Þjóðviljinn - 28.05.1966, Side 4
4 SÍBA — ÞJÓBYILJINTí — Laugardagur 28. maí 19«6.
Otgefaixli: Sameixjlngarflokkur alþýðu — Sásialistaflokk-
urinn. ,
Ritstjórar: Ivax H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Siguróur GuOmundsson.
Fréttaritstjóri: Siguröur V. E'riðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorva’dur J<"'annesson.
Ritstjórn. afgreiósla, auglýsingar. prentsmiðja Skóiavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 tínur). Áskriftarverð kr. >5.00 á' mánuði.
Menn en ekki vé/ar
l\Ju um skeið hafa ýmsar undirnefndir verið að
störfum á vegum verklýðsfélaga, atvinnurek-
enda og stjórharvalda, til þess að rannsaka og
reikna ýmsa þætti sem að gagni • mega koma í
væntanlegum kjarasamningum. Þar er vafalaust
fjallað Um breytingar á þjóðarframleiðslu og þjóð-
artekjum, greiðsluþol ýmissa atvinnugreina, verð-
bólguþróunina, breytingar á kaupmætti launa og
þar- fram eftir götunum, og er vonandi að öll sú
könnun auki mönnum nytsamlegan fróðleik og
stuðli að vaxandi raunsæi. Hins vegar skyldi eng-
inn ímynda sér að unn’t' sé að leysa stéttabarátt-
una af hólmi með aukinni tækni í tölvísi eða að
rafeindaheilar muni senn koma í stað verklýðs-
samtaka og atvinnurekendafélaga og skila óve-
fengjanlegum niðurstöðum sem allir megi vel við
una, eins og einn af frambjóðendum Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykja-
vík, Þórir Kr. Þórðarson guðfræðiprófessor, virt-
ist ímynda sér er hann sagði í viðtali við Morgun-
blaðið tveimur dögum fyrir kosningar: „Tæknin
leysir hirta slagorðakenndu verkalýðsbaráttu af
hólmi, en það hefur víst gerzt í Hollandi (!)“
Tækni og tölvísi eru aðeins hjálpartæki, en það
sem sker úr um þróunina er enn sem fyrr mann-
legur vilji, stefnufesta og bará’tta íklædd holdi og
blóði. Vjð erum sem betur fer énn manrieskjur
en ekki vélar, meira að segja Hollendingar!
J^egar verklýðssamtökin voru stofnuð á íslandi
fyrir hálfri öld var það ekki aðeins tilgangur
beirra að tryggja verkafólki tímabundnar kjara-
bætur, heldur settu þau sér það mark að breyta
bjóðfélaginu; hugsjónir sósíalismarts um þjóðfé-
lag réttlætis og * jafnaðar voru í fyrirrúmi. Það
takmark á nú að vera þeim mun nær verklýðs-
samtökunum sem þau eru öflugri en nokkru sinni
fyrr. Hin voldugu alþýðusamtök mega aldrei
sætta sig við það hlutskipti að taka aðeins við
árangri af útreikningum sem miðast við þær for-
sendur að þjóðfélagsbyggingin megi ekki hagg-
ast; öllu heldur ber verklýðsfélögunum að ganga
svo langt í kröfum sínum að það sem úrelt er og
rotið fái ekki haldizt við. Þótt einhverjir langlærð-
ir útreikningsmenn sanni til dæmis með tölum
að sumar atvinnugreinar rísi nú ekki undir kjara-
bótum, er sú staðreynd ekki röksemd gegn málstað
verkafólks. heldur krafa um bæ'tt stjórnarfar. Við
skulum ekki gleyma því að stjómarvöldin miklast
nú af því að ísland sé eitt af mestu velmegunar-
ríkjum veraldar; séu lífskjör launamanna ekki í
samræmi við þá staðreynd ber að breyta þeim.
TT'n breytingar fást aðeins með lifandi bará’ttu;
ekki með því að bíða eftir útreikningum og
varpa öllum áhyggjum á forustumenn, hversu
ágætir sem þeir eru. Verkafólk mun nú sem fyrr
ná beim árangri einum sem það vinriur fyrir sjálft
með starfi og athöfnum. — m.
