Þjóðviljinn - 02.07.1964, Blaðsíða 6
g SÍÐA
ÞJÓÐVILIINN
Fimmtudagur 2. júlí 1964
ÆSKAN _*
OG SOSiALISMINN
ÚTG.: ÆSKULÝÐSFYLKINGIN — RITSTJ ÓRAR: HRAFN MAGNÚSSON, GÍSLI
GUNNARSSON OG RÖGNVALDUR HANNESSON.
Æskan, sósíalisminn
og „ viðreisnin
II
Viðtal við Ölaf Einarsson, formann ÆFR
Aðalfundur Æskulýðsfylking-
arinnar í Reykjavík var hald-
inn 26. maí, s.l. Fundurinn
hófst með inntöku nýrra fé-
laga. Því næst flutti formað-
ur, Ragnar Ragnarsson, skýrslu
fráfarandi stjómar. Kom hann
víða við í skýrslu sinni og
benti m.a. á, að fjárhagur fé-
lagsins stæði nú með meiri
blóma en oft áður. í lok
skýrslu sinnar ræddi Ragnar
um aðbúnað æskufólks í „við-
reisnar“-þjóðfélagi. Benti hann
í því sambandi á þá hættu,
sem kynni að skapast, ef æsku-
lýðurinn yrði gerður að vilja-
lausu verkfæri fjárplógsmanna
og annarra gróðahyggjumanna.
Hér hefði Æskulýðsfylkingin
verðugt verkefni við að glíma.
Skapa þyrfti æskufólki þroska-
vænleg uppvaxtarskilyrði og
betri aðbúnað til að sinna á-
hugamálum sínum. „Þetta er
ekki gert nema með endur-
skipulagningu þjóðfélagsins,
þar sem tekið yrði fullt tillit
til þarfa æskumannsins", sagði
Ragnar að lokum.
STJÓRNARKJÖR
Að lokinni skýrslu fráfar-
andi stjórnar var gengið til
stjórnarkjörs. Kjörin voru: Ól-
afur Einarsson stud. philoj. for-
maður, Hrafn Magnússon vara-
formaður, Þuríður Stephensen
ritari, Guðvarður Kjartansson
gjaldkeri, Gylfi M. Guðjónsson
spjaldskrárritari, Gísli Gunn-
arsson, Guðfinna Gunnarsdótt-
ir, Gunnar Óskarsson og Ilar-
aldur Blöndal meðstjómendur.
Umræður urðu miklar á fund-
inum og voru fundarmenn ein-
Frá ÆFR
LAUGARDAGINN 4. júlí verður ferð í Hítardal
á Mýrum. Nánar auglýst síðar.
HAFIÐ SAMBAND við skrifstofuna. Opin alla
daga kl. 10—12,30, þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 17—19.
SlMINN ER 17513.
huga um að efla starf ÆFR á
öllum sviðum.
RÆTT VIÐ ÓLAF
Fréttamaður æskulýðssíðunn-
ar hitti nýlega að máli hinn
nýkjöma formann Ólaf Einars-
son stud. philol. Ólafur er ung-
um sósialistum þegar vel kunn-
ur fyrir góð og vel unnin
störf. Ólafur varð stúdent
frá Menntaskólanum í Reykja-
vik árið 1963 og leggur nú
stund á fornleifafræði og sögu
við háskólann i Osló.
— Hvað er þér efst i huga
nú, er þú tekur við stjórn fé-
lagsins?
— Ég vil leggja áherzlu á,
að höfuðhlutverk Æskulýðs-
fylkingarinnar er að vinna
ungt fólk til fylgis við sósial-
ismann og um leið að upp-
fræða það um önnur þjóðfé-
lagsáform og þá ekki sizt það
„viðreisnar“-þjóðfélag, sem við
búum við. Það hefur ef til vill
aldrei verið brýnna en ein-
mitt nú að rækja þetta hlut-
verk, þegar auðmannastéttin
leggur allt sitt bolmagn i að
sljóvga og ala á sinnuleysi
æskufólks með of löngum
vinnudegi og ófullkomnum að-
búnaði til tómstundaiðkana.
