Þjóðviljinn - 26.05.1963, Side 5
Sunnudagurinn 26. maí 1963
HÓÐVILJ«!N
SÍÐA §
Um og eftir aldamótin síðustu verður hér á
landi mikil íþróttavakning. Ungir menn taka að
iðka íþróttir, og þá sérstaklega íslenzka glímu.
Það er íslenzk íþrótt, sem hægt er að iðka ef
Svéir hittast. Hún hafði líka yljað mörgum ver-
manninum, og við gangnakofana höfðu ungsr
menn hana sér til gamans. Hún tjáði karl-
mennsku þess er vel glímdi, og gaf æskumannin-
um útrás fyrir kraft sinn og þrá að reyna sig
við annan.
Tvennir
í London
Olympíuleikar
Guðmundur S. Hofdal hefur undanfarna sunnudaga rifjað upp hér á síðunni ýmsar endurminn-
ingar frá löngum íþróttaferli, og Frímann Helgason hefur fært þær í letur. Þessa mynd tók
ljósm. Þjóðv. Grétar Oddsson af þeim félögum er þeir voru niðursokknir í viðræður um íþróttir.
Þriðja og síðasta
greinin um Guð-
mund S. Hofdal
HVAR
ERU
ÞEIR?
Þetta varð hverju sinni nokk-
urskonar einvígi, þar sem átök-
in efldu manndóm og kenndu
mönnum að ganga fram til ein-
vígisins með reisn. Vafalaust
hafa þessi átök og leikur vakið
margan æskumanninn til um-
hugsunar um hina fornu kappa
sem vel voru íþróttum búnir.
Um þetta leyti er að vakna
í hugum ungra manna kraft-
mikil og öflug sjálfstæðisvit-
und. Þeir eru að vakna til lífs-
ins og kemur það fram í ýms-
um myndum. Ungmennahreyf-
ingin fer þá eins og eldur í
sinu um landið og hrífur æsk-
una með sér. Hún beitir sér
fyrir verkefnum sem efla þenn-
an sjálfstæðisanda og vafalaust
hafa íþróttirnar og á þeim ár-
um, ekki sízt glíman, átt sinn
mikla þátt í að ná til fjöldans.
Vafalaust mun mörgum hafa
þótt það djarlega hugsað og
talað, þegar því var hreyft að
senda glímumenn til Olympíu-
leikanna í London 1908.
Bkki er að efa að bak við
þessa hugmynd hefur staðið sú
hugsun, að það væri þýðingar-
mikið fyrir frelsisbaráttu ís-
lands að geta komið fram á
alþjóðlegu móti með flokk
vaskra Islendinga. Þó þeir
gætu ekki keppt í hinum ýmsu
greinum, þá hlaut það að geta
orðið mikil auglýsing fyrir Is-
land að sýna íslenzka íþrótt —
glímuna.
Þetta ber vott um þá bjart-
sýni sem rikti með æskumönn-
um þessa tímabils, og þeir og
þjóðin létu ekki sitja við orðin
tóm. Það var því stórmerkur
dagur í íþróttasögu íslands
þegar glímumennirnir fóru á
O.L. í London 1908. Einn hinna
sjö sem sendir voru var Guð-
mundur Sigurjónsson Hofdal og
er hann og Jóhannes Jósefs-
son þeir einu sem enn eru á
lífi úr þeim glæsilega hópi.
Átak þjóðarinnar
Guðmundur segir nokkuð frá
þessari ferð, sem var hin fyrsta
sem íslenzkir menn fóru á
O'.ympíuleiki.
— Hver átti frumkvæðið að
för þessari?
Það voru Akureyringar sem
áttu frumkvæðið að för þessari
með Jóhannes Jósefss. í broddi
fylkingar. Jóhannes hafði þá
verið í Noregi við íþróttanám
og iðkanir. Þessi hugmynd fékk
þegar mjög góðar undirtektir
meðal almennjngs. Hafizt var
þegar handa um að safna fé
um land allt til þess að kosta
þessa væntanlegu för. Gekk
söfnunin svo vel að hægt var
að senda sjö menn á leikina
til að sýna íslenzka glímu og
voru gefin fyrirheit um tvær
sýningar á leikjunum.
