Þjóðviljinn - 02.12.1964, Side 5
SÍÐA 5
HÚÐVILIINN
Heimsfrægir badminton-
leikarar eru væntanlegir
□ Á morgun, fimmtudag, koma hingað til
landsins á vegum Tennis- og badmintonfélags
Reykjavíkur fjórir úr hópi beztu badmintonleik-
ara Dana, en Danir eru, svo sem kunnugt er,
langbeztu badmintonleikarar Evrópu, og eiga að
margra dómi jafnframt beztu badmintonleikara
í heimi, þótt Indónesar og aðrar malajaþjóðir
standi þeim nokkurn veginn á sporði.
Golfklúbbur Reykjavíkur
msnnist 30 ára afmælis
Miðvikudagur 2. desember 1964 —
Breikur skip-
verji ferst
í fyrradag vildi það slys til á
miðunum undan Austurlandi, að
unguir piltur 16 ára að aldri fest-
ist í spili brezks togara og lézt.
Ekki tókst Þjóðviljanum að fá
upplýsingar um þetta mál í gær
nema Geir Zoega - ræðismaður
upplýsti að honum hefði verið
falið að flytja lík piltsins til
heimahafnar.
Arekstur rétt
við Engidal
Allharður árekstur varð í
gærkvöldi á Hafnarfjarðarveg-
inum rétt fyrir sunnan Engi-
dal. Tvær fólksbifreiðir rák-
ust á, G-1764 og R-6975.
Fólkið sem í bifreiðunum
var slasaðist allt nokkuð, en
ekki alvarlega nema ein kona
í G-bílnum. Hún hlaut slæm
meiðsli á höfði, og fékk gler- j
brot í auga.
Mikil hálka var á veginum
og mun teljast orsök slyssins.
Háskélinn
Framhald af 1. síðu.
Háskólarektor drap því næst á
þær greinar sem nauðsynlegast
væri að taka upp. Taldi hann í
byrjun náttúrufræði, dýrafræði,
grasafræði og jarðfræði og væri
raunar „fjarri öllu lagi“ að ekki t
skuli þegar vera prófessorsem-
bætti í náttúrufræði við. gkólann. j
Hann taldi og heimspekisögu,
sem kenna bæri t.d. ásamt for-
spjallsvísindum, þá væri nauð-
syn að taka upp kennslu í rúss- ,
nesku, spænsku og ítölsku, eink- !
um væri rússneskan mikilvæg,
því að hún ryður sér slöðugt til
rúms á hinum ýmsu sviðum
menningarlífs.
Þessu næst kvað rektor nauð-
syri að setja á fót fornleifafræði-
deild í tengslum við þjóðminja- ^
safnið. Þá væri mikil vöntun á 1
kennslu í almennri þjóðfélags- j
fræði og stjórnvísindum, hið ,
sama væri að segja um hag- :
fræði. Þá mætti nefna húsagerð-
arlist og nú fyrir löngu hefði
átt að vera komin kennsla til
síðari hluta prófs i byggingar-
verkfræði og væri það nú orðið
mjög aðkallandi.
Þá fjallaði rektor nokkuð um
nauðsyn samvinnu milli atvinnu-
veganna og rannsóknarstofnana
Háskólans og lýsti þeirri skoðun
sinni að vísindalegar rannsókn-
arstofnanir ættu allar að heyra
undfr háskólann.
Að lokinni ræðu rektors lék
Páll fsólfsson tilbrigði við stef |
eftir Isólf Pálsson.
Hátíðina setti Ásmundur Ein-
arsson, fo:maður hátíðarnefndar
og kynnti dagskrárliði.
Framhald af 12. síðu.
meira vafamál, hvort mundi
gefa af beim raunsannari mynd.
líf þeirra eins og það yrði trú-
legast rakið frá degi til dags
eða eins og þjóðin sá það fyrir
sér í eigin örlagaspegli. Senni-
lega fer bezt á því, þegar saga
þeirra er sögð. að hvort tveggia
sé haft í huga, og örugglega
gætir slíkra’ sjónarmiða í þess-
um frásöguþáttum. Þeim var
einungis ætlað að skipa sögu-
persónum sínum á trúlegt svið
og bregða þar upp minnisverð-
um myndum úr lífi þeirra.”
nmj0ii6€Ú6
si&mnuaíöaK6cm
Minnin°arspjöld fást
í bókabúð Máls og menn-
ingar, Laugavegi 18.
Dönsku badmintonleikararn-
ir munu hafa hér badminton-
sýningu og innbyrðis keppni
n. k. föstudagskvöld kl. 8,30
og kl. 3 e.h. í íþróttahúsi Vals
Gefst öllum badmintonunnend-
um þá kostur á því að sjá
þadminton leikið eins og þaö
gerist bezt í heiminum.
Þeir, sem koma ei'u Erland
Kops, Henning Borch, Svend
Andersen og Torben Kops
(bróðir Ei'lands).
