Þjóðviljinn - 14.11.1963, Qupperneq 1
Fimmtudagur 11, nóvember 1963 — 28. árgangur — 241. tölublað.
Spila- oq skemmtifundur
Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur spila- og skemmti-
fund annað kvöld, föstudag, kl. 8.30 í Tjarnargötu 20.
Stefán Jónsson rithöfundur les upp úr verkum sín-
um, Kvenfélagskonur standa fyrir vefEingum.
Fjölmennið, félagar, og takið með ykkur gestL —
STJÓRNIN.
Afvínnurekendur játa nauSsyn kauphœkkunar:
YFIRBORGANIR AUKAST STOÐUGT
■ Morgunblaðið heldur enn áfram þeim á-<y
róðri að ekki megi hækka kaup verkafólks, at-
vinnuvegimir standi ekki undir þvL Þessi áróð-
ur er afsannaður dag hvem af atvinnurekendum
sjálfum, yfirborganir hafa stöðugt verið að færast
I vöxt að undanfömu, bæði hér í Reykjavík og
úti um allt land. Ekkert er vonlausara en að
streitast gegn því að samið sé um það kaup sem
þegar er greitt I verki á fjölmörgum sviðum.
Yfirborganir mega heita al-
gild regla hjá öllum nema 6-
faglærðu verkafólki, en yfir-
borganir tll þess hafa einnig
aukizt mjðg að undanfömu,
eins og nú skal rakið.
1 BYGGINGARVINNU fá
Dagsbrúnarverkamenn nú 30—
50 krónur á klukkustund í dag-
viimu. Mjög aTgengt er að
sæmilega vanir menn fái 40 kr.
á klukkustund.
1 SMIÐJUNUM OG SLIPPN-
UM eru mjög margir verkamenn
með iðnsveinakaup, oft kring-
um 35 kr. um tímann.
HJA smækri atvinnu-
REKENDUM OG IÐNREKEND-
UM er tímakaup verkamanna
Þjófnaðurinn
hjá Skagfjörd
upplýstur
Lögreglan hefur nú hand-
tekið mann sem hefur ját-
að á sig stórþjófnað er
framinn var 24. október sl.
i skrifstofu Heildverzlun-
ar Kristjáns Ó. Skagfjörð
en þar var stolið peninga-
kassa með um 12 þús. kr.
í peningum. 60—70 þús. kr.
í ávísunum, óútfylltu ávís-
anahefti en stimpluðu með
stimpli fyrirtækisins svo og
ýmsum vcrðmætum skjöl-
um.
Þjófnaður þessi komst
þannig upp að í síðustu
vifcu kom 'ungur maður í
þrjá banka hér í Reykja-
vík með faisaðar ávísanir
með stimpli verzlunarinn-
ar. Vildi hann fá þær
greiddar en varð hræddur
er starfsfólk bankanna fór
að athuga ávísanimar og
hljóp út úr öllum bönkun-
um.
Lögreglunni var gert að-
vart um þetta og starfs-
stúlka i útifoúi Landsbanka
Islands að Langholtsvegi 43
þekkti manninn aftur á
mynd er rannsóknarlögregl-
an sýndi henni, en hann
hefur áður komizt í kast
við lögregluna og var til
mynd af honum í skjala-
safni lögreglunnar.
Lögregtan fór síðan heim
; til mannsins og gerði hús-
leit hjá honum og fann þar
; peningakassann með skjöl-
unum og ávísunum en pen-
ingunum var maðurinn bú-
inn að eyða nær ölllum.
yfirleitt 30—40 krónur á KLukku-
stund og ýms dæmi um að greitt
sé hærra en 40 krónur.
VERKTAKAR, sem taka að
sér tilteknar framkvæmdir fyrir
opinbera aðila og ekki sízt
Reykjavíkurbæ, gredða verka-
mönnum yfirleitt 35—50 krónur
á klukkustund. Stundum kemur
það fyrir að í sömu götunni
vinna menn hlið við hlið; þeir
sem ráðnir eru hjá Reykjavíkur-
bæ fá 28 krónur á klukkustund,
þeir sem eru hjá verktökunum
allt upp í 50!
Margir iðnrekendur bjóða
verkamönnum kauphækkanir á
þann hátt að aðeins hltrti af
tekjum þeirra sé taJinn fram
til skatts. Þessi aðferð er ekki
sízt notuð af ýmsum máttar-
stólpum þjóðfélagsins og stjóm-
arflokkanna. mönnum sem
stunda framleiðslu og sölu og
stinga hluta af söluskattinum í
eigin vasa, Þeir þurfa á því að
halda að féla fjármuni sína og
bjóða þvi mönnum upp á skatt-
fríðindi á þennan hátt!
Verkamenn sem vinna við
fluininga og margskyns þjón-
ustufyrirtæki fá yfirleitt
yfirborganir; hjá þeim og
ýmsum öðrum fyrirtækjum er
til dæmis sá háttur á hafður
að greiða fyrir vinnustundir
sem ekki eru unnar.
I FISKVINNU eru kauphækk-
anir komnar til framkvæmda
víða útum land. Á Austfjörð-
um hefur verkamannakaup i
fiskvinnu að unddanfömu ver-
ið 35 — 40 krónur á klukku-
stund. Auk þess hafa aðkomu-
menn fengið frítt fæði, en heima-
menn uppbót. sem þvi svarar.
