Þjóðviljinn - 10.07.1965, Side 1
Krafan um 44 stunda
vinnuviku kniíin fram
5% starfssldurshækkun eftir 2ja ára viunu, 4% grunnkaupshækkun,
14 veikindadagar greiddir í viðbét, nætur- og helgidagavinna
greidd með 91% álagi, víðtækar tilfærslur verða á milli taxta
Guðmundur J. Guðmundsson, varaformaður Dagsbrúnar, undirritar.
■ Samningar tókust í gær í kjaradeilu Verka-
mannafélagsins Dagsbrunar, Verkamannafélags-
ins Hlífar, Verkakvennafélagsins Framsóknar og
Verkakvennafélagsins Framtíðarinnar og atvinnu-
rekenda. .Voru samningar undirritaðir af samn-
inganefndum síðdegis í gaer og samþykktir á fund-
um verkalýðsfélaganna og vinnuveitenda í gær-
kvöld.
■ Krafan um styttingu vinnuvikunnar í 44
stundir var knúin fram, og önnur aðalatriði samn-
inganna eru 5% starfsaldurshækkun eftir tveggja
ára starf, 4% grunnkaupshækkun, 14 veikindadag-
ar greiddir í viðbót við þá 14 sem lögboðnir eru,
nætur- og helgidagavinna greidd með 91% álagi
og víðtækar tilfærslur gerðar milli taxta.
■ Verkfalli félaganna fjögurra hefur verið af-
lýst, en það stóð í gær og hefði einnig verið í
dag ef samningar hefðu ekki tekizt.
Meginbreytingamar sem nú
verða á samningum eru þessar:
Vinnuvikan styttist úr 48
stundum í 44. stundir án skerð-
ingar kaups, og er það veiga-
mesta atriðið sem verkalýðsfé-
lögin hafa knúið fram í kjara-
samningum þessa sumars. Ekki
hefur tekizt að fá fram stytt-
ingu vinnuvikunnar allt frá ár-
inu 1942 að samningar tókust
um átta stunda vinnudaginn,
þar til nú, og hafa atvinnurek-
endur staðið eins og veggur
gegn kröfum verkamanna um
þetta atriði.
Verkamenn og verkakonur sem
að samningunum standa fá 5%
starfsaldurshækkun á kaup eft-
ir tveggja ára vinnu hjá sama
atvinnurekanda. Þar með er
stigið fyrgta skrefið á þeirri
leið að verkamenn fái starfsald-
urshækkun á kaup sitt eins og
margar aðrar starfsstéttir þjóð-
félagsins hafa.
Auknar verða greiðslur í veik-
inda- og slysatilfellum, þannig
að eftir eins árs starf hjá sama
atvinnurekanda á verkafólk rétt
til greiðslu fyrir allt að 14 veik-
indadaga árlega í viðbót við þá
14. sem lög ákveða. Skulu um
greiðslur fyrir þessa viðbótar-
daga gilda sömu reglur og lögin
ákveða, að menn skuli einskig í
missa. í, launum.,v
Eftirvinnuálag á kaupið verð-
ur eins og áður 50% á dag-
vinnukaup og álagið á nætur-
og helgidagavinnu 91%, sem er
þv’ sem næst sama og áður, en
10% hærra en í Norðurlands-
samningnum.
Grunnkaupshækkun á
taxta verður 4 %.
alla
Þe=si almennu atriði ná til
félaga allra verkalýðsféláganna
sem að samningunum standa,
Dagsbrúnar, Hlífar, Framsókn-
ar og Framtíðarinnar.
Breytingar sem varða samn-
inga verkamannafélaganna sér-
staklega eru m.a. þessar;
Allur 2. taxti flyzt upp í 3.
taxta, ge,m verður 2. taxti í nýju
samningunum. Undir þennan
taxta kemur fiskvinna karla og
kvenna að langmestu leyti, nema
einstök störf karla sem eru
hærri og eini taxti kvenna sem
enn er lægri, vinna við pökkun,
snyrtingu og vigtun í frystihús-
um, (:sá mismunur jafnast í síð-
asta lagi eftir hálft annað ár
við launajöfnuðinn).
Hafnarvinnan flyzt upp um
flokk, úr 4. taxta í 5. taxta sem
verður 4. taxti í nýju samning-
unum.
Bílstjórar hjá olíufélögunum
o fl. fengu verulega kauphækk-
Af sérsamningum þeim sem
heyra til samningum þessara
félaga var lokið í gær samning-
um við Reykjavikurborg og
Mjólkursamsöluna. Frestað var
ýmsum sérsamningum svo sem
samningum við Áburðarverk-
smiðjuna, síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjur o.fl. aðila.
