Þjóðviljinn - 04.05.1966, Side 3
Miðvikudagtrr 4. maí 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA J
Bandarlkjamenn viðurkenna
að hafa ráðizt á Kambodja
Skutu yfir landamæri Suður-Vietnams og Kambodja á
laugardag, en segja að skæruliðar hafi átt upptökin
SAIGON 3/5 — Talsmaður bandarísku herstjómarinnar í
Saigon viðurkenndi í dag að bandarísk hersveit hefði gert
skotárás yfir landamæri Suður-Vietnams og Kambodja.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Bandaríkjamenn viðurkenna að
hersveitir þeirra hafi ráðizt á
Kambodja, en stjórn Kambodja
Nate-steðvar frá
París III London
PARfS 3/5 — AUar líkur eru
taldar á því að aðalstöðvar At-
lanzbandalagsins og yfirher-
stjórn þess í Evrópu (SHAPE)
verði fluttar frá París tjl Lund-
úna. en endanle^ ákvörðun um
þennan flutning verður ekki
tekin fyrr en á ráðherrafundi
bandaiagsins sem haldinn verð-
ur í Brussel dagana 6.—8. júní.
Frakkar hafa krafizt þess að
SHAPE vterði flutt frá París fyr-
ir júlí næsta ár, en hafa ekki
borið fram neina kröfu um
fjutning á aðalstöðvunum.
Póllænd minnist
CZESTOCHOVA' '375 — Um hálf
miljón manna var viðstödd guðs-
þjónustu í nágrenni við bæinn
Czestochbva í Póllandi í dag til
að minnast þess að í ár eru lið-
in þúsund ár frá því að Pól-
verjar tóku kristni. Wyszynski
kardináli prédikaði og vék m.a.
að því að Páll páfi hefði ætlað
að vera viðstaddur guðsþjón-
ustuna. — Því miður var það
ekki guðs vilji, sagði kardínál-
inn, 'en pólska stjórnin synjaði
páfa um vegabréfsáritun.
hefur oft sakað þá og Saigon-
herinn um slíkar árásir.
Þessi skotárás var gerð á
laugardaginn um 110 km fyrir
norðvestan Saigon og var skot-
ið yfir fljót sem þarna skiptir
löndum og er um 250 metra
breitt. Þetta er í útjaðri hins
svonefnda „hersvæðis C“ þar
sem Bandaríkjamenn segja að
Þjóðfrelsisfylkingin hafi mikil-
vægustu stöðvar sínar. Banda-
rískar hersveitir hafa staðið í
sóknaraðgerðum á þessu svæði
undanfarna daga.
Bandaríski talsmaðurinn sagði
að skotið hefði verið á banda-
ríska hersveit frá stöðvum Kam-
bodjamegin við fljótið og hefði
foringi sveitarinnar fyrirskipað
mönnum sínum að svara skot-
hríðinni. Hann hefði ekki þurft
að fá neina sérstaka heimild til
þess.
Snemma í morgun komu
skæruliðar bandarískri fót-
gönguliðssveit í opna skjöldu um
25 km fyrir vestan Saigon og
varð mikið mannfall í sveitinni.
Tilkynnt var í Saigon í dag
að tvær bandarískar flugvélar
hefðu í gær verið skotnar niður
yfir Norður-Vietnam. B-52 þot-
ur frá Guam réðust í dag á
Tay Ninh-hérað í Suður-Viet-
nam nálægt landamærum Kam-
bodja.
Meira herlið
McNamara landvarnaráðherra
sagði í Washington í gær að enn
myndi verða að fjölga í banda-
ríska hernum í Suður-Vietnam,
en í honum eru nú tæplega
260.000 manns. Ástæðan væri sú
að stöðugt fjölgaði í her Þjóð-
frelsisfylkingarinnar og sagði
McNamara að liðsflutningar til
hans frá Norður-Vietnam hefðu
þrefaldazt á síðasta ári. Loftá-
rásirnar sem Bandaríkjamenn
hófu á Norður-Vietnam í febr-
úar í fyrra hafa ag sögn Band.a-
ríkjastjórnar verið gerðar til
þess að köma í veg fyrir slíka
liðsflutninga.