Víða, til að mjmda sunnanlands
og vestan, er um að ræða yfir-
borganir í fiskvinnu. Hins veg-
ar hafa atvinnurekendur í þeirri
grein reynt að halda fast við
lágmarkskauptaxtann í Reykja-
vík og nágrenni og hafa beðið
mest tjón af því sjálfir, þar sem
þeim hefur gengið mjög erfið-
lega að fá vinnuafl.
Auk frystihúsanna er höfnin
stærsti vinnustaður Dagsbrúnar-
manna Þar hafa atvinnurekend-
ur allt til þessa yfirleitt haldið
fast við hinn umsamda lág-
markstaxta. Þó er Ijóst að þar
er efcki neitt getuleysi að verki.
Þessir atwinnurekendur hika
ekki við að láta vinna eftir-
vinnu. næturvinnu og helgidaga-
vinnu eftir þvf sem við verð-
ur komið, og oft bæta þeir fólki
við klukkan fimm. Á þessu ári
verður til dæimis unnið 30—40
sunnudaga við höfnina. Þannig
telja atvinnurekendur sér hag
í því að láta vinna, þó þeir
verði að greiða tvöfallt umsamið
lágmarkskaup, enda er það auð-
velt reikningsdæmi fyrir þá að
vinnulaunin eru það lítið brot
af heildarkostnaði þeirra að
veruleg hækkun á þeim er
sáralítið atriði í reksbrinum.
MÁ IKKl
RÆÐA HVAL-
FJARÐAR-
MÁL/Ð?
Á FUNDI sameinafts þings f gser
var Hvalfjarðarmálið neðst á
dagskránni eða 15. mál og
kom þvi ekkx til umraeðu.
Það vekur vaxandi undrnn
að þetta stórmál skuli ekki
fást rætt í þinginu en það
var eitt fyrsta málið sem
fram var lagt og öli þau
fjórtán mál sem sett fóru
ofar á dagskrána á fnndinum
í gær komu fram Iöngn
scinna en Hvalf jarðarmálið.
FUNDIR sameinaðs þings eru
sjaldnast haldnir nenaa á
miðvikudögum og þar eð ut-
anríkisráðherra mun senni-
lega verða i Englandi næst-
komandi miðvikudag f fylgd
með forsetarrum er talið ó-
líklegt að málið verði þá tek-
ið til umræðu. Stöðug frest-
un á umræðnm um þetta ör-
lagarika mál er að verða
stórhneyksli og vaknar sú
spuming hvort ráðherramir
þori hreinlega ckki að ræða
málið.
Málfundur verður í kvöld kl.
8.30. Umræðuefnið verður ,Js-
lenzka sjónvarpið“. Félagar fjöl-
mennið og mætið stundvíslega
Farið verður í ÆFR-skálann
um helgina. Lagt aí staft frá
Tjamargötu 20 kl. 5 á laugardag.
Félagar fjölmennið.
Þrenqir að
fuglunum
Víðtæk samstarfsnefnd
verkalýðshreyfingarinnar
1 frostunum undanfama daga
hefur Tjömina Iagt og ís
þrengt að ‘ fuglunum sem þar
hafast við. Þessa failegu mynd
tók Ijósmyndari: blaðsins nýver-
ið niðri við Tjðm og sýnir 'hún
að þröngt hefur verið þá á þingi
í vökinnl og brauðmolar úr
veitölum höndum vel þegnir.
— (Ljósm. Þjóðv. A. K,),
Sendiherra af-
hendir trúnaðar-
bréf sitt
Hinn nýi sendiherra. Ungverja-
lands, hr. Ferenc Ezstergalyos
afhenti nýlega forseta Islands
trúnaðarbréf sitt við hátíðlega
athöfn á Bessastöðum, i að við-
stöddum utanríldsráðherra.
(Frá sfcriístofu forseta Islands).
★ Horfur eru nú á að, mynduð
verði sameiginleg nefnd helztu
starfshópa verkalýðshreyfingar-
innar til að tengja \ þá saman
þegar í byrjun samninganna sem
framundan eru.
★ Þegar er vitað að Lands-
nefnd verkamannafélaganna
mun tilnefna menn í slíka sam-
starfsnefnd, en Landsnefndin
tengir saman almennu verka-
mannafélögin, verkakvennafélög-
in og iðjufélögin (nema Iðju í
Reykjavík sem enn hefur ekki
tilkynnt þátttöku í nefndinni).
Félög bókbindara og prcntara
tilnefna fulltrúa i samstarfs-
nefndina. félög málmiðnaðar-
manna og slupasmiða munu eiga
fulltrúa í ' henni og félögin f
byggingariðnaðinum einnig. Loks
hefur Landssamband íslenzkra
verzlunarmanna tilkynnt aðild
að samstarfsnefndinni.
★ Landsnefnd verkamannafé-
laganna kemur saman til fundar
í dag kl. 2.30 1 fundarsal Al-
þýðusambandsins að Laugavegi
18, en fer á samningafund með
fulltrúum Vinnuveitendasam-
bandsins kl. 4 í dag.
★ Samninganefnd Hins íslenzka
prentarafélags var á samninga-
fundi með atvinnurekendum á
þriðjudag, en enginn árangur
náðist.
Jóhann Hafstein
dómsmálaróðherra
Á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins síðdeg-
is í gær mun hafa verið ákveðið að JÓHANN HAF-
STEIN tæki við embætti dómsmálaráðherra í
hinni nýju stjórn. SIGURÐUR BJARNASON mun
taka við fyrra embætti sínu sem forseti neðri
deildar Alþingis, í stað Jóhanns.