Þjóðviljinn - 02.07.1964, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 2. júK 1984
SIDA
Land frelsis og lýiræðis eða
Eftir brottför gæzlufiðs SÞ
misréttis, ofbeldis og morða?
Bandaríkin eru talin for-
ysturíki „hins frjálsa heims“
og ófáar eru fjálglegar lýs-
ingar á þeim sem óbrot-
gjörnu virki lýðræðis og
mannréttinda. Fréttir sem
þaðan berast daglega stinga
í stúf við þær lýsingar. Sá
dagur líður varla að ekki ber-
ist þaðan frásagnir af morð-
um og ofbeldisverkum sem
framin ©ru á fólki sem ekk-
ert hefur til saka unnið ann-
að en það að ætlast til að
staðið sé við ákvæði lands-
laga og stjórnarskrár um
jafnan rétt allra manna. —
MYNDIRNAR eru til skýr-
ingar fréttum sem þaðan
hafa borizt að undanförnu.
Efri myndin er tekin í bæn-
um St. Augustine í Flórida.
Hvítar konur misþyrma
kynsystur sinni sem fylgzt
hafði með blökkufólki á bað-
ströndina við bæinn. Hin
myndin er frá Mississippi oe
sýnir lögreglumenn í leit að
stúdentunum þremur serr
hurfu þar um fyrri helgi
Kasavúbú felur Tshombe að
mynda nýja stjórn í Kongó
LEOPOLDVILLE 1/7 — í gær lauk dvöl gæzluliðs SÞ í
Kongó, þótt enn séu nokkrir hermenn úr því eftir í land-
inu. Stjórn Adoula sagði af sér í gær og í dag fól Kasav-
úbú forseti Moise Tshombe, sem áður var sjálfskipaður
„forseti' í Katangafylki, að mynda nýja stjórn.
Tshombe kom fyrir nokkrum' hann teldi að leysa bæri Antoine
dögum til Leopoldville eftir Gizenga, helzta foringja Lúm-
langa dvöl í Evrópu, en þangað úmbasinna, úr fangelsi.
hrökklaðist hann þegar gæzlulið
SÞ batt enda á stjórn hans í | Samsteypustjórn?
Katanga og lagði fylkið undir Tshombe sagði i dag að hann
sambandsstjórnina í Leopold- myndi stefna að því að reyna
ville. Tshombe hefur verið illa að mynda samsteypustjóm og
þokkaður i Kongó fyrir undir- fréttastofan AFP fullyrðir að
lægjuhátt sinn fyrir hinum belg- hann muni sem fyrst eiga við-
ísku nýlenduherrum og auð-
hringnum Union Miniere og
þátt sinn í morði sjálfstæðis-
foringjans Lúmúmba, sem Kasa- lega.
ræður við Gizenga í fangelsinu.
Fréttastofan býst einnig við að
Gizenga verði látinn laus bráð-
vúbú og aðrir ráðamenn í Leo-
poldville munu þó engu síður
eiga sök á.
Gizenga úr haldi?
Tshombe hefur að undanförnu
reynt að snúa við blaðinu. Hann
hefur áfellzt ráðamenn í Leo-
EK>ldville fyrir að vera valda-
lausa leppa i höndum Belga og
Bandaríkjamanna og látið í það
skína að hann einn væri fær
um að mynda stjóm með þátt-
töku allra þjóðlegra afla í land-
inu. einnig arftaka Lúmúmba,
sem hafa stór svæði landsins á
sínu valdi eftir margra mánaða
skæruhemað við her stjórnar-
innar í Leopoldville, sem oftast
hefur farið halloka í viðureign-
unum.
Strax við komuna til Leopold-
ville lýsti Tshombe því yfir að
Shastri fer ekki
a
NEW DELHI l'/7 — Forsætis-
ráðherra Indlands. Lal Bahadur
Shastri, mun ekki sitja ráðstefnu
brezka heimsveldisins í London
að læknisráði. 1 stað hans mun
fjármálaráðherrann, Krishna
Machari, verða formaður ind-
versku sendinefndarinnar á ráð-
stefnunni.
Shastri veiktist í síðustu viku
og læknar upplýstu, að hann þjáð-
ist af ofþreytu og þyrfti algjöra
hvíld. Hann mun nú vera á góð-
um batavegi að því er segir í
fréttinni.
Krústjoff var í sólskinsskapi
þegar hann heimsótti Bergen
BERGEN 1/7 — Krústjoff, for-
sætisráðherra Sovétrikjanna kom
í dag til Bcrgen og sat þar há-
degisverffarboð borgarstjórans,
Harry Hansen. Þeir skiptust á
gjöfum og fluttu báðir vinsam-
legar ræffur. Krústjoff sagffi
m.a. í ræðu sinni, aff hann
þyrfti engan áróður aff hafa i
frammi þar sem hagkerfi þjóð-
ar sinnar hefffi reynzt bezt aUra.