McNamara sagði annars að
„eins og stæði“ myndi það vera
óskynsamlegt og andstætt hags-
munum Bandaríkjanna aðleggja
tundurduflum í innsiglinguna
til mikilvægustu hafnarborgar
Norður-Vietnams, Haiphongs.
Afíog stúdenta í Rómarháskólo
Róstusamt hefur verið í skólanum lengi undanfarið
og hefur einn stúdent þegar beðið bana í óeirðum
RÓM 3/5 — Undanfarið hefur allt verið í uppnámi í há-
skólanum í Róm og kennsla legið niðri f sumum deildum
hans. Sex menn meiddust og um 200 stúdentar voru
handteknir þegar vinstrimönnum og nýfasistum lenti enn
einu sinni saman í skólanum í dag.
Enn einn árekstur
Allharður árekstur varð í gær-
kvöld um kl. hálf ellefu, þegar
tvær bifreiðar rákust saman á
móts við Laufásveg 10. Farþegi
í öðrum bílnum skarst á enni
og var hann fluttur á slysa-
varðstofuna. Maðurinn heitir
Eggert Jóhannesson.
Telpa fyrir bíl
Um fimmleytið í gær varð
átta ára görriul telpa fyrir bíl
á Mýrargötu. Telpan heitir Þur-
íður Marteinsdóttir og á heima
á Rauðarárstíg 26. Um meiðsli
hennar var ekki kunnugt, en
þau munu ekki hafa verið al-
varleg. Þuríður var flutt á slysa-
varðstofuna.
Aflogin í dag hófust þegar
um 100 íhaldsstúdentar undir
forystu þriggja þingmanna ný-
fasista ruddust inn í lagadeild
h.'.skólans þar sem sósíalistískir
stúdentar höfðu búið um sig til
að fylgja eftir kröfu um að lýð-
ræðishættir yrðu teknir upp við
skólann.
Fylkingum laust saman og
urðu margir sárir, rúður brotn-
uðu og spjöll unnin á húsbún-
aði áður en fjölmennt lögreglu-
lið sem kvatt var á vettvang
fengi skakkað leikinn.
Einn af þingmönnum nýfas-
ista meiddist illa og var farið
með hann í sjúkrahús. Sagtvar
að lögreglan hefði lamið hann
til óbóta.
Fjárlög brezku stjórnarinnar
Skattur til að fjölga jseim
sem vinna framleiðslustörf
Vinstristúdentar við háskól-
ann halda því fram að svik hafi
■verið framin við kosningu á
einum trúnaðarmanni þeirra ný-
lega og hafa krafizt þess að kos-
ið verði aftur. Þeir hafa geng-
izt fyrir fundum til að krefjast
lýðræðislegra fyrirkomulags en
ríkt hefur í skólanum og hef-
ur hvað eftir annað slegið í
hart með þeim og nýfasistum og
hefur einn þeirra látið lífið í
þeim átökum.
a
PARÍS 3/5 — Embættismenn
frönsku stjórnarinnar sögðu í
gærkvöld að de Gaulle forseti
hefði engin áform um að fara til
Bandaríkjanna í fyrirsjáanlegri
framtíð. ekki heldur til að heim-
sækja aðalstöðvar SÞ. O Þant
framkvæmdastjóri hafði látið
orð falla á þá leið að hann
myndi með sannri ánægju taka
á móti de Gaulle ef hann yrði
á ferðinni í New York.
■| Mao- $é veikur
PEKING 3/5 — Talsmaður kín-
versku stjómarinnar bar í dag
á móti þvi að nokkuð væri
hæft i þeim orðrómj að Mao
Tsetung væri ekki heill heilsu.
Það hafði vakjg athygli áð Mao
var ekkj viðstaddur 1 mai há-
tíðahöldin í Peking.
