Þjóðviljinn - 26.05.1966, Page 10
!
b
I
Geng/ð um Krlsuvikurbjarg
Fuglar, egg
og urðarhörn
I nágrenni höfuðborgarinn-
ar er fjölskrúðugt fuglalíf —
fjölskrúðugra en marga grun-
ar. — Þó eru margir Reyk-
vikingar áhugasamir fugla-
skoðarar og fuglavinir.
Bezti tíminn til fuglaskoð-
unar er á vorin, þegar
farfuglarnir koma í stórum
hópum, setjast á haestu hús
og trén í görðunum — eða
í fjöruborðið, — hvíldar þurfi
eftir langferðina yfir hafið.
Vorið líður og varptíminn
hefst. — Reykvíkingar þurfa
ekki endilega að fara iangt
til að fylgjast með heimilis-
lífi fuglanna. — Til dæmis
verpir svartbakur í Esjunni,
kría á- Seltjarnarnesi, æður-
in á Álftanesi og hettumáv-
urinn sömuleiðis. Hreiður þess-
ara fúgla er auðvelt fyrir
hvem og einn að finna, og
þótt ýmsir hinnasmærri fugla'
séu lagnari við að fela sín
hreiður, þá finnast þau líka
með þolinmæði og eftirtekt.
Og ef einhvern langar til
að fylgjast með svartfuglin-
urn þá má benda á Krísu-
víkurbjarg, sem er paradís
fuglanna, og einmitt þangað
lögðum við leið okkar. dag
einn fyrir skömmu í veðri
eins og bezt gerist á íslenzku
vori.
Við göngum hægt niður
Krísuvíkurhraunið og virðum
fyrir okkur svipbrigði hrauns
og landslags — hlustum á
fuglana syngja. — Allt í einu
skýzt rjúpa úr gjótu fyrir
fótum okkar. — Fleiri fela
sig í hraungjótum á þessum
stað en rjúpan, — lágfóta
læðist hér um stigu, — hér
býr hún við konungskjör.'
Það er sagt að hrafninn
sé allan varptímann að stela
eggjum — og steli miklu
meiru en hann torgi, og
grafi afganginn — og finni
aldrei aftur. En tófan finnur
eggin, og þegar þröngt er í
búi verða þau henni til bjarg-
ar, — og trúi ég að seint
þrjóti eggin á Berginu.
Og mitt í þessum hugleið-
ingum nærri hnjótum við um
Rússajeppa niðri í einum
hraunbollanum. Þegar við
svipumst um sjáum við tvær
þústur í mannsmynd bogra í
urð skammt frá, og þeg-
ar komið er nær sést aðþetta
er versti óvinur rebba —
„maðurinn með eldprikið"
— grenjaskyttan. Við færum
okkur nær, heilsum og tök-
um skytturnar tali.,
Þetta reyndust vera þeir
Guðbjörn Guðmundsson tré-
smiður og ísólfur Pálsson frá
Isólfsskála,' þekktar grenja-
skyttur. Kváðust þeir hafa
legið á greninu í sólarhring,
skotið kvendýrið og náð
þrem yrðlingum, vita með
nokkurri vissu um tvo yrð-
linga í viðbót í greninu og
hugðust ná þeim. — Karl-
dýrið höfðu þeir hvorki heyrt
' \
ísólfur til vinstri og Guðbjörn til hægri, með yrðlingana Iitlu í fanginu.
MYNDIR
OG
TEXTh
Jóh.
Eiríksson
Guðbjörn Iiggur á greninu og kallar á yrðlingana, en tófan k
iiggur helskotin hjá.
né séð, en ætlan þeirra var
að bíða þess — bjuggust þeir
við að ná þvi þá um nóttina. k
Aðspurðir sögðu þeir þess- I
ar veiðar útheimta mikla þol- b
inmæði og þrautseigju — en
spennandi eru þær sagði Guð-
björn, sem er búinn aðstunda
þetta í uro tuttugu ár,
Yrðlingarnir voru hinir
sprækustu og bara fallegir,
sakleysislegir og vinalegir,
með einstaklega greindarleg
augu, ekki ólíkir móleitum
kettlingum — en þeir félag-
ar sögðu þá fljóta að breyt-
ast og fyllast grimmd.
Tófan, sögðu þeir félagar,
á þetta fjóra til fimm yrð-
linga, flesta meðan hún er
ung, en slappast í bameign-
unum eftir því sem aldurinn
færist yfir hana.