Atburðir eins 'og í Þjórsárdal
í fyrra og að Hreðavatni nú
um hvítasunnuna era aðeins
uppskera úr arfagarði íhalds-
ins, enda hefur æskan í engin
önnur hús að venda en vínhof
gróðahyggjumanna, sem hafa
aðeins það eina markmið að
græða á æskunni. Hlutverk
Æskulýðsfylkingarinnar er að
við að brjóta á bak aftur þessa
Formálsorð
□ Oft heyrist nú talað um „vandamál sesk-
unnar“. Fréttir berast um atburði í Þjórsárdal og
að Hreðavatni og sjálfsánægðir góðborgarar skaka
höfuðið í hneykslun. Og alls kyns sérfræðingar
okkar skinhelga þjóðfélags hefja upp rausf sína, og
lærðum rómi tala þeir um „aðlögunarvandkvæði
unglinga“. Unglingarnir geti sem sagt ekki „að-
lagað“ sig þjóðfélaginu „og beri því ekki virðingu
fyrir því sem gott er og fremji því alls kyns
óknytti“.
□ En hvernig er þjóðfélagið, sem ungt 'fólk
elst upp í og sem það „á að laga sig að“? Það er
þjóðfélag einkagróðans, — öðru nafni auðvalds-
þjóðfélagið. Allt er metið til fjár, og höfuðtil-
gangur lífsins virðist vera að græða á náungan-
um. Til þess eru flest meðöl leyfileg. Það má
ljúga, pretta, svíkja, braska, græða. „Annars kemst
maður ekkert áfram“. Þeir, sem fala um mann-
gildi; þeir, sem segja að höfuðtilgangur lífsins sé
ekki að svíkja náungann heldur gera manninn
að meiri menningarveru; — þeir eru álitnir vel-
viljaðir angurgapar eða kommúnistar.
-<s>
Keflavíkurgangan 1964
m v. .v..
Þátttaka unga fólksins í síðustu Keflavíkurgöngu vakti mikla athygli. Sýnir það svo ekki verður
um villzt, að æskan hefur skiiið þýðingu þ-sss að standa gegn spillingu hernámsins.
Ólafur Einarsson
lúalegu árás aíturhaldsmanna.
Aðeins með því að koma á
vera í fararbroddi ungs fólks
þjóðfélagi sósíalismans er hægt
að skapa æskunni þroskavæn-1
leg uppvaxtarskilyrði til
menntandi félags- og skemmt-
analífs.
— Hvað um næstu verk-
efni ÆFR?
— Rétt er að minna á, að
starfssvið sumarstjórna ÆF-
deilda er að nokkru leyti ann-
að en vetrarstjórna. Yfir há-
sumarið er til áð mynda óhægt
að koma við stjórnmálafræðslu,
þess í stað mun stjómin leggja
megináherzlu á ferðalög, helg-
arferðir og kvöldferðir. Rétt
er að geta þe.ss að gefinn hef-
ur verið út allvandaður bæk-
lingur um ferðalög ÆFR í sum-
ar. Hópferðir Æskulýðsfylk-
ingarinnar hafa haft mjög mik-
ið félagslegt gildi. Þær hafa
það markmið að auka félags-
andann og þroska félagana.
Það skal tekið fram að öllu
æskufólki er heimil þátttaka í
ferðalögum Fylkingarinnar með
því skilyrði að viðhalda al-
gjöru bindindi. f ferðalögum
ÆFR hefur ávallt ríkt algjört
vínbindindi og fer það vel.
Síðast en ekki sízt ber að
leggja höfuðáherzlu á barátt-
una gegn hernáminu. Hernám
íslands og innlimun þess í
NATO er kannski eitt alvarleg-
asta viðfangsefnið, sem unga
fólkið á við að glíma i dag.
