Þjóðviljinn - 20.01.1965, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 20. janúar 1965
ÞI6SVIUINN
SIÐA J
Fundur Erhard og de
Gaulle hófst í dag
Jafnframt því sem Tsjombe forsætisráðherra er fyrirlitnari um gjörvalla frjálsu Afríku vex orðstír
Soumaliot Ieiðtoga uppreinarmanna eftir því sem menn kynnast betur viðhorfum hans og markmiði
uppreisnarmanna. Hann sést hér til vinstri á myndinni á blaðamannafundi í Kairó.
Enn streyma málaliðar til
Kongó þvert ofaní bann SÞ
LEOPOLDVILLE 19/1 — Öruggar heimildir í Leopoldville
skýra frá því að síðastliðnar tvær vikur hafi um 200 mála-
liðar frá Evrópu komið til Leopoldville. Flestir eru þegar
í stað sendir annað hvort á víglínuna í norðausturhluta
landsins eða til herstöðvarinnar í Kamina í Katanga.
Sumir sendimenn erlendra
ríkja í borginni telja að ríkis-
stjórnin vilji skipta á málálið-
um frá Suður-Afríku og Rhod-
esíu fyrir málaliða frá Evrópu.
En suðurafrískir herforingjar
f Leopoldville sögðu frá því í
gær að þeir hafi ekki verið
beðnir að fara úr landi.
Enskumælandi málaliðar
hættu í gær við verkfall sem
hafði aðeins staðið í nokkra
klukkutíma. Hermennimir hófu
verkfallið til að styðja kröfur
sínar um útborgun launa, en
hættu þegar foringjar þeirra
sýndu þeim bankareikninga þar
sem laun þeirra höfðu verið
færð inn.
Málaliðarnir höguðu verkfalli
sínu svo, að þeir skyldu verja
stöðvar sínar við Stanleyville,
Paulis og Bunia, en neituðu að
sækja fram. Flestir vora þeir
frá Suður-Afríku og Rhodesíu.
Fréttamenn segja að yfirvöld-
•in hafi ekki verið ýkja ó'hyggju*-
full vegna verkfallsins, því
málaliðarnir hafi hvors sem er
verið of fáir til að sækja fram.
Sagt er að nú séu um 100
málaliðar frá S-Afríku og Rhod-
esíu eftir í Kongó, en hafi áður
verið um 400 frá þessum lönd-
um. En major Mike Hoare yf-
irmaður málaliðanna er væntan-
legur á fimmtudag frá Suður-
Afríku með nýja málaliða. Her-
fræðingar telja að hann muni
koma með 300 manna lið með
sér.
Bardagar
Um 60 belgískir
málaliðar og
'rjar tillögur um
Cmcorde áætlun
PARÍS 19/1 — Ludwig Erhard forsætisráðherra Vestur-
Þýzkalands hóf f dag tveggja daga viðræður sínar við de
Gaulle Frakklandsforseta. Þeir munu ræða um þýzk-
franska samvinnu, einingu Evrópu og fjölda alþjóðamála.
Á sama tíma halda utanríkisráðherrar landanna fund með
París.
þegar hefði náðst í efnahags-
samvinnu Evrópuríkja — sér-
staklega einingin um sameigin-
legt kornverð í EBE — ætti að
ser í
Við komuna til Parísar í
morgun sagði Erhard að við-
ræðurnar mundu snúast um
fjölda mála.
Hann sagði að sá árangur sem
vera góður umræðgrundvöllur.
Bandaiikin vilja
kjamorkufloti nn
WASHINGTON 19/1 — Joseph
Luns utanríkisráðherra Hollands
ræddi í gær brezku tillöguna um
sameiginlegan kjarnorkuflota
Atlanzhafsríkja við starfsbróður
sinn Dean Rusk í Washington.
Eftir fundinn sagði L/uns
blaðamönnum, að Bandaríkin
héldu enn fast við sína eigin til-
lögu um sameiginlegan kjarn-
orkuflota Nato.
hermenn úr stjórnarhernum
hafa hörfað úr bænum Aketi
£ Norður-Kongó. 1 yfirlýsingu
yfirvaldanna 1 Leopo-ldville er
einnig skýrt frá því í dag, að
stjórnin hafi bæinn Uvira í
Austur-Kongó á sínu valdi og
hafi hermenn uppreisnarmanna
sem gerðu árás á bæinn verið
hraktir til baka.
Jafnframt þessu er það haft
eftir öraggum heimildum í Leo-
poldville, að útvarpssamband við
Uvira hafi ekki náðst í tvo daga
— og fréttir hafa borizt af
miklum aðgerðum uppreisnar-
manna í þessum landshluta.
Súkarnó
DJAKARTA 19/1 —
Ambassadorar Júgóslavíu,
Egyptalands óg Ceylon
ræddu í dag við Sukarno
Indónesíuforsea um á-
kvörðun þá að segja rík-
ið úr SÞ.
