Þjóðviljinn - 05.10.1965, Page 10

Þjóðviljinn - 05.10.1965, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVTLJlNN — Þriðjudagur 5. október 1985, EFTIR MARÍU LANG í léttum rómi, en augun sem horfðu á móðurina voru hörku- leg. — Þú gætir sýnt eðallyndi þitt og fórnfýsi með því að gefa mér þrjátíu af þessum fimmtíu þúsundköllum þínum. — Þrjátíu? Þrjátíu þúsund! Ertu alveg genginn af vitinu? — Ég hef þörf fyrir einmitt þá upphæð. Ég fæ þessa pen- inga hvort sem eftir þinn dag. — En. sagði Lovísa háðslega við Clöru. þú getur reyndar lán- að mér af þínum peningum fyrst þér er svona annt um bú- garðinn okkar. Það er betra en láta þennan ræfil sem þú býrð með sólunda arfinum. 1 stað þess að rjúka upp, horfði Clara. á systur sína með sama alvarlega svipnum og hafði verið á henni áðan. Síðan sagði hún hljóðlega: — Ef ég skrifa erfðaskrá, get ég þá ekki arfleitt hvem sem er að eignum minum? — Jú, sagði Henning dálítið undrandi. Það geturðu. Það geta þeir sem eiga enga afkomendur. — Erfðaskrá, vældi Lovísa eins og hún hefði orðið fyrir persónu- legu óláni. Og Ellen Bengtsson endurtók með undarlegum þunga: — Erfðaskrá. Það var þá sem þau voru trufluð. • Einn glugginn í stofunni hafði allan tímann staðið opinn út að torginu, og þrátt fyrir hávaða og þys og fójtaspark, var engum erf- iðleikum bundið fyrir þann sem stóð á gangstéttinni að hlusta á samtal þeirra. Að minnsta kosti ef viðkomandi maður stóð alveg upp við apótekarahúsið og hafði auk þes áhuga á málinu sem um var rætt. Vincent Flod hafði áhuga. Hann heyrði vel að hann var kaUaður ræfill og sólundari og hann heyrði líka sitthvað fleira. Auðvitað hafði hann alls ekki í hyggju að gera vart við sig eða trufla samtalið á neinn hátt. Hárgreidslan Hárgreiðslu- og snyrtístofa Steinu oq; Dódó -.aueavegi 18 HI hæð (lyfta) SÍMl 24-6-16 P E R IVI A Hárgreíðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21 SÍMl 33-9-68 D O M U R Hárgreiðsia vlð allra næfi TJARNARSTOFAN rjamargötu 10 Vonarstrætis- megin — Sími 14-6-62 Hárereiðslustofa Austurbæjar Marla Guðmundsdóttii Laugavegi 13 simi 14-6-53 NuddstofaD er á sama stað En hann stóð rétt fyrir aftan markaðsborð, þar sem selt var brauð með osti og pylsum og rétt hjá því var grind með súkkulaði og karamellum. Eink- um kringum hina síðamefndu flu-gu ótal geitungar. Einn þeirra villtist á brúnni kókósbollu og sólbrenndum hnakka. Manninn klæjaði, hönd var borinn að hnakkanum og eitraður brctddur stakkst gegn- um sveitt mannshörund. 7 Vincent Flod bölvaði hátt og kröftuglega. Og samtalið innan við giugg- ann hljóðnaði. FIMMTI KAFLI — Mikið áttu bágtr, sagði sonur héraðsdómarans, sem var alls staðar nálægur, — að þurfa að vinna þegar markaður stend- ur yfir. Hvað ertu búinn að taka margar fyllibyttur? — Tja, ég hef nú ekki talið það saman. Tuttugu til tuttugu og fimm stykki, hugsa ég. — Nehei, nú ertu að gera að gamni þínu. Það er ekki pláss fyrir svo marga í grjót- inu, Hvað gerirðu ef það verður alveg fullt þar... alveg troð- fullt útúr dyrum? — Legg þá hvem ofan á annan frá gólfi til lofts, hvert lagið ofan á annað. — Það er sniðugt, lagsmaður. Það vildi ég svei mér fá að sjá. Nú færðu bráðum einn í viðbót. því að þarna er plötu- slagarinn að fara inn á hótelið. Leó Berggren andvarpaði og ákvað að skipta sér ekkert af