Þjóðviljinn - 02.07.1964, Side 12
Dagsbrúnarfundur samþykkti h|flfjy|
nýju samningana í gærkvöld
með öllum greiddum atkvœðum gegn fimmtán
Fimmtudagur 2. júlí 1964 — 29. árgangur — 145. tölublað.
Verkamannafélagið Dagsbrún hélt fund í
gærkvöld til að ræða samninga þá sem full-
trúar félagsins höfðu gert við atvinnurekend-
með fyrirvara um að félagsfundur sam-
ur
þykkti þá.
Eðvarð Sigurðsson formaöur
Dagsbrúnar flutti framsögu um
samningana, þar sem hann rakti
aðdraganda samninganna og út-
skýrði þá skilmerkilega, en þar
sem skýrt er frá samningunum á
öðrum stað í blaðinu verður það
ekki endurtekið hér.
Eðvarð kvað langt frá að hann
væri ánægður með samningana,
en þeir stefndu í rétta átt, og
veigamesta atriðið væri verð-
trygging kaupsins. Kaupið hækk-
aði ekki nú, en þjóðartekjurnar
hefðu vaxið ár frá ári, og væri
óhugsandi að verkamenn sættu
sig við það eftirleiðis að þeir
fcngju ekki hlutdeild í auknum
þjóðartekjum með hækkuðu
kaupi. Þá kvað hann alltof
skammt gengið með styttingu
vinnudagsins.
Af okkar hálfu eru þessir
samningar tilraun, sagði hann.
Hún tekst því aðcins að at-
vinnurekendur og stjórnarvöld
noti þann tíma sem þeir hafa,
eitt ár, til að búa í haginn
fyrir sig til að mæta þeim
kröfum sem við hljótum að
gera að ári.
Næstur talaði Halldór Briem,
þá Nikulás Þórðarson, er taldi
samningana óviðunandi. Sigurjón
Bjamason lauk miklu lofsorði á
samningana og forustumenn t
Dagsbrúnar. Þá talaði Kristvin | rúmlega
Kristvinsson um vinnuþrældóm- son
70 þús. mál komin
tíl Neskaupstaðar
NESKAUPSTAÐ 1/7 — Ágæt veiði hefur verið hér fyrir
austan í gær og í dag og miklu landað hér í Neskaupstað.
Frá því í fyrrinótt hefur verið landað 11 þúsund mólurn
af' eftirtöldum 17 bátum.
Húni II. 500, Skagaröst ,700
í þrem löndunum, Sif 500, Rán
SU 450, Sólfari 1100, Gullfaxi
450, Ársæll Sigurðsson II. 650,
Vigri 1100, Björg 250, Kópur
500, Jón á Stapa 500, Hafrún
NK 300, Rifsnes 700, Stapafell
350, Þorbjörn II. GK 1100, Þórs-
nes 800.
Kl. 18 í dag höfðu 11 bátar
boðað komu sína hingað með
5 þús. mál, Páll Páls-
800, Sunnutindur SU
inn og lagði til að banna næt- Þorkell Ingimundarson
urvinnu og eftirvinnu við höfn- 0f>0’ Þrainn NK 900, Hafrun NK
ma. Kristvin kvaðst mjög ó-
ánægður með margt í samning-
unum. en samt myndi hann
greiða þeim atkvæði.
Eðvarð Sigxirðsson tók næst til
máls, svaraði fyrirspurnum
fundarmanna og útskýrði enn
Framhald á 9. síðu.
Hertoginn af Edinborg
er farinn norður
■ í gærmorgun hélt Filippus hertogi af Edinborg til
Þingvalla með föruneyti sínu og fór þaðan eftir skamma
viðdvöl upp í Borgarfjörð þar sem hann renndi fyrir
lax í Norðurá. Úr Borgarfirði flaug hann síðan til Akur-
eyrar þar sem hátíðleg móttaka fór fram í Lystigarðin-
um en í gærkvöld flaug hann svo til Mývatns þar sem
hann gistir í nótt.
Dr. Kristján Eldjárn þjóð-^
minjavörður var leiðsögumaður
hertogans af Edinborg á Þing-
völlum í rigningu og þoku í
gærmorgun. Þrátt fyrir kulda-
legt veður virtist hertoginn á-
nægður með ferðina. Spurði
hann margs, einkum um áhuga-
mál sín, útilíf og veiði. og hug-
leiddi hvar á Þingvöllum Al-
þingi hefði setið til foma. Eft-
ir morgunkaffi í Valhöll var
haldið á Uxahryggi til Norður-
ár, þar sem Stangaveiðifélagið
bauð í lax.
