Þjóðviljinn - 23.04.1964, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 23. apríl 1964
ÞIÖÐVIIIINN
SIÐA 3
Stórveldi skiptast
• r
nu a njosnurum
LONDON OG MOSKVU 22/4
— England og Sovétrkin
„skiptust í dag á njósnurum".
Enski verzlunarmaðurinn Gre-
ville Wynne, sem var í fyrra
dæmdur í átta ára fangelsi í
Mos'kvu fyrir njósnir, var lát-
inn laus, svo og Gordon Lons-
dale, sem 1961 var dæmdur í
aldarfjórðungsfangelsi í Eng-
landi fyrir njósnir í þágu Sov-
étríkjanna. Þessi mannaskipti
fóru fram á landamærum
Austur-Þýzkalands og enska
hernámssvæðisins.
Sovézk yfirvöld hafa lítið
sem ekkert á þessi manna-
skipti minnst. Lundúnablaðið
Daily Express segir, að við-
ræður hafi staðið yfir um þetta
mál mánuðum saman. Utanrík-
isráðuneytið enska tilkynnir,
að ensk stjórnarvöld hafi fall-
izt á þessi mannaskipti sökum
þess, að heilsu Wynnes hafi
alvarlega hrakað.
Wynne kom til London síð-
ari hluta miðvikudags með
enskri herflugvél. Hann skýrði
svo frá, að hann hefði sízt af
öllu búizt við því að verða lát-
inn laus, það hefði ekki verið
fyrr en á þriðjudag, sem hann
Framhald á 9. síðu.
Samkomulag
um olíutoll
BRÚSSEL 22/4 Efnahags-
bandalag Evrópu virðist nú að
því komið að leysa mikið deilu-
mál, nefnilega hver vera skuli
tollur á olíuvörum. Fulltrúar
landa bandalagsins hafa í
Briissel gert samkomulagsupp-
kast, sem lagt verður fyrir
fund utanríkisráðherra banda-
lagsríkjanna í maí.
Enn hækkar Etna
RÖMABORG 22/4 — Eld-
fjallið Etna á Sikiley hef-
ur hækkað um nærri tíu
metra á átta dögum. Eins
og kunnugt er af fréttum
hófst gos í Etnu 14. þ.m.
Aðalgígur eldfjallsins er
nú 3.330 m hár en var áð-
ur 3,320 m.
Enn eru
bardagar
NIKOSIA 22/8 — Á miðviku.
dag skutust grískir og tyrknesk-
ir Kýpurbúar á í nær tvær
klukkustundir í Famagusta. Varð
þetta þess valdandi, að nauð-
synlegt reyndist að loka skóla
með 165 nemendum.
Það var fyrri hluta dags, sem
þessi átök áttu sér stað á eynni.
Enskum og írskum hermönnum
Sameinuðu þjóðanna á eynni
tókst að lokum að stilla tii
friðar. Ekki hafa borizt fregn
ir af öðrum óeirðum á Kýpur
í dag.
Af stjórhmálum eyjarinnar er
það helzt að frétta, að Makar-
ios forseti bauð í dag ölíum
snarpir
á Kýpur
tyrkneskum Kýpurbúum upp-
gjöf saka. Kvað hann Grikki á
eynni mundu fjarlægja öll her-
virki sín ef Tyrkir gerðu slíkt
hið sama. Forsetinn lét þess
getið, er hann setti fram þetta
tilboð sitt, að eftir þetta þyrftu
Tyrkir ekki að óttast það, að
þeir væru látnir svara til saka
fyrir þá atburði, sem liðnir
eru. Makaríos bauðst einnig
til þess að sjá svo um, að Tyrkj-
um yrði auðveldað afturhvarfið
til þorpa sinna.
^Reiknivélin' - 7. sýning á morgun
Sumardagurinn fyrsti 1964
HÁTÍBAHÖID SUMARCJAFAR
Útiskemmtanir:
Leiksýningár
Klukkan 12,45: Skrúðgöngur barna frá Austurbæjar-
barnaskólanum og Melaskólanum í Lækjargötu. Lúðra-
sveitir leika fyrir skrúðgöngunum.
Kl. 3 í Þjöðleikhúsinu: Mjallhvít. Aðgöngumiðar í Þjóð-
leikhúsinu á venjulegum tíma.
KL. 1,30
nema skrúðgöngurnar staðar í Lækjargötu. 1) Ávarp: Séra
Ólafur Skúlason. 2) Lúðrasveitir drengja leika vor og
sumarlög. 3) Ómar Ragnarsson skemmtir.
Dreifing og sala:
Inniskemmtanir
IÐNÖ KL. 2,30
„Sólskin“, merki dagsins og íslenzkir fánar fást á eftir-
töldum stöðum: í anddyri Iðnaðarbankans, Lækjargötu,
tjaldi við Útvegsbankann, Grænuborg, Barónsborg, Drafn-
arborg, Hagaborg, Tjarnarborg, Hlíðarenda v/Sunnutorg,
Vogaskóla, Laugalækjarskóla, Breiðagerðisskóla, Hlíðaborg.
