Þjóðviljinn - 23.04.1964, Síða 4
4 StÐA
ÞIÚÐVILIINN
Fimmtudagur 23. apríl 1964
Ctgetandí: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: tvar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudagsins: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust 19.
Sími 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kr. 90 á mánuði.
Umskipti
Jjegar viðreisnarstjórnin hóf störf lýsti hún y'fir
því af miklum hroka að ekki mætti hafa sam-
vinnu við verklýðssamtökin um skipan efnahags-
mála í landinu. Þau væru „öfl utan alþingis“, eins
og komizt var að orði, og mættu ekki hafa nein
áhrif á ákvarðanir löggjafarsamkundu og ríkis-
stjórnar; einkanlega túlkaði núverandi forsætis-
ráðherra, Bjarni Benediktsson þessa kenningu af
miklu kappi. En þessi stefna hefur reynzt stórlega
háskaleg fyrir þjóðarbúið og raunar óframkvæm-
anleg með öllu, eins og ríkisstjórnin hefur nú við-
urkennt í verki. Á síðastliðnu hausti hrundu laun-
þegasamtökin lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar I
um kjör og félagsréttindi verkafólks; í desember
tók forsætisráðherra upp beina samninga við
fulltrúa verklýðssamtakanna um lausn á verkföll-
unum miklu; og nú er ríkisstjómin að hefja samn-
ingaviðræður við Alþýðusamband íslands um mik-
ilvægustu þætti efnahagsmálanna. Jafnframt hafa
stjórnarblöðin viðurkennt í orði að það hafi ver-
ið glapræði að fella niður kauptryggingu, og ýms-
ar fleiri kennisetningar eru hrundar til grunna.
jjetta er ekki rifjað upp í því skyni að hælast
um; það er lofsvert þegar menn læra af reynsl-
unni, þóít núverandi stjórnarvöld hafi að vísu
reynzt til muna of treg við námið. Enginn skyldi
heldur ætla að samningaviðræður einar levsi nokk-
urn vanda; allt er undir því komið að stjórnar-
völd og atvinnurekendur taki í verki tillit til
þeirra óvefengjanlegu röksemda sem verklýðsfé-
lögin hafa flutt. En til þess að svo megi verða
þurfa kröfurnar að hafa sameinað afl verklýðs-
hreyfingarinnar að bakhjarli.
Geriardómar
jþað spáir ekki góðu um árangur af viðræðum
við ríkisstjórnina að Alþýðublaðið leggur í gær
til að vandinn verði leystur með gerðardómi.
Gerðardómar eru aðeins grímuklæft valdboð rík-
isstjórnarinnar eins og glöggt hefur sannazt hér
á landi að undanförnu. Gerðardómuinn um fisk-
verðið í vetur var sem kunnugt er kveðinn upp af
oddamanninum einum saman í samræmi við ósk-
ir ríkisstjórnarinnar. Ekki fór gerðardómur sá sem
úrskurðaði opinberum starfsmönnum óbreytt kjör
fyrir skemmstu heldur neitt dult með það, að for-
sendur hans væru pólitísk stefna ríkisstjórnarinn-
ar. Ef beita ætti verklýðshreyfinguna svipuðum
tökum væri aðeins verið að revna að halda áfram
þeirri valdboðsstefnu sem beðið hefur skipbrot á
undanförnum árum. sauma nýja bót á gamalt fat
En það er sjálfur kjarni vandamálsíns að þessi
stefna er vonlaus með öllu, hún leiðir aðeins til
nýrra hiaðningavíga. stöðugra átaka í þjóðfélag-
inu. Ef árangur á að nást verður að ganga til raun-
verulegra samninga við verklvðscamtökin og taka
óhjákvæmilegt tillit til sjónarmiða þeirra. — m.
SIGVALDI TH0RDARS0N,
Minningarorð
Sigvaldi Thordarson arkitekt
lézt að Landspítalanum hinn
16. þ.m. eítir þunga legu. Gekk
hann undir uppskurð fyrir
páska. Tveimur og hálfu ári
áður var hann einnig skorinn
upp, og var heilsa hann bág-
borin þessi ár. Yfirleitt má
segja að hann ætti löngum við
heiisuleysi að búa. Ungur
smitaðist hann af berklum og
varð hann tvívegis að hverfa
frá námi vegna þeirrar veiki.
er heltók hann á Hafnarárum
hans. Hinsvegar var Sigvaldi
hið mesta karlmenni og dró
ekki af við sig þó að á bjátaði.