Til fararinnar voru þessir
menn valdir: Frá Akureyri:
Jóhannes Jósefsson og Jón
Pálsson. Or Reykjavík: Hall-
grímur Benediktsson. Sigurjón
Pétursson og Guðmundur Sig-
urjónsson. Frá Seyðisfirði: Páll
Þormar, og úr Þingeyjarsýslu
Pétui- Sigfússon.
Allir þessir menn æfðu hver
á sínum stað, og voru engar
sérstakar samæfingar sem heit-
ið geta. Hópurinn sameinaðist
í Reykjavík rétt áður en farið
var.
Héðan var svo farið með
skipi til Skotlands og þaðan
með jámbraut til London. Jó-
hannes Jósefsson var að sjálf-
sögðu fararstjóri.
— Hvernig var glímunni svo
tekið?
Eins og til stóð var glíman
sýnd tvisvar, en það var erf-
itt að átta sig á hvernig henni
var tekið af áhorfendum, þar
sem ýmsar keppnisgreinar fóru
fram samtímis. Það var því
ekki gott að segja fyrir hverju
var klappað. Lítið var skrifað
um sýningarnar enda kafnaði
allt í frásögnum af sjálfri
keppninni.
Jóhannes glímdi ekki, en
stjómaði glímusýningunum.
Var hann þá klæddur forn-
mannabúningi og vill Guð-
mundur halda því fram að Jó-
hannes hafi vakið mesta at-
hygli! Hinsvegar glímdi Jó-
hannes grísk-rómverska glímu
og sigraði þann fyrsta með
yfirburðum, en varð að hætta
vegna meiðsla í næstu glímu.
Þá var þeirri keppni þar af
leiðandi lokið af hans hálfu.
Við verðlaunaafhendingu
voru honum afhent úr hendi
hennar hátignar drottningar-
innar skrautlegt heiðursskjal
og mikið fyrir góða frammi-
stöðu.
Þar með var þátttöku okkar
lokið á Olympíuleikunum. En
þá gerist það að við erum ráðn-
ir til sýninga og keppni tvisv-
ar á dag. Var þar sýnd íslenzk
glíma og var hverjum sem
vildi heimilað að keppa við
okkur hvern sem var og máttu
menn beita sínum brögðum en
við notuðum aðeins glímubrögð.
Komu margir utanúr salnum úr
áhorfendahópi á hverri sýn-
ingu.
Jóhannes hinsvegar tók á
móti samkvæmt auglýsingum
hverjum sem var og máttu þeir
grípa hvar sem þeir gátu, og
síðar kallaði hann þetta „sjálfs-
vörn“.
Aldrei kom til þess að Is-
lendingur bæri lægri hlut í
glímunni né heldur Jóhannes í
áflogunum og var þó oft um
stærðarmun að ræða. Þetta var
stórt númer í sýningarhúsi
þessu sem var mjög stórt.
Allar sýningarnar í ferðmni
voru ákaflega prúðmannlegar
og öll ferðin gekk mjög vel.
Hér heima var mjög fylgzt með
okkur og vakti ferðin mikla at-
hygli. Það er líka skoðun mín
að ferð þessi hafi haft mikil
örfandi áhrif á æskumenn hér
til íþróttaæfinga.
Minntist glímusýn-
ingarinnar 40 árum
síðar
Það vildi svo til að Guð-
mundur var ráðinn með Q>
ympíuförum Islands til London
1948. Starfaði hann með þeim
sem nuddþjálfari o.fl. Voru þá
liðin rétt 40 ár frá því að hann
var á þessum sömu slóðum,
sýndi þar íslenzka glímu ásamt
sex öðrum vöskum mönnum
eins og sagt var frá hér að
framan.
