Þjóðviljinn - 10.07.1965, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN —• Laugardagur 10. JúH 1965.
Dtgelandi: Sameiningarflokkur alþýdu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. FYiðþjófsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Auglýsingastjóri: ÞorvalduT Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavöröust 19.
Simi 17-500 (5 linur). Askriftarverð kr. 60.00 á mánuðl.
Samningarnir
'r\
J samningum verkalýðsfélagaaina sem tókusf í
gær ber hæst árangurinn sem náðist að stytt-
ingu vinnuvikunnar með óskertu kaupi. Það er
ekki lítill áfangi sem þar næst í 'einu stökki, úr
48 stunda vinnuviku dagvinnunnar í 44 stundir.
Sama stytting vinnuvikunnar hefur verið knúin
fram með taxtabirtingu á tveimur stöðum aust-
anlands, Neskaupstað og Vopnafirði. Þetta eru
ánægjuleg málalok og eftirminnilegur sigur að
knýja fram kröfuna alla, í 44 stundir, ekki sízt
þar sem verkalýðsfélög víða um land höfðu talið
sig tilneydd að semja um minni styttingu vinnu-
viku. Dirfska austfirzku félaganna og þrautseigja
verkamanna og verkakvenna í Reykjavík og Hafn-
arfirði hefur gerí styttinguna í 44 stundir að veru-
leika þegar á þessu sumri, á miðju ári 1965. Að
því fengnu er óhugsandi að verkalýðsfélög annars
staðar á landinu /íáta bjóða sér lengri vinnuviku
næst þegar samið verður, og eins ætti þessi sigur
Dagsbrúnar og Hlífar og verkakvennafélaganna í
Reykjavík og Hafnarfirði að íétta róðurinn fyrir
þau féiög sem enn eiga ósamið.
|>á fékkst fram í samningum verkamannafélag-
anna og verkakvennafélaganna í Reykjavík
og Hafnarfirði 4% almenn grunnkaupshækkun,
5% starfsaldurshækkun eftir tveggja ára starf
hjá' sama atvinnurekanda, næturvinnuálagið á
kaupið helzt í 91%, en það er 10% hærra en í
Norðurlandssamningunum og mikilvægí atriði
hér suðvestanlands, og verkamenn og verkakon-
ur fá rétt til greiðslu fyrir 14 veikinda- eða slysa-
daga á ári til viðbótar hinum 14 sem nú eru lög-
boðnir. Auk þessara almennu atriða sem öll félög-
in fá, verða nú allmiklar tilfærslur milli taxta í
samningum hinna einstöku félaga, og snerta sum-
ar þeirra mjög fjölmenna starfshópa. Þó hér sé
um talsverðar hækkanir að ræða, hefðu verka-
menn og verkakonur sjálfsagt talið eðlilegf að
kjarabætur þeirra yrðu meiri, og sennilegt að
verkafólk líti enn á þessa samninga sem fram-
lengt vopnahlé, samninga sem þurfi að breyta
verulega að ári. Og til þess tíma hlýtur verka-
lýðshreyfingin að treysta raðir sínar og verða bet-
ur undir átökin búin en nú í sumar. Verkafólk er
líka óðum að skilja hvað það þýðir að hafa í landi
ríkisstjórn sem hefur helzt hóíanir til mála að
leggja i kjarasamningum, þá stöðugu hótun að
verkamenn skuli rændir árangrinum af kjarabar-
áttu sinni.
J>ess skal að lokum minnzt að mörg verkalýðsfé-
lög eiga enn ósamið. Þeirra samningar ættu nú
að verða greiðari. Samningar hafa náðst án þess
að þurft hafi að stofna tii almennra og lang-
varandi verkfalla. Nýjum bardagaaðferðum hefur
verið beitt og má segja að þær hafi gefið allgóða
raun. En samningarnir á þessu sumri hafa um
margt verið örðugir og sérstæðir. og vantar mikið
á að unnt sé enn að meta heildaráhrif þeirra og
ávinning. — s.
.
Útlitsteikning sundlaugarbyegingarinnar í Skálatúni
Sundlaugarbygg-
ing í Skálatúni
Að Skálatúni í Mosíellssveit
er. eins og mörg'um er kunnugt,
heimili fyrir vangefin börn.
Heimilið er sjálfseignarstofnun,
en að því standa Umdæmis-
Stúkan nr. 1 í Reykjavík og
Styrktarfélag vangefinna, Á
heimilinu eru nú 27 vangéfm
böm og unglingar. Verið er að
reisa nýbyggingu á staðnum,
og þegar hún er fullgerð, geta
dvalizt þar um 40 vistmenn.
