Þjóðviljinn - 28.10.1965, Page 1
Fimmtudagur 28. október 1965 — 30. árgangur — 244. tölublað.
Saksóknari kaupir hús af rikinu
Er ekki sama viS hverja
ríkissjóður á húsakaup?
í nýlega útkomnum Kaup-
sýslutíðindum er frá því skýrt að
7. september sl. hafi Valdimar
Stefánsson saksóknari ríkisins
keypt efri hæð húseignarinnar
Ægissiðu 98 af ríkissjóði fyrir
eina miljón, 575 þúsund krónur.
Þjóðviljinn hafði samband v'ð
Baldur Möller ráðuneytisstjóra í
dómsmálaráðuneytinu og spurði
hann nánari frétta af þessari nús-
sölu. Sagði Baldur að salan hefði
farið fram samkvæmt heimild í
fjárlögum þessa árs og hefði
borgardómari dómkvatt mats-
menn til þess að meta eignina.
Jóhannes Kjarval bið-
ur blöðin fyrir kærar
kveðjur til óteljandi
fjölda fagrakyns og
karla, frœnda og vina,
sem sent hafa fagnað-
arskeyti, blómagjafir og
dýrlegar vísur og kvæði.
Einnig kærar þakkir
til blaðanna fyrir fram-
úrskarandi viðmót um
þennan langa tíma.
Þetta gæti verið
bráðabirgða lofgjörð, er
hefði átt að koma miklu
fyrr.
Væri það helmingur allrar hús-
eignarinnar sem ríkið hefði átt
og saksóknari keypt.
Þá sagði ráðuneytisstjórinn að
húsið hefði á sínum tíma verið
byggt af þeim Einari Bjamasyni
og Henrik Sv. Björnssyni, en fyr-
ir 13—14 árum keýpti ríkissjóð-
ur helming húseignarinnar. efri
hæð og ris, af öðrum þeirra sem
embættisbústað handa Valdimar
Stefánssyni, er þá var sakadóm-
ari í Reykjavík. Síðan keypti
Haukur Thorarensen hinn helm-
ing eignarinnar, neðri hæð og
kjallara.
Þjóðviljinn aflaði sér upplýs-
inga um brunabótamat og fast-
eignamat húseignarinnar. Er
brunabótamatið á húsinu öllu kr.
2.850.000.00 en fasteignamat lóð-
ar og húss samtals kr. 329.000 00.
Er söluverð hálfrar húseignarinn-
ar því 150 þúsund krónum hærra
en brunabótamat hennar og rösk-
lega níu sinnum hærra en fast-
eignamat hennar. Munu bessi
hlutföll milli söluverðs og bruna-
bóta- og fasteignamats mjög lík
og gerist á frjálsum sölumarkaði
húsa.
Sé hins vegar gerður sam-
anburður á þessari hússölú
rikissjóðs og kaupum sama
aðila á húsi Guðmundar f.
Guðmun.dssonar fyrrverandi
utanríkisráðherra, Itemur í
Ijós að lítið samræmi er í
matinu á þessum tveim hús-
um, því að ríkið keypti hús
Guðmundar 1. á nær sautján-
Togaradeilan leyst?
* Á sáttafundi í togaradeilunni sem stóð
fram á miðvikudagsmorgun náðist samkomulag
og undirrituðu samninganefndirnar það með fyr-
irvara um samþykki félaganna sem í hlut eiga.
* Félögin unnu svo að því í gær að hafa sam-
band við skipin sem eru dreifð víðsvegar en gert
var ráð fyrir í gærkvöld að atkvæðagreiðsla
kynni að taka tvo til þrjá daga.
Verkfallinu verður því ekki aflýst fyrr en
atkvæðagreiðslu er lokið og því aðeins að samn-
ingarnir. hafi hlotið samþykki.
Viðurstyggileg spellvirki
unnin á fögru listaverki
Enn hafa verið unnin and-
styggileg spjöll á listaverki
í einum almenningsgarði
borgarinnar, að þessu sinni á
styttunni Pómónu í Einars-
lundi við Hringbraut. Hefur
einhver eða cinhverjir læðzt
þangaö í skjóli náttmyrkurs-
ins í fyrrinótt og klesst ut-
an á hana hvítri málningu í
líkingu við brjóstahaldara og
mjaðmabelti.
— Þetta er alveg óheyri-
legur verknaður og hneisa.
að svona lagað skuli geta
komið fyrir, sagði Hafliði
Jónsson garðyrkjustj. Reykja-
víkurborgar, en við náðum
földu fasteignamati þess og
meira en tvöföldu brunabóta-
mati. f hverju liggur þessi
mikli munur? Hingað til hef-'
ur þó vcrið talið, að hús við !
Ægissíðuna í Reykjavík væri
ekki minna virði en gamatt
hús við Brekkugötuna í Hafn-
arfirði. Hver er skýringin?
Það væri fróðlegt að fá svar
frá réttum aðilum við þessari
spurningu.
Kiarvalssýninsn
lauk í fvrrakvöld
Kjarvalssýningunni í Lista-
mannaskálanum lauk í fyrra-
kvöld og seldust sýningarskrár
fyrir tæplega átta hundrað þús-
und krónur, — hefur verið mik-
ið fjölmenni á þessari afmælis-
sýningu og hefur þegar safnazt
allstæðilegur sjóður í fyrirnug-
aða byggingu listahúss á Mikla-
túni,
Sýningarskrárnar voru númer-
aðár og gildir hver skrá sem
happdrættismiði, — en vinningur
Framhald á 2. síðu.
Þan,nig leit styttan Pómóna út eftir spcllvirkjana. Myndina
tók Ijósmyndari Þjóðviljans, A. K. í gærmorgun.
tali af honum í gær, er ver-
ið var að enda við að hreinsa
styttuna.