Fréttamenn segja að
ambassadoramir ' hafi' fáérf
honum orðsendingar frá
ríkisstjórnum sínum, þar
sem skorað er á Sukarno
að íhuga þetta mál betur.
Luns sagði að hann væri með-
mætur tvíhliða viðræðum rík-
isstjóma í Natólöndum — Engin
ríkisstjóm hefur enn tekið á-
kvörðun, og mikið er undir
væntanlegum fundi Wilsons for-
sætisráðherra Breta og Erhard
forsætisráðherra Vestur-Þjóð-
verja komið sagði hann.
Bandaríkin vilja semja um
sameiginlegan kjamorkuflota við
bandamenn sína i Nato og það
stendur alls ekki til að stinga
þeirri áætlun undir stól.
Utanríkisráðherrar fimm Nato-
landa áttu að ræða brezku gagn-
tillöguna á fundi í Haag í þess-
um mánuði, en fundinum hefur
verið frestað þar til hinum tví-
hliða umræðum er lokið, sagði
Luns.
Erhard og de Gaulle munu
hittast mörgum sinnum þessa
tvo daga sem heimsóknin varir.
Fyrsti fundur þeirra var hald-
inn í dag og voru ekki aðrir
viðstaddir en túlkar þeirra.
Viðræður de Gaulle og Er-
hard era fjórði fundur þeirra
síðan fransk-þýzki samvinnu-
sáttmálinn gekk í gildi 22. jan-
úar 1963, en samkvæmt honum
eiga leiðtogar landanna að hitt-
azt tvisvar á ári í París og
Bonn til skiptis.
Fransk fréttastofan AFP tel-
ur að vandamál sameiningar
Þýzkalands verði mjög til um-
ræðu á fundum þeirra í þetta
skipti. Vestur-Þjóðverjar vona
að hægt sé að ná einingu vest-
urveldanna í því.
Líklega verður mikið rætt um
varnarmál Evrópu, sérstaklega
hínar mismunandi áætlanir sem
hafa komið fram um sameigin-
leg kjarnorkuvopn.
Þá er talið að Erhard vilji
fá skýr svör hjá de Gaulle
varðandj frumkvæði Vestur-
Þjóðverja til að koma samn-
ingum um stjórnmálaeiningu
EBE landanna frekar fram.
De Gaulle og Erhard hittast
aftur í fyrramálið og búizt er
við sameiginlegri yfirlýsingu um
viðræðurnar annað kvöld áður
en Erhard heldur aftur til
Vestur-Þýzkalands.
Utanríkisráðherrarnir sátu
tveggja tíma fund í dag og
eftir hann var frá því skýrt,
að þeir hefðu skipzt á skoðun-
um um hugsanlegar leiðir til
nánari einingar Evrópu og væra
þeir sammála um framtíðar-
þróun EBE.
Æðsta ráð Indón-
esíu á rökstólum
PARÍS 19/1 — Harold Wilson
forsætisráðherra hefur sent
starfsbróður sínum Pompidou
orðsendingu þar sem lagt er til
að haldið verði áfram við fyr-
irhugaða smíði nýrrar gerðar
farþegaþotu, en áætluninni verði
breytt og hún skorin niður.
Bretar vilja einskorða starfið
að því að smíða tvær tilrauna-
gerðir af flugvélinni, áður en
hafizt verði handa um fjölda
framleiðslu
Franskra heimildir telja að
franska stjórnin vilji aftur á
móti halda fram Concorde á-
ætluninni í sinni upphaflegu
mymd.
Franskir sérfræðingar og leið-
togar verkalýðsfélaga í flug-
vélaiðnaðinum benda á að það
muni auka kostnað og valda
tveggja ára töf á fjöldafram-
leiðslu, ef áætlunin verður að-
eins látin ná til þess að smíða
tvær tilraunavélar. Og muni
þetta eyðileggja markaðsmögu-
leika Concorde vélanna.
Áætlunin um Concorde hefur
verið í lausu lofti síðan brezka
stjómin lét að því liggja í haust
að taka þyrfti hana til endur-
skoðunar.
Talið er að smíði tveggja til-
raunavéla muni kosta um 120
miljón pund, en aftur á móti
muni kostnaður við upphaflegu
áætlunina nema um 350 miljón
pundum.
DJAKARTA 18/1 — Sukarno
forseti hlaut í dag einróma
stuðning við úrsögn landsins úr
SÞ á fundi 33 manna æðsta ráðs
ríkisins.
Utanríkisráðherra Indónesíu
dr. Subandrío sagði í dag, að
sérstofnanir SÞ UNESCO,
UNICEF og FAO ættu að hætta
störfum sínum í landinu, en
starfsfólk annarra sérstofnana
samtakanna ætti að vera um
kyrrt.
Þá skýrði Subandrío frá því,
að hann fari á miðvikudag í
heimsókn til Burma og Kína.
Hann sagðist mundu vera viku
í ferðalaginu og væru erindi
hans einkum í sambandi við
efnahagsmál.
