Þjóðviljinn - 13.06.1963, Page 12

Þjóðviljinn - 13.06.1963, Page 12
Fylklngin Ská/aferB um næstu helgi ÆFR efnir til ferðar í skála sinn í Sauðadölum um næstu helgi. Lagt af stað frá Tjarn- argötu 20 kl. 3 e.h. á laugar- dag. Um kvöldið verður margt til skemmtunar, m.a. leikþáttur og dans. A sunnu- dag verður knattspyrnuleikur milli stjómar ÆFR og Fram- kvæmdanefndar ÆF. Öllu ungu fólki sem vann fyrir C3—listann á kjördag er boð- ið í ferðina. Fylkingarfélagar eru kvattir til að fjölmenna. Tilkynnið þátttöku á skrif- stofu ÆFR, opið 10-19, sími 17513. Vinnuhagræðingarnámskeið Fimmtudagur 13. júní 1963 — 28. árgangur 129. tölublað. Menntaskólanum slitið á laugardag Milljcnasta flóttamanna- platan verður seld hér í gær var sett í hljóð- færaverzlanir milljón- asta eintak flóttamanna- hljómplötunnar. Sá sem hreppir það hnoss að kaupa þetta eintak fær ókeypis eftir eigin vali hundrað hljómplötur frá Philips fyrirtækinu. Stjórn Rauða Krogs islands boðaði blaðamenn á fund í gær og skýrði þeim frá því að flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefði ákveðið að millj- ónasta eintakið yrði selt hér á landi. Sala plötunnar hefur ver- ið mjög mikil hér og það ásamt góðum stuðningi almennings hér- lendis við önnur mannúðarmál sem Rauði Krossinn hefur geng- ist fyrir, t.d. Alsírsöfnunin síð- astliðinn vetur veldur miklu um bessa ákvörðun flóttamálastofn- unarinnar Öll eintökin sem nú eru í verzlunum eru innsigluð en í einu þeirra er miði sem skýr- ir frá því að þetta sé milljón- asta platan og kaupandi geti snú- ið sér til skrifstofu Rauða Krossins í Thorvaldsenssitræti 6 til að fá vinninginn. Fréttin um sölu þessa ein- taks birtist i blöðum um allan heim og er mikil landkynning fyrir ísland Forstjóri flóttamannastofnun- arinnar afhenti í gær fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna eftirlíkingu af plötunni úr gulli. Rauði Kross íslands þakkar almenningi góðar undirtektir við mál þetta. Einnig þeim opin- beru aðilum sem sýnt hafa mál- inu skilming, fjármálaráðherra með því að gefa eftir tolla af plötunni og Loftleiðum sem ann- aðist ókeypis flutning hennar til landsins, í haust verður hundrað ára afmæli Alþjóða Rauða Krosgins haldið hátíðlegt í Genf. Afmæl- isins verður minnsf hér 1. sept- ember og hefur þegar verið skipuð sérstök hátíðanefnd f henni eru sr. Jón Auðuns dóm- prófastur formaður. Ráll ísólfs- son organisti, Valur Gíslason leikari, Páll Sigurðsson trygg- ingayfirlæknir og Páli Líndal jkrif stof ust jóri. ÞESSI MYND var tckin á Há- teigsveginum í gærdag. Grafinn hcfur verið upp hitaveitustokkur, sem lagt var í í fyrra. Nú var hann brotinn upp með Ioftborum og skipt um pípur í honum. Það kom nefnilega i ljós að pípurnar sem fyTÍr voru, voru ekki nægilega sverar. Gárungar segja að hér sé um að ræða námskcið í „vinnuhagræðingu” hjá Hitaveitu Reykjavíkur. (Ljós- myndari G. O. ) Kona slasast í bifreiiaárekstri Nýr bæjarfógeti í Vestmannaeyjum Freymóður Þorsteinsson hef- ur verjð gkipaður bæjarfógeti í Vestmannaeyjum frá og með 10. þ.m. að telja í stað Torfa Jó- hannessonar er andaðisf í vor. Freymóður hefur verið fulltrúi við bæjarfógetaembættið í Vest- mannaeyjum og var settur bæj- arfógeti þar, er Torfi