Þjóðviljinn - 28.05.1966, Page 10
■•'Tjwrr"
lö SlBA — i’JÖÐVTLJlNN — Laugardagur 28 .maí 1966.
WILLIAM MULVIHILL
IFLUGVÉL I
HVERFURI
6em var reiðubúid til að láta
tortíma sér fyrir ytri tákn mun-
aðar og þjóðfélagsaðstöðu.
Hann fór til Suður-Ameríku
og reyndi áð finna gleymsku í
villtu og eirðarlausu lífemi, en
varð leiður á latnesku lundemi
og fór aftur til Bandaríkjanna.
Þar var ekkert fyrir hann að
gera. Hann neitaði að vinna.
Honum fannst það tilgangslaust
af miljónamæringssyni að vinna;
það var þarflaus fyrirsláttur.
Honum leiddust stjórnmál;samn-
ingamakk þótj;i honum óþolandi;
hann hafði engan áhuga á vin-
sældum. Loks ráku leiðindin
hann til New York, þar sem
hann flæktist í samkvæmislíf og
kauphallarbrask. Hann lifði
villlu lífi og pressaði hvern ein-
asta dag eins og sítrónu, sem
hann fleygði síðan frá sér. Hann
átti tvaer ástmeyjar, sem vissu
ekkd hvor um aðra, og stóð í
vafasömum athöfnum. Honum
ægði ekki tilhugsunin um lygar
pg svindl. Allt var eintómt grín.
'í'átækt skildi hann ekki. og auð-
aevi heilluðu hann ekki; og að
kaupa og selja ósýnileg hluta-
bréf með eignarrétti á ósýnileg-
um og dauðleiðinlegum atvinnu-
rekstri, var í augum hans leik-
ur fyrir fullorðið fólk. Og það
var svo auðvelt að vinna. Þú
taldir sjálfum þér trú um að
þú myndir vtnna, þú fjarlægðir
áhættuna og heppnin var með
þér. Hann átti fjármagnið og
dirfskuna, aðrir höfðu sambönd-
in, og hann þekkti smugumar
og brögðin. Hann græddi pen-
Inga. Honum þótti gaman.
Nokkrum sinnum fór hann til
Evrópu dvaldist vetrarlangt í
Evrópu, reyndi nýtt umhverfi.
Eitt sumarið var hann í Italíu
Hárqreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinn on Dódó
Laugavegi 18, III. hæð (lyfta)
SÍMI 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968.
DÖMUR
Hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10, Vonarstrætis-
megin — Sími 14-6-62.
Hárgreiðslustoía
Austurbæiar
Maria Guðmundsdóttir
Laugavegi 13 Simi 14-6-58.
Nuddstofan er á sama stað.
og hitti stúlku, sem sagðist hafa
gengið í Vassar, og hann tók
hana með sér til Cannes og
Biarritz. Árin liðu. Hann var
myndarlegur rikur og hafði full-
ar hendur fjár, en hann var
ekki hamingjusamur. Þetta var
allt svo auðvelt
IV.
Grimmelmann var að sofna;
hann lá í mjúkum sandinum
inni í hellinum og þar var svalt.
Hann var að hugsa um Sturde-
vant og eyðimörkina; hann fór
aftur að hugsa um Herero-strið-
in.
22
Þau voru smánarblettur á
hvita manninum, eins og allar
styrjaldir við frumstæðar þjóðir.
Og sökin var hans, ekki föður-
landsins. Hann hafði drepið fólk
að tilefnislausu.
Allar prusturnar, allar her-
fesðimar runnu saman í minn-
ingunni, brot úr dögum og nótt-
um með þorsta og skelfingu.