Varð undir vegg
Um níuleytið í gærkvöldi varð
það slys við hús númer 26 við
Ránargötu, að maður varð und-
ir steinvegg sem verið var að
brjóta niður. Maðurinn, sem
heitir Steindór Sigurðsson til
heimilis að Vesturgötu 6 mun
hafa fótbrotnað og skrámast á
höfði. Hann var fluttur á Slysa-
varðstofuna og síðan á Lands-
spítalann.
Tvær fiugvéiar Norðurfiugs
veðurtepptar á Grænlandi
Tryggvi Helgason flugmaðllr
á Akureyri, skýrði blaðinu frá
því í gær að tvær flugvélar sem
„Norðurflug” keypti í Banda-
ríkjunum á síðastliðnum vetri
séu aðeins komnar til Græn-
lands. en þar sitja þær veður-
tepptar. Flugvélar þessar eru af
gerðinni Beechraft C-45 svo-
nefndar Twin Beech, taka 9 farí
þega og hafa 8 klst. flugþol.
Norðurflug heldur ekki uppi
reglufbundnu áætlunarflugi, og
sagði Tryggvi, að alla starfsemi
þyrfti að byggja upp smátt og
smátt eftir því sem þörf og
reynsla leiddu í ljós. Flugkost-
ur félagsins er nú 3 vélar og
gengur reksturinn bráðvel. Það
annast flugkennslu. sjúkraflug
og leiguflug í allar áttir. I fyrra-
dag komu t.d. vélar þess á
Húsavík, Egilsstaði. Vopnafjörð,
Siglufjörð. I dag verður flogið
til Grímseyjar o.s.frv.
Ótalinn er þáttur Tryggva í
síldarleitinni, en hann hefur
leitað síldar úr lofti undanfarin
sumur með ágætum árangri, þó
sjaldan heyrist þess getið á op-
inberum vettvangi og aðrir tí-
undi hverja bröndu. Síðast I
fyrradag fundu þeir t.d. 20—30
torfur og var ekkert skip nær-
statt. Þau komu þó fljótt á vett-
vang og tóku til við uppgripin.
650, Guðmundur Þórðarson 1400,
Heiðrún ÍS 750, Björg NK 750,
Gunnhildur ÍS 560, Máni GK
700, Mummi K5 750.
Síldarverksmiðjan hér hefur
brætt rúmlega 50 þúsund mál
en landað hefur verið rúmlega
70 þúsund málum. Fitumagnið
hefur að jafnaði mælzt um 20
prósent undanfama daga.
Söltun er ekki hafin hér í
Neskaupstað, bæði er að stöðv-
arnar hafa ekki verið tilbúnar
og síldin misjöfn. Nú er von á
skipi með tunnur, salt og olíu
og fer vinnuaflið í afgreiðslu I lögu að samþykkt um
þess en líklega hefst svo söltun Reykjavíkurborgar og
Hér eru í sumar starfræktar
5 söltunarstöðvar, Ás, Drifa,
Máni, Nýpa og Sæsilfur. Nýpa
er ný af nálinni og standa að
henni hugvitsamir rafveitustjór-
ar úr mörgum landsfjórðungum
en forstöðu veitir reyndur sölt-
unarmaður úr Norðurlandi, Þór-
ir Konráðsson að nafni. Munu
þar vinna um 25 stúlkur. Hjá
hinum stöðvunum vinna að jafn-
aði 40—5rt stúlkur. Ein stöðin,
Máni, hefur komið hér upp
flokkunarvél og væntir sér
mikils af þeirri nýbreytni.
hjá flestum
næstu helgi.
Lokunartím-
inn til umrœðu
Meðal .mála sem rædd verða
á fundi borgarstjómar Reykja-
víkur í dag er afgreiðslutími
verzlana í borginni. Einnig er á
dagskrá fundarins tillaga Öddu
Báru Sigfúsdóttur, borgarfuil-
trúa Alþýðubandalagsins, um
námskeið fyrir kennara afbrigði-
legra bama, 2. umræða um til-
stjóm
um-
stöðvunum um I ræða um tillögu að Samþykkt
um búfjárhald í Reykjavík.
