Þjóðviljinn - 26.05.1966, Síða 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVItJINN — Fimmtudagur 26. mal 1966
Otgefandi: Sameiningarflolctour alþýdu —. Sósialistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurdur Guðmundssoö,
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson,
Auglýsingastj.: Þorva’dur JJkannesson.
Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skóiavörðust 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 35.00 á mánuði.
Kjaramálin
f^yrir kosningar hvatti Alþýðubandalagið launa-
menn til þess að veita sér aukið brautargengi
og efla þannig alþýðusamtökin í þeim kjarasamn-
ingum sem nú eru framundan. Launamenn tóku
undir þetta sjónarmið með verulegu auknu fylgi,
ekki sízt í höfuðborginni; er ekki efa bundið að
taflstaða verklýðsfélaganna hefur styrkzt 'til
muna af kosningasigri Alþýðubandalagsins ann-
arsvegar og tapi atvinnurekendaflokksins hinsveg-
ar. Enginn skyldi þó ætla að árangurlnn komi
sjálfkrafa eins og manna af himnum; því aðeins
gera hinar nýju aðstæður gagn að þær séu hag-
nýttar af þrótti og atorku af verklýðssamtökun-
um og laumafólki á hverjum vinnustað. Ýmsar
undirbúningsviðræður eru þegar hafnar milli al-
mennu verklýðsfélaganna annarsvegar og at-
vinnurekenda og ríkisstjórnárinnar hinsvegar, em
verkafólk þarf að búa sig undir að fylgja þeim
formlegu viðræðum eftir með afli samtaka sinna
og þróttmiklum og áhrifaríkum baráttuaðferðum
líkt og gert var á síðas'ta sumri.
rr\
J kosningabarát'tunni var margsinnis á það minmz’t
að á undanförnum árum hefði vöxtur þjóðar-
teknanna á fslandi verið örari em víðast hvar arm-
arstaðar, og væru íslendingar nú þriðju í röð þjóða
í Evrópu að því er varðar þjóðartekjur á mann og
þar með ein efnaðasta þjóð í heimi. En með þessa
ánægjulegu staðreynd að bakhjarli verður enn
Ijósara en fyrr hversu ramglát skipting þjóðar-
teknanna er og hversu mikil sóun viðgengst í
þjóðfélaginu. Tekjur verkafólks fyrir venjulegan
dagvinnutíma eru miklu lægri hér en annarstað-
ar þar sem þjóðartekjur á mann eru hliðstæðar;
7 -
vinmutíminn hér er miklu lengri en ýfirleitf er tal-
ið sæmandi annarstaðár. Eigi verkamenn að njóta
hinnar auknu velmegunar í tekjum verða þeir að
ieggja á sig vinnuþrælkun. sem er háskaleg og ó-
sæmileg í nútímaþjóðfélagi. Að vísu má segja að
miklar vinnuskorpur eigi simn þátt í aukningu
þjóðarteknanna, einkanlega í sambandi við fisk-
veiðar og fiskiðnað, en að allt of miklu leýti stafar
hinn langi vinnutími af skipulagsleysi atvinnurek-
emda og stjómleysi á framleiðslunni. En sé um
áð ræða langan vinnutíma af þjóðfélagslegri nauð-
syn ber að tryggja þeim mun lengri leyfi á móti.
Það er eitt meginverkefni alþýðusamtakanna að
l?ysa þennan vanda, stytta raunverulegan
vinnutíma og hækka dagvinmukaupið. Aðstæður
til að ná árangri eru nú betri en oftast áður; at-
vinnurekendur á fjölmörgum vinnustöðum viður-
kenna í verki með yfirborgunum að umsamdir
kauptaxtar eru til muna of lágir, og framundan
er auðsiáanlesa stóraukin eftirspurn eftir vinnu-
afli. Þau hagkvæmu skilyrði ber að hagnýta til
hins ýtrasta. — m,
Minning:
Þórdís Albertsdóttir
Drag skó þína af fótum þér —
kannski hefur þú gott af því
í önnum og ysi hversdagsleik-
ans að staldra við andartak:
Samferðamaður þinn hverfur
af sviðinu — fyrir fullt og allt,
þetta eru þín síðustu orð til
hans:
Þórdís Altoertsdóttir, sem
jarðsungin verður í dag frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði var
fædd á Vestdalseyri við Seyð-
isfjörð 10. júlí 1898. Voru for-
eldrar hennar Albert Sigurðs-
son, sjómaður og kona hans
Helga Jónsdóttir. Þau Albert
og Helga eignuðust 7 börn og
eru nú eftir af þeim að>eins
þrjár systur.
