Þjóðviljinn - 02.07.1964, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 02.07.1964, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 2. júlí 1964 HÓÐVILIINN SlÐA g Breiðablik og Eyjamenn 17- iúní-mót ó Blönduósi Á laugardaginn kepptu Vest- mannaeyingar og FH í 2. deild Islandsmótsins í knattspyrnu. IBV sigraði — .3:1. Leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum. Eyjamenn hafa þar með unmð alla leiki sína í mótinu til þessa. Á sunnudaginn kepptu Hauk- ar og Breiðablik í 2. deild, og fór leikurinn fram í Hafnar- firði. Breiðablik vann — 2:0; í Norðurlandsflokknum í 2. deild áttu Siglfirðingar og Is- firðingar að keppa á Isafirði. Ekkert varð úr leiknum á sunnudaginn. vegna þess að vallaraðstæður eru ófullnægj- andi á Isafirði. /J \ Eftir sigurinn yfir norska liðinu gerðu íslenzku valkyrjurnar sér lítið fyrir og þrifu Pétur þjálfara sinn á loft, og toller- uðu hann við mikinn fögnuð. — (Myndirnar tók Bj. Bjamleifsson). Ungmennasamband Austur- Húnvetninga sá um hátíðahöld 17. júní að Blönduósi. Páll S. Pálsson, hæstaréttarlögmaður, flutti hátíðarræðu, karlakór söng og keppt var ; íþróttum. Framkvæmdastj. UMFÍ flutti þar ávarp og las kvæði. Ný- kjörin formaður sambandsins er Kristófer Kristjánsson. Fjöl- menni var á hátíðinni og fór hún hið bezta fram. ' (Frá UMFÍ). Met Vlasofs Sovézki Iyftingakappinn sannaði ágæti sitt enn einu sinni á Evrópumeistaramót- inu í lyftingum í Moskvu um siðustu helgi. Hann varð meistari i þungavigt með 562,5 kg i þríþraut. Hann náði 19(1 kg. x pressu, 165 í snörun og 207,5 í jafnhend- ingu. Árangur Vlasovs í þrí- þraut er nýtt heimsmet, en landi hans, Zabotinski, átti eldra metið — 560 kg. Vikt- or Kurentsov (Sovét) setti heimsmet í millivigt — 445 kg I þríþraut (140 — 130 — 175). 19,77 m. í kúluvarpi í USA Sigurgleðin á Laugardalsvelli DNorsku stúlkurnar unnu hug og hjarta áhorfenda með geð- þekkri framkomu á Norðurlandamótinu. Þær sýndu að þær kunna jafnt að taka sigri sem ósigri. Myndin er tekin þegar Ieik Islands og Noregs er lokið. Þær norsku voni fyrstar til að óska íslenzka liðinu til hamingju með sigurinn, og það voru ekkert kuldalegar hcillaóskir. CV\ Sænsku landsliðsstúlkurnar fylgdust með leiknum Noregur- Danmörk af engu minni áhuga en aðrir, enda varð ekkl séð hver hlyti meistaratignina fyrr en í þessum síðasta leik móts- ips. Það er. fylgzt xpeð, athurðum af lífi og sál. Q \ Það var létt yfir norsku stúlkunum eftir yfirburðasigur yfir J' danska Iandsliðinu. Þær dönsuðu út af vellinum við ein- hver mestu fagnaðarlæti sem heyrzt hafa á Laugardalsvellinum. Heyndar voru þær í þessu sama sólskinsskapi allan Ieikinn við Dani og hjálpaði það áreiðanlega til við að auðvelda þeim sigur- inn. 19 ÁRA PILTUR SIGRADI LONG Góður árangur náðist í mörgnm greinum á stóru frjálsíþróttamóti í NEW BRUNSWIK í Bandaríkjunum síðustu helgi. í kúluvarpi sigr- aði Jandy Matson, sem er aðeins 19 ára, og varpaði 19,77 m. Annar varð heimsmethafinn Dallas Long með 19,31 metra. Bob Hayes náði ..aðeins” 10.3 sek. í 100 m, hlaupi, og þykir það fremur lélegt af bezta manni Bandaríkjanna, sem keppa á i Tokíó í haust. I langstökki sannaði Ralph Boston enn að hann er lík'eg- ur til að skjóta öllum öðrum DALLAS LONG varð að láta í minni pokann. aftur fyrir sig. Hann stökk 8,11 metra. Annar varð Charles Mayes — 7.97 m. og þriðji Darrel Horn — 7,95 m. Hayes Jones, sem varð þriðji í 110 m grindahlaupi á OL i Framhald á 9. síðu. FERÐIR VIKULEGh TIL ■» v SKANDINAViU Z//t//e/œi/' Js/07/assrfi _ íCELANJDAIR KR OG FRAM SKILDU JÖFN EFTIR FRAMLENGDAN LEIK Á mánudagskvöldið fór fram úrslitaleikurinn í Reykjavíkurmótinu, sem ekki varð lokið í maí, en Fram og KR urðu jöfn að stigum. Ekki náð- ust heldur úrslit í þessum leik. Félögin verðti að leiða saman hesta sína enn einu sinni, en hve- nær er ekki gott að segja, því mjög er ásett hvað leikdaga snertir hér í borg. Þetta var ákaflega spennandi leikur, og ’i honum barátta og óvenjulega mörg spennandi augnablik, en ekki fór mikið fyrir knattspyrnunni sem lið- in sýndu. I fyrri hálfleik var það þó heldur meira sem Fram sýndi knattspyrnu úti á vellinum, en unp við markið voru KR-mgar aftur á rnóti mun hættulegri. enda fór það svo að fyrri hálíleikur endaði markalaus I síðari hálfleik léku KR- ingar undan vindi og sóttu beir oft með ákafa. en bað var eins og beir gætu ekki skorað Þn tókst E'lert fi-áð skora eft r 10 mfnntur með laglegu skoti sem Geir var nærri búinn að verja, og hefði átt að takast það en völlur og knöttur voru blautir svo aðstaða var ekki sem bezt. Fram tekst að jafna á 30. mín- útu. og var það Baldur sem fyrir harðfylgi' sitt og hraða komst innfyrir og skaut þrumuskoti af nokkru færi. Geir vérður hvað eftir ann- að að fórna sér í svaðið og bjarga, og þegar 5 mínútur eru eftir verður hann fyrir smámeiðsli og verður að yfir- gefa völl nn. en i hans stað kemur Hallkell Þorkelsson. Eftir 90 mínútur eru lið- in iöfn 1:1. svo bað verður að t’ramlengia í 2x15 minútur. Seint í fyrri hálfleik tekst Þorgeir T. úðvíkssvni að skora úr föstu skoti af löngu færi út við stöng. KR-:ngar sækja, og nú er það Hallkell sem bjargar hvað eftir annað með ágætum. eins og Geir gerði áður, og ver ótrúlega. Það lít- ur út fyrir að Fram ætli að halda þessu, þótt óneitanlega hafi óheppnin elt KR-inga að þessu s nni meira og minna allan leikinn. Hálfleikurinn fyrri líður, og ekki er spenn- an minni í hinum síðari 15 mi'nútum. því oft eru KR- ingar nærgöngulir, en það sem vörn Fram ekki bjargar, og þá sérstaklega Sigurður Frið- riksson. það tekur Hallkell, Það eru liðnar 14 mín og það eru aðeins" 16 sek. eftir, en bá er það að KR- ngar eru bétt við mark Fram og knölt- Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.