Til dæmis mun það með ein-
dæmum hve miklu hann fékk
afkastað síöustu tvö árin, sem
hann lifði. en þann tíma var
hann cftast sárlasinn.
Húsgerðarlist hefur ekki átt
upp á háborðið hjá okkur hér
á landi. Við þessu var heldur
ekki að búast. Þjóðin kúguð og
nídd, allur fjöldinn hafði
hvorki í sig eða á. Það var því
ekki nein furða, þó að hér sköp-
uðust ekki góðar venjur,
„traditionir”, í henni, þegar
vandamálið var að hjara og
hafa til hnífs og skeiðar. Það
er heldur ekki að furða, að
húsagerðalistin ætti örðugt
uppdráttar eftir að þjóðin fór
að rétta úr kútnum. Fordæmin
voru tæplega til, og þegar tek-
ið er til við að smíða hús hér
upp úr aldamótunum og er-
lendir sérfræðingar eru sóttir
til þeirra hluta og í hávegum
hafðir þá ekki síður en nú á
ýmsum öðrum sviðum, var
gerð sú skyssa, að út voru
sóttir iðnaðarmenn, trésmiðir
og múrarar, en góðir arkitekt-
ar koma ekki við sögu, nema
að því er varðar tvær eða
þrjár opinberar byggingar. Of-
an á varð að hrúgað varð upp
húsafjöld, þar sem lítt eða
ekki var hirt um útlit og feg-
urð. ÞJóðin fór því varhluta
af því uppeldi er slíkt hefði
gefið, en þetta varð síðan tii
þess að þegar arkitektar ís-
lenzkir fóru að koma mætti
þeim hið mesta skilningsleysi
og var það ekki síður hjá
ráðamönnum en sauðsvörtum
almúganum. Eins og aðrir
menn eru arkitektar misjafnir.
Stimpillinn einn gerir ekki allt,
eins og sumir vilja halda, og
enn síður eru pólitísk viðhorf
listamanna mælikvarði á getu
þeirra í grein sinni, en oft
lítur út fyrir að svo sé talið.
Með þetta fyrir augum er ef til
vill léttara að fyrirgefa þegar
miklir listamenn mæta skiln-
ingsleysi og gáfur þeirra eru
sniðgengnar.
Sigvaldi var mikill listamað-
ur á sínu sviði. Framan af var
hann ekki metinn sem skyldi,
og þau verkefni sem honum
gáfust hefðu getað verið mik-
ilvægari. En hann sótti á og
naut upp á síðkastið mikillar
viðurkenningar og verkin
hrönnuðust að honum. en þó
ekki fyrr en á allra síðustu ár-
um að nokkru ráði frá opin-
bei’um aðilum, þegar frá eru
taldar stofnanir raforkumála-
stjóra, en fyrir bragðið eru
byggingar þeirra yfirleitt tald-
ar til fyrirmyndar, að því er
smekklegt útlit varðar.
Sigvaldi var mikill áhuga-
maður um starf sitt. Hann
var frjór og hugmyndaríkur og
öruggur eftir að hann hafði
velt hlutunum fyrir sér. Ólat-
ur að rissa upp hugmyndir
sínar og mikill afkastamaður
við vinnu og hlífði sér hvergi.
Hann var ör x lund, átti til
að rjúka upp og hélt sínum
hlut o? máli, hverjum sem var
að mæta, einkar hressilegur
maður. hreinn og beinn. Á-
huga hans er vel lýst með því
að benda á. að hann tók þátt
í flestum þeim samkeppnum,
er haldnar voru frá því að
hann kom heim frá námi.
Framan af vann hann oft
verðlaun f þeim samkeppnum,
en þó undarlegt megi virðast
fór ekki mikið fyrir slíku hin
síðari árin og var hann þó
vaxandi í starfi sínu alla tíð.
Sigvaldi var sterkur per-
sónuleiki. Þess gætti hvarvetna
sem hann kom, þrátt fyrir hlé-
drægni kvað að honum. Per-
sónuleiki hans kom ekki síð-
ur fram í starfi hans og list.