Á öðru ári flyzt Þórdís með
foreldrum sínum suður í Garða-
hrepp og síðan til Hafnarfjarð-
ar bg ólst þar upp í foreldra-
húsum.
Um tvítugsaldur veiktist Þór-
dfs af illkynjaðri liðagigt og bar
aldrei sitt barr til fulls síðan,
en lá heilt ár algjörlega rúm-
föst. Eftir að hún komst til
nokkurrar heilsu átti hún at-
hvarf sitt og heimili hjá systr-
:jm sínum, sérstaklega Maríu,
sem búsett hefur verið alla tíð
í Hafnarfirði og manni hennar
Kristni Magnússyni, málara-
meistara. Mun samband þeirra
systra háfa verið óvenjutraust
og tryggð Þórdfsar við systur
sína og afkomendur hennar
frábært.
1 október 1948 gekk Þórdís
að eiga eftirlifandi eiginmann
sinn Jóhann B. Guðmundsson,
ættaðan af sömu slóðum og
hún. Heimi'i þeirra var alla tíð
í Ytri-Njarðvík.
Þetta er örstutt saga eins
einstaklings i miljónahafinu, en
samt sem áður sérstök saga
bundin aðeins við þennan eina
sem hann á, kannski lærdóms-
rík fyrir okkur hin sem stönd-
um álengdar.
Gefum okkur að minnsta
kosti tóm til að kveðja.
Ef til vill er eðlilegasta krafa
ökkar til lífsins sú. að guð gefi
okkur þrek og heilsu til full-
kominna starfa meðan dagur
telst á lofti. Sú er þó raunin á,
að á þessu er allmikill mis-
brestur, stundum alvarlegur.
Sú samferðakona okkar, sem
við kveðjum hér í dag fékk að
reyna þetta í ríkum mæli.
í blóma lífs síns. þegar von-
irnar eru hvað bjartastar um
hamingju og heilsu, er hún
svipt starfskröftum að verulegu
leyti og fær þá aldrei til fulls.
Á seinni árum stendur dauðinn
jafnan á næsta leiti, liggur
stöðugt í leyni tilbúinn að
hremma bráð sína. ef ekki er
gætt nægilegrar varkárni.
En þess gætti ekki í daglegri
framkomu Þórdísar, að þessi
væntanlega heimsókn yllihenni
neimvn kvíða, hún tók hinu
óumflýjanlega ekki einungis
með fullkominni ró, heldur
með stöðugu brosi á vör og
hugarjafnvægi að því er virtist.
Hversu oft, sem við syngjum:
Veri dauðinn velkominn ....
brestur okkur að jafnaði þá
hugarrósemi, þegar á reynir,
sem sýni að allur hugur fylgi
máli. Þess vegna stöndum við
lítiltrúaðir álengdar og undr-
umst stórlega, þegar við sjá-
um lífstrúna ná svo áþreifan-
lega út yíir gröf og dauða eins
og raun bar vitni í lífi Þórdís-
ar Albertsdóttur. Það er
reynsla út af fyrir sig að koma
í heimsókn tií þess er árum
saman hefur verið merktur
dauðanum — óg veit að svo er.
Hin frábærlega gestrisna kona
veit, að sá gestur, er næst ber
að dyrum. getur verið hinn
síðasti. Eigi ' að síður breytir
hún í engu háttum sínum og
rólegu fasi.
Með brosi á vör, ekki hvers-
dagslegu, tilbúnu, heldur því
sérstæðrar tegundar, er hin
fullkomnasta gestrisni ein leið-
ir í ljós, rís hún á fætur. er
barið er að dyrum og býður
gestinn velkominn, — jafnvel
hinn allra síðasta gest. er tek-
ur húsráðanda með sér í ferð-
ina dularfullu, serp fyrr og
síðar hefur vakið spuminguna:
Er nokkuð hinum megin? En
þannig hefði ekki þurft að
spyrja Þórdísi — hjá benni
hafði efinn þokað algjörlega til
hliðar fyrir vissunni, þeirri
fullkomnu trúarsannfæringu, að
á bak við hið dularfulla ógagn-
sæja tjald, sem aðskilur líf og
dauða, þar biði annar og full-
komnari heimur. Þessvegna var
heimpóknin' síðasta í hennar
augum kannski hjn allra á-
nægjulegasta, ef ekki hefði
komið til hin takmarkalausa
umhyggja hennar og fórnar-
vilji fyrir maka sinn og skyld-
menni.
