Þjóðviljinn - 10.07.1965, Blaðsíða 8
3 SÍÐA — ÞJÓÐVIUINN — Þaugardagiur 10. JóB 1965.
kastalinn
EFTIR HARRY
HERVEY
viss um að það sem hafði hent
hann, væri honum einum að
kenna, og hún fann til innilegr-
ar meðaumkvunar með honum.
Ekki vegna Jitlits hans eða þess
sem hann sagði; heldur vegna
þess hvemig hann sagði það —
vonleysisins og uppgjafarinnar
sem bjó að baki orðunum. En um
leið fann hún einnig til gremju
— gremju yfir veikleika hans.
Hún sá hann fyrir sér eins og
hann var þegar þau hittust fyrst:
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu og snyrtistofa
S-teinu og Dódó
Laugavegi 18 III hæð (lyfta)
SÍMI: 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMI: 33-9-68
D Ö M U R
Hárgreiðsia við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10. Vonarstrætis-
megin. — Simi 14-6-62
Hárgreiðslustofa
Austurbæjar
Maria Guðmundsdóttir.
Laugavegi 13 sími 14-6-58
Nuddstofan er á sama stað
einbeittur og lifandi ungur mað-
ur með stælta vöðva og skýra
hugsun; áhyggjulaus, óháður vá-
ungi sem mætti hættum, ást og
allri tilverunni með bros á vör.
Og hún hugsaði sem svo: Hvað
hefur komið fyrir hann — af
hverju hefur hann orðið svona?
Og um leið svaraði hún sjálíri
26
sér: Og ég spyr um þetta? Hvað
hefur komið fyrir mig — af
hverju er ég orðin eins og ég er?
Hún fylltist innilegri samúð
með þeim báðum.
Ofsaleg reiði við forlögin gagn-
tók konuna, sem eití sinn hafði
verið Amanda Gilchrist.
Þegar hún var átján ára trú-
lofaðist hún. Ekki í fyrsta sinn
að ejálfsögðu. En það var í fyrsta
skipti sem það var alvara — að
minnsta kosti að áliti móður
hennar, Jessicu. Amanda þekkti
unga manninn ekki sérlega vel;
já, hún hafði í rauninni ekki
þekkt hann nema fáeina mánuði.
En hann var af góðri fjölskyldu
í New York. vel efnaður og fór
á hverjum vetri til húss síns í
Suðurríkjunum til að veiöa.
Hann hét Meredith Fink. Það var
fyrst og fremst það sem Am-
öndu gramdist, því að henni
fannst Amanda Fink láta hlægi-
lega í eyrum. Hún var ekki ást,-
fangin af honum, en hann var
myndarlegur í sjón, þokkalega
gefinn og svo var hann ríkur.
Þegar hann bað hennar, sagði
Jessica við hann, að hún væri
mesti glópur ef hún tæki honum
ekjji; hver einasta stúlka myndi
grípa slíkt tækifæri tveim hönd-
um. Amanda gerði það reyndar
ekki, en hún féllst á að giftast
honum — þar sem hún var ekki
ástfangin af' neinum öðrum þá
stundina. Ákveðið var að brúð-
kaupið stæði í nóvember.
Þrem mánuðum fyrir hinn á-
kveðna brúðkaupsdag var það
sem Amanda hitti Jock McLain.
Eftir á var Jessica full af
sjálfsásökunum; ef hún hefði
verið strangari í uppeldi sínu á
Amöndu, hefðu ósköpin aldrei
gerzt Hún hafði ekki beinlíms
verið afskiptalaus um Amöndu,
en hún hafði verið þeirrar skoð-
unar, að fullvaxta dóttir ætti að
hafa leyfi til að „þroskast“ —
eins og hún tók til orða — svo
framarlega sem hún stríddi ekki
gegn hefðbundnum reglum, íil
dæmis í valinu á eiginmanni.
Jessica sjálf hafði hlaupið á sig
með fyrsta hjónabandi sínu og
hún var því staðráðin í að leiða
dóttur sína á réttar brautir.
Sem sagt — hún hafði ekki
verið sérlega heppin í fyrsta
hjónabandi sínu. Sem Jess'ca
Faircloth hefði hún getað feng-
ið næstum hvern sem hún vildi.
af frambærilegum ungum mönn-
um af góðum ættum. En í róm-
antísku ástarkasti hafði hún
strokið að heiman með Ethan
Gilchrist, laglegum knattspymu-
leikara, sem var í heimsókn í
borginni og stundaði verkfræði-
nám í hjáverkum frá knatt-
spymunni. Árið eftir fæðingu
Amöndu stakk hann af tilBrasil-
íu í hæpnum tUgangi og skildi
eftir konu og bam. Amanda
mundi ekki eftir föður sínum;
hann dó úr hitasótt í Suður-
Amer;ku. Þegar Jessica var bú-
in að ná sér eftir harminn sneri
hún sér að því í fullri alvöru,
en í allri siðsemi, að svipast um
eftir manni til að sjá fyrir sér
og baminu. Everett Hardcastle
varð fyrir valinu. Hann var
þokkalegur, dálítið þunglama-
legur maður af ágætri ætt,
og auk þess var hann efnaður.