Erland Kops hefur verið tal-
inn bezti einliðaleikari f heim-
inum undanfarin ár. enda hef-
ir hann fimm sinnum unnið
All England-keppnina í ein-
liðaleik, en sú keppni er eiru
konar óopinber . heimsmeisi
arakeppni.
Henning Borch kom hing-v'
til lands fyxúr nokkrum árum
með félaga sínum Jörgen
Hammex’gaard-Hansen. Þeir
sýndu og kepptu hér á vegum
TBR, svo sem mörgum er í
fei'sku minni. Borch var þá
kornungur og talinn efnileg-
asti ungi badmintonleikari
Dana. Síðan hefur hann verið
í fremstu röð badmintonleik-
ara, verið fastur í landsliði
Dana og unnið mörg mót, en
m. a. sigraði hann bæði í ein-
liðaleik og tvíliðaleik í opnu
hollenzku leikjunum á þessu
ári, og voru þó margir góðir
danskir og malajiskir leik-
menn meðal þátttakenda.
Svend Andersen er upprenn-
andi stjarna á dönskum þad-
mintonhimni. Hann vann bæði
einliðaleik og tvíliðaleik á
dönsku unglingaleikjunum í
janúar í fyrra. Leikir hans og
Elo Hansen í úrslitum vöktu
gff,athygli. Á móti i
r’ ~'’öfn f október si.
■'arch og komst í
'aleik móti Er-
m tapaði þeim
5:15).
■Cobs er ungur og
tlegur leikmaður eins
og Svend Andersen og hefur
hann staðið sig mjög vel I
mótum.
Á föstudag og laugardag
gefst badmintonunnendum því
fágætt tækifæri til að sjá
þessa fögru íþrótt leikna af
fi'ábæi'um snillingum.
Fréttamönnum var í fyrradag
boðið á fund með stjórn Golí-
klúbbs Reykjavíkur í tilefni
30 ára afmælis hans en hann
var stofnaður 14. des. 1934.
Helztu hvatamenn að stofn-
uninni voru þeir Sveinn
Björnsson, þá sendiherra í
Kaupmannahöfn en síðar for-
seti Islands, og mun hann
fyi'stur Islendinga hafa leikið
golf, Gunnlaugur Einarsson
læknir og Valtýr Albertsson
læknir.
Undirbúningsstofnfund Golf-
klúbbs Islands sátu alls
l^ manns og úr þeim • hópi
sátu 2 fundinn með frétta-
mönnum í fyrrad. þeir Valtýr
Albei’tsson, læknir og Hall-
grímur Fr. Hallgrímsson, for-
stjóri.
Hinn raunverulegi stofnfund-
ur og fyrsti aðalfundur klúbbs-
ins var haldinn 14. desember
sama á og skipuðu eftirtaldir
fyrstu stjórnina: Gunnlaugur
Einarsson, læknir, formaður,
Helgi H. Eiríksson verkfræð-
ingur. varaformaður, Gunnar
Guðjónsson, skipamiðlari ritari,
Gotfred Bernhöft, stórkaxip-
maður, gjaldkeri. Valtýr Al-
bertsson læknir, Eyiólfur Jó-
hannsson, forstjóri og Guð-
mundur J. Hlíðdal, póst- og
sfmamálastjóri. Stofnendur
voru alls 57.
Félagsmenn í Golfklúbb
Reykjavíkur eru nú 225 og
skipa eftirtaldir menn stjóm
hans: Þorvaldur Ásgeirsson,
foi’maður, Tómas Árnason. hrl.
varaformaður Öttar Yngvason,
stud. jur. ritari. Gunnar Þor-
Framhald á 9. síðu.
ÓBROTGJARN MINNISVARÐI
Lokabindið
af sögu
Hannesar Hafsteins
eftir
Kristján Albertsson
er komið út
Ritverk Kristjáns Albertssonar
um Hannes Hafstein er tví-
mælalaust snjallasta og ítarleg-
asta bók, sem rituð hefur verið
um þetta skeið í stjórnmála-
sög'u íslendinga.
f lokabindinu er sagt frá persónu-
legum högum Hannesar Hafsteins;
á fyrri stjórnarárum; við lát konu
hans; á efri árum. Stjórnmálaátök
þessa tímabils eru viðburðarík og
hörð. Fjórir ráðherrar sitja að
völdum á timabilinu. — Hannes
Hafs'tein tvisvar.
Þetta er einn örðugasti timinn í
lífi Hannesar Hafsteins.
En virðing hans fer vaxandi. —
Þegar hann andast gerir ríkið út-
för hans og forvígismenn úr öll-
um stjórnmálaflokkum skora á ís-
lenzku h.ióðina að reisa honum
minnisvarða.
í lokabindinu er einnig við-
auki, nafnaskrá og heim-
ildaskrá fyrir öll þrjú bind-
in og loks eftirmáli. —
Bókina prýða margar
myndir.
ALMENNA BÓKÁFÉLÁGIÐ