Byggingin sjálf er reist fyrir
fé úr Styrktarsjóði vangefinna,
sem er í vörzlu félagsmálaráðu-
neytisins, en fjár til kaupa á
innbúi og öðrum nauðsynlegum
tækjum verður að afla annars
staðar frá. Hafa heimilinu beg-
ar borizt myndarlegar gjaf’.r í
því skyni.
Foreldrar þeirra bama, sem
nú dvelja í Skálatúni, hafa nú
bundizt samtökum að sýna f
verkl nokkum þakklætisvott
fyrir þá góðu umönnun, sem
böm þeirra fá þar. Það mál,
sem foreldramir vilja sérstak-
lega hrinda í framkvæmd, er
bygging útisundlaugar á staðn-
um. Stjóm heim’lisins hefur
lýst sig samþykka slíkri bygg-
ingu, þótt hún hafi ekki bol-
magn til að veita henni fjár-
hagslegan stuðning. Nú í rrov
var stofnaður sundlaugasjóðjr
Skálatúnsheimilisins. 5 manna
framkvæmdanefnd sjóðsins var
kos;n á foreldrafundi í apríl
s.l.
Það er álit þeirra, sem bezt
hafa vit á, að slík laug mundi
verða vistfólki Skáiatúns til ó-
met.anlegs gagns og ánægju.
Erfitt er að fá nægilega og
hepniiega þjálfun fvrir vangef-
ið fólk, sem er oft jafnframt
líkamlega fatlað og þarf á
hollri hreyfingu að halda.
Sundið mun vera e!n bezta ai-
hliða þjálfun iíkamans, sem til
er. Ánæaiunni af slíkum sund-
stað barf varla að iýsa.
Búið er að gera teikningu af
lauginni og búningsklefum við
hana. Framkvæmdir til und:r-
búnings eru þegar hafnar. A-
formað er að.koma upp sjðlfri
lauginni f fyrsta áfanga. Hún
er hringlaga (siá mvnd) 10 m
í þvermál. mesta dýpi 1.20 m.
Arkitektamir Helgi og V!I-
hjálmur Hjálmarssynir gerðu
teikninguna af laugínni og
felldu hana inn í heildarmynd
nýja hælisins í Skálatúni, en
teikningin af því var einnig
gerð af þeim. Vífill Oddsson
gerði jámateikningamar.
Þar sem þetta verður einka-
laug hælisins, fsest ekki til
hennar styrkur frá opinberum
aðilum, en áætlað er að laugin
-ein kosti um 500 þús. kr. Þegar
hafa borizt rausnariegar gjafirj
hátt á 2. hundrað þúsund krón-
ur til laugarinnar. Styrktarféiag
vangefinna gaf 100 þús. kr.j
samtök kvenna innan Góð-/j>
templarareglunnar 25 þús. kr.,
fyrirtæki, sem vill ekki láta
nafns sfns getið 20 þús. kr., svo
eitthvað sé nefnt. Sjálfboðalið-
ar hafa að undanfömu íagt
fram mörg dagsverk við laug-
ina.
En betur má, ef duga skal,
og mikið fé vantar enn til.
Framkvæmdanefnd Sundlauga-
sjóðsins hefur nú látið útbúa
gjafabréf, sem kvittun fyrir
gjöfum til laugarinnar í Skála-
túni, og þó miklu fremur við-
urkenningu fyrir stuðning við
gott málefni, eins og stendur
letrað á bréfin.
Foreldrar Skálatúnsbamanna
heita nú á velunnara heimil-
isíns og aðra þá, sem vilja
leggja góðu máli lið, að kaupa
þessi bréf. Hver skerfur, smár
eða stór, er vel þeginn. Endur-
gjaldið verður ánægjan af þeirri
vissu að hafa stuðlað að auk-
inni vellíðan þeirra bama, sem
vegna fötlunar sinnar eru svipt
ýmsu því, sem almennt er taiið
til sjálfsagðra hluta.
