Þjóðviljinn - 08.05.1966, Page 6

Þjóðviljinn - 08.05.1966, Page 6
7 0 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 8. maí 1966 I * I ÞORSTEINN VALblMAR'SSON: Draumur í dags brum Ökklar læstir í gull, tungur þungar af þorsta. Líkneskja í eldkeilu draumsins liggur fyrir dimmum stalli innan sjónmáls •— utan kennsla. Hvað er hér staða Heitir Torg. Hvað stunda? / Nóttin Sorg á eykt hins þunga þorsta. Inn í þungan, andvana drunga slær leiftrum af lífi hinn lífvana eir — lýstur gneistum og skelfur — báknið rís upp — hún rís upp, hin auðkennda mynd: hans, er forðum var eldstólpi lands vors um nótt og um daga sverð vort og skjöldur — rís upp — gnæfir í ljósílæði keilunnar — gengur að diirnmum stalli sínum, gerir skip af lófum sér og sökkvir því í dökkva bergsins, fyllir það svölun uppsprettunnar og eys á þyrstar tungur vorar, úðar tæru regni yfir fölva lömurl, svefnhöfgar brár — og hverfur sem stjarna í logúm óttusólar, er steypt hefur gliti á Austurvöll og er tekin að dansa — Ö, ökklar læstir í gull, og óttusólin tekin að dansa------- \ Armann Halldórsson fimmtugur ! 1 \ \ k. í Nú er, sem betur fer, lið- inn sá tími þegar atvinnuleysi í'íkti á Austuriandi. Silfur hafs- ins hefur skapað efnahagslegt góðaeri við sjávarsíðuna og þrátt fyrir kal í túnum og mikil snjóalög síðastliðinn vetur, mun hagur þeirra, sem landbúnað stunda, mun betri en áður var. Því veldur fyrst og fremst meiri ræktun og aukin vinnu- tækni. Skyndileg breyting á kjörum fólks og afkomumöguleikum veldur jafnan róti i hugum manna. Fólkið gerir meiri kröfur til lífsins, ekki sízt yngri kynslóðin og ber slíkt varla að harma, ef kröfurnar eru skyn- samlegar. Vegleg íbúðarhús rísa nú víða í þéttbýli á Aust- urlandi og gljáfægðir bílar teljast til sjálfsagðra lífsþæg-l inda, þrátt fyrir misjafna vegi. Á sama tíma nýta sum hrepps- félögin ekki til fulls tekju- möguleika sína, vegna skorts á vinnuafli og tregðu á nauðsyn- legum leyfum til framkvæmda að því er sagt er. Víða vantar þó íullnægjandi skólahús og viðunandi aðstæður til íþrótta- iðljana og félagsstarfsemi. Far- skólar eru enn við lýði og kenn- araskortur tilfinnanlegur, enda lítill síldargróði í embættistekj- um þeirra. Ekki eru allir jafn viðkvæmir fyrir örum breytingum samtíð- arinnar: náttúruhamförum, há- vaðanum, hraðanum og dans- inum í kririgum gullkálfinn. Sumir láta ekki glepjast og halda fullu jafnvægi. Einn slíkur situr að Eiðum, mennta- setri Austurlands. Hann er þétt- ur á velli og þéttur í lund, glottir við tönn, bítur góðlát- lega á jaxlinn, brosir við og gerir tvíráðar athugasemdir um tilveruna, þó ií fullri vinsemd og án allrar græsku. Hann les fræði sín af samvizkusemi og hógværð og miðlar nemendum Eiðaskóla með stóiskri ró á- kveðnum skammti af málfræði og sögulegum fróðleik til and- legs viðurværis og uppbygging- ar. Maður þessi er Ármann Hall- dórsson, kenriari við Eiðaskóla. Hann er nú fimmtugur. Ármann er fæddur á Snotrunesi í Borg- arfirði eystra 8. maí 1916. For- eldrar hans, Gróa Björnsdóttir og Halldór Ármannsson, eru bæði ættuð af Fljótdalshéraði. Ármann stundaði nám við al- þýðuskólann á Eiðum árin 1934—’36. Gagnfræðaprófi lauk hann frá Flensborg 1937 og kennaraprófi frá Kennaraskóla Islands 1939. Hann dvaldi við nám í „Den Intemationale Höjskole" Helsingjaeyri sum- arið 1947. Ármann hefur aflað sér mikillar viðbótarmenntunar. Iíann hefur t.d. sóttmörgnám- skeið, bæði hér á landi og er- lendis. Hann er viðurkenndur ágætis kennari og farsæll. Ár- mann hefur lengst af verið kennari við Eiðaskóla eða frá 1944. Þar af eitt ár skólastjóri, meðan Þórarinn Þórarinsson skólastjóri, var í orlofi. Árin 1939—41 var hann kennari í Eiðahreppi og 1941—44 í Seyð- isfjarðarhreppi. Ármann hefur mikið sinnt félagsstörfum eystra. Ég þekki bezt til félagsstarfa hans fyrir. Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands og Kennarasam- band Austurlands. Ármann var í mörg ár ritari ungmenna- sambandsins og um skeið rit- stjóri Snæfells, tímarits þess. Snæfell var viðurkennt gott tímarit, og var það fyrst og fremst að þakka ritstjóra þess, en Ármann er ágætlega ritfær. Ármann átti sæti í fram- kvæmdanefnd 8. landsmóts Ungmennafélags íslands, sem haldið var að Eiðum sumarið 1952. Landsmótið að Eiðum var mikill viðburður eystra og vakti raunar athygli um land allt. Ármann hefur einnig starfað í mörgum nefndum fyrir U.Í.A. Þá hefur Ármann einnig átt sæti í stjórn Kenn- arasambands Austyrlands og starfáð í nefndum á vegum þess. Bæði þessi samtök eiga Ármanni mikið að þakka. Hann er jafnan hinn trausti, hógværi og tillögugóði félagi. Léttur í lund og drjúgur á sprettinum þótt hann láti ekki mikið yfir sér. Margar ánægjustundir hef-ég átt á heimili Áymanns og hinn- ar ágætu konu hans, Ingibjarg- ar Kristmundsdóttur. Þau hjón kunna vel að fagna gesjtum. í tilefni af fimmtugsafmælinu tjái ég Ármanni beztu þakkir mínar og fjölskyldu minnar fyrir liðin ár og árna honum allra heilla. — Sk Þ. M-Mn.BSffiTI (I|yJ U|^| FRAMKVÆMDIR AlbvSuhanðalaeið vill beita sér Tyrir eftiríar- andi ráðstöfumim að hví er varðar framkvæmdir hnrg-armnar og rekstur: i / T Að samTn verði heilSaraaeíltin um framTáraemðir • bnrwþrinnar t.'d. til Áæstu 4ra ára o? har eerð grein fvrir aesTcilegri roð framlcvæmda a hínum ýmsu sviðum, svo og fjármagnsmöguleikum og fjármagnsþörf. ■ O Að Hraðað verði enaurskoðun á reglum um stióm borgarmálefna og þeim komið í skynsam- legt og hagkvæmt horf. O Að gagnger athugun fari fram á rekstri borg- arinnar og borgarstofnana í því skyni að koma að aukinni hagkvæmni og spamaði í öllum vinnu- brögðum. Einkum sé lögð áherzla á að hindra aukna oe óþarfa útþenslu yfirbyggingar og skrif- ttofuhalds. I BORGARMALUM 8. I Að gaumgæfileg athugun fari fram á véla- og "• tækniþörf vegna gatnagerðar og áherzla lögð á að fullnægja henni sem bezt. Að framkvæmdir borgarinnar séu Ifafnan svo '• vel undirbúnar og skinulagðar að komizt verði hjá óþörfum og stórfelldum aukakostnaði. L Að vélamiðstöðin komi unp fullkomnu viðgerð- • arverkstæði, er annist viðgerðir og viðhald bif- reiða og vinnuvéla í eigu borgarinnar. f Að -hraðað verði ráðsföfunum til að koma aðstöðu • og rekstri pípugerðar bæjarins í nútíma horf. 4ð eftirlit verði aukið með vélum og tækjum í ' ;! skyni að draga úr óeðlilegum viðgérðarkostn- aði. ) Rannsókn fari fram á öllum rekstri Rafmagns- • veitunnar í því skyni að draga úr óhóflegum kostnaði við rekstur hennar ov koma hnnnm á eðlilegan crrundvöll, þannie að drecn'ð verði úr' þeim óhófleva r.eksturskosfnaði sem revníst a m.k. tvöfalt meiri en í sarnbærile’mm bæium i náerannalöndunum Með Hessu sé að bvl stpfnf að hindra hinar tíðu ov endurteknn Vi»Wnnir raf- magnsverðs og sérstök áherzla lö«ð á að balda niðri verði á rafmagni til heimilisnotkunar. 1 rt Tekin verði upp nýtízku véltækni við hreinsun gatna og sorphreinsun. 1 1 Borgin skapi sér aðstöðu til beinna kaupa á olíu “ B * og benzíni án milligöngu olíufélaganna. 1 ^ Ráðstafanir séu gerðar til áð spara veruleea bif- B » reiðakostnað hjá borginni og stofnunum hennar. 1 Að gætt sé fyllsta hófs i risnu og áfengi. ekki veitt á vegum borgarinriar. 1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.