Þjóðviljinn - 09.03.1965, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.03.1965, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 9. marz 1965 — 30. árgangur — 56. tölublað. Sigur kommúnista í þingkosningunum í Keru/a á /ndiandi Sjá síðu @ Nambúdiripad sigurvegari. ■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■•■■■■■■« ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■■■! SANNANIRN- AR ERU HÉR B Vísir segir í forustugrein í gær: „Fullyrðingar Þjóðviljans um alúmínbræðslur tvær, auðhringa- afl og nýjar stórvirkjanir norðanlands að kröfu Svisslendinga eru úr lausu lofti gripnar . . . Því er hér um vítaverðar falsanir Þjóðviljans í mál- inu að ræða. Auðhringadraugurinn er ekki annað en uppvakningur blaðsins sjálfs“. ■ Af þessu tilefni er hér birtur kafli úr skýrslu stóriðjunefndar til ríkisstjórnarinnar, dags. 6. fe- brúar s.l., þar sem frásögn Þjóðviljans er stað- fest í einu og öllu. Samkvæmt „vilyrði“ auð- hringsins um 60.000 tonna alúmínbræðslu við Eyjafjörð gerir stóriðjunefnd siðan áætlun um kostnaðarhlið á virkjun við Dettifoss sem skuli vera lokið að fullu 1978 og á að tryggja auðhringn- um 110.000 kílóvött til viðbótar við sama magn frá Búrfellsvirkjun. ■ Niðurstaða stóriðjunefndar í skýrslunni er að mæla eindregið með því að bæði verði virkjað við Búrfell og Dettifoss í þágu auðhringsins og erlendrar alúmínbræðslur bæði reistar við Straum og Akureyri. STÓRIÐJUNEFND 6. febrúar 1965 Framhaldsskýrsla til rikiBStjórnarinnar * * * / é nm aluminiumverksmiSju og storvirkjunj Fr amhalds viK - rætSur hafa síðan farið fram við hið svissne.ska aluminiumfyTÍrtaeki og full> trúa 'Alþjóðabankans í Zíirich um miðjan desember s.l. Féþst Swiss Aluminium þar á að greiða 3 mill fyrir raförku fyrstu 10 árin, en síðan 2 1/Z mill,' en lagði um leið megináherzlu á það, að því yrði gefinn kostur á raforku til þess að staekka aluminiumverksmiðjuna upp í 60 þús. tonna árs« " afköst innan fárra ára. Jafnframt gaf fyrirtækið vilyrði um, að það mundi ' taka til vinsamlegrar athugunar að reisá nýja aluminiumverksmiðju í nágrenni Akuréyrar, eftir að 60 þús. tonna verksmiðju syðra yrði .lokið. Vegna þessara nýju viðhorfa. var nauðsynlegt að taka' raforkureikningana til endurskoðunar og kanna, hvaða áhrif örari' uppbygging alumihiumit hefði á þróun raforkumálanna •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■' ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! ■■■■■■■■■■■■■■■■I Þessi mynd var tekin í Ölafsfirði á dögunum, þegar isrekið var hvað mest þar í firðinum og frostið komst upp í 14 gráður. önnur mynd frá Ólafsfjarðarhöfn er á baksíðunni. — Ljósm. S.J. Lítil tíðindi Náttúran heldur áfram sínu harmoníkuspili með ísinn fyrir Norðurlandi, en fremur sakleys- isleg er sú tónlist orðin miðað við þær ísfréttir sem bárust að norðan fyrir viku. 1 gærmorgun bárust ýmsar bjartsýnar fréttir að norðan. meðal annars tilkynntu varðskip Veðurstofunni að ísinn hefði nú fjarlægzt Hornstrandir og væri siglingarleiðin fyrir Horn fær skipum, að minnsta kosti í björtu. Hinsvegar hafði flugstjór- inn á SIF nokkuð aðra sögu að of hafísnum segja er hann kom út ísflugi í gærkvöld. Isinn lá þá upp að Homströndum á stóru svæði og var sú leið þar með aftur lokuð skipum. Allmikil ístunga gekk langt suður á Húnaflóa, talsvert innar en Selsker. Skagafjörður var svo til íslaus, en hinsvegar teygðu ísspangir sig suður að mynni Eyjafjarðar og suður til móts við Flatey á Skjálfanda. Þær breytingar sem hafa orð- ið á stöðu íssins síðan lagt var í ísflugið eru þó þær, að ísinn f.yr- Framhald á 9. síðu. Innflutningur frá S-Afríku jékst um tæp 30% árið '64 ■ í janúarhefti Hagtíðinda er yfirlit um innflutning til^ og útflutning frá viðskiptalöndum okkar allt árið 1964 og í desember mánuði 1964 sérstaklega. Af þeim skýrslum kemur í ljós að heildarinnflutningur okkar frá Suður- Afríku árið 1964 hefur numið 8.128 milj. en árið 1963 hins vegar samtals 6,302 milj. Aukning milli ára er því um 29 af