Aðspurðir sögðust þeir fé-
lagar eiga eftir að leita grenja
þar í fjöllunum í kring og
allt ögmundarhraun. Guð-
björn leitar auk þess Laugar-
dal i Árnesþingi á hverju
vori. Töldu þeir félagar
þetta að líkindum vera með
fyrstu grenjum sem ynnust á
þessu vori og vonuðust eftir
því að vinna mörg enn — og
það vonum við með þeim, þótt
hálft í hvoru kenndum við í
brjóst um urðarbömin smá.
Síðan kvöddum við þessa
harðgerðu og veðurbitnu menn
og gengum áfram út á bjarg,
Eggin sem krummi felur
þama í vor finnast kannski
aldrei meir.
Karlakórinn Vísir
syngur í Reykjav.
□ Karlakórinn Vísir frá Siglufirði kom nýlega til lands-
ins úr 12 daga söngför til Danmerkur, þar sem hann söng
víða og við ágætar undirtektir.
□ Karlakórinn er nú að leggja upp í söngför til Reykja-
víkur og nágrennis og syngur í félágsheimilinu Stapa í
Njarðvíkum og á annan í hvítasunnu og á þriðjudagskvöld
í Gamla Bíói í Reykjavik. í þessari ferð syngur kórinn
einnig inn á hljómplötu fyrir Fálkann.
Kona dettur í
strœtisvagni
Síðdegis í gærdag datt eldri
kona í strætisvagninum Njáls-
götu Gunnarsbraut. þegar vagn-
inn var að aka eftir Njálsgöt-
unni og marðist konan við fall-
ið í gólfið. Strætisvagninn stöðv-
aðist á mótum Njálsgötu og
Frakkastígs og beið eftir sjúkra-
bifreig og var konan flutt á
Slysavarðstofuna.
Laus hverfi
KÓPAVOGUR:
Kársnes I
. Hringið í síma 40753.
Þjóðviljinn.
í ferðalaginu til Danmerkur
hélt Karlakórinn Vísir sérstaka
söngskemmtun fyrir Carlsberg í
þakklætisskyni fyrir það að
Carlsberg sjóðurinn gaf út
þjóðlagasafn séra Bjarna Thor-
steinssonar 1909. í verki þessu
eru nær 300 sönglög og er það
uppselt fyrir löngu og hefur
komið til tals, að Carlsberg
endurprenti útgáfuna.
Kórinn kemur til Reykjavík-
ur á föstudagskvöld og á efnis-
skrá tónleikan-na eru lög eftir
innlenda og erlenda höfund-a:
Karlakórinn Vísir var stof-n-
aður 1924, en stjómandj er nú
Gerhard Sehmidt. sem ráðinn
var kennari við Tónlistarskóla
Siglufjarðar 1961. Einsöngv-arar
með kómum eru Guðmundur
Þorláksson, Sigurjón Sæmunds-
Gerhard Schmidt
son og Þórður Kristinsson og
sóló-kvartett skipa Guðný Hilm-
arsdóttir Guðmundur Þorláks-
son, Magðalena Jó-hannesdóttir
og Marteinn Jóhannessan. Hljóð-
færaleikarar með kómum eru
Eílías Þorvald-sson, Gerhard
Schmidt, Jónmundur Hilmars-
son, Tómas Sveinbjörnsson og
Þórhallur Þorláksson.
íslenzka kvenna-
sveitin sigraði
dönsku sveitina
í fimmtu umferð opna flokks-
ins sem spiluð var á þriðjudags-
kvöld á Norræna Bridgemótinu
urðu úrslit þessi: Noregur II-ls-
land I 147-39 6—0. Island II —
Svíþjóð I 152-56 6—0. Svíþjóð n
— Finnland II 120-94 6—0. Finn-
land I — Danmörk I 75-107 0—6.
Danmörk II — Noregur I 90-96
2—4.
Staðan í opna flokknum er nú
þannig: Noregur 1048-714 50,
Svíþjóg 852-1008 27 ísland 843-
908 26, Danmörk 930-923 25 og
Finnland 914-1036 23.
1 kvennaflokki urðu úrslit í
annarri umferð þessi: Danmörk
— Sviþjóð 76—151 0—6. Island-
Noregur 81-182 0—6. Finnland
sat hjá. — Þriðju umferð í
kvennaflokki lauk þannig: Finn-
land-Noregur 205-127 6—0. ís-
.land—Danmörk 135—96 6—0.
Svíþjóð sat hjá.
■Islenzka kvennasveitin komst
upp í þriðja sætið með því að
vinna dönsku sveitina í þriðju
umferð.
í gærkvöld var spiluð 6. um-
ferð í opna flokknum og í
kvennaflokki 4. umferð 1. t>g 2.
hálfleikur.