Það var lærdómsríkt fyrir
heimiliskunningja að fylgjast
með viðbrögðum hinnar elsku-
legu húsmóður, sem að síðustu
treysti sér ekki til að rí.sa úr
sæti og fagna gestum sínum
við heimsókn.
Brosið var óbreytt, og að-
spurð um heilsu var allt i lagi
— hún þurfti bara að fara svo-
lítið varlega, yfir engu var
kvartað, sízt eftir að öllum var
ljóst að ört dró að ævilokum.
Efalaust hefur hugsunhennar
1M &+
B. Kjartansson
Fáein kveðjuorð
Fyrir nokkrum dögum bár-
ust mér þau hörmulegu tíð-
indi, að skólabróðir minn,
Kjartan B. Kjartansson lækn-
ir, hefði látizt eftif skammvinn
veikindi. Mig setti hljóðan við
þessa óvæntu harmafregn. Eg
hafði skömmu áður haft óljós-
ar fregnir af veikindum hans,
en vissi ekki gjörla, hversu al-
varlegs eðlis þau voru.
Leiðir okkar K'.jartans lágu
fyrst saman í Menntaskóla
Reykjavíkur og síðan áttum við
samfylgd í læknadeild Háskóla
íslands, allt til lokaprófs í
læknisfræði. I læknadeildinni
tókust með okkur góð kynni.
Kjartan reyndist mjög áhuga-
samur og ágaptur námsmaður,
enda étti læknisfræðin húg
hans. Hann sótti víða
fanga utan námsbókanna. At-
hygli fians en jafnframt gagn-
rýni á það, sem hann las, var
skörp. Hann var ódeigur í orð-
ræðum við okkur námsfélaga^
---------------------------------
Þriðjungur allra
olíubirgða heims
í Sovétríkjunum?
i
MOSKVU 24/5 — Það’ kann að
koma í ljós að meira en þriðj-
ungurinn af öllum olíubirgðum
heims sem enn eru í jörðu sé í
Sovétríkjunum, sagði Valentín
Sjasjin olíumálaráðherra dag.
Hann kvað miklum fúlgum verða
varið til þess að nýta 300 nýjar
olíulindir fyrir ársíok 1970 þeg- !
ar yfirstandandi fimm ára áætl-
un lýkur. Olíuframleiðslan
myndi aukast um 20—22 milj- j
ónir lesta á hverju ári á tíma- j
bilinu 1966—1970, 1
sína, rökvís í betra lagi, fylg-
inn sér og varð ekki komizt
upp með moðreyk í orðaskipt-
um við hann, þegar talið
hneigðist eins og reyndar oftast
á þeim árum að aðalviðfangs-
efninu, læknisfræðinni. Oft brá
hann fyrir-sig þurrlegri kýrnni,®-
sem afvopnaði andstæðinginn,
enda hafði hann þar á valdi
sínu hvasst vopn, sem hann
að vísu beitti af hófsemd. Því
fer fjarri, að Kjartan hafi ver-
ið rykfallinn bókao/mur. Hann
kunni vel að meta góðan fé-
lagsskap og hristi gjaman af
sér hversdagsleikann við skál
í kunningjahópi og var þá
jafnan glettinn og spaugsamur.