I því sem var að gerast kringum ' borgarhótelið, þar sem fram- reitt var í tilefni dagsins bæði í borðsalnum niðri og uppi í hátíðasalnum. Það gekk víst fjörfega fyrir sig nú þegar; verra yrði það þegar liði á kvöldið. Það var bezt að íara sparlega með kraftana þangað til. En hann vorkenndi alls ekki sjálfum sér þegar hann stikaði kringum torgið í septembersól- skininu. Á dimmum vetrar- kvöldum, þegar götur bæjarins voru mannauðar að undanskild- um einmana götulögregluþjóni á vakki, þá var starfið oft til- breytingarlaust, en í dag þegar allt moraði í borgarbúum og sveitafólki og útkjálkakaup- mönnum, leið honum prýðilega. Öðru hverju staðnæmdist hann og skiptist á fáeinum orðum við kunningja, Algren skósmið sem seldi leðurvörur við kirkju- garðsvegginn,/ ungfrú Bilkvist, hressa og káta, sem hafði sett upp grindina sína handan við torgið og bauð leikhúskonfekt á þrjátiu og fimm aura hundrað grömmin. Engquist gamla með heimatilbúnu, víðfrægu kara- mellumar sínar. En hvert svo sem .eið lá, þá var eins og hon- um yrði tíðgengast um suð- anstur homið á torginu. Þar dokaði hann við og hvíldi sig, þar sá hann gegnum apóteks- gluggana í Tuss, sem vó og mældi og afgreiddi og hafði miklu meira að gera en hann, og þar var það sem hann hrökk í kút en varð þó himinglaður, : þegar hún laut út um glugg- ann og spurði: — Má bjóða herranum aspir- ín eða tvöfalda brjóstdropa? Úr þessari varðstöðu tók hann líka eftir ýmsu smávegis, sem virtist á einhvem hátt standa í sambandi innbyrðis. Fyrst opnaði móðir Tuss glugga hjá Soffíu Sjöberg, hún kink- aði vingjarnlega kolli til hans, og Leó Berggren, sem vissi sitt- hvað um flesta í Skógum, hugs- aði sem svo að það væri ekki á henni að sjá að hún yrði bráð- um fimmtug; hún var brúneygð og liðleg eins og dóttirin og dökka hárið klippt samkvæmt nýjustu tízku. Yfir torgið kom Bengtsson bankagjaldkeri gang- andi; hann fylgdist líka með tízkunni og var glæsilega búinn í dökkbláum fötum með fínleg- um röndum og breiðum, boga- dregnum jakkahornum. Klæð- skerasaumuðum. Dýrari en fín- ustu tilbúnu fötin hjá Collijins á níutíu og átta krónur. Það lifnaði yfir hjónunum þegar þau komu auga hvort á ann- að og Henning hraðaði sér, en nam aftur staðar, þegar hann kom auga á eina af kerlingun- um frá Bengtsnesi við sælgætis- borðið hjá Engquist. Það var Lovísa, sú leiðinlegasta af þeim að áliti unga lögregluþjónsins. Hún var berhöfðuð og í brún- flekkóttum kjól og hélt fast um handtöskuna sem var eins og poki í laginu. Bróðursonurinn stillti sér hljóðlega upp fyrir aftan hana í biðröðinni. Hún tók viðbragð, þegar hann rétti út höndina til að halda á kara- mellunum hennar og tróð þeim í skyndingu niður í rúmgott veskið. Berggren lögregluþjónn fór enn einn hring kringum torgið, sá sér til ánægju að einn af embættisbræðrum hans hafði komið lagi á ringulreiðina fram- anvjð. hótelið, og. gekk síðan aftur að hominu sínu og fór að velta fyrir sér hvað Vincent Flod frá Finnatjömum væri að gera. þar sem hann stóð rétt upp við húsvegginn með eyrað alveg upp að gluggajáminu hjá frú Sjöberg. Vörður laganna 'hafði einmitt tekið þá ákvörð- un að skipta sér af málinu, þeg- ar stór og suðandi geitungur kom á vettvang. Og samstundis breyttist þetta í reglulegan sorgarleik, enda þótt Leo Berg- gren heyrði aðeins en sæi ekki það sem gekk fyrir sfg í stáss- stofunni hjá Soffíu Sjöberg. Þetta hófst með því að Clara Bengtsson rak grett andlitið út um 'gluggann og hrópaði: — En elzku bezti! Ert það þú? Hvað gengur að Þér, ertu veikur? — Það var bölvaður geitung- ur, stundi Flod. Æ, ég held þetta far; alveg með mig, hann hefur sjálísagt spýtt djöfuls eitrinu inn í einhverja slagæð. — Komdu inn! Komdu bara inn, þá geturðu lagt .