Lúðrasveit drengja: Pampichler stjórnar. Einsöngur Pétur
T. Guðlaugsson 9 ára. Gamanþáttur: Klemenz Jónsson leik-
ari. Einleikur á píanó: Friðrik Steinn Ellingsen, 8 ára. —
Yngri nemendur Tónlistarskólans. Einleikur á fiðlu: Helga
Óskarsdóttir 12 ára. Undirleikur á píanó, Kolbrún Óskars-
dóttir 10 ára. Yngri ncm. Tónlistarskólans.
Leikrit: Steinn Bollason, börn úr Melaskólanum.
Danssýning: Nemendur úr Dansskóla Hermanns Ragnars.
Leikfimi: 12 ára drengir úr Melaskólanum.
*
„SÓLSKIN“ verður afgreitt til sölubarna á framan greind-
um stöðum frá kl. 9 árdegis á sumardaginn fyrsta. „Sól-
skin kosiar kr. 30,00.
* ~
Tilraunaleikliúsið „Gríma“ liefur nú sýnt hið umdeilda leik-
rit Reiknivélina eftir Erling E. Iialldórsson sex sinnum i
Tjarnarbæ. 1 hlutverkum eru: Erliugur Gíslason, Valdimar
Lárusson, Bjarni Steingrímsson, Brynja Benediktsdóttir og
Þorvarður Pálsson. Næst síðasta sýning verður í Tjarnarbæ
klukkan níu annað kvöld. Myndin er af Þorvarði og Brynju
í hlutverkum sínum.
AUSTURBÆJARBÍÖ KL. 3
Kórsöngur: Börn úr Hlíðarskóla, Guðrún Þorsteinsdóttir
stjórnar. Einleikur á fiðlu: Ingrós Ingólfsdóttir, 11 ára.
Undirl. á píanó: Sólveig Jónsdóttir, 14 ára. Yngri nem.
Tónlsk. Einl. á píanó: Sigurborg Billich 13 ára. Yngri nem.
Tónlsk. Einleikur á fiðlu: Unnur M. Ingólfsdóttir. Undirl.
á píanó: Sólveig Jónsdóttir, 14 ára. Yngri nem. Tónlsk.
Leikrit: Nemendur úr Miðbæjarskólanum.
Gamanþáttur: Klemenz Jónssori Ieikari.
Danssýning: Nemendur úr Dansskóla Hermanns Ragnars.
Akróbatik: Stúlkur úr Ármanni.
Lúárasveit drengja: Karl O. Runólfsson stjórnar.
HÖTEL SAGA KL. 3
(SULNASALURINN)
FJÖLSKYLDAN FER ÚT AÐ SKEMMTA SÉR.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Nemendur úr Dans-
skóla Hermanns Ragnars annast öll skemmtiatriðin. Hljóm-
sveit Svavars Gests aðstoðar. Kynnir og stjómandi er Her-
mann Ragnar Stefánsson danskennari.
Aðgöngumiðar fyrir fullorðna kosta kr. 45,00, en fyrir börn
kr. 35,00. — Borð tekin frá.
HÁSKÖLABÍÖ KL. 3
Söngur: Börn úr Hagaborg.
Dansar: Börn frá Laufásborg.
Sagan af Lottu: Margrét Gunnarsdóttir Schram.
Leikþættir: Friðrik með bílinn, Karius og Raktus, Stubbur.
Kötturinn sem bvarf og Litli svarti Sambo.
Stéttarfélagið Fóstra og nemendur Fóstruskólans sjá um
skemmiunina.
MERKI DAGSINS verða einnig afgreidd á sömu stöðum
frá kl. 9 fyrir hádegi sumardaginn fyrsta. Merkið kostar
kr. 10,00.
ÍSLENZKIR FÁNAR verða til sölu á öllum sölustöðunum.
Sölulaun eru 10%.
- * —
SKEMMTANIR: Óseldir aðgöngumiðar að barnaskemmtun-
um, sumardaginn fyrsta verða seldir i dag kl. 10—12. Að-
göngumiðar að barnaskemmtunum kosta kr. 25,00.
BLÓMABÚÐIR eru opnar kl. 10—14.
- * -
FORELDRAR: Athugið að láta böm yðar vera vel klædd
í skrúðgönguna ef kalt er í veðri, Mætið stundvíslega
kl. 12,30 við Austurbæiarskólann og Melaskólann, þar sem
skrúðgöngurnar eiga að hefjast.
~ * -
SÖLUBÖRN sækið hvert næsta sölustað við heimkynni
ykkar.
Sumardagsins hjörtu blóm
mæla meir en orðin tóm,
ungur sveinn sem heitt þér ann
í Blótnaskálann kemur liann.
Gleðilegt sumar
Blómaskálinn v. Nýbýlaveg
Sími: 40980.