Þjóðviljinn - 26.10.1965, Blaðsíða 5
Bikarkeppni K.S.Í:
llrslit fengust eftír 236 mínútna
leik Akurnesinga og Keflvíkinga!
CL im
< //a OVENJU
Z HAGSTÆTT
VERÐ
X ♦
X No. 48-57
Kr. 202.00
X
co ♦
V) LÆGSTA
VERÖIÐ
z FYRIR
MESTU
GÆÐ 1 N,
X ♦
z Útsölustaðir
< í Reykjavík:
z —
KR0N
< Skólavörðustíg
SÍS
Austurstræti
GEFJUN-IÐUNN
X \ Kirkjustræti
og hjá
Ul KAUPFÉLÖGUNUM
um iand aiit
X
Akranes sigraði 2:0 og fer í úrslitaleik gegn Val
□ Það vantaði aðeins 4 mínútur upp á fjóra
klukkutímana þegar Benedikt Valtýsson skor-
aði markið sem að öllum líkindum hefði nægt
til að tryggja Akranesi sigur í þessari löngu og
ströngu viðureign þeirra og Keflvíkinga í bikar-
keppninni. Aðeins 4 mínútur voru eftir af leikn-
um, og allt benti til þess að útkljá yrði leikinn
með vítaspyrnum, en til þess kom þó ekki, góðu
heilli, og Skagamenn höfðu heppnina með sér
í lok leiksins. Bætti Björn Lárusson öðru marki
við með glæsilegu skoti. Eins og í fyrri leikn-
um varð að framlengja leiknum á laugardag,
því að ekkert mark hafði verið skorað.
Þessi leikur var á margan hátt
svipaður fyrri leik þessara ^'ða.
Hann var frá upphafi skemmti-
legur og ,,spennandi“ þótt “kk-
ert mark væri skorað í 116
mínútur. Hraði var ef til vill
heldur meiri í leiknum, og nú
eins og þá voru Keflvíkingar
lengst af heldur aðsópsmeiri í
aðgerðum sínum, en þeim tókst
ekki að nýta tækifærin, oótt
þeir virtust heldur sigurstrang-
legri lengst af. Á móti kom svo
af hálfu Skagamanna að í leik
þeirra var heldur meiri knatt-
spyma, næmari knatttilfinning,
og auga fyrir staðsetningu. Enn-
fremur var vörn Skagamanna
.óvenjuþétt og öftustu vöm
þeirra er stöðugt að fara fram
í staðsetningum og nálgast það
að leika betur en aðrar varnir
hér eftir hinu svokallaða
þriggja bakvarða kerfi.
Áttu Keflvíkingar erfitt með
að brjótast í gegnum vörnina,
og réyndu þeir því langskot,
sem Helgi var sannarlega mað-
ur fyrir, og ef til vill lék .hann
nú sinn bezta leik á sumrinu.
Keflvíkingar léku undaVi
vindinum í fyrra hálfleik, en
stinningskaldi var af austri. Þó
nokkuð lægi yfirleitt á Akra-
nesi tókst Sunnanmönnum ekki
að opna vöm Skagans og draga
sér tækifæri, og það voru
Skagamenn sem sköpuðu' fyrsta
verulega hættulega augnablikið,
er Matthías fór út til hægri og
sendi vel fyrir. Þar náði Eyleif-
ur knettinum og skaut hörku
skoti sem Kjartan. með mjög
góðri vörn, fékk slegið í horn.
Keflvíkingar skutu mun
meira en Akranes-menn, en
eins og fyrr segir ekki úr opn-
um tækifærum. Þeir voru vfir-
leit.t, bæði undan og móti vind-
inum, heldur meira í sókn. Að
vísu dró það heldur úr sóknar-
þunganum að Guðni var dreg-
inn aftur til að styrkja vörn-
ina, Eramb'nunni tóicst ekki að
ná verulega saman, þó að við
kæmu allgóðir samleikskaflar.
Hættulegustu skotin átti Rún-
ar í tvö skipti, en Heigi varði
mjög vel í bæði skiptin. .ióm
Jóhannssyni tókst ekki yeru-
lega upp og átti hann erfit.t
með að losa sig frá Kristoi
og afvegaleiða hann af miði-
unni. Rúnar, Karl og Einar
voru annars ágætir.
Þegar liðnar voru 90 mínútur
var framlengt í 2x15 mínútur,
og þá bregður svo við að Ak-
urnesingar taka heldur frum-
kvæði í leiknum, eru ákveðnari
og harðskeyttari, þó að beim
tækist ekki að skapa sér opin
tækifæri. Þó átti Einar gott
skot á 4. mín. framlengingar-
innar. og á næstu mínútu skaD-
ar Eyleifur gott tækifæri. er
hann gefur fyrir frá hægri.
Skail þar hurð nærri hælum,
er Kjartan bjargaði með ágæt-
um.
25 mín. framlengingarinnar á
Evleifur gott skot sem skríður
rétt framhjá.