Sú árátta forystumanna í-
halds og krata a3 sljóvga og
brjóta niður þjóðernismeðvit-
und landsmanna er ef til vill
hættulegasti leikurinn, sem
þeir herrar hafa leikið enn til
þessa. Hrokinn og nndirlægju-
hátturinn sést einna bezt f því
að leyfa stækkun dátasjón-
varpsins á Keflavikurflugvelli,
en frá henni streymir ómenn-
ingin inn í næstum annað hvert
hcimili á Reykjanesskaganum.
Hér þarf æskufólkið að gripa
í taumana, ef hernáminu á
ekki að takast að brjóta á bak-
aftur siðferðisþrek lands-
manna og okkar fornu og sér-
stæðu menningu.
Alþýftiiblaðið, svokaliaðn,
gcrir mikið úr þætti félaga
Æskulýðsfylkingarinnar í síð-
ustu Keflavikurgöngu. Rétt cr
það hjá Alþýðublaðinu að
unga fólkið var í miklum
meirihluta þcss fólks sem gekk
gönguna. Það sýnir að æskan
hefur þegar skilið nauðsyn
þcss að losna vi* hernámsliðið
úr landinu, svo að ísland geti
á ný verið frjálst og fullvalda
riki. Hvort mat rtlbvðublaðsins,
að meirihluti æsk’ifólksins hafi
verið félagar í Æskulýðsfylk-
Framhald á 9. síðu.
□ Meinsemd auðvaldsþjóðfélagsins kemur
glöggt fram í skemmtanalífinu. Þar er alls stað-
ar reynt að græða á æskunni. Vínveitingastöð-
um hefur fjölgað óðum. Nóg er um tímarit, sem
skírskota til lágmarkshugsunar lesenda. Og nú er
komið erlent hermannasjónvarp. Allt er gert til
að ungt fólk verði hugsunarlaus vinnudýr sem
þræla myrkranna á milli í von um að eignasf þak
yfir höfuðið eða eitthvað slíkt, á sama tíma og
braskarar og milliliðir, græða óðum og byggja
glæsilegar hallir.
□ ísland er ríkt land, og auðlindir þess eru
miklar. Það á skilið miklu betra þjóðskipulag en
það býr nú við. Og þjóðfélag framtíðarinnar er
þjóðfélag sósíalismans.
□ Sósíalismi þýðir afnám þjóðfélags einka-
gróðans. í staðinn kemur þjóðfélag samhjálpar
og samvirkni. Alla heildsölu á að taka úr höndum
einkaaðila. Stórfyrirtæki eiga að vera í höndum
ríkisins eða þeirra sem við þau vinna. Stjóm fyr-
irtækja á sem mest að vera í höndum þeirra, sem
vinna við þau. Slíkt stuðlar bæði að auknu lýð-
ræði og kemur í veg fyrir, að forstöðumenn fyrir-
tækjanna misnoti aðs'töðu sína.
□ Brask með húsnæði á að banna, og útvegun
húsnæðis á að vera eins mikil þjóðfélágsleg skyldá
og útvegun vatns og rafmagns. Samstillt þjóðfé-
lag, sem skipuleggur með áætlunum hvar skyn-
samlegast er að verja fjármunum þjóðarinnar
hverju sinni, á að koma í staðinn fyrir núverandi
stjórnleysi. Alla gróðastarfsemi á skemmtana- og
tómstundalífi æskunnar á að banna.
□ Allt þetta, og raunar miklu fleira, er sós-
íalismi. Á þessari nýju æskulýðssíðu, Æskan og
sósíalisminn, verða þessi raunverulegu vandamál
æskunnar betur rædd. Það er ekki hlutverk ís-
lenzkrar æsku að aðlagast spilltu hióðfélagi held-
nr að breyta þjóðfélaginu sér í hag. — G.
J
i
«
I