Nýju samningarnir verða nán-
ar kynntir næstu daga.
Tveir af fulltrúum Hiífar, Hermann Guðmundsson, formaður Hlíf-
ar, og Gunnar Guðmundsson.
Jóna Guðjónsdóttir formaður Framsóknar og Þórunn Valdimarsd.
Dagsbrúnarmenn samþykktu
einhuga kjarasamninganá
Á mjögr fjölmennum Dagsbrúnarfundi í Aust-
urbæjarbíói í gærkvöld samþykktu fundarmenn
kjarasamningana nýju og vottuðu Guðmundi J.
Guðmundssyni og félögum hans í stjórn og samn-
inganefnd þakkir fyrir vel unnið og árangursríkt
starf. Vakti stytting vinnuvikunnar í 44 stundir
sérstakan fögnuð fundarmanna og lét fleiri en
einn ræðumanna svo um mælt að með þeim sigri
hefði 9. júlí 1965 orðið merkisdagur í sögu ís-
lenzkrar verkalýðshreyfingar.
Fundurinn hófst kl. 11 og
flutti Guðm. J. Guðmundsson
skýra og nva„. framsöguræðu’,
skýrði aðdraganda samninganna
og gang þeirra. Hvemig reynt
hefði verið að umkringja Dags-
brún og einangra með saming-
um sem hefði gvo átt að fyrir-
skipa reykvísku og hafnfirzku
verkafólki. En þar hefði farið
á annan veg. Rómaði ^uðmund-
ur samstöðu Dagsbrúnar, Hlífar
og verkakvenrafélaganna og
þakkaði einnig félögunum í Ár-
nessýslu samstöðuna.
Um samningana ræddi Guð-
mundur af raunsæi, sagði á
þeim kost og löst, lagði þunga
áherzlu á gildi styttingar vinnu-
Enn er ósamið við mjólkur-
fræðinga og hafa samninga-
fundir staðið yfir með stuttum
hléilim síðan kl. 2 í fyrradag.
vikunnar og þá byrjun að ald-
urshækkunum, sem þar náðust,
og svo gerði einnig Þórir Daní-
elsson, sem skýrði samningana
í einstökum atriðum, og nær all-
ir verikamennirnir sem töluðu,
Meðal þeirra sem ræddu samn-
ihgana voru Jón Vigfússon, Jó-
hann Si'gurgeirsson, Svavar Guð-
mundsson, Sigurjón Bjarnason,
Halldór Þ. Briem, Kristvin Krist-
insson og Olgeir Pétursson.
Umræðum lauk um kl. hálf
eitt og bar þá Guðmundur J.
Guðmundsson samningana und-
ir atkvæði. Voru þeir samþykkt-
ir með nær öllum atkvæðum.
Samþykkt var með lófaíaki
tillaga um þakkir til Hlífar,
verkakvennafélaganna og félag-
Verkfall það sem kom til fram-
kvæmda i gær stendur því enn
í dag, ef samningar hafa ekki
tekizt í nótt.
Enn ósamið við mjólknrfrsðinp
anna í Árnessýslu fyrir gott
samstarf og samstöðu.
Fundinum lauk með hvatning-
arorðum Guðmundar J. Guð-
mundssonar og innilegu þakk-
iæti hans til félagsmanna, sem
hefðu sýnt eftirminnilegan ein-
hug og stéttarþroska í þessari
erfiðu deilu.
Dagsbrúnarfundurinn í gær-
kvöld samþykkti eftirfarandi <il-
legu með áköfu lófataki:
Kveðga til
Tveir af fulltrúum Framtíðarinnar í Hafnarfirði, formaðurinn Sig-
urrós Sveinsdóttir og Málfríður Stefánsdóttir.
Eðvarðs
„Fjölmennur fundur í Verka-
mannafélaginu DAGSBRUN,
haldinn í Austurbæjarbíói 9.
júlí 1965, sendir þér beztu
kveðjur og óskir um skjótan
og góðan bata og væntir bess,
að félagið megi sem fyrst
njóta starfskrafta jinna á
ný".
Þrír af fulltrúum atvinnurckenda, Gunnar Guðjónsson, Ingvar Vil-
hjálmsson og Kjartan Thórs, undirrita saieningana.
DIOÐVIUil
Laugardagur [10. júlí [1965 — 30. árgangur — 151. tölublað.
Samningarnir
undirritaðir
í gærdag
Verkamanna- og verkakvennafélögin í Rvík og Hafnarfirði sömdu í gær
V