Þjóðviljinn - 14.05.1963, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 14.05.1963, Qupperneq 1
DMIIINN Þriðjudagur 14. maí 1963 — 28. árgangur — 107. 'tölublað. Kaupgjaldsmálin til um- ræðu á fundi Dagsbrúnar Stjórn Yerkamannafélagsins Dagsbrúnar hefur boðað til félags- fundar í kvöld kl. 9 í Tjarnarbæ. Á fundinum verða kaupgjalds- málin til umræðu. Eru Dagsbrúnarmenn hvattir til að fjölmenna. TRÚNAÐARSKÝRSLA UM AFLEIÐINGAR HERNÁMSSTEFNUNNAR 60-70% af íbúum landsins GÆTU ARIZT ■ „Ef alger kjarnorkustyrjöld brytist út, virðist að allt að 60— 70 hundraðslutar af íbúum landsins gætu farizt.“ B „Eins megatonns loftsprengja myndi nægja til þess að tryggja tortímingu flestra Reykvíkinga... en 9 megatonn myndi þurfa til þess að tryggja gereyðingu allra húsa“. H Eins megatonns kjarnorkusprenging „yfir Keflavíkursvæðinu myndi vera sex sinnum stærri en sólin í þvermál (eftir 1 0 sekúnd- ur), að sjá úr Reykjavík, og tvöhundruð og sjötíu sinnum bjart- ari. Allir í Reykjavík, sem af tilviljun hefðu augun á sprengju- staðnum um leið og sprengjan spryngi, myndu blindast.“ B Áhrif kjarnorkusprengingar í Hvalfirði „gætu orðið slík> að of- viða yrði að verjast geislun frá úrfalli í Reykjavík“. Hrifning á fruimýningu óperunnar Ópera Verdis „II Trovatore" var frumsýnd i Þjóðleikhúsinu í fyrrakvöld við mikla hrifningu frumsýningargesta. Sérstaka at- hygli vakti frammistaða Sigur- veigar Hjaltested, sém sést hér á myndinni í hlutverki sínu, ásamt Guðmundi Guðjónssyni. — Dómur um sýninguna birtist einhvern næstu daga. Þannig hljóða nokkrar af nið- urstöðunum í trúnaðarskýrslu sem dr. Ágúst Valfells, forstöðu- maður almannavarna, hefur gert til Bjama Benediktssonar dóms- málaráðherra um afleiðingar her- námsstefnunnar — áhrifin af því ef Island yrði skotmark í styrjöld. Skýrsla þessi átti af skiljanlegum ástæðum að fara mjög leynt, hún var ljósprentuð í 20 eintökum, hvert eintak merkt og viðtakandi látinn kvitta fyrir. Samt tókst Frjálsri þjóð að komast yfir eintak af skýrslunni og skýrði frá henni s.l. laugardág. Þjóðviljinn hefur nú fengið aðstöðu til að kynna sér efni skýrslunnar, og rekur ýmsa þætti úr henni í dag og næstu daga. Skýrslan er 142 vélritaðar síð- ur og mjög efnismikil. Hér verð- ur greint nokkuð frá 4. kafla hennar sem nefnist „Áhrif styrj- aldar á Island". Hættan stafar af hernáminu I þessum kafla ræðir dr. Ágúst Valfells um ástæðumar fyrir því að búast mæfti við árásum á ísland ef til styrjaldar kæmi: „Þar sem Islendingar hafa ekki her og yrðu því ekki beinir þátttakendur í styrjöld, myndi það ekki veikja hemaðarmátt nokkurs stríðsaðila í einu né neinu, þótt Islendingar væru drepnir. Þar sem hemaðarað- gerðir miða fyrst og fremst að því að veikja hemaðarmátt ó- vinarins, jafnvel þegar óbreyttir borgarar hemaðaraðila eru drepnir, þá er það álit höfundar, að það væru algerlega óraun- sæjar hemaðaraðgerðir, sem miðuðu að því einu að útrýma Islendingum. Af þessum ástæðum má ætla að í algerri styrjöld myndu mögulcgar hernaðaraðgerðir á ís- landi fyrst og fremst beinast að þeim stöðum, er hefðu eitthvert hcrnaðargildi .... Hemaðarmáttur myndi því fyrst og frcmst byggjast á þeim hernaðarmannvirkjum, er væru til reiðu í upphafi stríðs.“ ÁSTÆÐAN TIL ÞESS AÐ ÍS- Framhald á 2. síðu. Sósíalistar Kópavogi! Sósfalistafélag Kópavogs heldur félagsfund í Þinghól f kvöld, þirðjudag. Fundurinn hefst kl. 20.30. Á dagskránnj eru alþingis- kosningarnar, Þjóðviljinn og önnur mál. Áríðandi að félagar fjölmenni og mæti stundvíslega. Stjórnin. UM' Ahrif nútímahernaðar Á ÍSLENDINGA Skyrsla til domsmalaraðherra 'tir ' 4r-. Ágúst Valfeíls,- .forstöÖamann Almannavarna Reykjavík; marz 1963 Reykvikingar Reykvíkingnr Almennur kjósendafundur í Austurbæjarbíói © Sósíalistaíélag Reykjavíkur boðar til almenns íundar til stuðnings lista Alþýðubandalagsins í kosningunum 9. júní n.k. Fundurinn verður í Austur- bæjarbíói, n.k. íimmtudagskvöld kl. 9 • Dagskrá íundarins verður sem hér segirr V. Alþýðukórinn syngur undir stjórn dr. Hallgríms Helgasonar. 2. Flutt verða íimm stutt ávörp. 3. Sýnd verður hin sögulega heim- ildarkvikmynd Sigurðar G. Norð- dahl um 30. marz 1949. Páll Bergþórsson ílytur skýringar- texta með myndinni. ÞANNIG Iítur út forsíðan á trún- aöarskýrslu dr. Ágústs Val- fells forstöðumaðns Almanna- varna til Bjarna Benedikts- sonar dómsmálaráðherra um hættur þær er hernámsstefn- an Ieiðir yfir íslenzku þjóð- ina. ÁGtJST gekk frá skýrslunni f marz sl., síðar var henni dreift til valinna trúnaðar- manna í aðeins 20 eintökum. HVER skýrsia var númeruð og bar nafn viðtakanda; svarti bletturinn neðan tll á síðunni stafar af því að límt hefur verið yfir þær upplýs- ingar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.