Einu sinni tóku þeir stóran krók
í áttina að landamærum Bachu-
anlands til að reyna að hindra
flótta mörg hundruð Herero-
manna með búpening sinn. Þeir
höfðu ekki séð einn einasta ó-
vin. Þeir höfðu verið fimm vik-
ur á steppunni án þess að sjá
nein merki þeirra. Þá var það
jem einhver hafði komið auga á
nokkra frumbyggjakofa, heimili
sem minntu á býkúpur, gerð úr
þymóttum greinum og leir. Þeir
höfðu kveikt í þeim og haldið
leiðar sinnar, en þungur reykur-
inn hafði fylgt þeim eftir og
þeim hafði Drðið illt, og þeir
höfðu allir kastað upp í heitan
sandinn þegar þeir reyndu að
flýta sér burt.
Það var aldrei nóg að borða.
Ef þeir hefðu haft nægan mat,
hefði herferðin ekki verið sem
verst, því að þeir voru ungir
menn. ákafir og sterkir. Með
réttu mataræði, hefðu margir
hinna sjúku lifað þetta af og
hinar hefðu þraukað lengur. Þess
i stað fengu þeir pönnukökur
gerðar úr hveiti og vatni, sem
var mjólkurlitað, af kalki eða
rammt af söltum. Einstaka sinn-
um. þegar uxi gafst upp vegna
þreytu, ferigu þeir nýtt kjötið.
Dýrunum var slátrað og kjötið
étið áður en það skemmdist, en
enginn hafði neina ánægju af
matnum. vegna þess að kjötið
var alltpf nýslátrað.
Þetta var undarlegt stríð
gegn óvini sem var næstum allt-
af ósýnilegur. . Jafnvel könnun-
arflokkarnir og búarnir á hest-
baki sáu lítið til þeirra. Alltaf
æddu þeir eftir sandinum í leit
að óvinum sem þeir sáu aldrei,
og höfðu ekki annað til saka
unnið en að vera svartir og eiga
góðan búpening sem þeir vildu
ekki láta af hendi. Þýzka stjóm-
in hafði gert kröfu um allt land-
ið og sl»ipað HererD-þjóðinni að
gjalda skatt í formi búfjár.
Herero-þjóðin neitaði. Það varð
stríð.
Á morgnana var svalt enn og
þeir þrömmuðu yfir grasið. Svo
kom sólin upp og þeir siluðust
eftir sandinum, venjulega þrjú-
fjögur hundruð mgnna og tutt-
ugu til þrjátíu vagnar. <jregnir
af uxum, sem börðust við flug-
urnar og hina þungu byrði. Ein-
kennisbúningamir rifnuðu í tætl-
ur á þyrnunum; ódýru stígvélin
þomuðu og sprungu Dg fóru að
liðast í sundur. Allir vom orðn-
ir eins: gisið skegg á ungum
gamalmennisandlitum, andlitum
sem vom tærð og gul. ’Jakkarn-
ir vom óhreinir. Þeir hirtu ekki
byssurnar. Allir voru með ígerð-
ir eftir bymastungur. Stundum
fór einhver að gráta og enginn
gat stöðvað hann. Sjálfsmorð
komu fyrir.
Loks beindist styrjöldin að
einu einasta vatnsbóli. Þar sló í
reglulegan bardaga og HererD-
stríðsmenrtirnir skutu á þá með
byssum. sem þeir , höfðu rænt,
og réðust á þá með spjótum og
kylfum. Þeir sigruðu. Hinir inn-
fæddu hörfuðu austur á bóginn
með konur sínar og böm og hú-
fé; heil þjóð á flótta yfir auðn-
ina eins og gyðingarnir á flótta
undan reiði Faraós.'
Þeir fleygðu sér útaf í sand-
inn og sofnuðu innanum dauða
og særða. Liðsforingjar og ó-
breyttir veinuðu, en þeir lágu í
sandinum og létu sem þeir væru
dauðir. Um morguninn grófu þeir
fjöldagröf og borðuðu morgun-
verð. Daginn eftir söfnuðu þeir
saman hestunum og þeir sterk-
ustu voru sendir til riddaraliðs-
ins. Þeir elta Hereo-þjóðina.
Það var ekki erfitt.- Stígurinn
sem þeir notaðu á undanhald-
inu var hundrað metra breiður.