Gjafabréfin eru til sölu á
Skálatúnsheimihnu, Bókabúð
Æskunnar við Kirkjutorg í R-
vík, á skrifstofu Styrktarfélags
vangefinna að Skólavörðustíg 13
og hjá meðlimum fram-
kvæmdanefndar . Sundlauga-
sjóðsins, en þeir eru: Magnús
Kristinsson, Ægissíðu 96, Btyn-
hildur Guðmundsdóttir, Ljós.
heimum 6, Sigríður .Ingimars-
dótt’r, Njörvasundi 2, Stefán
Sigurðsson, Hringbraut 61,
Hafnarfirði og Sverrir Eggerts-
son, Gnoðarvogi 86.
Rithöfunda-
styrkur
Rithöfundasamþandi íslands
hefur verið falið af Mennta-
málaráði að úthluta á þesöu
ári 20 þús kr til styrktar rit-
höfundum, sem dvelja fjarri
heimilum sínum við ritstörf.
Þeir sem áhuga hafa eiga að
senda umsóknir til skrifstofu
sambandsins, Klapparstíg 26,
fyrir 16. þ.m.
Výlega er komin út hjá
Myndabókaútgáfunnl h/f bókin
SURTSEY f LTTUM. Textinn um
þróun Surtseyjar er á íslenzku
og ensku og saminn af Guðm.
Sigvaldasyni iandfræðingi.
Bókin er í Iitlu broti og ekki
innbundin. Myndir eru tuttugu,
og er forsíðu- og baksíðumyndin
tckin af Garðari Pálssyni, en
margir Ijósmyndarar eiga mynd-
ir í bókinni. Einnig eru blrt kort
af eynni eerð hjá Landmælíne-
um ríkisins.
Hreindýrastofninn aðeins um 2300 dýr
ENGIN HRílND ÝRA VEIÐI
VERÐUR LEYFÐISUMAR
■ Nýlega barst Þjóðviljanum fréttatilkynning frá mennta-
málaráðuneytinu þar sem segir að samkvæmt talningu á
hreindýrah'jörðinni á Austurlandi hafi dýrastofninn reynzt
samtals 2278 dýr, þar af aðeins rösk 1800 fullorðin. Hefur
ráðuneytið ákveðið að leyfa ekki hreindýraveiðar á þessu
ári vegna þess hve fullorðnu dýrin reyndust fá, en undan-
farin ár hefur verið leyft að veiða allt að 600 dýr árlega.
Fréttatilkynning ráðuneytisins
er svohljóðandi;
„Menntamálaráðuneytið hefur
eins og að undanfömu látið fara
fram talningu á hreindýrahjörð-
inni á Austurlandi og fóru þeir
Agúgt Böðvarsson forstöðumað-
ur landmælinganna og Egill
Gunnarsson hreindýraeftirlits-
maður, ásamt Bimi Pálssyni
flugmanni, ; flugvél yfir hrein-
dýrasvæðið 13. f.m. og töldu
hreindýrin, að nokkru leyti með
því að taka Ijósmyndir af hrein-
dýrahópum og telja síðan eftir
myndunum. Reyndust fullorðin
hreindýr vera 1805 og 473 kálf-
ar eða samtals 2278 dýr Álíta
talningarmennimir að þeim hafi
ekki getað sézt yfir hreindýr svo
að nokkru nemi að því er íull-
orðin dýr varðar. en hinsvegar
hafi verið erfiðara að greina
kálfana og álíta þeir að kálf-
amir kunni að hafa verið
nokkm fleiri en þeim taldist.
Þar sem ekki virðist vera um
að ræða nema rúmlega 1800
fullorðin hreindýr, þá telur
ráðuneytið ekki rétt að leyfa
hreindýraveiðar á þessu ári og
hefur í dag gefið út auglýsingu
um það. Þó verða væntanlega
veitt leyfi til að veiða nokkur
dýr til þess að halda áfram, VÍ&-,
indalegum rannsóknum á heiir
brigði hreindýrastofnsins, sem
Guðmundur Gíslason læknir við
Tilraunastöðina að Keldum hef-
ur unnig að undanfarin ár að
beiðni ráðuneytisins.
Á undanfömum árum hefur
verig heimilað að veiða allt að
600 hreindýr áriega á tímabilinu
frá 7. ágúst til 20. september.
En samkvæmt skýrslum hrein-
dýraeftirlitsmanns, Egils Gunn-
arssonar á Egilsstöðum í Fijóts-
dal, sem hefur eftiriit með hrein-
Framhald á 0. síðu.
Otvegum frá Sovétríkjunum
Marmara og Granít
í blokkum og plötum.
BORGAREY H.F.
Óðinsgötu 7 — Reykjavík. Sími 20880.
vinsœlastir skartgripir
ióhannes skólavörðustíg 7