Þjóðviljinn - 02.12.1964, Page 10
1Q SÍDA
ÞI6ÐVIUINN
Miðvikudagur 2. desember 1964
Jonathan
Goodman
GLÆPA
IGÐIR
— Ég vil síður þurfa að beita
valdi, herra minn.
— Hvað þá? Varstu eitthvað
að nefna vald? Komdu mér ekki
til að hlæja......
Hann rykkti sér frá afgreiðslu-
borðinu og lagði af stað til dyra.
Eitt skref var honum leyft að
taka. Hann fann hvernig snúið
var upp á handlegginn á honum
fyrir aftan bak, þangað til fing-
ur hans námu næstum við
hnakkann. Hann rak upp hljóð
sem breyttist í hálfgert kjökur
þegar tilkenningin breiddist út
um handlegg hans og hann fann
hvemg tognaði á sinunum.
Hann lét fallast á hnén.
— Tínið upp peningana yðar,
herra minn, sagði sama rólega,
dimma röddin.
— Farðu til ...,ó.... Hann
rykkti til höfðinu og sveigði
bakið um leið og hert var á
takinu. Kaffistofan gekk í bylgj-
um. Svörtu andlitin voru nú
aílt í kringum hann, þau Ijósu
gægðust yfir breiðar herðar; ó-
slitinn veggur starandi augna.
Röddin aftur, nær eyrunum á
honum í þetta sinn; heitur .and-
inn á vanga hans. Vil síður
meiða yður, herra Shakespeare.
Andlitin brostu .... hvítar
tennur, hvít augu .... vaxandi
hlátur.
— Ég kalla á lögregluna ....
tókst Bernard að kreista útúr
sér.
Meiri hlátur.
— Ég veit þér eruð hvítur
maður, herra minn, og ég vil
ógjaman deila við hvítan mann,
en þér sögðuð rétt áðan að þér
mynduð ekki þekkja mig aftur.
Þér eruð ekki iengi að snúa við
blaðinu.
Hláturinn var ærandi, höfuðin
vögguðu; hendur með Ijósum
lófum slógust saman og slegið
var á lær.
— Ég skal muna þig, niggara-
bastarður......
— Uss, þetta er nú ekki
fallegt. Ekki siðmenntað. Mætti
ég þá ekki kalla yður hvítan
bastarð? Takið hertist um hand-
legg hans, Segið vinum mínum
hvað þér eruð — þér eruð hvítur
bastarður, er það ekki herra
minn? Aftur var snúið upp á
handlegginn á honum. Er bað
ekki? Svona nú, segið okkur
hvað þér eruð. Við bíðum.-
Tárin runnu niður andlitið á
Bemard. Honum var óglatt, hann
var máttlaus og þreyttur. Hann
hefði helzt veljað deyja. Ég ....
ég er .... hvítur .... bastarð-
ur....
— Segið aftur svo að við heyr-
um það allir.
— Ég er hvftur bastarður....
hrópaði hann.
— Aftur.
HÁRGRFIPSLAN
Hárgreiðslu og snyrtistofu
STETNU og DÖDÓ Uaugavegi tf)
m hæð dvfta) SlMT 2 4616
P E R M A Carðsenda 21 —
STMT: 33 9 68 Hárgreiðslu og
snvrtistofa
D ö M U R I
Hárgreiðsla við allra hæfi —
TJARNARSTOFAN — Tiarnar
götu 10 — Vonarstrætismeg’n —
SIMT- 14 6 62
HARGREIÐSLUSTOFA AUST-
URBÆJAR — María Guðmunds-
dóttiT Laugavegj 13. — SlMI:
14 6 56 - NUDDSTOFAN ER A
SAMA STAÐ.
- — Hvítur bastarður ....
— Eins og maðurinn segir,
bara einu sinni enn — og allir
samtaka.
— Hvítur bastarður.....
Og allt í kringum hann opn-
uðust munnamir og orðin voru
hrópuð til hans aftur, urðu að
kór og fætur stöppuðu eftir
hljóðfallinu. Damm-damm-didi-
didi.... damm-damm-di-di-di-
di....
Hann áttaði sig á því að hann
var að slá sama taktinn með
fingrunum á stýrið. Hann
kreppti hnefana og lét þá síga.
Hann tautaði: Enginn kemst upp
10
með svona lagað við Bemard
án þess að finna fyrir því....
Ég var sviptur stoltinu þetta
kvöld. An stolts er maðurinn
ekki neitt, og ef maður er ekki
neitt, þá gæti hann eins verið
dauður. Ég er ekki vanur að
vera langrækinn, en í þetta
sinn gegnir öðru máli, allt öðru
máli. Stolt mitt er í veði. Hefnd,
fullkomin hefnd, það er það
sem ég vil. Og ekki að undra.
