Þjóðviljinn - 25.09.1963, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 25. september 1963 — 28. árgangur — 205. tölublað.
SÍÐARIHOLSKEFLAN
ER ENNÞÁ STÆRRI
KJOTIÐ HÆKKAR UM 37 PROSENT
• í dag kemur til framkvæmda verðhækk-
unin á kjöti, en hún er ennþá stórfelldari en
mjólkurhækkunin. Hækkar kjötverðið yfir-
leitt um 37% frá því í fyrrahaust. Meðal-
hækkunin á kjöti og mjólk er þá 31%, eins
og Þjóðviljinn hafði sagt fyrir. Hins vegar
hafði Morgunblaðið, málgagn landbúnaðar-
ráðherra, staðhæft, síðast á laugardaginn var,
að meðalhækkunin yrði innan við 20%! . . . .
■ Ástæðan til þess að kjötið hækkar meira en mjólkin
er sú að bændur töldu að sauðfjárbændur hefðu orðið
fyrir enn meiri búsifjum af völdum viðreisnarinnar en
m’jólkurbændur. Var skiptingin milli búgreina ákveðin
af yfirnefnd, eins og hækkunin á grundvellinum sjálfum,
þar sem samkomulag náðist ekki milli fulltrúa bænda og
neytenda. Telja bændur að því fari mjög fjarri að þessi
hækkun rétti hlut þeirra eins og nauðsynlegt hefði ver-
ið gagnvart óðaverðbólgu ríkisstjómarinnar. En neytend-
ur geta að sjálfsögðu ekki unað því að brýnustu nauð-
synjar þeirra séu hækkaðar um nær þriðjung á sama tíma
og vísitölubætur á kaup eru bannaðar með lögum!
Meginatriðin í hinu nýja verði
á landbúnaðarafurðum fara hér
á eftir:
Súpukjöt
Kíló af súpukjöti hækkar úr
kr. 32.35, eins og það var ákveð-
ið í fyrrahaust. í kr. 44.40. Nem-
ur hækkunin á kíló kr. 12.05 eða
hvorki meira né minna en 37%
Heil læri
Kjöt í heilum lærum hækkar
5r kr. 37.65 kílóið í kr. 51.65.
tílóið hækkar þannig um 14
krónur eða 37 af hundraði.
Rok og
kuldi
★ Samkvæmt upplýsing-
um sem Þjóðviljinn fékk
hjá Veðurstofunni síðdegis
í gær var þá norðan hvass-
viðri og illviðri um mest-
anhluta landsins og staf-
aði það af djúpri lægð.
er var úti fyrir Suðaustur-
landi. Um kl. 3 síðdegis
i gær var stormurinn mest-
ur um mitt Norðurland og
mitt Suðurland, en hæg-
ara á Vestfjörðum og Aust-
fjörðum. Voru þá 8 vind-
stig á Sauðárkróki og 11
vindstig á Stórhöfða í Vest-
mannaeyjum.
•ic Norðanáttinni fylgdi
kraparigning og snjókoma í
innsveitum á Norðurlandi
Var hitinn þar 1—2 stig
við sjóinn en á Nautabúi í
Skagafirði var 1 stigs frost.
Hlýjast var á Austfjörðum.
7 stiga hiti, en fór kólnandi.
Slyddan náði suðuryfir há-
lendið og var kraparigning
um Miðsuðurland.
■jf Von var á því að veðr-
ið gengið niður um norð-
vestanvert landið, í nótt,
en færi hins vcgar kóln-
andi og hvessandi á norð-
austurlandi.
Hryggir
Hryggir hækka úr kr. 38.85
kílóið í kr. 53.25. Þar nemur
hækkunin kr. 14.40, og enn er
hlutfallshækkunin 37%.
Lifur
Kílóið af lifur hækkar úr kr.
42.30 í kr. 55.60. Hækkunin er
kr. 13.30 á kíló eða rúmJega
31%. Ijifur er ekki greidd niði’r
úr ríkissjóði.
Hjörtu
Hjörtu og nýru hækka úr k.r.
31.50 í kr. 38.60 kílóið. Hækkan-
in nemur kr. 7.10 eða 23%.
Hausar
Sviðnir hausar hækka úr kr.
24.80 kílóið í kr. 31.20. Hækkar
kílóið um kr. 6.40 eða 25°%
Slátur
Heil slátur með sviðnum haus
hækka úr kr. 41.00 í kr 50 85.
Hækkunin er kr. 9.85 eða 24%.