Verk hans bera honum aug-
ljós einkenni og þekkjast úr
hvar sem þau sjást, og vei'kin
lofa meistarann. Sigvaldi hef-
ir þegar haft sterk áhrif á ís-
lenzka húsagerðarlist og á-
hrifa hans á sjálfsagt eftir að
gæta betur. Ekki er óalgengt
að heyra talað um Sigvalda-
hús og Sigvaldaliti á þeim.
Sigvaldi hafði mikinn áhuga
á stjórnmálum ekki síður en
öðrum vandamálum mannlegs
lífs og gat auðvitað ekki hjá
því farið með svo vel gefinn
mann, að hann þjáðist af
þeirri andlegu veilu, á Morg-
unblaðsmáli, að vilja það sem
til framfara horfði og til
heilla. Hann var því róttæk-
ur alla tíð. Félagi var hann í
Sósíalistaflokknum.
Sigvaldi unni tónlist og
greip hvert tækifæri er hon-
um gafst til að hlusta á góða
músik. Einkum þótti honum
vænt um Beethoven.
Mikill missir er það þjóð-
inni, er svo ágætur listamaður
sem Sigvaldi fellur frá. og víst
verður skarð hans vandfyllt.
Sigurður Thoroddsen.
★
Sigvaldi Thordarson arkítekt
er allt í einu horfinn okkur á
bezta aldri. Það er mikil eft-
irsjón að honum. Fámennri
þjóð sem er í deiglu nútíma-
uppbyggingar er mikill missir
að hverjum og einum nýtum
syni sínum. Sigvaldi var eins
og einstæð lýsandi stjarna í
byggingamoldviðri þessara síð-
ustu nýríkisára okkar smáu,
til skamms tíma frumstæðu
þjóðar, sem vill þó reyna að
fóta sig sem jafnoki gróinna
menningarþjóða á sviði vísinda
og lista og þar með byggingar-
listar.
Að undanskildum torfbæjar-
stíl okkar eigum við engan arf í
byggingarlist er svari nútíma-
kröfum í samræmi við breytt
byggingarefni og tækni. Þótt
ekki séu nefndar — mér ligg-
ur við að segja miðað við for-
tíð — uppskrúfaðar almennar
þarfir og kröfur, má ljóst vera
að- starf arkítekta okkar er
síður en svo létt eða öfunds-
vert. Þeim er ef svo má segja
ætlað að gera allt af engu og
dylst ekki að það þarf átak til
slíks. Enda verður útkoman
hjá flestum varla talin til
yfirmannlegi'a afreka. Einn
þeirra sárfáu stórhuga og á-
takagóðu í faginu var Sigvaldi
Thordarson
Thordarson.
Það var mikið gagnlegt að
starfa með Sigvalda og kynn-
ast gáfum hans og starfshátt-
um. Ein lítil orðræða af mörg-
um öðrum og kannski merki-
legri kemur þó í huga þessa
stund. Ekki kann ég að herma
hana oi'ðrétt, en hún var eitt-
hvað á þessa leið: Á nýju
verkefni er um að gera að
byrja nógu smátt — það agnar
smátt að þar verði ekki komið
niður nema nauðsynlegu meg-
inmáli, og því stærra og marg-
brotnara, sem verkefnið er því
óbrotnari skyldu fyrstu frum-
drög þess vera. Hann vildi
ekki tapa áttanna í þoku og
fjöld smámuna, og meðfædd
var honum yfirsýn vökul og
stór.
i Það er illt kveðið að ís-
lenzkri byggingarlist að missa
hann svo snemma. Vertu
sæll Sigvaldi Thordarson og
þökk fyrir samstarf í Banda-
lagi íslenzkra listamanna. þökk
sé þér fyrir húsin sem þú lað-
aðir fram og allt gott, og
vegni þínum vel.
Svavar Guðnason.
Með fáum orðum vil ég
kveðja kæran vin, Sigvalda
Thordarson.
Á skilnaðarstundu sem þess-
ari þegar dauðinn sjálfur er
hin helkalda staðreynd, víkur
jafnvel söknuðurinn yfir hvarfi
góðs vinar fyrir djúpri þakk-
lætiskennd f hugskoti mínu,
Samfylgd okkar Sigvalda var
ekki löng, raunar fáein ár, en
í allri okkar samveru og kunn-
ingsskap hef ég verið þiggj-
Sigvaldi
arkitekt
andinn. Fyrir þá unun vil ég
nú þakka.
Það var tónlistin og pólitik-
in sem leiddi okkur saman.