Á 26. mín. framlengingar-
innar fær Akranes aukaspyrnu
á Keflavík. rétt fyrir utan víta-
teig til hægri. Taka menn sér
stöðu til varnar og virðist sem
þama sé ekki nein hætta á
ferðum. En hvað skeður? Hinn
þéttbyggði og knái Benedikt á
greinilega að taka spyrnuna.^s-
Safnar hann greinilega allri
orku sinni í þetta spark, sem
með ofsahraða smaug í gegn-
um varnarvegginn. Óvænt fyrir
markmanninn sem varð of
seinn til varnar. Virðist þetta
fá á Sunnanmenn og var sem
vörnin opnaðist, því að á 29.
mín. sækja Skagamenn og
hrekkur knötturinn til Bjöms
Lárussonar. sem þegar eygir
möguleikann og spyrnir hörku-
fast. Hafnar knötturinn í net-
inu.
Tvö mörk gegn engu og ein
mínúta til leiksloka, og varla
um breytingu að ræða úr þvi
sem komið var.
Það vakti nokkra athygli að
Skúli Hákonarson, sem ævin-
lega er mikiil drifkraftur (
framlínu Akraness var ekki
með í þessum leik, en það yirt-
ist engu breyta, né heldur hitt
að Eyleifur var ekki eins upp-
lagður og virkur og hann getur
verið, þegar honum tekst veru-
lega upp.
Það er í rauninni traustveKj-
andi fyrir Akranesliðið að hinir
ungu menn sem nú eru stöðugt
að koma fram virðast ekki á
neinn hátt þjást af minnimátt-
arkennd, eins og oft er um unga
menn. og sýndu þeir í þessum
íeik ekki síður en urn daginn
að þar er á ferðinni góður
efniviður.
Það verður ekki sagt að
heppnin hafi verið með KeH-
víkingum í þessum Ieikjum. því
að ef leggja á til grundvallar
sóknarþungann þá voru beir
yfirleitt heldur meira í ,ókn,
en það virðist sem aðgerðirnar
upp við markið séu þeirra
veika hlið- því að það verður
að skora mörk til þess að t'á
stig.
Vörn Keflavíkur er mjög sterk
ef litið er á hvern einstakan, og
eru þar beztir Högni Sigurður
Albertsson og Sigurvin. er,^
vörnin leikur ekki af því ör-
yggi og gert er ráð fyrir í
þriggja bakvarða kerfinu; eess
vegna getur orðið ,,panik“ ef
sóknarmennirnir komast nærri
markinu.
Eins og fyrr segir var leik-
urinn skemmtilegur og þrátt
fyrir storm og regn-hraglanda
og vetrarbyrjun stóðu áhorf-
endur hinir föstustu til síðustu
mínútu, og vildu af engu missa.
Og nú sem iokaþáttur í
keppnistímabilinu í ár mætast
svo Valur og Akraness um
næstu helgi. og munu víst fiest-
ir „tippa“ á Akranes sem sigur-
vegara í þeim leik.
Dómari var Grétar Norðfjörð
* og dæmdi vel.
Frimann.
ForsætisráSherra-
funttar Norðurl.
Sameiginlegur fundur forsæt-
isráðherra Norðurlanda og for-
seta Norðurlandaráðs verður
haldinn í Imatra í Finnlandi
dagana 29.—30 þ.m.
Dr. Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, mun sækja fund-
inn og fer utan 26. október, Er
forsætisráðherra væntanlegur
heim aftur 2. nóvember.
(Frétt frá forsætisráðuneytinu).
Qjuzéoó
S A L T
CEREBOS
í HANDHÆGU BLÁU DÓSUNUM
HEEVISÞEKKT GÆÐAVAR^
Messrs. Kristján Ó. Skagfjörð Limitec
Post Box 411. REYKJAVÍK, Iceland
1
«
Þriðjudagur 26. október 1965 — ÞJÓÐVIBJINN — SlÐA R
Keflvíkingar sækja að marki Akurnesinga í fyrri hálfleiknum á
laugardaginn. — (Ljósm. Þjððv. A. K.)..
Auglýsing um lögtök
Samkvæmt beiðni Ríkisútvarpsins, dags. 19. okt.
1965, úrskurðast hér með, að lögtök .fyrir ógreidd-
um afnotagjöldum útvarps fara fram að átta dög-
um liðnum frá birtingu úrskurðar þessa.
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 22. okt. 1965.
Kr. Kristjánsson.
Gulrófur
Fólk óskast til að taka upp rófur. — Fær fjórða
hvern poka. Gæðavara og góð uppskera. — Garð-
urinn er í Smárahvammi við Fífuhvammsveg í
Kópavogi. •
Upplýsingar í síma 22790.
Nylon-úlpur
Malskinnsbuxur, vinnubuxur í úrvali. —
Verðið mjög hagstætt.
Verzlun Ó. L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
Endurskoðandi óskust
Kópavogskaupstaður óskar eftir að ráða löggiltan
endurskoðanda frá næstu áramótum. — Umsókn-
ir ásamt launakröfum sendist undirrituðum fyr-
ir 5. nóv. n.k.
Kópavogi 25. okt. 1965.
Bæjarstjórinn.
1 >