Þjóðviljinn - 13.03.1964, Blaðsíða 12
Heitilög-
sögumanns
fríðheilagt
Einar Oolgeiirsson mælti
gegn því á Alþingi í gær
að embætisheitið lðgsögu-
maður yrði tekið upp að
nýju.
Benti Einar á, að lög-
sögumað'ur þjóðveldisins
hefði verið sannur fulltrúi
fólks sem ekki þekkti til
ríkisvalds. enginn styrr
hefði staðið um þetta virðu-
lega embætt: en lögsögu-
maður verið fyrirsvarsmað-
ur þjóðfélags sem var ó-
spillt af þeirri stéttabaráttu
sem nú er einkenni okkar
auðvaldsþjóðfélags.
Og hvað vel sem löggjöf
um embætti sem þetta,
hélt Einar áfram, er úr
garði gerð og hversu góður
og réttsýnn sem sá
maður er í það veldist væri
er það jafn víst að deilur
hljóta að verða um starf
hans og munu þær óhjá-
kvæmilega verða til þess
að óvirða heitið lögsögu-
maður. Taldi E:nar af þess-
um ástæðum varhugavert
að velja þetta heiti og
bað aðstandendur málsins
og nefnd að íhuga þetta og
finna embættinu annað
nafn.
Varamenn á Alþ.
Á Alþingi þvi er nú situr hafa
óvenjumargir varaþingmenn tek-
ið sæti eða alls 14 menn; 7
varamenn Framsóknarflokksins
4 varamenn Ihaldsins og þrír
kratar. Enginn af þingmönnum
Alþýðubandalagsins hefur for-
fallazt eða fengið leyfi frá þing-
störfum á þessu þingi.
Það mun ef til vill ekki koma
neinum á óvart að ekki færri
en sextán þingmenn, eða liðlega
fjórðungur Alþingismannanna,
éru lögfræðingar. Aðeins sex
bændur eiga nú sæti á Alþingi
og tveir verkamenn. Aftur á
móti sitja þar minnst fimm
framkvæmdastjórar, 5 banka-
stjórar, tveir stórútgerðarmenn
og tveir hagfræðingar. Hlutur
prestastéttarinnar hefur farið
mjög þverrandi að undanfömu
og á nú aðeins einn prestur
sæti á Alþingi. Einn læknir á
þar sæti, einn rithöfundur, einn
iðnaðarmaður — og einn sjó-
maður.
f£****&*J
I skála Ieikvallarins eru rúðurnar bannig leiknar.
SKEMMDARYERK UNNIN
Á BARNAGÆZLUHEIMILI
í Hólmgarði er gæzlu-
leikvöllur fyrir börn.
Síðustu dagana hefur
skáli vallarins orðið fyr-
ir árásum spellvirkja.
Myndirnar sem hér birt-
ast, sýna hvemig um-
horfs var eftir að pöru-
piltar höfðu verið að
verki.
(Ljósm. Ari Kárason)
Stúdentaráð oa Stúdentafélag
Reykjavíkur efna til kvöldvöku
í Súlnasal Hótel Sögu í kvöld,
föstudag, kl 8.30. Vandað verð-
ur til skemmtiatriða. Sverrir
Hermannsson flytur ávarp, Sig-
urveig Hjaltested syngur ein-
söng og leikararnir Rúrik Har-
aldsson og Róbert Arnfinnsson
flytja nýjan gamanþátt. Dansað
verður til kl. 1 eftir miðnætti.
—.—
iíSíSás;
(jmMíSí0Í
Glerbrot og grjó* á borðinu innan gluggans.
ÞRIÐJU UMFERB / SKÁK-
KEPPN! STOFNANA LOKIB
Lokið er 3. umferð í Skák-
keppni stofnana 1964 og urðu
úrslit í einstökum flokkum
þessi:
A-FLOKKUR:
Útvegsbankinn 4 — Almenna
byggingafélagið 0.
Landsbankinn, 1. sv„ 3% —
Pósturinn %.
Búnaðarbankinn, 1. sv„ 2 —
Veðurstofan 2.
Stjórnarráðið, 1. sv„ sat hjá.
Staðan efir 3. umferð: 1. Útvegs-
bankinn 9, 2. Stjórnarráðið 6V2
(af 8), 3 Veðurstofan 6V2. 4.
Landsbankinn 5, 5. Pósturinn
4, 6. Búnaðarbankinn 3% (af
8), 7. Almenna byggingafélagið
1% (af 8).
B-FLOKKUR:
Hreyfill, 1. sv., 4 — Guthen-
berg 0.
Samvinnutryggingar 2% —
Raforkumálaskrifstofan 1V2-
Útvarpið 2V2 — Miðbæjar-
skólinn IV2
Hótelið á Keflavíkurflugvelli
sat hjá
Staðan eftir 3. umferð: 1. Hreyf-
ill 10, 2. Samvinnutryggingar 8,
3. Hótel Keflavíkurflugv. 5V2
(af 8), 4. Útvarpið 5%, 5. Raf-
orkumálaskrifstofan 3 (af 8), 6.
