Þjóðviljinn - 13.03.1964, Síða 6
g SÍÐA
ÞlðÐVILTINN
Pðstudagur 13. marz 1964
SANNLEIKURINN UM A ** 'Mnm Á KENI NEDY
Rétt áður en skotin riðu af voru
tveir menn í glugganum á 6. hæð
TJér birtist annar hluti skýrslu bandaríska
“stærðfræðingsins og rithöfundarins Thom-
asar Buchanan um morðið á Kennedy for-
seta. í fyrsta hlutanum sem við birtum í
fyrradag sýndi Buchanan fram á fjögur
hæpin meginatriði í þeirri kenningu lögregl-
unnar að Lee Harvey Oswald hefði myrt for-
setann og verið einn að verki. Þessi at-
riði eru:
1. Kúla sem skotið var á forsetann aftan
frá og úr talsverðri fjarlægð á að hafa farið
gegnum höfuð forsetans og út um háls hans.
Hún á að hafa splundrazt á gólfi bílsins, en
þó gert lítið kringlótt gat á vindhlífina. Væg-
ast sagt hæpin kenning.
2. Önnur kúla á að hafa hæft forsetann í
bakið, þótt enginn þeirra Iækna sem önnuðust
hann á spítalanum í Dallas né heldur neinn
úr hjúkrunarliðinu tæki eftir sárinu á baki
hans. í»að á að hafa stafað af því að engum
þriggja skurðlækna spítalans datt í hug að
snúa honum við. Vægast sagt hæpin kenn-
ing.
3. Skurðlæknarnir, sem alvanir eru að gera
að skotsárum, töldu að kúla hefði hæft for-
setann í hálsinn að framanverðu, en síðan
setið föst í brjósti hans. En lögreglan vill
halda því fram að kúlan hafi komið aftan frá og farið út um hálsinn
að framan. Vægast sagt hæpin kenning þegar haft er í huga hversu
gerólík þau sár eru sem kúla á út- og innleið skilja eftir sig.
4. Oswald, ein lélegasta skyttan íöllum bandaríska hernum, á að
hafa þjálfað sig á laun og náð slíkum árangri, að hann gat hitt skot-
mark á hreyfingu þrisvar sinnum áfimm og hálfri sekúndu með hálf-
sjálfhlaðningi og sjónaukamiði, enda þótt hann yrði tvívegis að taka
í boltann. Vægast sagt hæpin kenning.
Buchanan heldur hér áfram að kryfja til mergjar kenningu lögregl-
unnar um atvik morðsins og sýnir fram á enn fleiri atriði í henni sem
ekki fá staðizt.
Lec Harvey Oswald.
amkvæmt kennlngu lög-
reglunnar beitti Oswald
morðvopninu. Hún kveðst
hafa fært óygg'jandi vís-
indalega sönnun fyrir því.
Fyrst var því haldið fram, að
lögreglan hefði fundið íingra-
för Oswalds á morðvopninu.
Öll blöðin skýrðu frá þessu
En skömmu síðar birti héraðs-
saksóknarinn Henry Wade yfir-
iýsingu, þar sem í staðinn íyrir
„fingraför" var talað um „lófa-
för“. Þeir voru fáir, sem tóku
eftir þessari hagræðingu.
En þó er hér um að ræða
mun sem máli skiptir: Það er
hægt að þekkja mann á fingra-
förum hans. en ekki lófaför-
um. En þessi för hurfu líka i
þriðju útgáfunni, sem kom frá
FBI. Sambandslögreglan lýsti
yfir að „engin lófaför hefðu
íundizt á rifflinum". Lögreglu-
menn FBI reyndu ekki að dylja
gremju sína í einkaviðræðum:
Hvers vegna var Wade að hafa
orð á sönnunargagni sem alls
ekki var til?