Þrjú frönsk herskip heim-
sæk/a Reykjavik í lok maí
Dagana 27. til 31. maí n.k.
heimsækja Reykjavík þrjú
frönk herskip undir stjórn
Salmons aðmíráls. Skip þessi
eru frá franska sjóhemum,
„Marine Nationale Francaise".
Nöfn skipanna eru: ,.Sureouf“,
,,Bouvet“ og Le Picard“
Tvö hin fýrrnefndu eru tund-
urspillar 2.750 tn. 13o metrar
á lengd og 13 metrar á breidd.
,,Sureouf“ er sérstaklega útbú-
ið sem aðmírálsskip, og var tek-
ið í þjónustu flotans árið 1955.
,.Bouvet“. sem tekið vax í
þjónustu 1956. er búið vopna-
kerfj bæði til loftvama Qg fyr-
ir sjóorustur.
,,Le Picard“ er hraðskreiður
tundurspillir, 1.290 tn og 100
m á lengd Qg 10.30 m á breidd.
Skjpið var tekið í þjónustu
1956.
Áhafhir þessara þriggja skipa
eru samtals 821 maður.
Almenningur mun fá taeki-
færj til þess að skoða skipin
,,Bouvet“ og ..Le Picard'- 28.
og 29. maí eftjr hádegi báða
dagana.
Finnskir sósíaldemókratar
ósammála um stjórnarstefnu
HELSINKI 25/5 — Þingflokkur
sósíaldemókrata í Fjnnlandi sam-
þykkti í dag með 35 atkvæðum
gegn 13 það uppkast að stefnu-
skrá nýrrar rikisstjómar sem
formaður filokksins, Rafael Paa-
sio þingforseti, hefur samið.
Stefnuskráin er samin með til-
liti til þess að stjómaramstarf
takist með venklýðsflokkunum
þremur Miðflokknum.
Fyrjr hádegi í dag höfðu allt
í ein,u orðið hortur á að fyrir-
hugað ' stjómarsamstarf færi út
um þúfur. Framkvæmdastjóm
sófííaldemókrataflokkeins felldi
þá stefnuskráruppkastið me^ 6
gegn 4 atkvæðum. Þar sem
þingflokkurinn oa framkvæmda-
stjómin eru á öndverðum meið
verðú,- að leggja málið fyrir
19. var frestað,
MOSKVU 25/5 — Nítjándu skák-
inni í einvígi Spasskís og Petro-
sjans um heimsmeistaratitilinn
var í dag frestað um tvt> daga
vegna lasleika heimsmeistafans.
Eftir átján skákir er staðan
Petrosjan 9,5 og Spasskí 8,5. I
þeim fimm skákum sem eftir eru
að tefla arf Petrosjan aðeins að
fá 2,5 vinning til að halda titlin-
um. en Spasskí verður að fá 4
vinninga til að öðlast hann.
Gerið skii
Munið aft gera skil í kosn-
ingahappdrætti Alþýðubanda-
Iagsins f.rrir helgi svo að hægt
sé að birta vinningsnúmerin.
Tekið á móti skilum á skrif-
stofunni í Tjamargötu 30.
miðstjórn flokksjns og kemur
hún saman á morgun til að
fjalla um það.
Fastlega er gert ráð tyrir að
'hún munj samþykkja típpkastið.
svo að hin nýj,a samsteypu-
stjóm verðí mynduð einhvem
næstu daga. Fyrr í dag höfðu
bæði Miðflokkurinn Qg Lýðræð-
isbandalag kommúrrista og
vinstrisósíalísta samþykkt upp-
katið, en símonítar taka afstöðu
til þess 4 morgun.
Smjörsalan
eyksf
Þjóðviljinn snéri sér í gær
til forstjóra Osta- og smjör-
sölunnar, Sigurðar Benedikts-
sonar, og innti hann eftir þvi
hvaða áhrif verðlækkunin á
smjörinu hefði haft á sölu
þess.
Forstjórinn sagði, að enn
væri of stuttur tími liðinn frá
því verðið var lækkað til þess
að hægt væri að segja um
það með nokkurri vissu, hvort
hún hefði orðið til þess að
auka smjömeyzluna í land-
inu. Hins vegar væri það Ijóst
að sala á smjöri hefði aukizt
verulega frá því sem áður
var, hvort sem það stafaði af
neyzluaukningu eða „hömstr-
un“.
Þá sagði forstjórinn að enn
mundi óráðið hve langan tíma
smjörið yrði selt á þessu lága
verði.