Þórunn Ástríður Björnsdóttir
25/3 1895 — 9/5 1966
Margan gamlan Hafnar-ís-
lending setti hljóðan við þá
fregn að Þórunn Ástriður
Bjömsdóttir væri látin eftir
skamma sjúkrahúsvist. Hún fór
ung af landi burt, giftist Jóni
Helgasjmi, síðar prófessor, vor-
ið 1923 og átti síðan heima í
Kaupmannahöfn til dauðadags,
að undanskildu árinu 1926—27
þegar maður hennar var kenn-
ari við háskólann í Osló.
Þórunn var dóttir merkis-
bóndans Björns Bjarnarsonar í
Grafarholti og konu hans,
Kristrúnar Eyjólfsdóttur frá
Stuðlum í Reyðarfirði; hún var
alin upp i rammíslenzku and-
rúmslofti aldamótakynslóðar-
innar og hvikáði aldrei frá
þeim arfi sem hún hafði úr
föðurhúsum. Enda þótt hún
lifði mestan hluta ævinnar f
framandi landi hélt hún fast
við sitt íslenzka hugarfar, sína
íslenzku afstöðu til flestra
hluta, varð aldrei heimamaður
í Kaupmannahöfn í eiginlegum
skilningi. Heimili hennar var
alla tíð hluti af íslandi þótt
á erlendri grund væri.
Sú gestrisni sem lengi þótti
góðúr siður á þessu landi var
henni í blóð borin; heimili
hennar stóð sífellt opið íslend-
ingum, og þeir voru margir
sem þangað leituðu, þó að er-
indi væru oft ekki brýnni en
þau að komast eina kvöldstund
í íslenzkt andrúmsloft þar sem
allur heimilisblær kom gestum
til að gleyma því að þeir væru
staddir fjarri ættjörð. sinni.
Þórunn skildi vel hvers virði
þetta gat verið ungu fólki, og
sjaldan var hún glaðari en í
miðjum hópi ungra gesta.
Atvikin höguðu því svo að
ég var heimagangur á heimili
Þórunnar um nær tuttugu ára
skeið, frá því að ég kom þar
fyrst ungur stúdent og fram
yfir síðustu stríðslok, og varð
þannig einn af mörgum sem
,áttu. jjenni fneiri þakkarskuld
upp að inna en tekizt hefur
að gjalda, En gestrisni hennar
og góðvilji var ekki af því
tagi sem ætlast til endurgjalds.
Þórunn gerði aftur á móti aðr-
ar kröfur til æskumanna, þó
að hún léti þær ekki ávallt
uppi berum orðum; hún ætlað-
ist framar öllu til þess að þeir
yrðu landi sínu og þjóð nýtir
menn. Enda þótt hún væri hlé-
dræg að eðlisfari og frábitin
því að láta á sér bera á nokk-
urn hátt, gat hún verið ákveð-
in í skoðunum þegar hún ræddi
um menn og málefni við þá
sem henni voru kunnugir. Hún
fylgdist mjög vel með öllu sem
fram fór hér á landi og var
ómyrk í máli um margt sem
henni þótti ganga úrskeiðis og
þá menn sem brugðust vonum
hennar í því sem henni þi,i
máli skipta. Jafnt sýndar-
mennska sem undirlægjuháttur
var eitur í hennar beinum;hún
var stolt vegna þjóðar sinnar
og þoldi ekki að því stolti væri
misboðið, hvorki af íslending-
um né öðrum.
Þórunn var trygglynd kona
og sleit ekki vináttu við þá
sem farnir voru burt frá Kaup-
mannahöfn þó stundum liði
langt milli endurfunda. En
margir gamlir Hafnar-Islend-
ingar heimsóttu ávalit þau
hjón þegar leið þeirra lá um
Kaupmannahöfn og fengu pá
sömu góðu viðtökur og áður.
Nú er þar skarð fyrir skildi.
Svo mjög sem vinir Þórunnar
mega sakna hennar er þómeiri
harmur kveðinn að manni henn-
ar og1 börnum, sem miklu gjör
mega vita hvers þau hafa
misst. En þau eiga samúð
mannmargs hóps þeirra sem
áttu því láni að fagna að telja
Þórunni til vina sinna. Sá hóp-
ur geymir minningu hennar í
þakklátum huga.
Jakob Benediktsson.