Ég verð að segja að ég hef
skipulagt þetta allt saman
býsna vel. Peningar í banka —
Jumbo f tugthúsið ......... tvær
flugur í einu höggi, það má nú
segja. Og fyrst við erum með
málshætti á annað borð, þá
gleymum því ekki að þolinmæð-
in þrautir vinnur allar. Þolin-
mæði er nokkuð sem ég á nóg
af. Og það er eins gott, býst ég
við, að haf a einn kost að minnsta
kosti innan um aTla þessa lesti.
Þetta er brandari, ef ykkur sýn-
ist svo.
Hann gaut augunum sem
snöggvast á úrið.
En hvað tíminn silast áfram
þegar verið er að bíða eftir ein-
hverju. En ég er búinn að bíða
svo lengi, að ég get hæglega beð-
ið nokkrar mínútur í viðbót án
þess að væta brækumar. Allir
þessir mánuðir í þaulhugsun, at-
hugun, skipulagningu .... Allar
þessar spumingar um Jumbo. Ég
veit meira um þig, Jumbo, en
þú veizt um þig sjálfur.... sem
er að vísu ekki sérlega erfitt,
því að þú ert eklci annað en ó-
upplýstur niggaradrjóli. Já,
reyndar. Það er fullkomin lýs-
ing á þér. Allan þennan tíma,
Jumbo, hefur þú verið að háma
í þig kaítafæðu og kartöflur,
án þess að vita að hönd dóms-
ins er á lofti, reidd til höggs.
Kanntu að lesa? Ekki vænti ég
að þú hafír séð grein í blaðinu
þínu fyrir nokkrum vikum?....
Crklippa úr West London
Courier: I
Furðulegt innbrot í Hammer- 1
smíth. —
„Athyglisverð vísbending fund-
in“, segir Iögregluþjónn.
Þjófar brutust inn f byggingu
Joseps Brandini og Co. (Grímu-
búningar og ti'lheyrandi) f King
stræti. Hammemmith, aðfaranótt
síðastliðins miðvikudags.
Blaðamaður okkar átti tal við
Emest Tompkins, deildarstjóra,
og skýrðí hann þannig frá: ,,Ég
kom á staðinn á miðvikudags-
morgni um bað bil tíu mínútur
fvrir níu. Mér brá í brún þegar
ég sá viðurstyggð evðileggingar-
innar. Lásinn á hliðardyrunum
hafði verið brotinn upp og þeg-
ar ég ýtti upp dyrunum blasti
éskapnaðurinn við. Kössum og
skúffum hafði verið hvolft við
og innihaldinu stráð útum allt
gólf. Ég hringdi samstundis í
lögregluna.
Gamall nágranni
Herra Tompkins, sem er ró-
legur og yfirlætislaus í ljósbláa
vinnusloppnum sínum, er gamall
nágranni. Hann sagði við full-
trúa okkar: Ég hef átt heima í
Hammersrnith hvavfinu síðan
ég var ' --’gur. Á þeim tíma
hef é' s margar og miklar
breyti” en aldrei á ævinni
hef ég séð aðra eins viður-
styggð og bar fyrir augu mér
á miðvikudagsmorgun. Það er
von mín að afbrotamenniirnir fái
verðskuldaða refsingu.
Athyglisverð staðreynd.
Það er ahyglisvert við þetta
rán, að eftir því sem næst verð-
ur komizt að svo stöddu, er ein-
skis saknað nema * tveggja
Ijótra gúmmígríma.
— Þær eru af spánnýrri gerð,
upplýsti herra Tompkins. For-
lega Ijótar. Við starfsfólkið
hlæjum oft að þeim. Við köll-
um þær Martraðargrímur okkar
í milli.
Skemmdaræði?
George Holmes lögreglufull-
trúi og William Fox lögreglu-
maður flýttu sér á staðinn, til
að rannsaka þetta afbrot sem
virtist framið í algeru tilgangs-
leysi. Holmes lögreglufulltrúi
sem starfað hefur í lögreglunni
um tíu ára skeið, sagði við blaða-
mann okkar: Það er rétt eins
og þarna hafi verið um skemmd-
aræði að ræða. Hvaða önnur á-
stæða gæti verið til þess að
brjótast inn í húsið til þess eins
að hverfa burt með tvær ógeðs-
legar gúmmígrímur.
Vísbending?
Hann hélt áfram: Rannsókn-
in er á byrjunarstigi, en eitt at-
hyglisvert ariði hefur komið í
Ijós. Það lítur út fyrir að einn
ræningjanna hafi haft í vinstri
jakkavasa sínum eintak af
LITARHÆTTI, tímariti sem gef-
ið 0r út fyrir hörundsdökkt fóTk
af öllum kynþáttum. Við brott-
förina virtist titilblað tímarits-
ins hafa festst í nagla og hTuti
af því hékk eftir á naglanum.
