Þjóðviljinn - 22.07.1964, Page 3

Þjóðviljinn - 22.07.1964, Page 3
MJðvfltudagur 33. JÖÖ 1964 HðomnnN sj « i 3 ÍNN L06AR AUTI OCIRBUM A MILU SVBRTINCJA 06 LÖ6RC6LU I HARLíM Ruddaskap lögreglunnar mótmœlt fyrir framan aðalbœkistöðvar SÞ í New York NEW YORK 21/7 — Enn er mikil ólga, í Harlem, hverfi blökkumanna á Manhattan í New York, og urðu þar aftur óeirðir í nótt, en þó ekki jafn blóðugar og tvær undanfamar nætur. Fjölmennt lið vopnaðrar lögreglu er á verði í hverfinu daga og nætur og allir lögteglumenn stórborgarinnar eru við því búnir að verða kvaddir á vettvang ef á þeim þarf að halda. Johnson forseti hefur farið hörðum orðum um óeirðirnar og fyrirskipað sambandslögreglunni FBI að hefja rannsókn á upptökum þeirra. í gær safnaðisf fjölmenni hvítra og þeldökkra manna fyrir framan aðalstöðvar SÞ í New York til að mótmæla ofbeldi lögreglunnar. <*>■ 1 orðsendingu sem send var frá Hvíta húsinu í Washington í dag segir að það verði að gera öllum ljóst í eitt skipti fyrir öll að engum verði látið haldast uppi að beita. ofbeldi og lagabrotum. Yfirmanni FBI. J. Edgar Hoov- er, hefði verið falið að tilkynna Rockefeller fylkisstjóra og Mirrphy lögreglustjóra í New York borg að sambandslögregl- an mypdi framkvæma gagngera rannsókn til að komast að því hvort nokkur alríkislög hefðu verið brotin. Wagner fer heim Borgarstjórinn í New York, Robert Wagner, hefur verið í orlofsferð í Evrópu, en er nú lagður af stað heim vegna hins viðsjárverða ástands í borginni. J<jhnson forseti bauð staðgengli hans ftlla þá aðstoð sem hann kynni að óska eftir af hálfu sambandsstjómarinnar. Sú að- stoð gaeti einnig verið fólgin í ráðstöfunum til að bæta hin hörmulegu lífsskilyrði í Harlem sem valdi örvinglan og óreiðu. Ekki var hægt að ráða það af orðsendingu Johnsons hvort borgaryfirvöldin hefðu farið fram á nokkra aðstoð. Hins vegar tók blaðafulltrúi forsetans fram að ekki hefði enn komið til mála að senda sveitir úr sambandshern/jm til borgarinnar. Það hefði heldur ekki verið rætt að sambands- stjómin tæki sjálf við ráðum' yfir lögreglunni í New York. Ofbeldi mótmælt Nokkur hundruð hvítra manna og þeldökkra manna söfnuðust í gærkvöld saman fyrir framan aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York til að mótmœla ofbeldi og ruddaskap lögr^gl- unnar sem óspart hefur beitt skotvopnum sínum 1 átökunum við óvopnað fólk í Harlem, en hún hefur skotið tvo menn til bana, og var annar 15 ára gam- all piltur. Viðræður hafnar Ein ástæða þess að nokkuð hefur dregið úr óeirðunum síð- asta sólarhring er sú að hafn- ar eru viðræður milli vara- borgarstjórans, Paul Screvane, og leiðtoga blökkumanna. Ekk- ert hefur þó enn frétzt af árangri þeirra viðræðna. Formaður mannréttindasam- takanna CORE. James Farmer, sakaði í gær lögreglu borgar- innar fyrir að hafa beitt skot- vopnum sínum að óþörfu. Hann kvaðst hafa farið þess á leit við Rockefeller fylkisstjóra að hann athugaði hvort ekki væri rétt að kallfl þjóðvarnarlið fylkisins til vopna og láta það taka við löggæzlu í Harlem af lögreglunni. í átökunum í nótt beitti lög- reglan enn byssum sínum, en hæfði þó engan í það skipti. Þetta gerðist á einni aðalgöt- unni í Harlem þar sem um þúsund manns höfðu safhazl saman. Screvane varaborgarstjóri sagði í nótt að mál lögreglu- mannsins, Gilligans, sem skaut blökkupiltinn PoweH til bana yrði rannsakað og höfðað mál gegn honum ef í ljós kæmi að hann hefði skotið piltinn að ó- sekju. Gilligan heldur því fram að pilturinn hafi haft hníf á lofti, en margir liónarvottar rengja þann framburð. Hætta á hörðum átökum á Kýpur Eldflaugar Framhald af 12. síðu. sögunni. hvort þær ráðstafan- ir voru gerðar einvörðungu í embættisnafni, eða í þágu al- mannavama, en sýslumaður er í nefnd þeirri, sem ásamt forstöðumanni almannavama og yfirmanni Landhelgisgæzl- unnar gæta á aUs öryggis vegna geimskots Frakkanna. En þetta bann var þó afnum- ið um helgina. enda létu þeir frönsku sér það í léttu rúmi liggja. Þeir sóttu skemmtanir út fyrir sýslumörkin. Eln það var annað verra, þegar sýslu- maður 'tók af þeim rau.