Þjóðviljinn - 27.06.1964, Page 3
Laugardagur 27. júni 1964
ÞIÚÐVIIIINN
SIÐA
ÓÖLDIN MAGNASTI
SUDURRÍKJUM USA
Ekkert hefur enn spurzt til stúdentanna
sem hurfu í Misslssippi ó sunnudagmn
Ný vandræði í EBEút af landbúnaðinum
WASHINGTON 26/6 — Ólgan milli kynþáttanna í
suðurrikjunum magnast enn og virðast allar horf-
ur á að sumarið verði engu síður róstusamt en í
fyrra, þótt frumvarp Kennedys forseta um auk-
in réttindi blökkumanna hafi loks náð fram að
ganga á þingi. Blóðugar óeirðir urðu enn í gær í
bænum St. Augustine í Flórida. Leitinni að stúd-
entunum þremur sem hurfu í Mississippi á sunnu-
daginn og óttazt er að svertingjahatarar hafi myrt
hefur engan árangur borið.
Allen Dulles, fyrrum yfirmað-
ur bandarísku leyniþjónustunn-
ar CIA, sem Johnson foriseti
sendi til Mississippi til að kanna
ástandið þar eftir hvarf stúd-
entanna þriggja ráðlagði for-
setanum í dag að senda fylkis-
iögreglunni í Mlssissippi liðs-
auka, einkum til þeirra héraða
þar sem búast mætti við óeirð-
um vegna baráttunnar gegn kyn-
þáttamisréttinu. Dulles skýrði
frá þessu eftir að hann kom af
fundi Johnsons, en hann gaf
forsetanum skýrslu um hvers
hann hefði orðið vísari í ferð
sinni suður til Mississippi í gær.
Johnson fylgdist allan dagin11
í dag með fréttum af leitinni að
stúdentunum, en hann hafði
sent þangað 200 manna sveit úr
landgönguliði flotans til að taka
þátt í henni ásamt fylkislögregl-
unni. Leitin hafði þó engan ár-
angur borið þegar síðast frétt-
ist.
Taldir af
Þessir þrír ungu stúdentar
sem ekkert hefur frétzt af síðan
lögreglan í bænum Philadelphia
Skipzt ú orðsendingum um
V-Þýzkaland og V-Berlin
MOSKVU og BONN 26/6 — Sov-
étstjómin hefur mótmælt því við
stjórair vesturvcldanna að ætlun-
in er að íbúar Vestur-Berlínar
taki þátt í kosningum til for-
setaembættis Vestur-Þýzkalands
sem fram eiga að fara 1. júlí.
I orðsendingu sovétstjórnar-
Papandreú neitar
að hitta Inönu
NEW YORK 26/6 — Georg
Papandreú. forsætisráðh. Grikk-
lands vísaði á bug í gær tillög-
unni um ráðstefnu Grikkja og
Tyrkja til að leysa Kýpurvanda-
málið. Hann áleit að árangur
gæti enginn orðið af slíkri ráð-
stefnu meðan Tyrkir viður-
kenndu ekki lýðræðið á Kýpur.
Hins vegar sagði Ismet In-
önu, forsætisráðherra Tyrklands,
á þriðjudaginn, að þegar í stað
bæri að hefja viðræður milli
Tyrkja og Grikkja til að reyna
að finna einhverja lausn á
vandamálinu.
Sígarettufirmun
ætla að kæra
WASHINGTON 25/6 — For-
kólfar amerísks tóbaksiðnaðar
hyggjast fara í mál vegna á-
kvörðunar rikisstjórnarinnar, að
allir sígarettupakkar skuli hafa
að geyma aðvörunarmiða, sem
bendi á, að reykingar séu hættu-
legar. Forstjórinn fyrir Reynolds
Tobacco Company í verzlunar-
nefndinni í fulltrúadeild þings-
ins sagði, að tóbaksframleiðend-
ur álitu, að ríkisstjómin hefði
enga heimild til þessarar laga-
setningar.
HÖFÐABORG 25/6 — Nelson
Mandela og sjö aðrir, sem
dæmdir voru á dögunum í lífs-
tíðarfangelsi; hafa ákveðið að á-
frýja ekki dómnum.
innar er ítrekuð sú skoðun henn-
ar að Vestur-Berlín hafi algera
sérstöðu og sé á engan hátt
hluti hins vesturþýzka ríkis. Þvi
eigi íbúar hennar engan hlut að
forsetaembætti Vestur-Þýzka-
lands.
Vesturveldin hafa fyrir sitt
leyti sent sovétstjórninni orð-
sendingu um - Þý?kalandsmálið
og er tilefnið hinn nýgerði vin-
átfcusamningur Sovétríkjanna og
Austur-Þýzkalands, sem vestur-
veldin segja að geti á engan hátt
dregið úr skuldbindingum sov-
étstjórnarinnar samkvæmt fjór-
veldasáttmálanum um Berlín,
sem m.a. tryggir þeim óhindrað-
an aðgang að vesturhluta borg-
arinnar.
skildi við þá fyrir utan bæjar-
mörkin á sunnudaginn voru úr
al'lfjölmennum hópi háskóla-
stúdenta sem fór til Mississippi
að aðstoða blökkumenn þar til
að ná rétti sínum til að skrá sig
sem kjósendur fyrir forsetakosn-
ingamar í haust. Tveir þeirra
voru hvítir, Andy Goodman, 21
árs, og Michael Schwerner, 24
ára, báðir frá New York, on
svertinginn James Chaney, 22
ára gamall, sem er frá sjálfu
Mississippi.