hundraði. -------------------------------<»> Alvarlegt umferBa- slys á Miklubraut Frei vann sigur í þingkosningum SANTIAGO 8/3 — Kristilegi demókrataflokkur Eduardo Frei forseta Chile vann mikinn sigur í þingkosningunum þar í gær, en flokkurinn hefur til þessa verið í algerum minnihluta á þingi. Hann fékk nú meiri- hluta í fulltrúadeildinni þarsem kosið var um öll 147 þingsætin, hlaut 82. Aðeins var kosið um hluta öldungadeildarinnar. Kristi legir fengu nú 12 af samtals 45. Kommúnistar fengu 2 í öld- ungadeildinni og 18 í fulltrúa- deildinni, sósíalistar 3 og 15. „Rótta;kir“ 3 og 20. Ihaldsfiokk- amir misstu mikið fylgi. Útflutningur til Suður-Afríku og var 567 þús. ’63, en 1.902 milj. 1964 og hefur hann því einnig stóraukizt. í desembermánuði einum árið 1964 nam innflutn- ingur frá þessu ríki 31 þús„ en var enginn 1963 í sama mán- uði. Útflutningur til S-Afríku í desember 1963 var fyrir 6 þús. kr., en í sama mánuði 1964 fyr- ir 17 þúsund og hefur því lið- lega þrefaldazt. Allur innflutningurinn á s. 1. ári er í vörudeildinni „ávext- ir og grænmeti“, en það erj Orange appelsínur, Crape Fruit og Golden Juþilee. Þetta verður að teljast ugg- vænleg þróun og sannarlega tími til kominn að við hér för- um að dæmi frænda okkar á Norðurlöndum og spornum við. henni. Aðfaranótt sunnudagsins varð mjög alvarlegt umferðaslys við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar. Unglingspiltur ók stolinni bifreið út af veginum með þeim afleiðingum að bíllinn fór margar veltur og hafnaði í gryfju sem er á aðra mannhæð að dýpt. 1 bílnum voru 5 far- þegar auk ökumannsins og slös- uðust allir meira og minna. 5 þeirra voru fluttir á Slysavarð- stofuna og liggur einn pilturinn nú mjög þungt haldinn á sjúkra- húsi. Pilturinn sem ók bílnum er 17 ára og tók bílpróf fyrir nokkr- um dögum. Hann stal Mosk- vitsbíl um miðnætti aðfaranótt sunnudagsins og fór rakleitt að veitingahúsinu Lídó og hitti þar 5 unglinga 16—17 ára og bauð þeim með heim. Pilturinn ók austur Miklubraut og við gatna- mót Grensásvegar og Miklu- brautar skeði slysið. A þessu svæði hafa miklir skurðir verið grafnir vegna vinnu við gatna- gerð. Pilturinn virðist hafa verið ókunnugur á þessum slóðum og líklega ekið mjög hratt. í stað þess að beygja eins og vegurinn gerir ók pilturinn beint af aug- um, og lenti bifreiðin á um- ferðarmerki og lagði það alveg niður. Pilturinn reyndi þá að beygja inn á veginn en lenti þá á steinstöpli og skipti það eng- um togum að bifreiðin valt margar veltur og hafnaði loks ) kvos sem er á aðra mannhæð að dýpt, og stöðvaðist þar á hjólunum. Sumir farþegamir munu hafa kastast út úr bílnum í veltunni og slösuðust allir meira og minna. Allir unglingamir voru fluttir á Slysavarðstofuna, nema önnur stúlkan sem í bílnum var, en hún virðist hafa sloppið ó- sködduð. Hin stúlkan hlaut á- verka á höfði, tveir piltanna meiddust á fótum, ökumaðurinn handleggs- eða axlarbrotnaði og fiórði pilturinn liggur nú þungt baldinn á sjúkrahúsi og er tví- sýnt um líf hans. Bfllinn er gjör- ónýtur. Alþingi á Þingvöllum? í gær var svohljóðandi þingsályktunartillögu útbýtt á Alþingi: Alþingi ályktarað samtímis sveitarstjórnarkosn- ingum árið 1966 fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það, hvort stefna skuli að því að Alþingi verði háð á Þlng- völlum. Flutningsmenn þessarar til- lögu eru þeir Ágúst Þorvalds- son, og Gísli Guðmundsson, báðir þingmenn Framsóknar. 1 greinargerð er rakin í stórum. dráttum saga aðset- ursstaðar Alþingis og með- ferðar þeirrar, sem það mál hefur hlotið á Alþingi fram til þessa og í lok greinar- gerðarinnar er sagt svo, að stjómskipuð nefnd, sem hafi haft það verkefni að athuga aðsetur ríkisstofnana, hafi gert það að tillögu sinni að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um málið. Segi flutn- ingsmenn síðan, að með til- löguflutningi sínum séu þeir að vinna að framgangi þeirr- ar samþykktar nefndarinnar b * 4 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.