— Þetta var spred-máln-
ing eða eitthvað þessháttar
og tókst okkur að ná því af
með sérstakri upplausn sem
efnafræðingur lét okkurhafa.
Það hefur oft komið fyrir
áður að einhverju sé klesst
og klínt á stytturnar og er
oft erfitt að ná þessu burtu.
Það tókst betur en á horfð-
ist i þetta sinn.
— Hvernig er það, fá blóm-
in að vera í friði í skrúð-
görðunum á sumrin?
— Já, þau fá nú orðiá að
vera nokkurn veginn í friði,
enda er það 1000 króna sekt
fyrir þá sem til sézt vera
að taka þau.
— Telur þú að þarna hafi
verið unglingar eða fullorðið
fólk að verki?
— Maður trúir þvi ekki,
að það sé heilbrigt fólk. sem
hegðar sér svona, þetta eru
einhverjir vanvitar. En það
er full ástæða til að Ieita
uppi þá sem gera þetta, sagði
Hafliðj að lokum.
Styttan af frjósemisgyðj-
unni Pómónu var sett upp í
Einarslundj 1955 O" er hún
eftir frægan danskan mynd-
höggvara Johannes C. Bjerg.
Hún er eign Listasafns rík-
isins gefin af Dananum
Foght stórkaupmanni árið
1954.
Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem einhverjir skemmta sér
við að reyna að skýla nekt
Pómónu. Oft hefur komið
fyrir, að hún hafi verið færð
í buxur og einu sinni í bleik-
an undirkjól og sjóhatt. En
þær tiltektir hafa verið til-
tölulega meinlausar miðað
við það sem nú var gert.
Rætt um vegartollinn á Reykjanesbraut á þingi
Ekkert samkomulag gert við
herliðið um vegartollmn!
Hastarlegt að svipta vegakerfið framlagi ríkissjóðs
og nota heimildina til innheimtu gjaldsins um leið
■ f fyrirspurnatíma á al-
þingi í gær urðu miklar um-
ræður um vegamálin, sem
spunnust út af vegaskattin-
um, sem nú nýlega er byrj-
að að innheimta á Reykja-
nesbrautinni. — Gils Guð-
mundsson og Geir Gunnars-
son báru fram fyrirspurn-
ina um skattinn og hvort
ætlunin væri að leggja hlið-
stæðan skatt á í framtíðinni,
ísndsssmband vörubifreiðastjóra
mótmælir upphæð vegaskattsins
Þjóðviljinn hefur snúið sér til Einars ögmundssonar, for-
manns Landssambands vörubifreiðastjóra, og spurzt fyrir um
það hver sé afstaða sambandsins til nýja vegaskattsins á Kefla-
víkurveginum. Einar kvað fulltrúa sambandsins hafa gengið
á fund Ingólfs Jónssonar samgöngumálaráðiherra í gær og
mótmælt upphæð þeirra gjalda sem vörubílstjórum er ætlað
að greiða. Jafnframt mótmæltu fulltrúar landssambandsins út-
reikningum þeim sem birtir hafa verið um sparnaðinn af því
að aka nýja veginn í samanburði við þann gamla, en því 'ief-
ur verið haldið fram að skatturinn nemi aðeins svo sem helm-
ingi af sparnaðinum!
Bent var á það í þessum viðræðum að vörubílar og sérleyf-
isbílar eru nú með samningsbundna gjaldskrá og geta ekki
velt af sér áhrifum hins nýja skatts, og var ráðherrann var-
aður við afleiðingunum ef gjöldin yrðu ekki endurskoðuð til
Iækkunar.
Ráðherrann tók máli fulltrúa landssambandsins vel og nét
því að láta sérfræðinga sína reikna aftur þær tölur sem vé-
fengdar höfðu verið í umræðunum.
ef um meiri háttar vega-
framkvæmdir væri að ræða.
■ Þingmenn Alþýðu-
bandalagsins bentu m.a. á,
hvílíkt ósamræmi væri fólg-
ið í því að taka slíkan skatt
til einnar framkvæmdar,
hækka um leið benzín og
þungaskatt en taka um leið
frá vegunum það framlag,
sem ríkiss'jóður hefur til
þeirra lagt á undanförnum
árum, og samgöngumálaráð-
herra lofaði fyrir . tveim ár-
um, að myndi hækka ár frá
ári er vegalögin voru sett.
■ Þá kom það fram í
umræðunum, að ekki hefur
verið samið um neitt sér-
stakt aukagjald af herliðs-
bílum, sem um veginn aka
og ennfremur er það eftir-
tektarvert að tollskýlið er
sett niður rétt sunnan við
fvrirhugaðan stað alúmín-
verksmiðjunnar, og þarf því
ekki að greiða vegaskatt af
flutningum til þess, ef af
framkvæmdum verður. ,
Sjá frásögn af
umræðum
á baksíðu
Bretinn dæmdur í
260 þús. kr. sekt
Réttarhöldum er nú lokið á
Seyðisfirði í málum brezka tog-
arans St. Andonicus frá Hull og
var skipstjórinn Hugh Leifherzt
dæmdur í 260 þúsund króna
sekt og afli og veiðarfæri gert
upptækt. Skipstjórinn hefur
skotið málinu til Hæstaréttar.
Lítil síldveiði
vegna brælu í gær
1 fyrrinótt var óhagstætt veð-
ur á síldarmiðunum fyrir Aust-
urlandi og lítil veiði. Fengu 43
samtals 13.450 mál og tunn-
ur eða aðeins smáslatta hvert
skip. Voru flest skipin komin í
landvar í gærmorgun eða á !eið
til hafnar.