Bíll þeirra fannst brunnið
flak fyrir norðaustan Philadelp-
hia, en engin von er talin tii ,
þess að þeir finnist á lífi.
Þyrlur í leit
Landgönguliðarnir sem John-
son forseti sendi til að leita að
stúdentunum hafa yfir herþyrl-
um að ráða og hafa þær verið
á stöðugu sveimi yfir þeim hér-
uðum þar sem talið er líkleg-
ast að finna megi stúdentana
eða lík þeirra, en það er í aust-
ur- og miðhluta fylkisins.
Óeirðir í Flórida
Fylkisstjórinn/ í Flórida, Farr-
is Bryant, fór í dag til bæ.iar-
ins St. Augustine, þar sem stöð-
ugar kynþáttaóeirðir hafa verið
að undanförnu og aldrei meiri
en i gærkvöld, þegar fjölmennur
hópur hvítra svertingjahatara
réðst á blökkumenn og lögreglu.
svo að 45 menn a.m.k. hlutu
meiðsl. Skríllinn hafði áður
hlýtt á ræðu prests að nafni
Connie Lynch, sem kominn er
frá Kaliforníu til að prédika
kynþáttahatur.
Leiðtogi blökkumanna, Martin
Luther King, sagði í dag að það
hefði aðeins verið að þakka frá-
bærri stillingu þeirra að ekki
varð úr blóðugri ógnarnótt í St.
Augustine. Óeirðimar urðu mest-
ar á þeim stað í bænum þar
sem fyrr á öldum var einn helzti
þrælamarkaður Bandarikjanna.
Fyrr um daginn hafði lögregla
skorizt í leikinn þegar róstur
urðu milli hvitra manna og þel-
dökkra á baðströndinni við bæ-
inn og voru þá um 20 menn
teknir höndum.
BRUSSEL 26/6 — Enn einu sinni er risinn alvarlcgur ágreiningur milli landanna í Efnahagsbanda-
lagi Evrópu um skipan landbúnaðarmála, Ekkert samkomulag tókst á fundi ráðherra bandalagsins
í Brussel í dag um framkvæmd á fyrri samþykktum um markaðstilhögun fyrir kjöt og mjólkur-
afurðir, scm hafði þó átt að ganga í gildi 1. apríl s.l. Nú eru taldar horfur á að fresta verði fram-
kvæmdum jafnvel allt til haustsins 1965. Jafn-framt þessum stöðuga ágreiningi ráðherranna
magnast andstaða bænda í flestum löndum bandalagsins gegn fyrirhugaðri samræmingu afurðaverös
og hafa þeir efnt til margra mótmælafunda. — MYNDIN er af kröfugöngu bænda í frönskum bæ.
Sfjórnarkreppa á Ítalíu
amsf eypustjðrn moros og
Nennis hefur sagt af sér
RÓM 26/6 — Aldo Moro, forsætisráðherra samsteypu-
stjórnarinnar á ítalíu, gekk í.dag á fund Segni forsetá og
baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Segni bað hann
að sitja áfram meðan mynduð væri ný stjórn og er búizt
við að hann muni fela Fanfani, foringja vinstri arms
Kristilegra demókrata, stjórnarmyndun.
Moro sem var framkvæmda-
stjóri Kristilegra demókrata-
flokksins þar til hann myndaði
stjóm sina í nóvember s.l.
samdi þá við Pietro Nenni um
stjórnarþátttöku ítalska Sósíal-
istaflokksins og Nenni varð
varaforsætisráðherra. Auk þess-
ara flokka standa sósíaldemó-
kratar Saragats og Lýðveldis-
sinnar að stjórninni, sem þann-
Viðræður Erlanders og Krústjoffs
Hlutleysisstefna Svíþjóiar
og frjáls milliríkjaverzlun
ig hefur haft tryggan meh-ihluta
að baki.
Stjórnarsamvinnan hefur þó
verið mjög brösótt og ein af-
leiðing hennar var sú að flokk-
ur Nennis klofnaði, þegar
v'nstrimenn hans sögðu sig úr
honum og stofnuðu nýjan só-
síalistaflokk sem hlaut þegar
stuðning verulegs hluta þing-
flokksins.
Efnahagsörðugleikar
Síðan hefur gengið á ýmsu
og þrátt fyrir augljósan vilja
Nennis til að sitja sem fastast
i ráðherrastól hefur mönnum
ekki dulizt að stjórnarsamstarfið
gengi erfiðlega. Miklir efnahags-
örðugleikar hafa steðjað að á
Italíu að undanfömu, hröð verð-
bólga og mjög óhagstæður
gre'ðslujöfnuður. Moro og flokk-
ur hans hafa viljað leysa vand-
ræðin-,einvörðungu á kostnað
launþega með bindingu kaup-
gjalds og hækkuðu verðlagi.