þig útaf í sófa. — Ef þú vogar þér að draga þessa karldruslu hingað inn, sagði illileg rödd, sennilega rödd Ellenar, þá fer ég úr húsinu. Soffía, bannaðu henni... — En hann þarf á hjálp að halda, sagði Magniid. Geitungs- stungur eru enginn bamaleikur. Fyrir utan gluggann lagði bústna brauðsölukonan sitt til málanna: — Hann er alveg að lognast út af, það er víst og satt. En það er eins og ég hef alltaf sagt, karlmenn þola fjandann ekkj neitt þegar út í það kem- ur. Farið í öllum bænum inn- fyrir með hann og baðið hann duglega uppúr brennivíni, það það eina sem dugar við geit- unga. Og það sakar auðvitað ekki þótt svolítil ögn fari inn- byrðis líka . .. — Ingvar, skipaði Soffía S.iö- berg, iæstu útidyrunum. Ingvar! Hvar er hann? Ó, mígrenutöfl- urnar mínar... En þá var Clara komin út á gangstéttina. Hún studdi með styrkum armi ekkilinn sem enn var að barma sér og bölva og leiddi hann festulega að grænu útihurðinni — og innum dym- ar. Henning Bengtsson lokaði stofuglugganum þungur á brún- ina. og eftir það gátu óviðkom- andi ekki lengur fylgzt með því sem gerðist. Leó Berggren. dokaði samt sem áður við í nágrenninu, í von um að um einhvers konar fram- hald yrði að ræða, og þær von- ir hans rættust. Grænu dyrnar opnuðust að nýju og Ingvar Sjöberg kom út. Hann íók upp sígarettu- pakka og langir, brúniT fing- urnir skulfu, þegar hann skýldi loganum fyrir blæstrinum. — Fjandinn hirði þser allar! Nú er meira að segja Ellen frænka orðin móðursjúk. Hef- urðu séð Renötu? — Á leið niður á Gleðibakka. — Ágætt. Það hentar mér á- gætlega. Bless á meðan. Næsta persóna sem kom útum dyrnar var Ellen Bengtsson, en Leó sá alls ekki votta fyrir neinni móðursýki í ljósbláum BRUNATRYGGINGAR á húsum í smíðum, vélum og áhöldum, effni og lagerum o.ffl. Heimístrygging hentar yður Heimilislryggingar Innbus Vatnstfóns Innbrots Glertryggingar TRYGGINSAFELAGIÐ HEIMIRS LINDARGATA 9. REYKJAVIK SlMI 21260 SlMNEFNI , SURETY SCOTT'S haframjöl er drýgra BLADADREIFINC Börn eða fullorðnir óskast til að bera blað- ið til kaupenda í eftirtalin hverfi: Reykjavíkurveg — Sigtún — Kleppsveg — Sogamýri — Gerðin — Seltjamarnes I og II. K6PA¥0GUH Blaðburðarbörn óskast til að Kera blaðið til kaupenda í Kópavogi. Hringið í síma: 40319. Sími 17 500 HJOLBAKÐAR FRÁ , , SOVETRIKJUNUM REYNSLAN HEFUR SANNAÐ GÆÐIN Akureyri! Akureyri! Unglingar óskast til að bera blaðið til kaup- enda á Akureyri. — Upplýsingar hjá Aðal- steini Þórarinssyni, Hafnarstræti 96 eða á skrifstofu Verkamannsins, Brekkugötu 5, sími 11516 ÞJÓÐVILJINN INNHEIMTUDCILD ÚTVCGSBANKA ÍSLANDS er flutt í ný húsakynni á 2. hæð húss bankans við Austurstræti. UTVEGSBANKI ÍSLANDS. Kona óskast Kona óskast í eldhús Kópavogshaelis. Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 41502. Reykjavík, 4. okt. 1965 Skrifstofa ríkisspítalanna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.