Hecine Ait Ahmed sloppinn
úr fangelsi í Algeirsborg
ALGEIRSBOORG 3/5 — Það vaa'
staðfest í dag í Algeirsborg að
Hocine Ait Ahmed, einn af leið-
togum þjóðfrelsisbaráttu Serkja.
sem verið hefur í fangelsi síðan
1964 hefði sloppið úr fangelsi og
væri hafin mikil leit að honum.
Ait Ahmed stóð fyrir uppreisn
gegn stjóm Ben Bella og safn-
aði um sig liði í Kabylíu. Hann
var tekinn höndum, dæmdur til
dauða, en Ben Bella náðaði hann.
Sovétrikin enn á
r
S
ais
BAY S.LOUIS 3/5 — Forstöðu-
maður geimferðaáætlunar Banda-
ríkjanna, George Muller. gaf í
skyn í gær að búast mætti við
þvi að Sovétríkin yrðu fyrst til
þess að senda menn til tunglsins.
Á fundi með blaðamönnum í
Bay St. Louis sagði hann að
Sovétríkin hefðu haft tveggja
ára forskot þegar kapphlaupið
hófst og að afrek þeirra siðan
hefðu ekki staðið afrekum
Bandaríkjamanna að baki.
Hinir nýju valdhafár í Alsir
sem steyptu Ben Bella í fyrra-
sumar hleyptu Ahmed ekki úr
fangelsinu.
Það spurðist í gær að honum
hefði tekizt að sleppa úr því,
en ekki er kunnugt um atvik.
Talið er víst að hann hafi fengið
aðstoð að utan.
LONDON 3/5 — í fjárlagafr.um-
varpi brezku stjórnarinnar sem
James Callaghan fjármálaráð-
herra lagði fyrir þingið í Lon-
don í dag er m.a. gert ráð fyrir
að lagður verði á sérstakur
skattur í því skyni að fækkað
verði starfsfólki í óarðbærum
þjónustustörfum en fjölgað
mönnum sem vinna við útflutn-
ingsframleiðsluna.
Skattur þessi er lagður á fyr-
irtæki, einkum í þjónustugrein-
um, sem hafa of fjölmennt
starfslið. Ríkisstjórnin vonast til
að þessi nýi skattur muni verða
til þess að því fólki fækki sem
starfar í slíkum þjónustugrein-
um eins og t.d. að bankastörf-
um, í skemmtanaiðnaðinum, hjá
tryggingafélögum og við hár-
greiðslu. En skatturinn mun
einnig bitna á öðrum starfs-
greinum sem ekkert legg:' af
mörkum til útflutningsins, eins
og t.d. byggingariðnaðinum.
Útflutninginn á auk þess að
örva með sérstökum ivilnunum,
hlunnindum og beinum ríkis-
styrkjum.
Þá skýrði Callaghan frá þvi
að innflutningsgjaldið á iðnað-
arvörur sem lagt var á 28. olit-
óber 1964 myndi afnumið í nóv.
ember n.k. Það hefur verið 10
prósent.
Skatturinn á þjónustufyrir-
tæki gengur í gildi í september.
Fyrirtæki verða þá að greiða
25 shillinga (150 krónur) á viku
fyrir hvern mann sem þau ráða
til starfa (75 krónur fyrir kon-
ur og unglinga), en iðpfyrirtæki
fá sérstök fríðindi sem vega upp
þennan skatt og 30 prósentum
betur. Callaghan taldi að þessi
skattur myndi færa ríkissjóði
240 miljónir sterlingspunda á
fjárhagsári.
Búizt hafði verið við því að
tekjuskatturinn myndi hækkað-
ur, einnig neyzluskattur á tóbak
og áfengi og bifreiðagj,öld, en
svo var ekki.
í frumvarpinu er gert ráð fyr-
ir að hernaðarútgjöld muni enn
hækka um 116 miljónir ster-
lingspunda, upp í 2.172 miljónir.