1 dag sagði einn af riturum
sósíaldemókrataflokksins, Mario
Tanassi. að það myndi veitast
stjóminni mjög erfitt að sitjá
við völd öllu lengur. Síðar í dag
ræddi Moro við Segni forseta
um ástandið og baðst þá lausnar
fyrir ráðuneyti sitt.
Ósigur á þingi
Til viðbótar efnahagsörðug-
le:kunum gerðist það á þingi í
gær að frumvarp um ríkisstyrk
handa einkaskólum — og þar er
fyrst og fremst um að ræða
skóla kaþólsku kirkjunnar —
var fellt á þingi gegn
atkvæðum Kristilegra demó-
krata. Samstarfsflokkar þeirra í
ríkisstjórninni, sósíalistar Nenn-
is, sósíaldemókratar og lýð-
veldissinnar, sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna, en stjómar-
andstöðuflokkamir og af þeim
em kommúnistar langfjölmenn-
astir á þingi greiddu allir at-
kvæði gegn frumvarpinu.
STOKKHÓLMI 26/6 — Krústjoff forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna mun ljúka heimsókn sinni í Svíþjóð á morgun.
Hann lauk miklu lofsorði á hlutleysisstefnu Svía og áleit
hana mikinn skerf til friðar og öryggis í heiminum, að því
er segir í hinni sameiginlegu tilkynningu forsætisráðherr-
anna um viðræður þeirra.
Siðastliðna nótt dvaldi Krú-
stjoff í Harpsund, embættisbú-
stað Erianders forsætisráðherra.
Heimsókn hans í Svíþjóð er nú
að ljúka. og árdegis á morgun
leggur hann af stað til Noregs
á farkosti sínum. Sameiginleg til-
kynning var gefin út um við-
ræður forsætisráðherranna með-
an á dvölinni stóð. Ymis ágrein-
ingsatriði höfðu komið fram
einkum varðandi Wallenbergs-
málið svonefnda. Þannig var
mál með vexti, að í heimstyrj-
öldinni síðari hvarf í Ungverja-
landi sendiráðsstarfsmaðurinn
Raoul Wallenberg. Ekkert hefur
spurzt til hans síðan og getgát-
ur hafa verið uppi um, að hann
hafi verið fluttur til Sovétríkj-
anna, en engin fullvissa hef-
ur fengizt um það enn. Auk
þess var í tilkynningunni getið
um ágreining vegna sjö manna,
sem fórust á sænskum bát í
heimsstyrjöldinni, og vegna ann-
arra Svía, sem hurfu í Sovét-
ríkjunum á sama tíma.
Hins vegar var margt í til-
kynningunni. sem benti til þess
að viðræðumar hefðu verið vin-
samlegar. .
Hlutleysi
Erlander kallaði fréttamenn á I
sinn fund um svipað leyti og
fréttatilkynningin var gefin út.
Sagði hann þá meðal annars að
sovézkir og sænskir vísinda-
menn myndu koma í haust að
hefja viðræður um skógrækt,
hreindýraeign og annað í norð-
urhéruðum landanna.
Erlander lagði mesta áherzlu
á þann kafla í tilkynningunni
sem fjallaði um hlutleysi. Kvað
hann Krústjoff hafa lokið miklu
lofsorði á hlutleysisstefnu Svía
Framhald á 9. síðu
Sihanúk og de Gaulle voru
einhuga um öll meginatriði
PARÍS 26/6 — Síhanúk prins,
forsætisráðherra Kambodja. lauk
í dag opinberri heimsókn sinni í
Frakklandi og lýsti því yfir í
kveðjuávarpi til frönsku þjóð-
arinnar, að Frakkland væri
eina vesturveldið, scm skildi
vandamá! Kambodja og veitti
landinu fullan stuðning
Síhanúk sat hádegisverðarboð
hjá Couve de Murville utanrík-
isráðherra og gekk á fund de
Gaulle við lok hinnar opinberu
heimsóknar. Hann mun enn
dveljast nokkra daga í Frakk-
landi í einkaerindum.
Meðan Síhanúk var í hinni
opinberu heimsókn bauð hann
de Gaulle í heimsókn til Kam-
bodja, en ekki er ákveðið hve-
nær úr henni verður.
Haft er eftir góðum heimild-
um að þeir Síhanúk og de
Gaulle hafi verið algerlega á
einu máli um öll meginatriði
þeirra mála sem þeir ræddu
og því var engin þörf talin á að
gefa út sérstaka tilkynningu um
viðræðumar. Telja má víst að
helzta málið sem þeir fjölluðu
um hafi verið ástandið í lönd-
um Suðaustur-Asíu og tillögur
de Gaulle um að lýsa yfir hlut-
leysi þeirra.