Við okkar fyrstu kynni varð
ég heillaður af hinum stór-
brotnu persónueiginleikum Sig-
valda og hinni hlýju vináttu
hans. Hugur hans var ætíð
frjáls og skapandi, næmléiki
hans fyrir fegurðinni brást
aldrei og réttlætiskenndin var
sterk. Sigvaldi var óvénju
stórhuga maður, bjartsýnn og
framfarasinnaður. en óvæginn
gagnvart allri lágkúru. Sum-
um fannst hann vera hörku-
tól, en þeir hefðu átt að kynn-
ast hvílíkri hörku og sjálfs-
aga hann beitti sjálfan sig.
Sigvaldi var mikilhæfur og at-
orkusamur arkitekt. í starfi
sínu var hann brautryðjandi
og flest verk hans lýsa af
snilld og listfengi.
Síðustu árin átti hann við
mikla vanheilsu að stríða. Sú
barátta hans, fram til hinztu
stundar verður mér ógleyman-
legt dæmi nm lífsþrá og hetju-
skap þessa vinar míns.
Ég kveð þig vinur með kærri
þökk.
Ingi R. Helgason.
*
Sigvaldi Thordarson arki-
tekt fæddist að Ljósalandi í
Vopnafirði hinn 27. desember
1911. Hann var sonur Þórðar
bónda þar Jónassonar bónda á
Selási í Víðidal og konu hans
Albínu Jónsdóttur bónda á
Hóli í Kelduhverfi.
Hann sat í Eiðaskóla 1928—
29. Lauk sveinsprófi í húsa-
smíði 1934, prófi frá Det tekn-
iske selskabs skole í Kaup-
mannahöfn 1939. Innritaðist þá
á Akademíuna í Kaupmanna-
höfn. en lauk ekki námi fyrr
en síðar, þar sem hann kom
heim með Petsamoferð Esju.
Að stríði loknú fóí"’«‘hánn' 'áft-
ur til náms og lauk prófi í
húsagerðarlist árið 1947. Árin
1941 til 1945 rak hann arki-
tektastofu hér j Reykjavík og
eins árin 1947 til 48. Þá réðist
hann til Sambands íslen?kra
samvinnufélaga og veitti for-
stöðu teiknistofu þess fram til
ársins 1951, er honum var ságt
upp störfum þar. Síðan hefir
hann rekið eigin arkitekta-
stofu. Þrátt fyrir hinn tiltölu-
lega stutta starfsferil Sigvalda
liggur eftir hann mikið starf
og verða hér taldar upp nokkr-
ar af þeim byggingum, er
hann hefir gert uppdrætti að:
Laxárvirkjun, Grímsárvirkj-
un, FossáiVÍrkjun, Þverárvirkj-
un. Gönguskarðsárvirkjun, og
ýmsar smærri rafstöðvar og
spennistöðvar víða um land.
Iþróttahús Háskólans, Vöru-
geymsla SÍS við Tryggvagötu,
Fiskiðjuver ríkisins á Granda-
garði, Vegamót við Laugaveg
18, Félagsheimili Sjómannafé-
lagsins og Dagsbrúnar við
Lindargötu.
Viðauki við Hótel KEA,
vinnuskálar Gefjunar, Akur-
eyri.
Spítali. slátur- og hrað-
frystihús að Sauðárkróki. Bif-
röst við Hreðavatn. Hamra-
hlíðarskóli. Skóli að Varma-
landi í Borgarfirði, sparisjóð-
urinn í Borgarnesi. Skóli að
Laugalandi í Hörgárdal.
Félagsheimili að Neskaup-
stað og í Njarðvíkum.
Auk þess eru í smíðum eftir
hann ýmsar stórbyggingar, og
uppdrætti af fjöldamörgum
einbýlis- og fjölbýlishúsum
hefir hann gert.
Hann átti sæti í byggingar-
nefnd Reykjavíkurborgar um
langt skeið og í nefnd þeira,
er vann að uppdráttum ráð-
hússins.
Sigvaldi var . tvíkvæntur.
Með fyrrikonu sinni, Pálínu
Jónsdóttur, eignáðist hann
fjögur börn. Albírni, er s.tund-
ar nám í húsagei'ðarlist, Guð-
finnu Ei'nu. Jón öj*n og Hall-
veigu. sem stunda hám í skól-
um hér heima.
Síðari kona ' hans var
Kamma N. Thordax'son.