Þeir héldu eftir honum á veikum
hestunum og fljótlega rákust
þeir á ýmislegt, sem flóttamenn-
imir höfðu losað við sig; skart-
gripi, ónýt vopn, jámkrukkur
og alls konar verkfæri. sem þeir
höfðu hirt frá þýzkum bændum.
Þeir rákust á menn sem höfðu
látizt af sárum, sem þeir höfðu
hlotið við vatnsbólið. Þeir komu
að mönnum sem sáta og störðu
á þá sljóum augum — karla,
konur og böm nær dauða en
tífi af þorsta og örvílnun. Og
alls staðar dautt og deyjandi
búfé. sum dýrin óð af hita og
þorsta, tryllt og hættuleg. Dauð-
ir hundar, dauðir hestar. Smá-
böm. Og hið versta af öllu: kon-
ur sem sátu eða lágu í sandin-
um. sumar lifandi aðrar dauðar
með lifandi böm í fanginu ....
Deyjandi þjóð. Ódaunn og
flugur og kálfar sem bauluðu á
mæðurnar. Um miðjan daginn
komu þeir að fyrsta vatnsbólinu,
en Hereo-fólkið hafði fyllt það
af líkum og hræjum. Þeir drógu
upp skrokkana einn af öðimm,
en að því loknu var ekki eftir
nema ögn af blóðugu vatni á
botninum. Þeir grófu dýpra í
sandinn. Ekki neitt. Sandurinn
var of heitur til að leggjast í
hann. Það var ekkert fóður
handa dýrunum. Þeir urðu að
halda áfram og rákust á hóp
af eldgömlum konum. Þær sátu
í hring og störðu á einhverja
hluti úr þeini sem voru fyrir
framan þær. Ein þeirra reyndi
að biðja bæn. en það kom ekk-
ert hljóð, þótt varimar bærðust.
1 annað skipti stóð ungur pilt-
ur með spjót á stígnum fyrir
framan þá. Þeir skuta á hann,
en þeir voru ríðandi og of veik-
burða til að halda byssunum
stöðugum," og þeim tókst ekki
að ráða niðurlögum hans. Tylft
af skotam, tvær tylftir, piltur-
inn stóð enn og beið. óskaddað-
ur. Mennirnir fóru að hlæja,
hrópuðu húrra. Þeir lögðu frá
sér rifflana. Þá steig liðsforingi
af haki, gekk til móts við piltinn
með skammbyssu sína, miðaði
vandlega og skaut. Pilturinn féll.
Óráðshláturinn hætti; þeir héldu
áfram.
Piaslmo
PLASTMO
Ryðgar ekki
þolír seltu og sót
þarf aldrei að móla
Plast
þakrennur og
niðurfallspípur
fyrirliggjandi
þórður ,
sjóari
VORUTRYGGINGAN
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRS
LINDARGÖTU 9 • REYKJAVtK -SÍMI 22122 — 21260
LEDURJAKKAR
RÚSKINNSJAKKAR
fyrir herra
fyrir drengi
Verð frá kr. 1690,00 '
VIDGERDIR
LEÐURVERKSTÆÐI
ÚLFARS ATLAS0NAR
Bröttugötu 3 B
Sími 24678,
Leðurjakkar - Sjóliðajakkar
a stúlkur og drengi. — Terylenebuxur, stretch-
buxur. gallabuxur og peysur
GÓÐAR VÖRUR - ^OTT VERÐ
4763 — Um borð em allir ánægðir og áhyggjulausir. Milli
Stanley og Þórðar hefur ekki aðeins tekizt innileg vinátta, held-
ur hefur Stanley þarna líka eignazt frábæran kennara. Nú fyrst
skilur hann hve lítið hann veit í raun og veru um skip og sigl-
ingar og hve mikið þarf að Kunna til að geta t.d. tekið þátt í
siglingakeppni. — Nú ætlar hann að keppa við fyrsta tækifæri
og notfæra sér aukna reynslu og kunnátta.
Verzlunin Ö.L.
Traðarkotssuodi 3 ■'móti ÞjóðleikhúsinuT-