ðvinið. Það þótti þeim skratti harka- legar aðgerðir af yfirvaldsins hálfu. — sem vill. NHKOSÍU 21/7 — Öfriðvættlegt er nú á Kýpur og virðast all- ar horfur á að brátt muni fyrir alvöru skerast í odda milli þjóð- arbrotanna og hersveita þeirra sem fengið hafa liðsstyrk eg hergögn bæði frá Tyrklandi og Grikklandi. Yfirmaður gæzluliðs SÞ á eynni sendi í gær Ú Þant fram- kvæmdastjóra skeyti og sagði honum að ástandið væri nú orð- ið mjög ískyggilegt. Skeytið sendi hann eftir að hafa farið í könnunarferð um eyna. Bæði Tyrkir og Grikkir hafa að undanfömu flutt hermenn og hergögn til eyjarinnar og hafa vamað gæzluliði SÞ að- göngu að þeim stöðum á strönd- inni þar sem skip þeirra leggja að landi. Papandreú, forsætisráðherra Grikklands, kom í dag til Lomd- on að ræða við brezku stjóra- ina. Douglas-Home forsætisráð- herra lagði enn að honum að stöðva liðssendingar til Kýpur, en Papandreú vísaði þeim til- mælum á bug. Flugvél búin til sprengju- árásar á Kúbu stöivuS í USA Raúl Castro segir að Kúbumenn muni ekki láta USA ögra sér til óhappaverka, ítrekar samningatilboð WASHINGTON og HAVANA 21/7 — Bandarískir toll- gæzlumenn stöðvuðu í dag flugvél skömmu áður en hún færi á loft, hlaðin fjórum sprengjum, sem kúbanskir út- lagar ætluðu að varpa á Kúbu. Þeir gengust við því að þetta hefði verið ætlun þeirra, en voru þó ekki teknir höndum. Það voru sömu útlagasamtökin sem stóðu fyrir hinni misheppn- uðu sprengjuárás og þeim árás- um sem undanfarið hafa verið gerðar á Kúbu af sjó. Leiðtog- ar þeirra hörmuðu afskipti bandarísku tollgæzlunnar og sögðu að ætlunin hefði verið að gera sprengjuárásina samtímis þvi og ráðherrar Ameríkuríkj- anna koma saman á fund í Washington til að ræða kröfur um refsiaðgerðir gegn Kúbu- stjóm. Varast óhappaverk Raúl Castro, varaforsætisráð- herra Kúbu, sagði í ræðu í gær- kvöld að Bandaríkjamenn og leppar þeirra væru nú að magna ögrunaraðgerðir sínar gegn Kútra í þeirri von að Kúbumenn end- urgyldu þær. Þeir myndu hins- vegar forðast öll óhappaverk sem Bandaríkin gætu notað sem tilefni til frekari árása á Kúbu. Sem dæmi um ögranir Banda- rikjamanna nefndi hann kúb- anska hermarminn sem skotinn var til bana við mörk flota- stöðvar Bandaríkjanna í Guanta- namo. — Ráðamenn í Washington vildu gjaman fá smástríð svona rétt fyrir kosningar. sagði Raúl Castro, en Kúbumenn munu ekki láta egna sig til þess. Hann ítrek- aði tilboð Fidels Castros í blaða- viðtali nýlega til Bandaríkja- stjómar um samningaviðræður til að jafna ágreininginn milli landanna. Ráðherrafundur hafinn Utanrí'kisráðherrar Bandalags Ameríkuríkjanna komu saman í Washington í dag og munu sitja á rökstólum í fjóra daga. Til fundarins er boðað til að „fjalla koma í veg fyrir árásir og und- irróðursstarfsemi Kúbumanna i Vesturálfu". Fundarstjóri var kosinn ut- anríkisráðherra Brasilíu og var að sögn gert til málamiðlunar. Enda þótt rakin afturhaldsstjóm sitji nú að völdum i Brasilíu hefur hún ekki viljað ganga jafn langt í refsiaðgerðum gegn Kúbu og stjóm Venezúela t.d. sem hefur krafizt þess að ríki róm- önsku Ameríku hætti öllum við- skiptum við Kúbu og baimi ailar um ráðstafanir í því skyni að samgöngur við hana. Aftur í gær gerSur aSsúgur aS sendiráSi Frakklands í Saigon SAIGON 21/7 — Enn í dag héldu áfram uppþot í Saigon, höfuðborg Suður-Vietnams, sem beint var gegn Frökkum og var aftur gerður aðsúgur að sendiráði þeirra í borginni. Um 