Þjóðviljinn - 27.06.1964, Qupperneq 4
4 SIÐA
ÞJOÐVILIINN
Laugardagur 27. júní 1964
Ctgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaílokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreeiðsla, auglýsingar, preentsmiðja, Skólavörðust.19,
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 5 mánuði
Móðgun við verkaiýðs-
samtökin
gítir samkomulag það sem Alþýðusamband ís-
lands gerði nýlega við ríkisstjórn og atvinnu-
rekendur, hefur mörgum vitrazt sú staðreynd að
verklýðshreyfingin er ekki aðeins hagsmunasam-
tök félagsmanna sinna í þröngum skilningi, held-
ur og áhrifamikið þjóðfélagsafl sem færir öll-
um þorra landsmanna mikilvægan árangur með
baráttu sinni. Þegar verklýðshreyfingunni tóks't
að knýja ríkisstjórnina til þess að fallast á kaup-
tryggingu og binda þannig endi á þá óðaverð-
bólgu sem hefur þjakað þjóðlífið í meira en fjög-
ur viðreisnarár, var hún að vinna í haginn fyrir
yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar. Og atriði
eins og stóraukið fé til íbúðarhúsabygginga er
brýnt hagsmunamál fjölmargra annarra en þeirra
sem eru félagar í verklýðssamtökunum. Árang-
ur sá sem náðst hefur á þessum sviðum og öðr-
um er ekki aðeins afleiðing af þeirri réttu stefnu
sem mörkuð var í bréfi Alþýðusambandsins til
ríkisstjórnarinnar í vor, heldur einnig ávöxtur
af margbreytilegri og harðri baráttu verklýðsfé-
laganna á undanförnum árum og vaxandi sam-
héldrii innan þeirra.
Jfjii það er ömurlegt að sjá hvernig vaxandi gengi
verklýðssamtakanna blæðir leiðtogum Fram-
sóknarflokksins í augum. Dögum saman hefur
Tíminn haldið því fram að verklýðshreyfingin
hafi í rauninni engu fengið áorkað, heldur hafi
Framsóknarflokkurinn unnið verkið; seinast í gær
segir blaðið í forustugrein að með samkomulag-
inu um kjaramálin hafi ríkisstjórnin „gengið mjög
verulega inn á tillögur Framsóknarflokksins . . .
gefizt upp við mörg helztu stefnumál sín og tekið
upp stefnu Framsóknarflokksins". Þeir menn sem
þannig hæla sjálfum sér af verkum annarra eru
bæði broslegir og brjóstumkennanlegir. Öll þjóð-
in veit að Framsóknarflokkurinn var enginn aðili
að samkomulagi því sem gert var, verklýðsbar-
áttan á undanförnum árum hefur að engu Ieyti
hvílt á honum, og hann átti engan hlut að þeim
jákvæðu tillögum Alþýðusambandsstjómar sem
leiddu til árangurs. Framsóknarflokkurinn
hefði raunar getað veitt verklýðshreyfingunni
mikilsverðan stuðning ef hin voldugu atvinnufyr-
irtæki hans hefðu viljað fallas't á réttmætar kaup-
hækkanir sem verklýðsfélögin gerðu kröfu til,
en atvinnurekendur Framsóknar fylgdu stéttar-
bræðrum sínum í Sjálfstæðisfiokknum í einu og
öllu. Forustumenn Framsóknarflokksins voru
þannig aðeins áhorfendur, stundum neikvæðix, en
í bezta falli áhrifalausir.
gjálfshól Tímans um sigur Framsóknarflokksins
er ósvífin móðgun við verklýðssamtökin.
Áhrifaleysi Framsóknarflokksins í samningunum
og sýndarmennska hans nú er sönnun þess að
flokkinn skortir raunverulega kjölfestu í íslenzku
þjóðlífi; sívaxandi stefnuleysi hans er einnig að
gera hann ómegnugan þess að móta þróun lands-
mála. Sú staðreynd verður ekkí dulin til lengd-
ar með ódrengilegu auglýsingaskrumi. — m.
Viðræiur á breiðum grundveiii með
stjórnum SSB og ASE um kjaramáf?
H í einni ályktuninni, sem samþykkt var á ný-
afstöðnum aðalfundi Stéttarsambands bænda,
var þeirri áskorun beint til stjórnar sambands-
ins og Alþýðusambands íslands, að þær taki til
rækilegrar athugunar hvort ekki sé tímabært að
viðræður hefjist á breiðum grundvelli með full-
trúum þessara félagasamtaka um hagsmunamál
vinnustéttanna.
Auk áður birtra tillagna í
verðlagsmálum, framleiðslu-
málum og lánamálum, voru
eftirfarandi ályktanir sam-
þykktar á aðalfundinum.