1 sambandi við för þessa var
mér einu sinni frá því sagt að
flokkurinn hefði fengið sérstak-
an mjólkurskammt en aldrei
verið ljóst hversvegna eða
hvaðan hann kom. Flokkar
annara landa fengu hann ekki.
svo mikið var víst.
Getur þú nokkuð sagt mér
um þennan dularfulla mjólkur-
skammt Guðmundur? Guð-
mundur brosti svolítið við og
virtist heldur tregur til svars.
en það leyndi sér ekki að hann
vissi eitthvað um þetta mál.
Þetta er nú eiginlega leynd-
armál, eða hefur verið það.
sagði hann dræmt en það get-
ur varla verið alvarlegt þótt
þetta verði upplýst nú 15 árum
síðar, og satt að segja á ekki
að þegja um alla eilífð yfir
því sem vel er gert.
Sagan af mjólkurskammtin-
um er ó þessa leið: Það var
langt frá því að enska þjóðin
væri búin að jafna sig eftir
hörmungar stríðsáranna. aðeins
þrem árum eftir lok heims-
styrjaldarinnar. Var því eðli-
legt að skortur væri á ýmsu.
Þvi má skjóta hér inn að is-
lenzki flokkurinn hafði með-
ferðis að heiman töluvert af
matvælum sem kom i góðar
þarfir meðan á leikjunum stóð.
Ejtt af því sem við söknuðum
mest var mjólkin. en hún var
engin, nema svolítið út
í te. — Fyrir okkur íslend-
ingana sem aldrei höfðum burft
að draga af okkur mjólkur-
skammt eða annað bótt stríð
geysaði víðsvegar um heiminn.
var það fyrirkvíðanlegt að fá
enga mjólk, en um það varð
ekki neinu þokað, betta gekk
jafnt yfir alla.
Þegar flokkurinn kom til
London, eða búða þeirra sem
honum voru ætlaðar i Caston
Hill, fór fram sérstök móttaka
á torgi búðanna. Hópnum var
stillt þar upp og hann ávarp-
aður af fulltrúa framkvæmda-
nefndarinnar ensku. Orð fyrir
okkar flokki hafði Jóhann Þ.
Jósefsson ráðherra.
Strax að athöfninni lokinni
gaf sig fram maður nokkur
stór og mikill vexti. og spurði
hvort nokkur væri þar í is-
"lénzka flokknum sem verið
‘hafði ó O. L. í London 1908.
'eða fyrir 40 árum.
Var þá vísað á mig. Gat hann
nafns síns og spurði hvort ég
myndi ekki eftir að okkur fé-
lögum hefði verið boðið til
kvöldverðar, meðan við dvöld-
um á leikjunum. Auðvitað
mundi ég eftir þessu vinar-
bragði, sem þá kom okkur á
óvart að ókunnugur maður færi
að bjóða okkur heim. Komu-
maður hélt áfram og sagði að
þetta hefði verið faðir sinn,
og að honum hefði þótt mjög
gaman að horfa á sýningu okk-
ar og hefði með heimboðinu
viljað þakka okkur fyrir.
Þegar þetta gerðist var ég
12 ára, og mér eru sýningarn-
ar enn í fersku minni. sagði sá
enski. Tókum við nú að ræða
saman og rifja upp hina gömlu
góðu daga, og síðan barst talið
að leikjunum sem voru að
byrja. Kom þó í ljós að hann
var búðastjóri þorpsins sem
við bjuggum í ósamt flokkum
margra annarra landa, og
hafði yfirumsjón með öllu sem
laut að veru flokkanna þar.
Nafn hans er A. H. Owin. Bað
hann mig að lokum að heim-
sækja sig á skrifstofu sína þar
í þorpinu næsta dag, sem ég og
gerði. Maður þessi var í alla
staöi hinn elskulegasti og ljúf-
ur í viðmóti, og ræddum við
margt saman. Lét hann bess að
lokum getið að hann óskaði
að mega gera okkur dvölina
sem bezta þar i þorpinu og
greiða úr öllu því sem í hans
valdi stæði, ef um eitthvað
slíkt væri að ræða.