Miðbæjarskólinn 2% (af 8), 7.
Gutenberg IV2.
C-FLOKKUR:
Landssíminn, 1. sv„ 3 —
Borgarbilastöðin, 1. sv„ 1.
HreyfiU, 2 sv„ 2% — Eim-
skip, 1. sv„ IV2.
Verðgæzlan 21/2 — Rafmagns-
veitan, 1. sv„ 1%.
Stjórnarráðið, 2. sv., sat hjá.
Staðan eftir 3. umferð: 1.-2.
Rafmagnsveitan og Hreyfill 7V2,
3. Landssíminn 6V2, 4. Stjórnar-
ráðið 4% (af 8), 5. Verðgæzl-
an 4 (af 8), 6. Borgarbílastöð-
in 3%, 7. Eimskip 2V2 (af 8).
D-FLOKKUR:
Þjóðviljinn 3 — Hreyfill, 3.
sv„ 1
Búnaðarbankinn, 2. sv„ 3 —
Landssíminn. 2. sv„ 1.
Landsbankinn, 2. sv„ 2V2 —
Héðinn IV2 Morgunblaðið
sat hjá.
Staðan effir 3. umferð: 1. Lands-
bankinn 7V2, 2. Morgunblaðið
6% (af 8), 3. Þjóðviljinn 6 (af
8), 4. Búnaðarbankinn 6, 5.
Hreyfill 5, 6. Landssíminn 3V2,
7. Héðinn 1 1/2 (af 8).
E-FLOKKUR:
Eimskip, 2. sv„ 3 — Sig.
Sveinbjömsson 1.
Strætisvagnarnir 3 — Borg-
arbílastöðin, 2. sv„ 1.
Flugfélagið 2V2 — Hreyfill,
2. sv„ 1V2. KRON sat hjá.
Staðan eftir 3. umferð: 1. Flug-
félagið 7%, 2. Strætisvagnarnir
7, 3. Eimskip 6, 4. KRON 5V2
(af 8), 5. Borgarbílastöðin 3V2
(af 8), 6. Sig Sveinbjörnsson 3V2
7. Hreyfill 3 (af 8).
F-FLOKKUR:
Stjórnarráðið, 3. sv„ 4 —
Rafmagnsveitan, 2. sv„ 0.
Prentsmiðjan Edda 3 —
KRON 2 sv„ 1.
Bæjarleiðir 2 — fsafoldar-
prentsmiðja 2. — Áfengis-
verzlunin sat hjá.
Staðan eftir 3 umferð: 1 Prent-
smiðjan Edda 7, 2.-3. Raf-
magnsveitan og ísafold 6, 4. ÁT
VR 5 (af 8), 5.-6. Bæjarleið-
ir og Stjórnarráðið 4 (af 8), 7.
KRON 4.
56 stofnendur
Veiðiféhgs
Skaftir
Fyrir skömmu var stofnað
veiðifélag Skaftár að Kirkju-
bæjarklaustri. Félagsmenn þess
eru 56 talsins, en félagssvæðið
er vatnasvæði Skaftáróss og
Veiðióss, þ. e. frá sjó og svo
langt upp, sem fiskur gengur,
svo og allar fiskgengar ár og
lækir, sem á vatnasvæðið falla.
Búnaðarfélag Kirkjubæjar-
hrepps kaus á sínum tíma
nefnd til þess að undirbúa
stofnun veiðifélagsins. Hafði
nefndin undirbúið málið í sam-
ráði við veiðimálastjóra, en
fulltrúi hans mætti á stofn-
fundinum.
Fundurinn að Kirkjubæjar-
klaustri var afar fjölmennur
og ríkti mikill áhugi meðal
Framhald á 3. síðu.
Á útleið sýnt
n Saulúrkróki
Leikfélag S'glufjarðar hefur að
undanförnu sýnt sjónleikinn „Á
útleið.” Hefur leikurinn verið
sýndur við góða aðsókn. Næst
verður leikritið sýnt á Sauðár-
króki sunnudag og már.udag.
Verkfall á ísafirði
Tólf verkamenn í bæjarvinnunni hjá ísafjarð-
arkaupstað hafa undanfama daga verið í verfc*
falli og hófu þeir verkfall í trássi við vilja verka-
mannafélagsstjórnarinnar á staðnum.
Bæjarstjóm fsatfjarðarkaup-
staðar er í spamaðarhugleið-
ingum og hefur (Ikveðið að
stytta vinnutimann hjá verka-
mönnum í bæjarvinnu um tvær
klukkustundir á dag. Áður
höfðu þessir verkamenn 10
stunda vinnudag og vill bæj-
arstjórnin nú láta verkamenn-
ina aðeins vinna átta stundir.