„Aðalfundur StéttarsambandE
bænda felur stjórn sambands-
ins að láta gera spjaldskrá
um alla bændur landsins.
Spjaldskrá þessi verði þann-
ig gerð, að hægt sé að vinna
úr henni alhliða upplýsingar
varðandi landbúnaðinn og af-
komu bændastéttarinnar.
Greint verði á milli þeirra,
sem hafa landbúnað að aðal-
atvinnu og hinna sem hafa
megintekjur sínar af öðru o;g
þeim verði skipað í sér flokk.
Reynt verði m.a. að sjá af
þessu hvaða bústærð gefur
bezta rekstrarútkomu.“
„Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda 1964 ítrekar fyrri
ályktanir sinar varðandi ó-
fullnægjandi varahlutaþjón-
ustu ýmissa fyrirtækja, sem
flytja inn landbúnaðarvélar til
sölu og felur stjóm sambands-
ins að fylgja þessu máli eftir
við hlutaðeigandi fyrirtæki.
„Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda 1964 felur stjórn
sambandsins að vinna mark-
visst að þvi að efla íslenzkan
iðnað. í sveitum og kauptún-
um og bendir á þá miklu
möguleika, sem eru á sviði
sauðfjárræktar varðandi iðnað
úr ull og gærum.
Ennfremur telur fundurinn
nauðsynlegt að allur stóriðnað-
ur sé gaumgæfilega athugaður,
áður en í hann ■ er ráðizt“.
„Aðalfundur Stéttarsam-
bands b.ænda 1964 skírskotar
til fyrri ályktana sinna um raf-
væðingu dreifbýlisins og legg-
ur áherzlu á að þegar á næsta
Aljþingi verði gerð heildar-
framkvæmdaáætlun i þessum
málum, sem miðist við það að
öll byggileg býli, að dómi Bún-
aðarfélags íslands fái rafmagn
fyrir 1968, og verði það selt á
sama verði um land allt.“
„Að gefnu tilefni vill Aðal-
fundur Stéttarsambands bænda
fela stjóm sambandsins að
Þórður Hafliðason, framkvæmdastjóri, unir hcr g laður í svifflugu sinni eftir flug frá Sandskciði
austur á Þjórsártún. Myndin var tekin fyrir fáum dögum.
Sviff!ugkenns!a á kvöld-
in á Sandskeiði í suntar
kanna það, hvaða atriði það
eru-í frumvarpi til breytinga
á framleiðsluráðslögunum, er
síðasti aðalfundur samþykkti,
sem eru þess valdandi, að
landbúnaðarráðherra taldi sér
ekki fært að flyt'ja málið á
Alþingi.
Jafnframt felur fundurirm
stjórninni að athuga hvort
hægt sé að breyta frumvarpinu
svo að þvi verði tryggður
framgangur á Alþingi án þess
að aðalgreinar þess séu skért-
ar“.
>------------;—;--------
Fjallabaksferð
farínáhestum
Hinn kunni hesta- og ferða-
maður Guðni Kristinsson
bóndi í Skarði í Landssveit
hefur ákveðið að efna til
Fjallabaksferðar 25. júlí n.k.
Verður farið á hestum og lagt
af stað frá Skarði. Þátttakend-
ur þurfa að sjá sér fyrir mat
og hafa með sér viðleguútbún-
að. Tjöld og hitunartæki verða
útveguð.
Frá Skarði verður riðið inn
að Landmannahelli og síðan f
Landmannalaugar. Þá liggur
leiðin að Eldgjá, Búlandi,
Ljótarstöðum, Hraungili, Foss:
og aftur að Skarði. Tekur ferð-
in sjö daga. Með í ferðinni
verður jeppabifreið og flytur
hún allan farangur. Þess ‘ má
geta að í ferðinni verða farnar
báðar Fjaliabaksleiðirnar, sú
nyrðri og syðri
Hópferð vestur
Önfirðingafélagið í Reykjávík
hefur ákveðið að efna til ferð-
ar í Önundarfjörð um verzl-
unarmannahelgina 1. — 3. ág-
! úst. Gert er ráð fyrir að þeir
sem ekki fara í eigin bílum
eða fljúgandi vestur fari með
Vestfjarðaleið úr Reykjavík á
föstudagsmorgun og komi til
Reykjavíkur aftur á mánu-
dagsmorgni. Síðdegis á laugar-
dag verður móttaka í sa'm-
komuhúsinu á Flateyri og
dansleikur um kvöldið, en á
sunnudeginum verður farið að
Holti og þar mun sóknarprest-
urinn flytja bæn í kirkjunni.
Að því loknu hittast héiina-
menn og ferðalangar í skóla-
húsinu.
