hafa skýrt alþjóð í smáat-
riðum frá því sem vcra átti
leyndast af öllu Icyndu. En á-
hrifa bæklingsins mun gætá
um allan hcim ,þar sem upplýs-
ingar hans svipta hulunni af
fánýti alls almannavarnarbrölts
ef ógn kjarnastríðs'ins steypist
yfir mannkynið á annað borð.
Staðsetningar og
símanúmer
Andstæðingar kjarnorkuvíg-
búnaðarins um allan heim hafa
hvað eftir annað bent á það að
í kjarnastríði verða allar vamir
kák eitt, en aldrei hefur þetta
verið sannað á svo óvefengjan-
legan hátt sem nú. Höfundar
bæklingsins skýra svo ná-
Þegar Jóhannes páfi hafði birt síðasta hirðisbréf sitt þar sem hann Ieggur megináherzlu á nauð-
syn afvopnunar og banns við kjarnavopnum teiknaði Vicky þcssa mynd af honum með mcrki
andstæðinga kjarnorkuvopna.
Stálframleiðslan
Sovét nálgast USA
komin fram úr EBE
Stálframleiðslan í heiminum
hefur aldrei verið meiri en árið
1962. Á árinu nam framleiðslan
382,9 milljónum smálesta, 7,5
milljónum eða 2,2 prósent
meira en árið 1961. Frá þessu
segir í skýrslu sem bandaríska
viðskiptamálaráðuneytið birti
fyrir skömmu. 1 reikningum
þessum er framlejðsla Kína
ekkj talin með.
Bandaríkjamenn framleiddu
98,3 milijónir lcsta og er það
óveruleg aukning frá árinu áð-
ur. Bandaríkin framleiða samt
sem áður mcst allra ríkja af
stáli, en yfirburðirnir hafa
minnkað verulega. Stálfram-
leiðsla Sovétríkjanna nam 84,1
milljón smálesta, 6,2 milljónum
eða 7,9 prósentum meiru cn
árið áður. Enda þótt þctta sé
nokkru minna cn gert var ráð
fyrir í framlciðsluáætlununum
þar sem reiknað var mcð 84,9:
milljónum, cr þetta í fyrsta I
sinn sem Sovétríkin framleiða (
meira stál en öll EBE-ríkin j
sex til samans. Stálframlciðsla
EBE-Iandanna miinnkaði um
625.000 Icstir miðað við árið
1961, var 80,1 milljón lestir.
Aukin framleiðsla í Benelux-
löndunum nægði ekki til að
vinna upp samdráttinn í Vest-
ur-Þýzkalandi og Frakklandi.
Japanir framleiddu 30,4 lestir
á árinu en það er 2.4 milljón-
um minna en 1961. Framleiðsla
Breta dróst saman um 7,1 pró-
sent var 22,9 milljónir lesta ár-
ið 1962 en 24,7 milljónir 1961.
kvæmlega frá „almannavamar-
kerfinu" brezka að engu virðist
líkara en þeir hafi sjálfir tek-
ið þátt í að koma því á fót.
Fyrst er frá því skýrt í bækl-
ingnum að yfirvöldin hafi skipt
landinu niður í tólf umdæmi
sem hvert um sig mun lúta
sinni umdæmisstjórn ef til
styrjaldar kemur. Aðalbæki-
stöðvamar í umdæmunum eru
neðanjarðar og sprengjuheldar
og til þessa hefur því verið
haldið leyndu hvar þær er að
finna. Njósnarar friðarins
ljóstra ekki aðeins upp um
staðsetningu þeirra heldur
einnig símanúmer. Yfirlitinu
lýkur með þessum gagnoröu
upplýsingum: „Umdæmisstjóm-
arkerfið svarar nokkurn veginn
til almannavamarsvæðanna
Aðalbækistöðvar em í London
og nefnast Ohaplin (sími:
ABBey 1255).“
Kveðjuskál
veraldarinnar
Eftir þetta almenna yfirlit er
einni umdæmisbækistöð, RSG-6
lýst gaumgæfilega. 1 stríði á
RSG-6 að stjórna svæði einu
á Suður-Englandi sem byggt &r
þrem milljónum manna. Bæki-
stöðvamar eru merktar á korti
í bæklingnum og ennfremur
segir svo:
„RSG-6 er rétt hjá neðan-
jarðarstöðvum USAF Strategic
Air Commands og RAF Bomb-
er Commands í High Wyeombe-
stöðvunum í Aldershot....og
liggur rétt utan við áhrifa-
svæði 60 megatonna sprengju
sem varpað yrði á London."