lézt. Menntaskólanum í Reykjavík verður slitið næstkomandi laugardag kl. 2 e.h. Athöfnin verð- ur tvískipt, fer fyrri hlutinn fram í Háskóla- bíói, en hinn síðari í Menntaskólanum. Þetta er gert sökum þrengsla í gamla skólahúsinu. í Háskólabíói mun rektor Menntaskólans, Kristinn Ár- mannsson, gkýra frá starfi skól- ans á liðnum vetri. Afhent verða prófskírteini og verðlaun. Á Sal verður svo það sem nefna mætti afmælisstúdentaþátt, og þar mun rektor segja skólanum slit- ið og nemendur setja upp stúd- entshúfur sínar Á Sai munu aðeins komast fyrir auk kenn- ara stúdentsefni og afmælis- stúdentar. Aðstandendur nem- enda geta þó verið í hliðarher- bergjum skólans og verður kom- ið fyrir hátalarakerfi. svo þeir geti fylgst með því, er fram fer. Á eftir verður svo kaffi- drykkja i íþöku. 157 stúdentar eru brautskráð- ir frá skólanum í ár, og er það mesti fjöldi stúdénta i sögu skólans. Þrisvar hefur það kom- ið fyrir áður, að skólauppsögn fari fram utanskóla. Var það á stríðsárunum, en eins og menn muna hernámu Bretar skólann. Hinn mikli fjöldi nemenda skapar skólanum síaukin vand- ræði. Nú eru þó vonir til að úr rætist, því fyrir liggur yfir- lýsing ríkisstjórnarinnar þess efnis, að hafist verði handa um viðbótarbyggingar við Mennta- skólann og byggingu nýs Menntaskóla í Reykjavík. Fljót- lega munu hefjast framkvæmdir þessar. en við ýmsa örðugleika hefur verið að etja, og er fyrir- sjáanlegt, að kenna þurfi i Þrúðvangi í vetur. Aðalfundur Fél. rafvirkjameist. Aðalfundur Félags löggiltra rafvirkjameistara 1 Reykjavik var haldinn 27. maí síðastliðinn. 1 skýrslu stjómar kom fram, að hagur félagsins hafði batnað verulega á árinu. Fest voru kaup á hálfri húseigninni Hóla- torg 2. Félagið hefur flutt þang- að starfsemi sína og hefur þar opna skrifstofu. Úr stjóm félagsjms áttu að ganga að þessu sinni gjaldkeri félagsins Jóhann Rönning og baðst hann undan endurkjöri. í hans stað var kjörinn Ólaf- ur Jensen. Stjórn félagsins skipa nú Árni Brynjólfsson, form., Vii- berg Guðmundsson, ritari og Ól- afur Jensen, gjaldkeri. Varamenn Johann Rönning, Siguroddur Magnússon og Finn- ur B. Magnússon. Um klukkan eitt í fyrrinótt varð mjög harður bifreiða- árckstur á mótum Laufásvegar og Njarðargötu og hlaut kona sem var farþegi í annarri bif- reiðinni alvarleg meiðsli og var hún flutt í sjúkrahús. Báðar bif- reiðarnar skemmdust mjög mikið. Slys þetta bar að með þeim hætti, að Volkswagenbifreið var ekið inn á Laufásveginn þvert í veg fyrir Moskovitzbifreið sem var á leið norður götuna og virti ökumaður Volkswagenbifreiðar- innar ekki stöðvunarskylduna sem er við þessi gatnamót. Moskovitzbifreiðin skall á Vita ekki að ritstjórinn Vomst é þing - né heldur aS lœknirinn hœtti! Morgunblaðið birtir í gær frétt um „nýja þingmenn" — og hefur hún vakið nokkra athygli og orðið mönnum tii skemmtunar. Blaðið telur upp þá menn scm nú voru kjörnir og „ekki áttu sæti sem aðal- menn á Alþingi síðasta kjör- tímabil“, eins og þar segir orðrétt. Morgunblaðið telur hins vegar aðeins átta „nýja þingmenn‘% cn eins og Þjóð- viljinn skýrði frá í gær cru þeir níu að tölu. Og maðurinn sem Morgunblaðið glcymir er enginn annar en Sigurður Bjarnason, fyrsti maður á Iista íhaldsins á Vestfjörðum