★
Hér hef ég setið við sólar-
lagsglugga minn meðan vestur-
loftið hrannast fögrum skýjum
og stef skálds míns endurómar
í þessari þögn — stefið um
leið móti Ijósi, hinztu sól við
haf, burt úr heimi, og vakna
nú upp endurminningar og
birtir fyrir hugskotsaugum, og
mynd síðan fyrrum kemur
fram eins og á tjaldi,
méð ýmsum svipbrigðum (en
aldrei lítur hún á mig, hvað
veldur?) og hún er svo fríð
og felur í hverju sínu svip-
-------------------------------^
Minningarorð
SOFFIA BECK
Þann 22. maí andaðist Soffía
Beck húsfreyja i Keflavík. Hún
var fædd 22 marz 1896 í Litlu-
Breiðuvík í Reyðarfirði, dóttir
Hólmfríðar Sigurðardóttur og
Þorvaldar Beck bónda þar.
Árið 1920 gjftlst hún Jóhanni
Ólafssyni sjómanni frá Reykja-
vík, sem þá eins og fleiri Sunn-
Jendingar stundaði sjóróðra yf-
ir sumartímanii á Austfjörðúm.
Þeir hafa eflaust verið margir
fleiri en Jóhann, sunnlenzku
sjóararnir sem tóku meira með
sér en bátshlutinn einan þeg-
ar heim var snúið, en fáir hafa
verið fengsælli tn hann. Soffía
Beck var bæði falleg og mynd-
arleg stúlka en þó umframallt
góð stúlka í fyllstu merkingu
þess orðs, enda hvers manns
hugljúfi. Hennar milda bros
vermdi og hlýjaði eins og sól-
argeislinn. Þá væri gaman að
lifa ef eiginleikar hennar og
reyndar margra annarra henni
likra væri allsráðandi. Það
væri góður heimur.
Þau hjónin mjmduðu heimili
í Keflavík og bjuggu þar unz
leiðir skildust.
Mann sinn missti Soffía
fyrir fimm árum/ og sú eina
dóttir sem þau eignuðust er
búsett úti í Ameríku, svoein-
manaleg hafa þau verið henni
síðustu árin; þó efa ég ekki
að kunningjahópurinn hafi létt
henni róðurinn.
Meiri hlutann af búskapar-
ámm sínum vann Soffía úti
auk heimilisstarfa, þvi bóndi
hennar gekk aldrei heill til
skógar. Þó ég þekki ekki þá
atvinnurekéndur i Keflavík,
sem hún vann hjá, þá er ég
sannfærður um að þeir hafa
ekki þurft að kvarta undao
handtökunum hennar. Ég læt
svo þessum kveðjuorðum lokið.
Vertu blessuð, kæra vinkona
og frænka, hafðu beztu þakkir
fyrir löngu liðnar ánægjustund-
ir frá æskuárunum. — Samúð-
ar kveðjur fylgja þessum lín-
uni til dótturinnar og systkina.
Einar Andrésson.
brigði sénstakt ágæti, Qg ekki
laust við að þar sé I bland ei-
lítið spé.
Nú þykist ég skilja hver hún
var —r það gerist stundumþeg-
ar langt er um liðið að þá
skilst betur.
Huldukona var hún í húsi
sínu úti við vatnið og átti sér
töfur — á þeim staf kunni
hún slík tök að enginn vissi
að hún færi með hann, en fyrr
en varði birti manni óskiljan-
lega fyrir augum og veröldöll
fríkkaði, og þar sem borgin
gat áður verið köld og dauí
eyðimörk útlendum einstæðingi,
fór nú eins og segir í kvæði,
að þar „spruttu rósir ævarandi
og loguðu glaðir eldar hvert
sem litið var“. Eftir þetta verð-
ur hver stund stutt, tækifærin
ótalmörg, borgin heillandi,
sjúkleiki léttbær, sjúkrahús
ekki fangelsi heldur þolanleg-
ur dvalarstaður, og auðvelt að
gjalda brosi og góðu geði hvað-
eina — líka það sem leggja
hefði mátt út á verri veg. Þetta
gerði hún fyrir mig. Ég ætla
að taka af því eitt dæmi.
Við gengum einu sinni sam-
an um garð þar sem allt stóð
i blóma í þessu sólsæla blæja-
logni á síðsumri. Þá gerist það
að blómskrautið skiptir um
svip (töfurinn!) og fær á sig
yfirbragð þess urtagarðs sem
María mey gætir væntanlega
á hirnni sínum og gat ég þá
ekki orða bundizt um að fagur
þaétti mér garðurinn enda væri
víst vel að honum hlúð.