Kartöflur
Pokinn af 1. flokks kartöflum
kostar nú kr. 43.40. bannig að
verðið á kílóinu er kr. 8.68. t
fyrra kostaði kílóið kr. 7.00.
Hækkunin er kr. 1.68 á kílóið
eða 24%. Hliðstæð hækkun
verður á öðrum flokkum.
Leikdómur
*
Asgeirs
Hjartarsonar
um Císi er
á 7.síiu
Kjötvörur hæltka að meðaltali um 37% frá því sem þær voru í fyrrahaust. — Ljósm Þjóðv. A.K,
Moskvu-
samningurinn
staðfestar
WASHINGTON 24/9. Öldunga-
deildin bandaríska staðfesti f
dag samninginn um tak-
markað tilraunabann sem
undirritaður var af utanríkis-
ráðherrum Bandarikjanna,
Bretlands og Sovétríkjanna f
Moskvu. 80 öldungadeildar-
menn grciddu atkvæði með
staðfestingu samningsins en
aðeins 19 á móti. Tvo þriðju
hluta atkvæða, eða 66, þurfti
til þess að samningurinn öðl-
aðist staðfestingu.
KENNEDY Bandaríkjaforseti
lýsti f dag yfir ánægju sinni
með afgreiðslu öldungadeQd-
arinnar. Sagði hann að
Moskvusamningurinn væri
mikilvægt skref á friðar-
brautinni og gæti leitt til
frekari afvopnunarsamninga.
BORGA ÞEIR MISMUNINN?
Þau furðulegu tíðindi gerðust
á laugardaginn var að Morg-
unblaðið — málgagn landbúnað-
arráðherra — staðhæfði með
miklu yfirlæti að það væri al-
gerlega rangt hjá Þjóðviljan-
um að mjólk og kjöt myndu
hækka frá því í fyrra um ekki
minna en 30% að meðaltali í
útsölu. Hét Morgunblaðið les-
endum sinum því með miklum
drembileik — eins og myndin
sýnir — að meðalhækkunin yrði
örugglega innan við 20,8%.
Þjóðviljinn leiðrétti þessar
firrur Morgunblaðsins á
Bandarískur
njésnahnöttur
VANDENBERG, Kaliforníu 24.
9. Bandaríski flugherinn skaut
í dag upp Titan-flaug og „leyni-
Iegum” gerfihnetti frá Vanden-
berg-flugvclli í Kaliforníu. Eng-
ar nánari upplýsingar hafa ver-
ið veittar um geimskot þetta.
sunriudaginn var og benti rit-
stjórunum á að kynna sér verð-
lagsgrundvöll landbúnaðaraf-
urða. Sú 20,8% hækkun, sem
yfimefnd ákvað, var reiknuð
eftir útgjaldaliðum grundvallar-
ins. Tekjuliðimir hækka ekki
allir um sömu hundraðstölu
eins og kunnugt er, sumir eru
úrskurðaðir af yfirnefnd. aðrir
fara eftir markaðsverði erlend-
is en afganginn verður að taka
í verði á mjólk og kjöti og öðr-
um búvörum sem seldar em
innarilands. Þess vegna hækkar
Húsið hrundi
oq 14fórusf
MASERTA 24/9. 14 menn létu
Iífið og margir særðust alvarlega
þegar hús í borginni Maserta á
Norður-ítalíu hrundi snemma í
dag. Sprenging varð i húsinu, en
á neðstu hæð þess voru geymdar
byrgðir af flugeldum. Tvö bús í
nágrenninu skemmdust af völd-
um sprengingarinnar.
mjólk og kjöt meira en nem- >
ur meðalhækkuninni á útgjalda-<
liðunum, eins og nú er ástatt.
Þetta sér hver maður sem eitt-.
hvað kynnir sér málavexti, og
það hefði átt að vera lágmarks-
skylda þeirra manna sem skrifa
um búvöruverð í málgagn land-,
búnaðarráðherra.
Engu að síður heldur Morgun-
blaðið túlkun sinni enn til
streitu í gær og talar til bragð-
bætis um „skilningssljóa menn“
sem vilji „undirstrika bjálfa-
háttinn"!! Það er þannig von-
lanst verk að ætla að uppfræða
ritstjóra Morgunblaðsins. En þó
þeir skilji ekkert í ástæðunum,
hljóta þeir að verða að viður-
kenna staðreyndir. Hver mjólk-
urbúð í landinu er til sanninda-
merkis um það að mjólk hefur
hækkað um 25%. Hver kjötbúð
sýnir að kjöt hefur hækkað um
37%. iéu þessar tvær hlutfalls-
tölur lagðar saman og deilt með
tveimur kemur út meðalhækk-
unin 31%. Það hljóta ritstjórar
Morgunblaðsins þó að geta skii-
ið, ef þeir reyna til hins ýtr-
asta á heilafrumurnar.