Þannig lagði hún grundvölUnn
að framtíð Amöndu.
Meðfædd eðlisávísun Jessicu
og auður seinni manns hennar,
gerði henni kleift að gefa dótt-
ur sinni þá menntun og beina
henni á þær brautir sem stöðu
þeirra í þjóðfélaginu sæmdi.
Amanda var í Ieikskóla, síðan
í fínum undirbúningsskóla og
sótti auk þess kennslu í „nútíma,
tjáningarfullum dansi'1; auralaus
Parísardama kenndi henni fal-
lega frönsku og fráleita ítölsku.
Amanda var bráðþroska; þegar
hún var fimmtán ára hafði hún
lært að meðhöndla pilta á kæru-
leysislegan og yfirlætisfullan
hátt, sem reyndist vel til að iaða
þá að sér og halda þeim í hæfi-
legri fjarlægð. Auðvitað hélt
Jessica yfir henni hið hefðbundna
erindi um leyndardóma lífsins
og ástarinnar, en Amanda varð
ekki vitund héraleg yfir þvi;
henni þótti það bara óþarfi, þvi
að hún vissi þetta allt áður. Það
var um þetta leyti sem hún fór
að nefna móður sína skírnar-
nafni. Jessica mótmælti því ekki;
það virtist nýtízkulegt, og henni
fannst hún yng.iast við það.
Næstu tvö árin gekk Ainanda
í fínan heimavistarskóla og í
sumarleyfunum ferðaðist hún
með móður sinni til Frakklands
og Sviss, til Italíu og Grikklands.
Þegar hún var sautján ára fékk
hún inngöngu í samkvæmislífið,
meðan hún var heima í jóia-
leyfi. Það gekk fyrir sig með
miklum glæsibrag; það var að-
eins eitt sem setti blett á kvöld-
ið: Herra Hardcastle, sem yfir-
leitt var hæglætið sjálft, fékk sér
einum of mikið neðan í því, eig-
inkonu sinni til mikillar skeif-
ingar, og lét allt í einu sjá sig
með blómsveig um höfuðið. Am-
öndu þótti það spaugilegt og nún
gladdist yfir því að stjúpi henn-
ar skyldi skemmta sér vel. Það
fór mjög .vel á með henni og
stjúpanum; hún kallaði hann
Toppý, og þau skemmtu' sér við
að eiga ýmis saklaus leyndar-
mál á bak við Jessicu.
Amanda elskaði móður sína,
dáðist að henni og fór að ráðum
FLJUGIÐ mcð
FLUGSÝN
til NORÐFJ ARDAR
Ferðir olla
virka daga
Fró Rcykjavík kl. 9,30
Fró NcskaupstaS kl. 12,00
AUKAFERÐIR
EFTIR
ÞÖRFUM
þórður
sjósiri
4567 — Juan er órólegur. Hann þekkti tengdaföður sinn vel grípur Rudy fram í — Við munum sjá um þá hlið málsins.
og veit að hann mun einskis svífast til þess að ná auðæfunum í Wu skilur aðeins orð og orð á stangli, en hann álítur sig vita
sínar hendur. — Ég hef leyfi til þess að vinna í námunni næstu nóg. Hér verður að grípa inní. Og eftir að hafa rætt málið við
fimm árin, en fjármagn .. — Um peninga þarftu ekki að hugsa, bróður sinn stutta stund þykist hann vita hvemig.
BURGESSTARRAGON
mayonnaise er betra
HIÓLBARÐAR
FRA , ,
SOVETRIK3UNUM
REYNSLAN
HEFUR
SANNAÐ
GÆÐIN
MARS TRADING CO. H.F.
KLAPPARSTÍG 20 SÍMI 17373
0 Danmörk - Sv/Jb/óð - Rúmenía^
129.7. - /9.8. 22 daga ferð §
■' - • -------v//Æ
W/////S
daga
Verð kr. 13,580
í
Fararstjóri: Gestur Þorgrímsson.
Ferðir, hótel, matur og leiðsögn innifalin f
verði. Aðeins morgunmatur í Kaupmannahöfn.
Ferðir til Istanbul, Odessa, og innan lands gegn
vægu aukagjaldi. Ferðamannagjaldeyrir. 300 sól
ardagar á ári. Þægilegt loftslag. Nýtízku hótel
og gott fæði. Tryggið ykkur far í tíma. Ödýr-
ustu Rúmeníuferðir sem völ er á. Örugg farar-
stjórn. Höfum nú þegar sent yfir 50 manns.
Ferðaáætlun: 29. júlí: Flogið til Kaupmanna-
hafnar og dvalið þar 2 daga. 31. júlí: Farið með
ferju til Malmö og flogið samdægurs til Con-
stanta og ekið, til Mamaia baðstrandarinnar við
Svartahaf og dvalið þar í hálfan mánuð á hótel
Doina. 14. ágúst: Farið frá Mamaia til Constanta
og flogið til Malmö en þaðan farið með ferju
til Kaupmannahafnar og dvalið þar 6 daga. 19.
ágúst: Flogið til íslands.
LAN DSy N ^
I
1
Skipholti 21 simar 21190-21185
j^eftiMolku^ ..| j 111 j | jj
Auglýsið í Þjóðviljunum
4