Ég er ekki að gefa í skyn að
þetta gefi vísbendingu um hör-
undslit eins af afbrotamönnun-
um, en þetta mun verða vand-
lega athugað. Holmes lögreglu-
fulltrúi fékkst ekki til að gefa
frekari upplýsingar.
Ég er viss um að þú vissir
ekkert um þetta, Jumbo. Öid-
ungis óvitandi um það, ha?..
er það ekki: Veiztu það, að ef
ég hataði þig ekki svona mikið,
þá myndi ég vorkenna þér. Svei
mér þá. Þessi nagli með bréf-
snifsinu á '-röur einn af nögl-
unum í 1 s ’ia þína. Bara einn
þeirra. Oe rtu nokkuð leikinn
í að lesa milli línanna, Jumbo?
Hefurðu nokkuirt vit á því?
Hefurðu nokkurt vit á neinu, ó-
upplýsti niggaradrjóli? Já, þetta
er ágætis lýsing á þér....... En
þú myndir ekki hafa vit á slíku,
Jumbo. Þú ert nefnilega þunn-
ur, karl minn. Hvernig þú tal-
aðir við mig í símanum í gær-
kvöld — þú vissier nefnilega ekki
að þú varst að tala við mig,
ha? — vissir ekki að þú varst
að tala við Hvíta bastarðinn í
eigin pertsónu ____ Ég varð að
halda á spöðunum til að vera
alvarlegur í rómnum. Þegar fyr-
irhafnarhljóð sem þú hefur
kannski heyrt, þau voru í mér
— blessaður gamli gamansami
Bernard — að reyna að stilla
sig um að hlæja........
— Kapitski kaffihúsið.
— Biðjið Jumbo að koma í
símann, ef þér viljið gera svo
vel?
VÖNDUB
’WI
Sfáwpárjómsm &co
" 4-
Píanóstillingar
OTTO RYEL
Sími 19354.
SKIPATRYGGINGAR
Tryggingar
ái vörum í fflutningl
á eigum skipverfa
Heimístryggíng hentar yður
Velðarffa
Afiatryggingar
TRYGGÍNGAFELAGIÐ HEIMIRr
tlNDARGATA 9 REYKJAVlK SlMI 21260 SlMNEENI s SURETY
BÓKASÝNING
Austur-þýzk bókasýning að Laugavegi 18,
(Bókabúð Máls og menningar) dagana 2. til
12. desember. — Á sýningunni eru um 800
bækur frá 60 forlögum. Stór hluti bókanna
er um tæknileg efni.
Sýningin verður opnuð kl. 4 í dag, en verð-
ur síðan opin daglega frá kl. 9 til 6.
Aðgangur ókeypis.
BÓKAVERZLUN
MÁLS O G MENNINGAR.
Karlmannaföt
Verð frá kr. 1.998,00.
TERYLENEBUXUR
Verð kr. 698,00.
Kiæðaverzlunin
Klapparstíg 40. •— Sími 14415.
AUGL ÝSING
til símnotenda í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði.
Vegna útgáfu nýrrar símaskrár eru símnotendur
í Heykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði beðnir að
senda fyrir 10- desember n.k. breytingar við
nafna- eða atvinnuskrá, ef einhverjar eru frá því
sem er í símaskránni frá 1964.
Breytingar, sem koma eftir þann tíma, má búast
við að verði ekki hægt að taka til greina.
Athygli skal vakin á nýjum flokkum í atvinnuskrá:
VARAHLUTAVERZLANIR: Þar geta fyrirtæki,
sem verzla með varahluti í bifreiðar, báta- og
skipavélar, vinnuvélar og því um líkt, fengið nöfn
sín prentuð.
UMBOÐ, ERLEND: Þar geta símnotendur, sem
umþoð hafa fyrir erlend fyrirtæki fengið nöfn fyr-
irtækjanna prentuð,
í nafnaskrá verða aðéins prentuð nöfn fyrirtækja,
sem skrásett eru á íslandi.
Allar nánari unnlýsingar fást í síma 11000 og her-
bergi nr. 206 á II. hæð í landssímahúsinu Thorvald-
senstræti 4. Breytingar sem sendar verða, skal
auðkenna: „SÍMASKRÁ“
Reykjavík, 28. nóvember 1964.
Bæjarsími Reykjavíkur.
8-11
Höfum opið frá kL 8 f.h. til kT. II e.h. alla daga vik-
unnar, virka sem helga.
• Hjólbarðaviðgerðin
Múla v/Suðurlandsbraut — Sími 32960