Stórajöf til Listasafnsins
Þjóðvilianum barzt í gær fréttatilkynning frá
Listasafni ríkisins þar sem skýrt er frá stórgjöf sem
safninu hefur borizt’ en það hefur verið arfleitt að
andvirði þriðjahluta af fasteigninni Austurstræti
12 að frádreginni 1 millj. kr. í fréttatilkynning-
unni segir svo um þessa höfðinglegu gjöf:
„Sesselja Stefánsdóttir píanó-
leikari, er lézt í Landspítalanum
hinn 4. sept. s.l., lét eftir sig
erfðaskrá. þar sem er ákveðið,
að 1/3 hluti fasteignarinnar
Austurstræti 12 í Reykjavík, að
frádreginni einni milljón króna,
skuli falla til Listasafns Islands.
Páll S. Pálsson hæstaréttar-
lögmaður hefur fengið skipan
dómsmálaráðuneytisins sem
skiptaforstjóri í dánarbúj Sess-
élju Stefánsdótfcur. og hefúr
hann tilkynnt dr. Selmu Jóns-
dóttur, fonstöðumanni Lista-
safns Islands um efni fyrr-
greindar erfðaskrár.
Eftirlifandi systkini hinnar
látnu, frú Guðríður Stefánsdótt-
ir Green og Gunnar Stefánsson
stórkaupmaður, viðurkenna form-
legt gildi erfðaskrárinnar.
Gera má ráð fyrir, að hús-
eignin Austurstræti 12 verði seld
þegar að loknum skiptum dánar-
búsins. og kemur þá í Ijós, hver
hlutur Listasafnsins verður.
Þess skal getið að minningar-
gjöfin er gefin í því skyni að
varðveita höggmyndir Nínu
Sæmundsson mjmdhöggvara inn-
an vébanda Listasafns Islands.
Safnráð lét í ljós ánægju og
þakklæti yfir þessari rausnar-
legu minningargjöf, sem hlýtur
að verða til þess að hraða mjög
byggingu Listasafns Islands.
Annars eiga ritstjórar Morg-
unblaðsins eina leið til að
'halda niðurstöðu sinni til
streitu. Þeir geta borgað úr eig-
in vasa mismuninn á verðinu,
eins og það er nú í búðurimn,
Og verðinu sem þeir lofuðu hái-
tíðlega á laugardaginn var.
f FÖLSUN EÐA
HEIMSKA
| VZ&nefnd sexmáimanefnd-1
I' arinnar héfnr ákveðið aðl
f verð það, sem bændur fá fyr- j
5 ir landbúnaðarafurðir hækki í
' fjáliað xun yinnslú- og drtíf- Í
^ ingárkostnað, en * kunnugir '
teljaj-áð' hann inuni hækka.l
!|j miftna, þaiinig atypeðalhækk;:
|| un ’verðs á láÉÍCúnaðaryöf-1
um iál'neyttwlá verði ’eitt-j
þvaðminni.en 20,8%.
I?: ' Mórgunbláðið. .gerír ,, ráð
;fyrir því, að.ritstjórár'í>jóð-:
viljáns hafi' ' meðalgreindi
’bamaskólabarns, svo að þess
,:ýégná er ekki .hægt að'.gerá!
: \ því skóna að blaðið viti^ekki
:: betur, þegar það heldur 'því
|fram, að „útsöiuvérð á;land-
: i b.únaðarafurðum muni hajkka
ijum' hkki mihna en'.3Ö%:að
I jafnáði't ■
| Hér hlýtur því áð verá' um'
jað ræða vísvitandi fréttáföls-
| ún, enda hefur „ÞjóðViljinn"
llen'gi verið í .kapþhlaupi við
ITímann um það, hvort bláðið
|gæti'falsað frettirnar ræki-
I le'gar.
LANDBÚNAÐAR-
VERÐIÐ
piins og áðúr segir Vérðurl
meðalhækkun 'íahdbún-|
aðárafurða tií neyténda vænt!
ahlega' eitthváð mihhi' en|
20,8
Úr leiöurum Morgunblaðsins.
*