Þjóðviljinn - 22.12.1963, Blaðsíða 2
2 HÐií -
WÖBVn,TINN
Sunnudagur 22. desember 1963
Tvær fallegar
og skemmtilegar
jólabækur
AFLAMENN
Bók um þjóðfræga aflamenn, rituð af þjóð-
k'unnum höfundum. Jónas Árnason sá um
útgáfu bókarinnar, en höfundarnir eru:’ Ási
í Bæ, Indriði G. Þorsteinsson, Stefán Jóns-
son, Björn Bjarman, Jökull Jakobsson. Fjöldi
glæsilegra mynda prýðir bókina.
Verð kr. 320 + söluskattur..
BORIN FRJÁLS
eftir JOY ADAMSSON.
Einstaklega fögur og skemmtileg bók um
ljónynju, sem elst upp með mönnum og binzt
þeim vináttuböndum. Bók þessi hefur notið
fágætra vinsælda um allan heim og ekki síð-
ur vakið athygli vísindamanna en almenn-
ings. 80 myndasíður eru í bókinni, þar af 8
í litum.
Verð kr. 270 + söluskattur.
HEIMSKRINGLA
Yfir/ýsing
vegna /yga i
Morgunb/.
Ég undirritaður er einn
þeirra flakjksstjórnarmaiina
Sameiningarflokks alþýðu-Sós-
íalistaflokksins er sat flokks-
stjórnarfund hans í Reykja-
vík dagana 6.—8. des. si.
hverja stund frá upphafi hans
til loka hans.
Fundurinn fór mjög vel
fram undir prýðilegri fundar-
stjóm Sigurðar Guðgeirssanar
og naut málflutningur allra
ræðumanna á fundinum sin
fullkomlega, og ályktanir
fundarins voru afgreiddar með
rólegri atkvæðagreiðslu.
Þetta vil ég að kæmi fram.
vegna auðvirðilegra lyga um
fundinn í Morgunblaðinu í dag,
en þar segir að Tjamargata
20 hafi borið merki eftir ill-
indin á fundinum, ..glugga-
tjöldin hafi verið rifin niður
o.s.frv.'4 — Hitt er annað mál
að gluggtjöld voxu ekki alltaf
dregin fyrir glugga.
Það er stutt síðan Morgun-
blaðið minntist 50 ára afmæl-
is síns, og þá lögðu aðstand-
endur blaðsins sérstaka áherzlu
á hve fréttaiþjónusta þess hefði
ávallt verið. og væri traust
og heiðarleg. — En á þessum
flokksstjómarfundi Sósfalista-
flokksins fékk ég, og aðrir
flokksstjómarmenn utan af
landi, staðfestingu á, hvernig
þeir Morgunblaðsmenn með-
höndla sannleikann gagnvart
sínum andstæðingum. — Og
þar leggjast þeir svo lágt sem
hægt er.
Reykjavík, 10. des. 1963.
Olgeir Lúthersson.
V-þýzkur togari
hætt kominn
Vesturþýzki togarinn Grön-
land var að veiðum á Fylkis-
banka við Austur Grænland
fjórtánda desember sl. og kvikn-
aði þá í skipinu. Kom eldurinn
upp í vélarrúmi skipsins og
stóð brátt í björtu báli.
Tvö hundruð tonn af olíu
var um borð í skipinu og yfir-
gáfu 25 skipverjar skipið og
fóru um borð f þýzkt eftirlits-
skip statt þama í nágrenninu.
Fimm skipverjar voru þó eftir
í skipinu og tókst að slökkva
eldinn um síðir. Þýzki togar-
inn Germania dró skipið hingað
til Reykjavfkur og komu þeir
hingað 18. desember. Hefur skip-
ið legið hér í höfninni síðan.
Brúin á skipinu brann og er
aðeins framhluti skipsins ó-
brunninn og sjálfur skrokkur-
inn heiH.
Reynt að ræna
*
Utvegsbankann
13712 — 1 nótt var gerð tilraun
til að brjótast inn í Útvegsbank-
ann í Reykjavík. Klukkan fimm
mínútur yfir þrjú í nótt var
hringt frá Útvegsbankanum til
lögreglunnar og frá þvl skýrt. að
grunsamlegir menn væru uppi á
skúrþaki í portinu bak við þetta
musteri peninganna. Lögreglan
brá hart við, kom á vettvang og
handtók tvo unga menn, er voru
að reyna að komast inn um
glugga í bankaihúsið. Eru þeir nú
undir lás og slá og mál þeirra
í rannsókn. Báðir munu þeir
hafa verið undir áhrifum.
_____^ ^ -
ShlPAUTGfeRÐ RlhlSINb
M.s. Esja
fer austur um land til Akur-
eyrar 1. janúar 1964. Vörumót-
taka á mánudag til Djúpavogs,
Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar.
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyð-
isfjarðar, Borgarfjarðar. Vopna-
fjarðar, Þórshafnar, Rauíar-
hafnar. Kópaskers og Húsavík-
ur. Farseðlar seldir 30. des-
ember.
Kaupmenn, kaupfélög
Enn sem fyrr höfum vér til sölu úrvals ilmvötn
og kölnarvötn frá Frakklandi, Englandi, Spáni,
Vestur-Þýzkalandi, U.S.A., Tékkóslóvakíu, Rúss-
landi, Danmörku, Austur-Þýzkalandi, Monaco og
Sviss.
Ennfremur eru ávallt fyrirliggjandi ýmsar teg-
undir af rakspíritus, hárvötnum og andlitsvötnum.
Gérið jólapantanirnar tímanlega.
ÁFENGIS- OG TÓBAKSVERZLUN
RÍKISINS
Skrifstofur: Borgartúni 7 Sími: 2 42 80.
Afgreiðslutími frá kl. 9—12,30 og 1—16,
nema laugardaga kl. 9—12.
HJA HÚSGÖGN
HÚSBÚNAÐI: vIlbJÖRKP
AKUREYRI
m.a. þetta nýtizkulega söfasett„P 5”
HkíK
HÚSBÚNAÐUR HP laugavegi26 sixní 20970
SAMRAND HÚSGAGNAFRAMLEIÐENDA
LÍTIÐ Á HÚSBÚNAÐINN HJÁ HÚSBÚNAÐI
Bifreiðaleigan HJÓL Hverflsgðt* n Bim) 18'I7*
||p 11 1 H II |
Innilega þökkum við öllum, er veittu stuðning i veik-
indum
ISAKS JÓNSSONAR,
skólastjóra
og sýndu samúð við andlát hans og útför. Sérstaklega
þökkum við læknum og hjúkrunarliði á lyflækninga-
deild Landsspitalans, fræðslumálastjóra, kennumm og
starfsfólki við Skóla ísaks Jónssonar og skólanefnd, sem
bauð, að skóJinn kostaði útíörina i virðingarskyni við
hinn látna. Einnig færum við Kennaraskólanum og
Barnavinafélaginu Sumargjöf alúðarþakkir.
Sigrún Sigurjónsdóttir og börn.
Þökkum af alhug virðingu og vinarþel við andlát og
jarðarför
JÓHANNESAR ÞORSTEINSSONAR
Ásum, Hveragerði.
Eiginkona, dætur, tcngdasynir og barnabörn.
b