og ritstjóri Morgunblaðsins! En ekki nóg með það. Morg- unblaðið telur cinnig upp þá fyrrverandi þingmenn, sem nú hverfa af þingi. Og í þeirri upptalningu gleymist annar Sjáifstæðismaður, — einnig úr Vestfjarðakjördæmi, en það er Kjartan J. Jóhannsson læknir, sem sparkað var út af lista flokksins á Vcstfjörðum. Það mætti þvi næstum halda, að þcssar breytingar á framboð- um Sjálfstæðisfiokksins á Vestfjörðum séu enn svo við- kvæmt feimnismál innan flokksins, að M orgunblaðið treysti sér ekki til þess að skýra frá að ritstjórinn er kominn á þing, en læknir- inn hættur. hægri hlið Volkswagenbifreiðar- innar og var áreksturinn svo harður að ökumaður hinnar fyrr- nefndu kastaðist út úr henni og féll í götuna en bifreiðarnar bár- ust áfram eftir götunni og stöðv- uðust ekki fyrr en upp við stein- vegg hjá Laufásborg á homi gatnamótanna. Kona að nafni Ólöf Kristjáns- dóttir, til heimilis að Höfðaborg 3, sem var farþegi í Volkswagen- bifreiðinni meiddist alvarlega við áreksturinn og var hún flutt í Landakotsspítala. ökumaður þeirra bifreiðar meiddist einnig nokkuð og var hann á Slysa- varðstofunni í alla fyrri nótt en fékk að fara heim til sín í gær- morgun. ökumaður Moskovitz- bifreiðarinnar slapp hins vegar tiltölulega lítið meiddur. Báðar bifreiðarnar eru mjög mikið skemmdar og algerlega óökufærar. Eins og frá var skýrt í blað- inu í gær varð annar árekstur í fyrrakvöld á Óðinstorgi og valt önnur bifreiðin á hliðina. 1 henni voru tvær konur og meiddust þær báðar nokkuð en þó ekki alvarlega. Var önnur þeirra , á Slysavarðstofunni í fyrrinótt en fékk að fara heim til sín í gær- morgun. Starfsfólk C-listans í Kópavogi og Hafnar- firði í skemmtiferð Næst komandi sunnudag býður G-listinn í Reykjaneskjördæmi starfsfólki sínu á kjördag í Kópa- vogi og Hafnarfirði í skemmti- ferð um Reykjaneskjördæmi. — Nánar verður skýrt frá þessu í olaðinu á morgun. Ballettmcyjar í Þjóöleikhússkólanum á æfingu. Balletskóla Þjóð- ieikhússins breytt Þann 31. maí sl. var Ballett- skóla Þjóðleikhússins slitið. Að- alkennari skólans í vetur var Elizabeth Hodgsson frá London en henni til aðstoðar við kennsl- una var Þórhildur Þorleifsdóttir. Nemendur í skólanum í vetur voru um 170 og var þeim skipt í níu deildir. Endurskipulagning hefur nú farið fram á skólanum og er nú allt fyrirkomulag hans sniðið að hætti erlendra ballettskóla. í samræmi við það hafa inn- tökuprófin verið þyngd að mun og í vor var nemendum skipað niður í deildir fyrir næsta kennsluár. Um 70 nemendur þreyttu próf inn í skólann í vor og stóðust 14 prófið. Eins og áður hefur verið get- ið um kom hingað til landsins ballettkennari frá The Royal Academy of Dancing i London, fyrir nokkru og prófaðj 18 af beztu nemendunum úr úrvals- flokki skólans. Tólf nemendur stóðust prófið og telst það mjög góður árangur. Þessir nemendur eru flestir á aldrinum 14-18 ára og er þetta í fyrsta sinn sem slík próf hafa verið í skólanum. Flestir af þessum nemendum byrjuðu í skólanum átta ára gamlir. Prófið sem nemendumir tóku er samsvarandi prófum í enskum ballettskólum. Skólinn hefst næsta haust í byrjun október og verður Eliza- beth Hodghson aftur kennari skólans.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.