Verkamenn á ísafirði eins
og annars staðar vilja átta
stunda vinnudag á sómasamlegu
kaupi, en eins o;g nú er í pott-
inn búið með hækkanir á lífs-
nauðsynjum daglega, þá treysta
þeir sér ekki að framfleyta
heimilum sínum með kaupi fyr-
ir átta stunda vinnudag.
Verkamenn þessir vinna við
sorphreinsun í bænum og jafn-
framt við að steypa götuhellur.
Þegar átta stunda vinnudagur-
inn átti að koma til fram-
kvæmda, þá fóru þessir verka-
menn í verkfall.
Stjóm Verkalýðsfélagsins
Baldurs á fsafirði neitaði að
skipta sér af verkfallsmönnum.
Fjáröfíun til slysa-
varna um helgina
Hin árlega kaff isala Kvenna-
j deildar Slysavarnarfélagsins
I verður að þessu sinni á
\ laugardag og sunnudag í húsi
! Slysavarnarfélagsins á Granda-
I garði. Sem kunnugt er hefur
! kaffisalan undanfarin ár verið
á fyrsta góudag en af óvið-
ráðanlegum ástæðum gat það
ekki orðið í ár.
Kaffisala Kvennadeildarinnar
veröur með líkum hætti og
undanfarið og mun ekkert
vera skorið við nögl. Er ekki
að efa að borgarbúar bregði
sér í Slysavarnarhúsið um
heigina til að þiggja góðar
veitingar og styrkja gott mál-
efni. I þessu sambandi má
nefna að á fjársöfnunardegi
Kvennadeildarinnar, fyrsta
góudag, gekk fjársöfnun með
ágætum og munu hafa safn-
ast um 100 þús. kr. Er það
allmiklu meira en undanfar-
in ár.
Á aðalfúndi Kvennadeildar-
innar, sem haldinn var 2. febr.
s.l. voru gerðir upp reikningar
fyrir árið. Þrír fjórðu hlutar
upphæðarinnar sem safnast
hafa yfir árið renna til Slysa-
vamafélagsins og voru það
núna um 240 þús. kr.
Alls munu á landinu vera
starfandi um 25 kvennadeild-
ir innan Slysavarnafélagsins
eru þær nú sem óðast að gera
upp við Slysavarnafélagið og
alls munu hafa komið frá þeim
undanfamar vikur um 800 þús.
kr. Nýlega keypti Slysavamar-
félagið athyglisverða kvikmynd
um lífgun úr dauðadái. Er þar
kennd munn við munn lífgun-
araðferðin og hjartahnoð.
Kvikmynd þessi er bandarísk
og verður sett íslenzkt tal við
hana. Kvikmyndin verður sýnd
hér í borginni og einnig úti á
landi.
Bretar standa uppi
ráðalamir á Kýpur
Sands utanríkisráðherra Bretlands, skýrði Ú Þant fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna frá því í dag, að Bret-
ar séu ekki einfærir um að halda uppi gæzluliði á Kýpur.
I dag fóru skólaböm í Nicosíu í mótmælagöngu gegn
brezka herliðinu. Margir særðust og féllu á mánudaginn
og í gær, en báða dagana var barizt harkalega.
NICÓSÍA 11/3. ®-----------------------—
A.m.k. 10.000 skólaböm fóru
1 dag í mótmælagöngu i Nicó-
síu og I voru ókvæðisorð um
brezka gæzluliðið rituð á spjöld-
in, sem þau báru. Unglingamir
tilheyrðu grískumælandi hluta
íbúanna. Á spjöidin vár ritað:
Hypjið ykkur heim. Bretar!
Lengi lifi Sovétríkin! Banda-
ríkjamenn geta ekki keypt okk-
ur!
Einkennisbúningur Sameinuðu
þjóðanna klæðir ekki Breta!
Brezki utanríkisráðherrann
hefur skýrt framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna. Ú Þant
frá því, að brezka liðið sé ekki
lengur einfært um að halda uppi
röð og reglu á eynni. Bæði reyni
Kýpurstjómin ekkert til þess að
aðstoða þá og ástandið sé nú
mjög ískyggilegt. Þar að auki
• segist brezka stjórnin ekki geta
I staðið undir fjárhagsiegu hlið-
inni á þessari friðargæzlu.
Drengur slasast
Skömmu eftir hádegi í gær-
dag varð 4ra ára drengur fyrir
bifreið við Drekavog 8 og lær-
brotnaði drengurinn. Var dreng-
urinn fluttur fyrst á Slysa-
varðstofuna og síðan á Landa-
kot Drengurinn heitir Vilhjálm-
ur Pálsson til heimilis að Skipa-
sundi 83.
Laus hverfí
Höfðaborg
Sigtún
Hringið í afgreiðslu
Þjóðviljans
sími 17-500