Krústjoff var í sólskinsskapi,
er hann kom til hádegisverðar i
Bergen í dag. Hansen gestgjafi
hans flutti ræðu og bauð hann
velkominn og sagðist vona að
dvöl forsætjsráðherrans I Berg-
eh gæti orðið honum til ein-
hverrar ánaégju. Til minja um
heimsóknina færði Hansen
Krústjoff gjöf og einnig konu
hans, Nínu.
í ávarpi sínu talaði Krústjoff
mjög vinsamlega um Bergen
sem borg verzlunar. sjóferða og
menningar. Hann notaði einn-
ig tækifærið til að minnast vel-
gjörða Maríu östrem við stríðs-
fanga frá Sovétríkjunum í síð-
asta stríði og færði henni þakk-
ir sínar fyrir, en hún var stödd
í hádegisverðarboðinu.
Eftir hádegisverðinn afhenti
Krústjoff Hansen postulínsvasa
sem gjöf til Bergen og var vas-
inn skreyttur mynd af Lenín-
grad. 1 því sambandi sagði fpr-
sætisráðherrann m.a. „Lenjn-
grad heitir eftir Lenin, sem kom
landi okkar svo vel á veg. Nú
segið þið ef til vill að ég hafi á-
róður í frammi, en Krústjoff
fer aldrei með áróður. Hvers
vegna ætti hann að gera það?
Hefur þjóðfélagskerfi okkar ekki
sannað ágæti sitt? Mun ekki sér-
Heinrich Liibke
endurkjörinn
BERLÍN 177 — Heinrich Lubke
var í dag endurkjörinn forseti
Vestur-Þýzkalands til fimm ára.
Hann er nú 70 ára gamall. Liibke
var kjörinn þegar við fyrstu at-
kvæðagreiðslu með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða. Mótfram-
bjóðandinn hlaut aðeins 123 at-
kveeði en Liibke 710.
hver skynsamur maður játa því? Kosningin fór fram í Vestur-
Við þurfum engan áróður.” Berlín og voru þátttakendur 1024.
Fjórum fíugvélum
grandað á 5 dögum
SAICON 1/7 — Fjórar banda-
rískar flugvélar hafa síðustu
fimm dagana verið skotnar niður
eða eyðilagðar á jörðu niðri í
Suður-Víetnam, að því upplýst
var á blaðamannafundi í Saigon
í dag.
Þrjár vélanna voru þyrlur og
voru tvær þeirra skotnar niður
af loftvarnaliði Vietcongs. Eins
fór um T-28-flugvél, en þriðja
| þyrlan var eyðilögð á jörðu niðri.
! Átta bandarískir flugmenn fórust,
en fjórir meiddust.
1 Patrick Delavan, sem er yfir-
maður þyrluflotans í Saigon
sagði, að vélar flotans væru nú
I á flugi 1.300 — 1.400 tíma á
mánuði. Hann sagði enr.fremur
að flokkar Vietcongs hefðu sett
upp sérstakar æfingarstqðvar fyr-
Ur loftvarnaliðið.
Óstaðfestar fregnir herma að
Tshombe hafi þegar verið í sam-
bandi við aðra foringja Lúmúm-
basinna og hafi hann rætt við
þá í Brazzaville á leiðinni heim.
Ekki er vitað hvernig þeim við-
ræðum hefur lyktað.
Sumir telja að það vaki ekki
fyrir Kasavúbú að láta Tshombe
taka við stjómarforystu. Hann
telji að viðræður hans við aðra
stjómmálaforingja muni engan
árangur bera og misheppnuð til-
Dráttarbraut
Framhald af 12. síðu.
tillagan síðan samþykkt óbreytt.
Hér er einfaldlega um það að
ræða, hvort rekstur dráttar-
brautarinnar á að vera í hönd-
um bæjarins eða einhverjir aðr-
ir aðilar eigi að fá hana afhenta
eftir að bærinn hefur séð um að
koma henni upp. Með því að
fella breytingartillögu Kristjáhs
er raunverulega verið að sam-
þykkja að svo eigi að vera, ef
núverandi meirihluti í bæjar-
stjórn fær að ráða. Þarf raunar
engum að koma það á óvart,
því að hluthafar í Skipasmíða-
stöðinni Dröfn hafa sterka að-
stöðu innan meirihlutans, þeir
Vigfús S'gurðsscn og Páll Dan-
íelsson mynda meirihluta bæjar-
ráðs, ekki stóð á bæjarfulltrúa
Framsóknar, Jóni Pálmasyni
skrifstofustjóra í Dröfn, að
veita þeim lið, og taldi hann
alls óeðlilegt að bærinn ann-
aðist rekstur dráttarbrautar
raun hans til stjórnarmyndunar
muni aðeins verða til að spilla
fyrir honum síðar meir.