Síðan er innréttingu og út-
búnaði stöðvarinnar lýst í smá-
atriðum, en inn á milli eru
kaldhæðnar athugasemdir eins
og til dæmis:
„Þar er einnig bar, þar sem
hinir hamingjusömu íbúar geta
drukkið kveðjuskál veraldar-
innar fyrir ofan þá ....“
Óþægilegur nafnalisti
1 stöðinni eiga ekki aðeins að
dveljast menn úr herstjóm
umdæmisins og stjómendur
„almannavama" heldur einnig
háttsettir embættismenn úr
ýmsum ráðuneytum og sér-
stjórnum:
„Raunar eiga allar meirihátt-
ar stjórnardeildir, nema Eng-
landskirkja sína fulltrúa.
starfslið og skrifstofur."
Síðan er birtur nákvæmur
uppdráttur af innréttingu
stöðvarinnar og það sem vek-
ur hvað mestan áhuga meðai
ákveðins hóps brezkra lesenda:
nöfn og aðrar upplýsingar um
þá sem stjórna munu starfs-
liðinu. Sérstaklega hlýtur þettJ
að vera óþægilegt fyrir þá vís-
indamenn sem nefndir eru en
almenningur hefur til þessa tal-
ið vera friðsama háskólakenn-
ara í Oxford sem á engan hátt
væru riðnir við leynilegan
stríðsundirbúning.
Heppnir menn
Mikla athygli hefur það vak-
ið að sá sem stjórna á „al-
mannavörnunum" í RSG-6 er
núverandi „almannavarnar-
stjóri“ í London. London er
ckki í umdæmi RSG-6 og höf-
undar bæklingsins segja: „Hef-
ur þess verið gætt að segja
þeim Londonarbúum sem gefið
hafa sig fram sem sjálfboða-
liða í almannavarnirnar, hvar
yfirmaður þeirra mun láta fyr-
ir berast?" Og síðar: „Það viil .
svo til að RSG-4 verður einn-
ig undir stjórn Londonbúa, nú-
verandi næst æðsta manni í al-
mannavömum í London, enn
einn heppinn maður sem ekki
verður í London þegar sprengj-
an fellur".
Kerfið gjörónýtt
Að lokum skýrir bæklingur-
inn frá niðurstöðum tveggja
æfinga sem RSG-6 hefur verið
reynd í. Sú fyrri fór fram vor-
ið 1962 (10 einsmegatonns-
sprengjur á Norðvestur- og
Austur-London, ein fimm-
megatonnasprengja á Birming-
ham, 100-kílótonnasprengjur
nálægt Oxford og Chetwode og
ein 50-megatonnasprengja á
Aldershot). Hin æfingin sem
fjallað er um er NATÓ-æfingiri
Fallex, en hún var undirstaðan
undir gagnrýni Dcr Spiegel á
vamir Vestur-Þýzkalands.
Um fyrri æfinguna segir svo:
„í suðurhluta umdæmisins
átti herlið að aðstoða lögregl-
una í starfinu. En skömmu eft-
ir að Birmingham-sprengja féll
varð geislunin svo megn að
öllum hermönnum á svæðinu,
nema við Dorset, var skipað
að skýla sér í tvo sólarhringa.
Engum blöðum þarf að fletta
um hvað orðið hefði um ó-
breytta borgara. Sambands-
kerfið við RSG-6 fór svo úr
skorðum að tilkynningunum
seinkaði um tvær klukkustund-
ir og algjör ringulreið ríkti
Titiiblað bæklingsiins sem afhjúpar fánýti „almannavarnanna“
í Brctlandi. Brezkir ráðamenn hafa Iátið í það skína að höf-
undar hans og útgefendur séu landráðamcnn.
varðandi það hvaðan tilkynn-
ingamar komu og hvert þær
skyldu fara. Þetta gerðist i al-
gjörlega tilbúinni æfingu og
eyðileggingar vegna sprenging-
anna voru i fáránlega smáum
stíl“.
15 milljónir féllu í
ímynduðu stríði
Um Fallex-æfinguna segir
m&ð.al annars i þæklingrium; ...