Nokkru síðar fór ég á fund
hans, og barst þá í tal að Is-
lendingamir væru vanir mjólk,
og það mikilli mjólk, og að
þeir söknuðu hennar mjög.
Kvaðst hann skyldi athuga
þetta nánar og bað mig að
koma til sín næsta dag. Lét ég
ekki á mér standa og kom á
tilsettum tíma. Skýrir hann
mér þá frá því að hann sé
búinn að gera ráðstafanir til
þess að við fáum sem svarar
einum pela af mjólk á mann
á dag, og að það verði sent á
mitt nafn, og annað þurfti ég
ekki að vita, og hann tekur
fram að ekki sé ætjazt tjl að
það spyrjist út. Allt stóð þetta
heima, mjólkin kom. Var þá
sett ráðstefna og lög sett: Hver
sem ekki er kominn inn á til-
settum tíma verður af skammt-
inum; en honum skipt niður á
hina. Þetta var nokkurskonar
Stóridómur!
Þessi ágæti maður veitti mér
persónulega og fleirum úr
hópnum drengilega aðstoð í
málum sem ekki verða rifjuð
upp hér.
Sá sem þetta ritar hefur
líka átt tal við Örn Clausen
um þetta atriði, og mjnntist
hann þess að þejr hefðu feng-
ið mjólkurskammt, sem menn
yfirleitt hefðu ekki fengið á
leikjunum í London. Kvaðst
hann hafa haff eitthvert hug-
boð um það að Guðmundur
hefði að ejnhverju leyti stað-
ið á bakvið það
Örn gat þess líka að Guð-
mundur hefði verið mjög vin-
sæll meðal keppenda, fyrir
heppileg og vinsamleg afskipti
af þeim Hann kunni á mörgu
skii og var glöggur á svo
margt sem einmitt keppendur
varðar, o-g hinir venjulegu far-
arstjórar ekki sjá eðq kunna
skil á.
Vöktu athygli
Þessi saga Guðmundar er
athyglisverð fyrir það að ef
til vill hafa fleiri hrifizt af
íslenzku glímunni í London
1908 en almennt var vitað.
Það kemur naumast til að
faðir þessa manns sem leitaði
að þátttakanda frá fslandi á OL
1908, hefði boðið hópnum týl
veizlu ef honum hefði ekki
þótt mikið til koma þeirrar
íþróttar sem þeir sýndu. Sú
vinsemd sem kom frarn í boði
bessu talar nokkuð skýru máli
um það. að glimusýningar
þeirra félaga hafa vakið meiri
athyali en almennt hefur verið
álitið. Það mun heldur ekki
hafa verið venja að slik boð
ættu sér stað, þótt fiokkar
sýndu íþróttir á mótum eða i
sýningarhöllum. Tólf ára
drengnum sem fer með föður
sínum til að horfa á þessa
kappa frá landi með svo köldu
nafni íslandi. verður gliman
minnisstæð allan þennan tima
eða 40 ár Og hann gengur i
búðir íslendinganna til að
spyrjast f.vrir. hvort svo kunni
að vera að þar sé einhver af
Framhald á 7. síðu.
Fró Skólagörðum
Reykjavíkur
Börn sem hafa í hyggju að starfa í Skóla-
görðunum í sumar, komi til innritunar í
garðana, mánudag og þriðjudag kl. 1—5
e.h. — Skólagarðarnir eru í Aldamótagörð-
unum við Miklatorg og í Laugardal við
Holtaveg. Öllum börnum á aldrinum 9—13
ára heimil þátttaka. Þátttökugjald er kr.
200,00 og greiðist við innritun.
GARÐYRKJUSTJÓRI REYKJAVÍKUR.