Kínverjar segja
Malínovskí Ijúga
PEKING 3/5 — Kínverska ut-
anríkisráðuneytið sagði i dag að
enginn fótur væri fyrir þeim á-
sökunum Malínovskís landvarna-
ráðherra a ð Kínverjar hefðu
torveldað flutninga á hergögnum
frá Sovétríkjunum til Norður-
Vietnams. Malinovskí hafði sagt
þetta þegar hann var á ferð í
Ungverjalandi nýléga.
— Malfnovskí lýgur, segir
kínverska utanrikisráðuneytið.
Kína hefur aldrei tafið fyrir
flutningum frá Sovétríkjunum
til Vietnam.
Til ársloka 1965 hafi 45.000
lestir af herbúnaðj frá Sovét-
ríkjunum farið til Norður-Viet-
nams um kínverskar járnbrautir,
en aðstofj sú sem þaú hafi veitt
Vietnam værj hvorkj að gæðum
né magni í neinu samræmj við
getu og veldi Sovétríkjanna,
sögðu Kínverjar.
Miklir vatnavextir og flóð
vegna leysinga i Svíþjóð
STOKKHÓLMI 3/5 — í dag
bárus't fréttir af flóðum í ýms-
urn héruðum Mið- og Norður-
Svíþjóðar. Eftir óvenju harðan
vetur og mikil snjóþyngsli er nú
mikiU vöxtur í öllum vötnum
vegna leysinga og er tjónið af
völdum flóðanna talig í miljón-
um sænskra króna.
Mörg fljót hafa flætt yfir
bakka sína og hætta er á að
stíflur láti undan vatnsþungan-
um, kjallarar húsa hafa fyllzt
af vatni, vegir eru ófærir og
heil byggðarjög einangruð. Gerð-
ar hafa verið ráðstafanir til
undirbúnings‘því að flytja verði
fólk burt úr flóðahéruðunum.
Verst er ástandið í norður-
héruðunum og í Smálöndum.
Miklir vatnavextir eru einnig
i Finnlandi og eru flóðin þar
talin þau mestu sem orðið hafa
síðustu öldina og hafa þrír menn
drukknað í þeim. Fólk hefur
verið flutt burt úr þorpum í
Austurbotnj og Satakunta vegna
flóðahættunnar. Hermenn vinna
að því dag Qg nótt að sprengja
ísstíiflur í fljótum.
Aða/skoðun
bifjíeiða í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
fev fram svo sem hér segir:
Mánudagur 9. maí, kl. 10—12 og 13—16,00
að Lambhaga.
Þriðjudagur 10. maí kl. 10—12 og 13—16,00
í Olíustöðinni Hvalfirði.
Miðvikudagur 11. maí, kl. 9—12 og 13—16,30
í Borgarnesi.
Fimmtudagur 12. maí, kl. 9—12 og 13—16,30
í Borgamesi.
Föstudagur. 13. maí, kl. 9—12 og 13—16,30
í Borga'rnesi.
Mánudagur. 16. maí, kl. 9—12 og 13—16,30
í Borgamesi. *
Þriðjudagur, 17. maí, kl. 9—12 og 13—16,30,
í Borgamesi. ^
Miðvikudagur 18. maí-, kl. 9—12 og 13—16,30
í Borgamesi.
Föstudagur 20. maí, kl. 10—12 og 13—16,00
í Reykholti. /
Við skoðun þarf að framviSa kvittunum fyrir
greiðslu opinberra gjalda og tryggingariðgjalda,
enn fremur vottorði um ljósastillingu.
Þeir bifreiðaeigendur, sem egi færa bifreiðir sínar
til aðalskoðunar mesa búast v? bví að þær verði
teknar úr umferð án frpkari fyrirvara, nema þeir
hafi tilkynnt gild' forföll.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Ásgeir Pétursson.
■ DREGIÐ Á
Vöruh; ippdra Ítti MORGUN ENDURNÝJUN LÝKUR
ÆT I UM 1200 KL. 12 Á HÁDEGP
S 1 B s VINNINGA Á MORGUN
*#• H • M • *#•
1