Lófaför
En lófaför Oswalds fundust
hins vegar á pappaöskju sem
var í herberginu sem morð-
inginn hafði skotið úr. Hvaða
ályktun var hægt að draga af
því? Enga: Oswald vann í þessu
herbergi í bókageymsluhúsinu:
vinna hans var m.a. í því
fólgin að bera pappaöskjur
með bókum um húsið. Hefði
lófafar Oswalds fundizt í
gluggakistunni þar sem moið-
inginn skaut af byssunni eða
jafnvel gluggarúðunni, þá hefði
þar verið mikilvægt sönnunar-
gagn. En engin lófaför fundust
á þessum stöðum
En við skulum halda okkur
við hina opinberu kenningu og
þá gera ráð fyrir að Oswald
hafi skilið eftir för á pappa-
öskjunni Hvaða ályktun má
draga af þvi? Aðeins eina: Os-
wald var ekki morðinginn.
heldur vitorðsmaður hans. Hafi
hann nefnilega skilið eftir för
sín á öskjunni, þá merkir það
að hann hefur ekki haft hanzka
á höndum. Og hafi hann ekki
haft hanzka. þá hlyti hann
einnig að hafa skilið eftir lófa-
för á rifflinum. Við munum
sjá það bráðlega, að hann
hafði alls engan tíma til þess
að þurrka för af morðvopn-
inu.
Parafínpróf
Önnur visindaleg sönnun sem
lögreglan telur sig styðjast við
er niðurstaða parafínprófsins.
Það leiddi í ljós merki eftir
sprengipúður á höndum Os-
walds. Hins vegar ekki á kinn-
um hans. Wade héraðssaksókn-
ari var afdráttarlaus um þetta
atriði-
— Ég hef hér niðurstöður
rannsókna sem sýna að merki
voru eftir púður á báðum
höndum Oswalds.
Þegar Wade talaði um byss-
una sem bessi púðurmerki
hefðu getað stafað frá notaði
hann orðið „gun“. sem þýðir
skammbyssa: hann talaði ekki
um „rifle“ eða riffil. Hann end-
urtók meira að segja orðið
..gun“. þegar einn blaðamann-
anna gekk eftir því hvort hann
hefði ekki átt við „rifle“,
Skammbyssa var reyndar j
fórum Oswalds þesar hann var
handtekinn. Og það hefur ver-
■f.
iiijii
jixo : :::
:::::/
Brotna Iínan sýnir leiðina scm skotin úr bókageymslimni fóru
Jgj
ið talið að hann hafi þá
skömmu áður skotið lögreglu-
manninn Tippitt til bana; þar
var skýringin á púðrinu á
höndum has. En hvernig stóð
á því að ekkert púður var á
kinnum hans, ef hann hafði
nýlega skotið úr riffli?
Því verður ekki haldið fram.
að Oswald hafi getað þvegið
sér í framan áður en hann
var tekinn höndum. Hann fór
úr bókageymsluhúsinu, þar sem
trann var staddur á morðstund-
innl. um kl 12.35. Hann fór
fótgangandi að strætisvagna-
biðstöð fjórum húsasamstæðum
þaðan. Hann var óþolinmóður
og fór aftur úr strætisvagnin-
um í leit að leigubíl. Hann
fann engan fyrr en tveimur
húsasamstæðum lengra burtu,
.,um 12,45” samkvæmt athug-
un „Time“
Staðurinn sem hann bað bíl-
^tjórann að aka á var fimm
samstæðum frá húsi þvi sem
hann bjó í. Billinn kostaði 95
sent, en það bendir til þess
að ferðin hafi gengið seint:
Umferðin tepptist eftir morðið.
Oswald varð að ganga aftur
til baka drjúgan spöl heim til
sín, þar sem hann fór úr jakk.
anum og í blússu og tók
skammbyssu sína.
Húsráðandi Oswalds hefur
staðfest að hann hafi aðejns
staldrað andartak við, Hapn
hefur ekki haft tíma til að
losa púðrið af vöngum sín-
um, þvi að það næst ekki
af nema með sápu og bursta.
Nær strax eftir að hann fór
aftur að heiman, rakst hann
samkvæmt hinni opinberu
kenningu á Tippitt lögreglu-
mann, drap hann og leitaði hæl-