200 manna hópur ruddist inn í bygginguna, braut allt og bramlaði og kveikti í bíl eins starfsmannsins. Lögreglumenn stóðu á verði um bygginguna, enda hafa slík- ar árásir verið gerðar á sendi- Bandaríki Afríku eiga langt í land KAlRÖ 21’/7 — Fundur stjóm- arleiðtoga Afríkuríkja hefur hafnað tillögu Nkrumah, forseta Ghana, um að undinn yrði bráð- ur bugur að því að stofna Banda- ríki Afríku, og virðist augljóst af undirtektum fundarmanna að það á enn langt í land að sú hugmynd verði að veruleika. Hins vegar féllst fundurinn áað skipa nefnd til að athuga með og lái þeim hver j hverjum hætti bezt væri hægt I að miða í þessa átt. ráðið hvað eftir annað undan famar vikur. Það var þó augljóst að lögregl- an hafði fyrirmæli um að veita múgnum enga mótspymu. enda lét hún undan síga þegar hann nálgaðist. Þetta gerðist um fjög- urleytið í morgun eftir staðar- tíma og var enginn starfsmaður þá staddur í byggingunni. Enginn vafi er á að uppþotin síðustu daga eru runnin undan rifjum stjómarvaldanna sem á þennan hátt vilja hefna sín á Frökkum fyrir þá afstöðu de Gaulle foreeta að semja beri frið í Vietnam og gera landið hlut- iaust. Leppur Bandaríkjamanna, Khanh herehöfðingi, hefur farið háðulegum orðum um de Gaulle og tillögur hans. Um helgina var að tilhkttan stjómarvaldanna efnt til úti- funda í Saigon til að minnast Genfareamningsins um frið í Indókína sem undirritaður var fyrir tíu árum. Var þá m. a. brotið minnismerki um fallna franska hermenn og brúður í líki de Gaulle og Ho Chi Minh, forseta Norður-Vietnams, hengd- ar upp í ljósastaura. Varsjá Framhald af 1. síðu. hann stafa af þjóðemisr.embingi. Þessi ágreiningur væri alvarleg- ur, en vonir stæðu til að sigr- ast mætti á honum. — Það er verkefni sósíalistaflokkanna að segja fyrir um hvorn veginn við skulum fara, leið þjóðemis- rembings eða alþjóðahyggju. Hinir tveir erlendu flokksfor- ingjamir sem boðið var til Varsjár, Antonin Novotny, for- seti Tékkóslóvakíu, og Walter Ulbricht. forseti Austu r-Þýzka- lands, fluttu einnig stutt ávörp á hátíðarfundinum. ÍST0R0 H.F. AUGL ÝSIR Bækur um vísindi og tækni á ensku: Laktionov: Nordpolen (á sænsku) S. Rumyantsen: Industrial Radiology Kr. 85,25 M. Nesturkh: The Races of Mankind — 58,00 I. I. Plyusnin: Reclamative soil science — 119,00 V. Alexeyev: Quantitative analysis — 146,25 A. Trusov: An introducion to the theory of Evidence — 33,75 V. Dobrovolsky, K. Zablonsky, S. Mak, A Radchik, L. Erlikh: Machine Elements — 148,50 A. Riss: Y. Khodorovsky: Production of Ferroalloys — 80,00 L. Levinson: Fundamentals of engineering Mechanics — 101,00 A. S. Kompaneyets: Theoretical Physics — 254,50 V. V. Sushkov: Technical Thermodynamics — 96,25 A. Serebryakov, K. Yankovsky, M. Pleshkin: Mechanical Drawing — 94,25 L. Gutenmacher: Thinking Machines —• 32,75 B. Paton: Electric slag Welding — 107,50 D. Maslov, V. Danilevsky, V. Sasov: Engineering Manufacturing Processes — 130,75 Y. Lakhtin: Engineering Physical Metallurgy — 110,75 V. Kovan: Fundamentals of process Engineering — 156,75 I. Bomatsky, M. Kotrovsky, Y. Yargin: Open Hearth Practice — 102,50 S. Targ: Theoretical Mechanics (a short course) — 130,75 Perelman: Figures for Fun — 24,00 Perelman: Physics for Entertain- ment I. — II. — 113,75 A. Markin: Power Galore — 10,00 V. Lebedev: Antarctika — 26,75 A. Oparin, V. Fesenkov: The Universe — 33,50 S. Pikelner: Physics of interstellar Space __ 50,75 I. V. Meshchersky: Collection of Problems in Theoretical Mechanics — 85,00 L. Levinson: Fundamentals of Engineering Mechanics — 110,00 M. Kireyev and A. Kovarsky: Switchgear Installation (A Manual for Installers of all Switchgear and Pov/er Lines) — 125,00 4 S

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.