Á undanförúum árum hefur
Svifflugfélag íslands rekið
námskeið sín á Sandskeiði yfir
sumarmánuðina. Sérstaklega
hafa kvöldnámskeið félagsins
verið vinsæl. Kariar og konur
á öllum aldri hafa safnazt
saman á Sandskeiði, eftir dag-
leg störf, til þess að laera
þessa skemmtilegu íþrótt.
Svifflugfélagið hefur nú sem
fyrr hug á að veita þeim er
þess óska kenns.lu með þessu
sniði Námskeiðið sem i sumar
verður aðeins eitt, hefst nú
um næstu helgi og mun verða
kennt bæði laugardagseftirmið-
dag og sunnudaginn allan, en
síðan á hverju kvöldi frá kl. 6.
Þaulæfðir svifflugkennarar
annast kennsluna sem fram
fer í traustum og skemmtileg-
um tveggja sæta kennslusvif-
flugum. Nemendurn:r fá ekk
að fljúga einir fyrr en þeii
hafa náð góðu valdi á flug-
inu. Má því segja að nú geti
flestir lært að fljúga frjálsir
sem án nokkurrar
telie- 'bi. Hins vegar
mum s ;em til þekkja og
reynt hafa, telja svifflugið
bjóða upp á meiri fegurð og
skemmtan en flestar ef ekki
allar aðrar íþróttir,
Á sviffiugnámskeiðinu mun
verða gerð grein fyrir helztu
tegundum loftstrauma sem
svifflugmenn notfæra sér, svo
sem hliðaruppstreymi, hitaupp-
streymi og bylgjuuppstreymi.
skýjamyndunum o. fl. Ekki
þurfa menn þó að óttast neinn
heimalærdóm. Geta menn
því lengt sumarleyfi sín með
því að skreppa upp á Sand-
skeið eftir vinnu á kvöldin og
notið þar heilbrigðrar útivist-
ar. Þeir sem ekki hafa umráð
yfir bílum geta notað hinar
tíðu ferðir „austur yfir fjall’*
frá BS? kl. hálf sex, sex og
hálf sjö. og frá steindóri kl.
sex alla virka daga, en laug-
ardaga og sunnudaga eru ferðir
fyrir og um hádegi.
Mönnum er heimiit að koma
og fá sér flugferð í svifflugun-
um sem farþegar, áður en þei’-
ákveða hvort þeir vilja hefi-
námið. Allar upplýsingar urr
námskeiðin eru veittar í Tóm-
stundabúðinni í Aðalstræti 8.
Fyrir skömmu fékk Svífflug-
félag Islands nýja og full-
komna svifflugu af „Vasama“-
gerð. Er hún finnsk og hefur
vakið gífurlega athygli svif-
flugmanna um heim allan á
síðustu 2 árum. Má t.d. nefna
að þessi tegurid fékk verðlaun
vísindanefndar alþjóðasam-
bands flugmálafélaga FAI á
heimsmeistaramóti sv’fflug-
manna í Argentínu 1963. Hafa
Finnar síðan selt hana út urn
allan heim. Á svifflugmeist-
aramóti Norðurlanda sem ný-
lega er lok'ð f Danmörku, var
mikill fiö1^' -v>nda í svif-
flugum af b gerð. Is-
lenzki ke n Þórhallur
Filippusson. notaði hina nýju
flúgu þar. Var hún send beint
til Danmerkur frá verksmiðj-
unum í Finnlandi og er svo
alveg nýkomin til landsins
eftir mótið. Er hún hin glæsi-
legasta og búin tækjum sem
má verða, auk þess sem
'•••'* fylgir flutningavagn, sem
d a má með bíl og fara
Framhald á 9. síðu.
HALLORMSTAÐ, 25/6 — Sjötíu
bændur úr Eyjafirði eru nú á
bændaför um Austurland og
komu í gær upp á Hérað. Þéir
koma sunnan úr Homafirði og
hafa heimsótt firðina iunnan til
og koma hingað frá Fáskrúðs-
firði. Eyfirzku bændúrnir láta
vcl af förinni. Ferðamanna-
straumur er nú fyrr á ferðinni
hingað um Hérað cn undanfar-
in ár og óx mikið síðastliðið
sumar borið saman við fyrri ár.
• ibl,
Hjarta- og æða-
siókdómavarna-
rélag á Húsavík
HÚSAVÍK 25/6 — í< kvöld kl. 9
verður haldinn hér. t á Húsavík
í samkomuhúsinu Hlöðufelli
stofnfundur Hjarta- og æðasjúk-
dómavarnafélags og- mun pró-
fessor Sigurður - Samúelsson
mæta á fundinum og flvtja er-
indi um hjarta- og æðas.iúkdóma
og vamir gegn beim - ” "
4
i.
I