En Þórunn Björnsdóttir var
þá nýkomin úr ferðalagi um
þau héruð — Skaftafellssýslur
— þar sem ekki þarf til að
hlúð sé að garði, þvi það hér-
að, sá skrúðgarður er fullkom-
inn gerður af náttúrunni og
svipmeiri hverjum garði «4
mannahöndum gerðum, og
fannst henni færra um Have-
selskabets Have en mér. Enda
átti ég 'engan- staf-fheð urtdtif'-*‘
samlegu bliki á /oddinum —
ég var víst tómhent næsta.
Svona getur huldukona og
galdra verið máttug, og mikil
er heimska manns og vanþakk-
læti að gleyma þassu nokkurn-
tíma, þessari auðlegð á vöxt-
um, því birtan af töfri henn-
ar dofnar ekki. með tímanum,
heldur dreifist víðar og víðar,
um Island allt, aftur í aldir,
fram eftir öldum. Varla hefur
hún vitað þetta sjálf, eða hélt
hún að hún væri nokkuð annað
en Þórunn Bjömsdóttir. ættuð
af Islandi, húsfreyja á Kjær-
strupvej 33?
En það er engu að síður
satt.
Lét hún mig njóta þess að
ég var íslendingur? Eða óvanda-
bundinn ættingi manns henn-
ar? Eða sýndi hún öllum hina''
sömu alúð, hina sömu fögru
kurteisi, þeim sem hún annars
skipti sér af? Fór hún þá ekki
heldur i manngreinarálit? Lík-
lega ekki, nema hún hafi met-
ið sjúkan mann og éinstæðan
og lítils ’ megandi ekki lægra
fyrir það. Einu skýt ég inn i:
hún hafði þunnt eyra fyrir
tungutakj ílenzks fólks
(mitt var ugglaust vont, svo
ekki naut ég þess). Ég held
hún hafi haldið móðurmál sitt
vera það dáindi og þann dýr-
grip að því mætti ekki mis-
bjóða, ekki fremur en hún
hefði viljað láta bræða upp og
steypa í annað mót skartgripi
sína forna, sem fyigt höfðu ætt
hennar í mgrgar aldir og einn-
ig nafni, sem hún bar ekki
sjálf, heldur systir hennar og
svo dóttir.
Ekki • þarf til að maður sé
andaður að hann verði óhand-
samlegur sem ljós ef honum
skal lýsa í orðum, lifandimenn
skreppa undan penna manns
engu síðúr og það er sama þó
til eigi að tjalda öllu lýsing-
arorðaflóðinu, sem til er í mál-
inu, svo gott sem það annars
er, jafnvel því verr geti tekizt
til sem fleiri orð eru höfð. Og
ætla ég þetta raunar óvinnandi
verk.
Það er kristins mannsskylda
og venja að vera stúrinn við
andlát og jarðarför og setja
þá ýmsir á sig þann svip sem
•jbykir við eiga, — siimar kóftör
gráta og kallast grátkonur. En
hver stund sem líður er um
leið orðin mianing,, og, ^ejgs
er hver maður, hann er minn-
ing um leið og hann hverfur
þér. Sú minning getur verið
björt og því skyldi þá vera á-
stæða til hryggðar? Minningin
um\ Þórunni er björt og hún
hryggir ekki neitt, ekki
svíður undan henni heldur.
Ekki mig. Samt get ég- ekki
að því gert að fyrir mér hefur
ekki vakað annað fremur síöan
ég heyrði lát hennár en línur
þessar úr kvæði eftir skáld
sem þreyði hið síðasta skamm-
degi ævi sinnar í Kaupmanna-'
höfn, og orti hann þetta kvaeðí
um látna höfðingskonu:
. . . þú brosir
og burtu snýr.
Kvöldgustar kula.
Málfríður Einarsdóttir.
ÚTGERÐARMENN!
Gúmrnikidbuu
kraftblakkarhjc
Vönduð vinna
Fljót afgreiðs1
GÚMMÍVINNUSTOFAN H.K
Skipholti 35, Reykjavík - Símar 31055 og 30688
A
4
1