Ákveðin er smíði dráttar-
brautar í Hafnarfirði
Á fundi bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar í fyrradag var samþykkt
eftirfarandi tillaga sem hafnar-
nefnd hafði sent bæjarstjóm:
„Með tilliti til þeirra athug-
ana sem fram hafa farið um
byggingu dráttarbrautar á veg-
um hafnarnefndar samþykkir
hún að Ieggja til við bæjar-
stjórn, að nú þegar verði hafizt
handa um undirbúning að bygg-
ingu dráttarbrautar á vegum
hafnarsjóðs í Hafnarfjarðarhöfn.
Um stærð og staðarval innan
hafnarinnar vcrði haft samráð
við vitamálastjóra og skipulags-
yfirvöld. Jafnframt samþykki
bæjarstjóm að fela hafnarstjóra
að Ieita eftir fyrirgreiðslu rík-
isstjórnarinnar vegna fjárút-
vegunar í þessu skyni. Ennfrem-
ur veröi hafnarstjóra falið að
athuga um á hvern hátt rekstr-
arfyrirkomulagi dráttarbrautar-
innar yrði háttað i framtíðinni.”
Langt er síðan fyrst var rætt
um smíði dráttarbrautar í Hafn-
arfirði, en málið er komið á
þennan rekspöl nú fyrir frum-
kvæði Félags íslenzkra dráttar-
brautaeigenda undir forystu
Bjarna Einarssonar skipasmiðs í
Njarðvíkum, sem að undanfömu
hefur átt viðræður við Pólverja
um smíði á dráttarbrautum og
skipasmíðastöðvum fyrir stál-
skip, eins og Þjóðviljinn skýrði
frá s.l. laugardag. Hér er um
að ræða dráttarbraut er tæki
upp allt að 500 tonna skip, og
hafa pólskir verkfræðingar og
innlent verkfræðifirma talið, að
dráttarbrautin yrði bezt staðsett
í suðurhöfninni fyrir neðan
Hvaleyrarbraut. Kostnaðarverð
er lauslega áætlað um 20’Á milj.
kr., og fellur slik dráttarbraut
undir lög um hafnarmannvirki,
svo að ríkissjóði ber að greiða
2/5 hluta byggingarkostnaðar.
Við afgreiðslu málsins í bæjar-
stjóm lýsti fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, Kristján Andrés-
son, yfir fylgi sínu við fyrr-
greinda tillögu að undantekinni
síðustu málsgrein og bar fram
breytingartillögu um það að hún
félli niður, en í hennar stað
kæmi: „Rekstur dráttarbrautar-
innar falli undir starf hafnar-
stjóra”. Breytingartillaga þessi
var felld með 8 atkvæðum og
Framhald á 3. síð-u.
Framkvæmdir hafnar við að
byggja ofan á ÞjáðvHjahúsið
■ Fyrir nokkru hófust framkvæmdir við að
rífa risið af húsi Þjóðviljans að Skólavörðustíg
19 og byggja inndregna hæð ofan á það í sfað-
inn en við það fæst mikið aukið húsrými fyrir
starfsemi blaðsins.
Teikningin sýnir húsið að
framkv. loknum. Á götuhæð
er afgreiðsla blaðsins, prent-
vél. blýsteypa og niðurgraí-
in pappírsgeymsla. Á annarri
hæð eru setjaravélar og um-
brotssalur, þar er einnig
kaffisalur og snyrtiherbergi
fyrir allt starfslið blaðsins. A
þriðju og fjórðu hæð verða
skrifstofur ritstjóra og blaða-
manna, prentmyndagerð,
vinnustofa ljósmyndara, aug-
lýsingaskrifstofa og skrifstof-
ur gjaldkera og framkvæmda-
stjóra.
Enn eru eftir fjárfrekar
framkvæmdir til að fúllgera
þær breytingar á húsinu sem
með þarf til að vinnuaðstæð-
ur verði þar viðunandi og
rekstur blaðsins geti komizt
í eðlilegt horf. Allir lesendur
Þjóðviljans eru minntir á að
þessi framkvæmd stendur og
fellur með Happdrætti Þjóð-
viljans, sem dregið verður i
eftir nokkra daga. Þvi aðeins
verður hægt að koma þessu
í framkvæmd að allir leggist
á eitt með að selja sem flesta
miða í happdættinu.
Útlit hússins aft loknum framkvæmdum,
t
t
i