Seinna fer þriðji varaforsætis-
ráðherra landsins Chaerul Saleh,
sem einnig er ráðherra námu-
vinnslu og þungaiðnaðar til
Peking.
Á fundi æðsta ráðsins sagði
Sukarno m.a. að mikil óánægja
ríkti í Indónesíu vegna hækk-
andi verðlags og framkvæmd
jarðnæðisbóta í landinu hefði
sums staðar leitt til óhæfuverka.
Kommúnistar og aðrir vinstri-
menn hafa oft farið í kröfu-
göngur að verzlunarráðuneytinu
i Djakarta til að mótmæla hækk-
andi verðlagi, og blöðin hafa
skýrt frá árekstri milli lögreglu
og bænda vegna ágreinings í
j arðnæðismálum.
Blað í Djakarta segir frá því
í morgun að öryggissveitir Indó-
nesa hafi handtekið 90 vopnaða
Malasíumenn, sem höfðu laum-
ast inn í landið á Austur-Sú-
mötru.
5- Víetnam aflýst
SAIGON 19/1 — Fjórir hers-
höfðingjar í Suður-Víetnam, sem
voru skipaðir ráðherrar í ríkis-
stjómina í gær létu ekki sjá
sig í forsetahöllinni í dag, þegar
Tran Van Huong forsætisráð
herra átti að kynna hina nýju
ráðherra sína fyrir þjóðhöfð-
ingjanum við hátíðlega viðhöfn.
Forsætisráðherrann, sem hafði
tekið hershofðingjana fjóra í
ráðuneyti sitt til að styrkja að-
stöðu sína gagnvart Búddatrú-
armönnum varð að aflýsa við-
höfninni.
Einn hershöfðingjanna Nguyen
Cao Ky sem er yfirmaður flug-
hersins, skýrði Suu forseta frá
því, að hann vildi ekki taka sæti
í ríkisstjóminni fyrr en henni
hefði verið breytt enn meira.
Allsherjarverkfall
PARÍS 19/1 — í dag boðuðu frönsk verkalýðssambönd 48
klukkustunda verkfall um Iand allt í lok þessa mánaðar
í mótmælaskyni við stefnu stjómarinnar í Iaunamálum.
Verkalýðsleiðtogar hafa skýrt frá því að verkfallið verði
enn víðtækara en verkfallið 11. desember síðastliðinn, en
þá var skrifstofum stjórnarstarfsmanna, skólum, pósthús-
um, gas- og rafmagnsstöðvum Iokað og opinberar sam-
göngur lamaðar.
BIFREIflR
TRYGGING
Þegar IOg]ttldin eru allsstattar þau
sttmu, þá er það þjónustan sem
sklpUr mestu máll.
ALMENNAR TRYGGINf
yttur göOa þjónustu.
KOMIÐ EDA HRINGID
SlMI 17700
ALMENNAR
TRYGGINGAR "I
PASTHÚSSTRÆTI 9
Ky sagðist ekki vilja víkja úr
stöðu sinni sem yfirmaður flug-
hersins, en með ákveðnum skil-
yrðum gæti hann hugsað sér að
taka líka að sér embætti ráð-
herra.
Hann sagði blaðamönnum, að
ríkisstjórnin hefði verið helzt
til fljót á sér að tilkynna nýja
ráðherralistann, og hefði ekki
ráðfært sig nægilega við hann
og hina hershöfðingjana þrjá.
Seinni hluta dags hætti Ky
við að hitta Huong forsætisráð-
herra eins og áður hafði verið
ákveðið, en ræddi þess í stað á-
standið við hina hershöfðingj-
ana.
Bardagar
Um sama leiti og ríkisstjórn-
inni var breytt bárust fréttir af
bardögum stjórnarhersins við
Víetkong í Binh Tuy héraði um
120 km. norðaustur af Saigon.
Þessi bardagi hófst á laugar-
dag og sagt er að stjórnarher-
menn hefðu verið um 200 en
Víetkong hefðu haft 500 manna
lið.
Bandarískur hernaðarráðu-
nautur hefur skýrt frá því, að
stjórnarherinn hafi orðið að
hörfa og tveggja Bandaríkja-
manna sé saknað.
Seinni partinn í dag voru
fimm Víetkongliðar felldir og
20 særðir í Duo Hoa í vestur-
jaðri Saigon.
Þá hefur flugherinn verið
mjög athafnasamur um helgina
og gert hverja árásina af ann-
arri á ýmsar stöðvar uppreisn-
armanna.
Fréttastofa Norður-Víetnam
skýrði frá þvi í dag, að sveitir
hliðhollar kommúnistum í Laos
hefðu skotið niður fjórar banda-
rískar þotur 13. janúar síðastL
Bandaríkjamenn hafa sagt að
aðeins hafi tvær þotur verið
skotnar niður, þegar 24 þotur
fóru saman og gerðu loftárásir
á aðflutningsleiðir í Laos.
•»