flfengi lækkar í
verði í Danmörku
KAUPMANNAHÖFN 1/7 —
Verðið á betri tegundum koni-
aks var í dag lækkað um 20
krónur danskar (125 ísl.) hver
heilflaska. Búizt er við enn frek-
ari verðlækkunum þar sem verð-
lagning á vin og brennda drykki
hefur nú verið gefin frjáls, og
allskonar samkeppni hefur þegar
orðið vart.
Einnig er búizt við, að verð á
ákavíti lækki bráðlega.
--------------i----------
Pierre Menteux
látinn. 89 ára
HANCOCK, Maine 1/7 — Hinn
heimskunni hljómsveitarstjóri.
Pierre Monteux, lézt í dag í
Hancock í Maine í Bandaríkjun-
um eftir langa sjúkdómslegu.
Monteux var fæddur í Frakk-
landi og var 89 ára er hann lézt.
Monteux vann sem hljómsveit-
arstjóri m.a. í Amsterdam. Bost-
on og í San Francisco þar sem
hann gerði hljómsveit borgarinn-
ar eina hina fremstu í heimin-
um. 1952 dró hann sig í hlé en
hefur síðan ferðazt víða um heim
og haldið gestatónleika.
Síld fryst til,
iitflutnings í í
Neskaupstðð
NESKAUPSTAÐ 1/7. — I gær
hófst frysting á síld til útflutn-
ings hjá Samvinnufélagi útgerð-
armanna í Neskaupstað. Er þar
um brautryðjendastarf að ræða
hér á Austfjörðum. Fyrirtækið
útvegaði sér tæki til þessara
hluta s.l. vetur og hefur aðstöðu
til að frysta um 40 tunnur á
sólarhring.
Ólánið eltir NASA
• •
Onnur tilraun með
Centaur mistókst
KENNEDYHÖFÐA 30/6 — Ölán-
ið eltir bandarísku geimferða-
stofnunina NASA og tefur undir-
búning hcnnar undir fyrstu ferð
Bandaríkjamanna til tunglsins.
önnur tilraun að koma eldflaug
af gerðinni Atlas-Centaur á
braut umhverfis jörðu mistókst
i dag, en smiði eldflaugarinnar
er þegar heilu ári á eftir áætlun.
Eldflaugin komst aldrei á
braut, heldur féll í Atlanzhafið
nokkur hundruð sjómflur fyrir
vestan Grænhöfðaeyjar.
Ástæðan til þess að svo illa
fór var sú að hreyfili annars
breps flaugarinnar sem notar
fljótandi vetni fyrir eldsneyti
hafði brennt þvi öllu tveimur
mínútum of snomma. Tilraunin
virtist í fyrstu ætla að heppn-
ast, en eftir átta mínútur kom
í ljós að ekki var allt með felldu
við sfðara þrepið. Þá var eld-
flaugin nærri þvi búin að ná
beim hraða, um 28.000 km á klst..
sem þurfti til að hún færi á
braut.
Þetta var önnur tilraunin með
Atlas-Centaur sem á að gegna
veiganvklu hlutverki í tungl-
ferðaundirbúningnum. Fyrri til-
raunin var gerð 27. nóvember 1
fyrra, en þá sprakk eldflaugrn
55 sekúndum eftir skotið.
Hreyfillinn í öðru þrepi Atlas-
Centaur er af sömu gerð og f
Satúm-1 eldflaugunum og hafa
hreyflamir unnið sem skyldi í
tilraunum með þær. Næstu til-
raun með Satúm-eldflaug á að
gera f september, en óvist er
hvort reynt verður aftur að
koma Atlas-Centaur á loft.
Tólf geimskot
Á næstu sex mánuðum hafði
verið ætlunin að gerð yrðu tólf
geimskot á vegum NASA, og
skyldi eitt gervitunglið bera tvo
menn á loft og fara með þá
þrjár umferðir um jörðu. Óvíst
er nú hvort sú áætlun stenzt
Ætlunin var að þetr Vergil
Grissom og John Young færu
saman í geimferðina í desem-
ber.
I lok næsta-mánaðar er ætl-
unin að gera enn eina tilraun,
há sjöundu í röðinni, með Rang-
er-skeyti til tunglsins. en allar
fyrri tstraunirnar hafa mistekizt.
t
1