Það voru glaðir og reifir
sexmenningar, sem luku prófi
á þorra 1960, enda að baki
langt og oft á tíðum strangt
nám og framundan heillandi
starf. Sízt varði okkur þá, að
svo skjótt yrði höggvið skarð í
hóp okkar. Að loknu prófi tvístr-
aðist hópurinn, flestir leituðu
framhaldsnáms. Það lýsir nokk-
uð Kjartani, að hann valdi sér
að viðfangsefni þá grein lækn-
isfræðinnar, sem mannleg þekk-
ing nær hvað skemmst og einna
flestum spurningum er enn ó-
svarað. Víst er, að sú raun
hefur freistað hans, enda minn-
ist ég þess, hversu glaður og
reifur hann var, er fundum
okkar bar síðast saman fyrir
tæpum þremur árum, en þá
hafði hann nýlega tekið þessa
ákvörðun og hafjð starf í sér-
grein sinni. Svo sem vænta
mátti vandaði hann undirbún-
ing fyrir ævistarf sitt sem bezt
og hafði nærri lokið þeimund-
irbúningi, er hann féll svosvip-
lega frá. íslenzk læknástétt er
snauðari en áður, en mestur
harmur er þó að ástvinum
hans kveðinn. Orð mega sín
lítils á slíkum raunastundum,
en þó vildi ég ljúka þessum
fátæklegu kveðjuorðum með
því að tjá konu hans og börn-,
um, foreldrum og öðrum ætt-
ingjum dýpstu samúð mína.
Guðmundur Georgsson.
fetað í fótspor trúarleiðtogans,
sem sagði; Því er gott að taka,
ég. á góða^ heimvon ....
I sögu lands og þjóðar köll-
um við slíka ró æðruleysi gagn-
vart óumflýjanlegum örlögum
hetjuskap, — hver sem í hlut
á.
Það er ekki öllum gefið að
berast mikið á eins og það ^r
orðað — hinn svokallaði nafn-
lausi múgur verður ævinlega
fjölmennastur í sögupni. Eigi
að síður heldur hver einstak-
lingur sínum sérkennum, minn-
isstæður þeim, sem honum
kynntust.
Heimili þeirra Þórdísar og
Jóhanns Guðmundssonar var
ein sú vin í eyðjmörk hvers-
dagsleikans, — ef um hann má
fara svo óvirðulegum orðum —
sem undragott var að hvílast
við.
Þar> réði ríkjum þessi ó-
skilgreinanlega alúð gestrisn-
innar af hálfu beggja húsráð-
enda sem gerði hið vistlega
heimili þeirra svo aðlaðandi.
Þessvegna gat ein kvöldstund
á heimili þeirra verið svo ótrú-
lega mikils virði. Sá, semeinsk-
is virðist krefjast sjálfum sér til
handa í önn dagsins, sá. sem
leggur fram alla krafta sína
líí’sförunautum sínum til hag-
sa'ldar til hinztu stundar,
skyldi hann fyrirfinnast lengur
í velferðarþjóðfélaginu og öllu
kapphlaupinu um lífsgæðin?
Ekki er mér kunnugt um
einn eða neinn. sem hræsnis-
laust á skilið þann dóm að
leiðarlokum, að erfitt muni
reynast að fyrirfinna fullkomn-
ari gerving fórnarviljans en
I’órdísi Albertsdóttur.
Stundum lítur sannleikurinn
út eins og hræsnin einber —
sérstaklega er maðurinn er
kvaddur hinztu kveðju. Eigi að
síður skal hann hér sagður,
kunnugir vita, að hér er ekki
ofsagt.
Mætti ég ekki að síðustu
segja það, sem daglega er okk-
ar feimnismál að votta virð-
ingu og þakklæti mitt og konu
minnar til þessarar samferða-
konu okkar, sem - hitti okkur á
förnum vegi gekk með okkúr
tiltölulega stuttan spöl — vákti
aldrei á sér athygli með há-
vaða og búmbuslætti, tranaði
sér ekki fram umfram verð-
leika — í stuttu máli: lifði lífi
sínu í ró og kyrrð, helgaði þáð
umhyggju sinna nánustu, —
mætti ég að leiðarlokum fyrir-
okkar hönd flytja inniJegustu.
þakkir fyrir stutta en elskulega
samfylgd.
Maka hennar og systrum,
sem eftir standa, vottum við
innilegustu samúð.
Sigurbjörn Ketilsson.
laust embætti
er forseti íslands veitir,
Héraðslæknisembættið í Reykhólahéráði er laust
til umsóknar. Laun samkvæmt hinu almenna launa
kerfi opinberra starfsmanna og staðaruppbót sam-
kvæmt 6. gr. læknaskipunarlaea np 43/1965. Um-
sóknarfrestur til 25. júní 1966. — Veitist frá 1.
júlí 1966.
í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
25. maí 1966.