„Enn verri var útreiðin ‘
Fallex-æfingunni í september
1962 .. Fallex-62 fór fram að
viðstöddum sir Charles Cunn-
ingham sem gaf stjórninni
jafnóðum skýrslu um það sem
hann sá í RSG-6“. Eftir lýs-
ingu á fyrirætlunum með æf-
una segir svo:
„Hið fmyndaða kjarnorku-
stríð hófst hinn 21. september
— og hittist svo merkilega á að
einmitt þá var öllum undirbún-
ingi lokið! Stríðið hófst með á-
rás á þýzka NATÓ-stöð og síð-
an voru svipaðar árásir gerðar
á Tyrkland, Italíu. Bretland og
Bandaríkin ...."
„Á fáeinum dögum varð
Bretland fyrir óhemjulegum
eyðileggingum og tjóni — þar
á meðal létu 15 milljóni-
manna lífið. Á eftir sagði vest-
ur-þýzki innanríkisráðherrann
að „við núverandi aðstæðar
ætti enginn sér viðreisnar von“
1 hinni hvftu bók stiómarinn-
ar um vamarmál 1963 er önn-
ur saga sögð: „Yfirleitt reynd-
ust. áætlanirnar traustar og
f ramkvæmanl egar“.
við töpuðum,
’’ver svo sem vann
Heilbrigðisþjónustan hruncb
algjörlega saman. öll sjúkra-
hús eyðilögðust eða urðu ó-
starfhæf vegna geislaryks.
dauða læknanna eða skorts á
vistum. Sambandskerfið ónýtt-
ist og vegir allir voru yfir-
fullir. Smásprengjur lögðu
Glaucester, Oxford og Ply-
mouth í eyði. London lamað-
ist: Sá sem fór út úr kjarn-
orkubyrgjunum átti dauðann
vísan. Belti bannvænnar geisla-
virkni teygði sig alla leið til
Wi-ndsor. Þrjr fjórðuhlutar lög-
regluliðsins í suðurumdæminu
féllu. særðust eða urðu fyrir
geislun. Almenningur varð enn
. verr úti. Hver svo sem sigraði
í því stríði, töpuðum við því.
Og f miðri þessari martrö*
héldu yfirvöldin ótrauð áfram
sínum bamalegu fíflalátum.i
Mennimir í RSG-6 náðu enn
sambandi við yfirmann sinn
með því að hringja í ABBey
1255 og spyrja eftir Chaplin.“
Helber blekking
Það er athyglisvert að slík-
ar upplýsingar um gildi vama
í kjarnorkustríði sjá dagsins
Ijós í Bretlandi. Hvergi í Ev-
rópu hefur verið kostað meiru
til „almannavama“ miðað við
Framhald á 10. síðu.
| !j|
yMeinuð land\
j vist vegna
óvand&ðs
orðhragðs
\
\
\
\
\
\
Nýlega auglýsti hinn k
þekkti skemmtistaður ,,The ^
Estab ihment“ i Lond-
don að bráðlega gæfist
borgarbúum tækiil'æri til að
heyra og sjá bandaríska ”
skemmtikraftinn fræga
Lenny Bruce. Síðast þegar
hann kom fram á sviði i
London vakti orðbragð
hans mikla hneykslun með-
al siðavandra. .
Daginn áður cn hann átti »
að koma fram í fyrsta S
skipti var honum ncitað um k
landgönguleyfi í Brctlandi.
Það kvöld hékk spjald yfir
^ Það kvöld hékk spjald yfir K
I dyrum „The Establishment" ^
og a það var lctrað:
Skemmtan Lennys Bruce
frestað vegna athygli hátt-
viirts innanrikisráðherra
Henry Brookes.
Brucc hefur áður átt i
útistöðum við lögregluna i
Chicago, Kanada og Aust-
urríki vegna notkunar á
ósiðlegum orðum. Eins og
gagnrýnandi einn sagði: —
Ilann hefur þau af öllum
stærðum, þriggja, , fjögurra
og fimm bókstafa, jafnvel
12 stafa risaklámyrði.
Brczka innanríkisráðu-
neytið gerði kunnugt:
— Ráðuneytið telur ekki
að það væri almenningj i
hag að véita mr. Bruce
landgönguleyfi
\
\