Þjóðviljinn - 19.07.1963, Side 1
■miuu*><«HiiiHHuaiWHHUiHmiiuiHiimmimimM*inHuaiiuiniiHuiii»iimauuiiHuiiamiiiiiiiiinmiiiimiii«riM»>
'K fimrníu síðu blaðsins er grein um |
rússneska fútúristann Vladimír Majakov-
skí. Ámi Bergmann skrifar greinina og
þýðir jafn'framt eitt kvæði Majakovskís:
Vinsamleg afstaða |il hesta.
Hreinasfa mildi að ekki varcS slys á mönnum
Með endemum
allt til loka
■ Eins og Þjóðviljinn
skýrði frá í gær eru
kennarar orðnir lang-
þreyttir á að bíða eftir
greiðslum fyrir biðtíma
og eftirvinnu sem á-
kveðnar voru með er-
indisbréfi Gylfa Þ.
Gíslasonar mennta-
málaráðherra og síðan
úrskurði hans, en kenn-
arar unnu allan síðast-
liðinn vetur án þess að
staðið væri við fyrir-
heit erindisbréfsins um
þessi atriði. Að lokum
úrskurðaði Gylfi að bæjarfélögin skyldu greiða
þessar upphæðir en þau hafa víða tregðazt við eins
og rakið var í blaðinu í gær. Ástæðan til þessara
viðbragða bæjarfélaganna mun vera sú að ráðherr-
ann hafði ekkert samráð við þau áður en hann lagði
á þau greiðsluskylduna. Hafa bæ’jarfélögin kraf-
ið fræðslumálaskrifstofuna og menntamálaráðherra
svara um það hvernig þetta fyrirkomulag sé hugs-
að og að hve miklu leyti ríkissjóður mundi endur-
greiða þetta fé, en engin svör hafa enn borizt.
Virðast vinnubrögð stjórnarvaldanna í þessu máli
ætla að verða með sömu endemum allt til loba —
og enn bíða kennarar víðast hvar eftir efndum á
ársgömlum loforðum.
Um ellefu leytið í gærkvöld varð
gífurlegur eldsvoði í Reykjavík. Eld-
ur kom upp í verksmiðjuhúsinu ísaga,
sem stendur við Rauðarárstíg. Verk-
smiðjan framleiðir acetylgas og súr-
efni. Urðu svo gifurlegar sprengingar
í gaskútum, að allt nötraði og skalf
og logana bar við himin. I*ó tókst að
verjast því, að eldurinn kæmist í súr-
efniskúta, sem geymdir eru í bak-
hýsi. Ekki varð tjón á mönnum í elds-
voðanum og má það teljast mildi, því
brotin úr gaskútunum flugu hátt og
víða.
Eins og að líkindum lætur fékk brunalið við ekk-
ert ráðið. í' rúma klukkustund gall við hver
sprengingin annari meiri er gaskútamir sprungu.
Hringt var á S'ökkvistöðina alla leið ofan úr
Borgamesi og spurt hvað væri eiginlega á seyði.
Gr Kópavogi berast þær fréttir, að þar hafi
jörð öll nötrað.
Það var ekki fyrr en uppúr miðnætti, sem
eidinn tók að lægja. Brunalið heldur strangan
vörð um húsið enda ekki vanþörf á, því lengi
gebur verið sprenginga von. Virðist einsætt, að
tannað verði framvegis að staðsetja slikar verk-
smiðjur inni í miðri borg, svo voðaleg eldhætta
sem af þeim stafar. Sjónarvottum mun öllum
bera saman um það, að það verði að teljast
oinstök miidi, að ekki skyldi verða mannskaði
í bruna þessum.
Þjóðviljinn reyndi í nótt að ná tali af hafn-
arstjóra Valgeiri Bjömssyni, sem er fram-
kvæmdastjóri ísaga h.f. en tókst ekki. Verður því
ekki með vissu sagt um tjón það, er hér hefur
orðið, en víst er að það skiptir milljónum.
Síðar um nóítina fckkst staðfesting á því, að tveir menn hafi
fverið Iokaðir innj i bakhýsi því, er súrefni er geymt í. Sluppu
þeir út heilir um hálf tvö leytið í nótt. Er hér enn einn vottur
þess, hve voðalega hefði hér getað farið. Slysavarðstofan upplýsir
það, að ekki hsfi orðið slys af völdum braksins, er þeyttist úr
Samningafundurínn stóð /
rúmiega 14 klukkustundir
SamiS v7ð frésmiði, murara
og rakarasveina
Samninganefndir trésmiða
og meistara undirrituðu á 12.
tímanum í gærmorgun nýja
samninga og hafði samninga-
fundur þá sfcaðið frá því kl. 9
í fyrrakvöld. Samningarnir
eru háðir samþykki félags-
funda viðkomandi aðila, en
í aðalatriðum eru þeir á
sama grundvelli og samn-
ingar þeir sem önnur iðn-
aðarmannafélög hafa gert að
undanfömu.
Nánar verður skýrt frá
samningunum í blaðinu, þeg-
ar búið er að leggja þá fyrir
félagsfundi viðkomandi að-
ila til staðfestingar, en það
verður trúlega um eða eftir
helgina.
Þá hafa einnig tekizt
samningar með múrurum og
múrarameisturum, og verða
þeir samningar einnig lagðir
fyrir félagsfundi viðkomandi
aðila næstu daga.
Rabarasveinar hafa einnig
samið við meistara og fela
samningarnir í sér um 16%
kauphækkun. Samningarnir
áttu að leggjast fyrir félags-
fundi viðkomandi aðila i
gær.
húsinu.
Rúður brotnuðu í næstu húsum, svo var loftþrýstingurinn mik-
lill. Þjóðviljinn hefur spurnir ai því, að undir húsinu sé grafinn
stór gasgeymir. Fari svo, að hann springi, þarf ekki að Iýsa
hverjar afleiðingar geta orðið.
(Ljósnt. bjóðv. A. K. tók myndina).
Töluverð síld
SIGLUFIRÐ 18/7 — Hér hefur
verið töluverð síld, og er nú salt-
að á átta plönum. Söltun hófst
kl. hálf sex i morgun, og er
verið að enn. Er þetta fyrsta
verulega söltun hér. Síldin er
mjög grunnt, í fjarðarkjaftinum,
og er að henni aðeins um
klukkustundar stím. Veður er
ágætt.
Sem dæmi um þessa sild má
nefna það, að Jón Garðar salt-
aði 500 tunnur í gær, 400 í
dag og kemur með 350 klukkan
11 í kvöld. Garðar Þorsteins fór
út síðari hluta dags og var
búinn að fá 400 tunna kast
eítir klukkutíma. Pétur Jónsson
fór út kl. 7 og var búinn að
kasta kl. 8. Hann fékk 350 tunn-
ur.
Margir bátar eru nú að á
þessum slóðum.